Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Side 12
12
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
Skoðun
I>V
Spurning dagsins
Eru íslendingar almennt
opnir?
Þóröur Andri Hrannarsson nemi:
Já, mér finnst íslendingar almennt
þægilegt og skemmtilegt fólk.
Margrét Sigurbjörnsdóttir
tónlistarkennari:
Nei, ekki nema á pöbbnum
eftir fjögur glös.
Kristján Karlsson, vinnur hjá
Vegagerðinni:
Já, þeir eru almennt
skemmtilegt fólk.
Ragnheiöur Arnarsdóttir nemi:
Já, þaö eru þeir yfirleitt.
Daníei Kristjánsson bíistjóri:
Já, bara svona temmilega.
Hörður Jónsson, vinnur á hóteii:
Já, þeir eru hressir og kátir.
Dagfari
Flóra bætiefna og vítamína er stór.
- / mörgum þeirra eru bitar úr grófum höfrum, hnetum ásamt vítamínum.
Of dýr vítamín
Skarphéðinn
Einarsson
skrífar:
Þaö er ekki
fyrr en á allra síð-
ustu árum sem ís-
lendingar hafa átt
greiðan aðgang
að ýmsu hollum
vörum er stuðla
að góðri heilsu,
t.d. vítamínum og
ýmsum matvör-
um. Þó eru lýsi
og fleiri bætiefni
aðgengileg í Bón-
usverslunum og víðar. Sérstaklega
vörur frá Lýsi hf. og á skaplegu
verði. Lýsi er óumdeilanlega hollt,
og hélt íslenskum sjómönnum gang-
andi er þeir reru til fiskjar á opnum
skipum hér áður. Þá var lýsið fleytt
með skel af efsta laginu í lifrartunn-
um er stóðu undir berum himni.
í dag er flóra bætiefnanna stór.
Sumir segja að ýmis bætiefni sem
vöðvatröllin nota sé „trjásag". En
holl matvara er öllum til bóta. í
Bretlandi hefur fyrirtækið Weetabix
lengi framleitt morgunverð sem í
eru bitar úr grófum höfrum o.fl.
„Ég hef bragðað pitsur í
Bretlandi frá þekktum
aðilum sem nota amerísk
nöfn. Slikir staðir hér á
landi ná ekki sömu gceðum.
Ástæðan er einföld. Þeir
nota ekki hveiti frá Banda-
ríkjunum eða Kanada. “
ásamt vítamíni. íslendingar sem
gist hafa bresk hótel þekkja þessa
vöru. Nú er einnig á boðstólum frá
þessu fyrirtæki ný vara sem nefnist
„frutibix. Þar er um að ræða hnetur
og rúsínur ásamt vítamínum. Þessi
nýja vara hefur náð miklum vin-
sældum hjá Bretum, Frökkum- og
víðar um Evrópu.
Á Islandi er þessi vara fáanleg og
þá á 100% hærra verði en annars
staðar. Hér í Reykjavík þarf líka að
eyða miklum tíma i að fmna hana,
því fáar verslanir hafa þær tii sölu
(t.d. „frutibix"). Ekki veit ég ástæð-
una. En ég las hins vegar athygli-
verða grein í bresku blaði um vöru
af þessu tagi, þar sem fram kom að
læknar töldu að þeir sem neyttu
slíkrar vöru væru síður líklegir til
að fá krabbamein. Ástæðan var ert-
in í ristli og meltingarfærum.
En sannarlega hafa orðið vatna-
skil í neysluvenjum á íslandi. Fólk
kaupir gróf brauð í dag, en þau áttu
ekki upp á pallborðið hér áður. Og
talandi um brauð. - íslendingar eiga
úrvalsbakara, en hveitið sem er not-
að hér á landi kemur frá Danmörku
og myndi henta betur sem svínafóð-
ur. Ég hef bragðað pitsur í Bret-
landi frá þekktum aðilum sem nota
amerísk nöfn. Slíkir staðir hér á
landi ná ekki sömu gæðum. Ástæð-
an er einfold. Þeir nota ekki hveiti
frá Bandaríkjunum eða Kanada.
íslenskir verksmiðjubrauðgerðar-
menn sem ráða stærstum hluta
markaðarins hér ættu að leggia á
hilluna hið danska „svínafóður"
sem ég kalla svo og nota hveiti frá
vesturheimi. Þá fyrst er hægt að
tala um gæðavöru.
Póstútburður í Sjálfsbjargarheimilið
Ibúi í Hátúni 12
skrífar:
Hús okkar er tvískipt. Annars
vegar er Sjálfsbjargarheimilið (B-
álma) og hins vegar við, sem leigj-
um hér (C-álma). Leiguhæöirnar
eru 4 og 9 íbúðir á hverri hæð. Það
er eðlilegt að húsverðir sjái um
póstútburð á Sjálfsbjargarheimilið,
en einnig að íslandspóstur beri
hann beint til okkar. Heimilismenn
eru ekki með póstkassa en við (leigj-
endurnir) í C-álmu erum öll hvert
með sinn póstkassa.
Við sem búum í leiguíbúðunum
fáum ekki sendan ómerktan póst
(þ.e. ýmsa bæklinga um tilboðsvör-
ur o.fl.) frá þeim fyrirtækjum sem
skipta við Islandspóst. Ég er marg-
Fyrirtœkin segjast borga ís-
landspósti fyrir að dreifa
bœklingunum, en íslands-
póstur segir að blaðberar
þurfi ekki að bera út póst-
inn á hœðimar (hver íbúð
er með póstkassa á gangin-
um við sínar dyr). “
búin að hringja, bæði til fyrirtækj-
anna og íslandspósts. Fyrirtækin
segjast borga íslandspósti fyrir að
dreifa bæklingunum, en íslands-
póstur segir að blaðberar þurfi ekki
að bera út póstinn á hæðirnar (hver
íbúð er með póstkassa á ganginum
við sínar dyr). íslandspóstur segist
því ekki eiga að bera út póst (sem
búið er að borga fyrir að bera út) í
fjölbýlishús, þar sem ekki eru póst-
hólf á 1. hæö.
Það er þvi spuming fyrir fyrir-
tækin, hvort þau vilji ekki heldur
skipta við keppinautana í dreifmgu.
Vilji fólk ekki fá þennan póst getur
það bara merkt kassann sinn og þá
lætur bréfberinn ekkert í hann I
blokk nokkurri í Breiöholti (all-
stórri) eru póstkassar fyrir hverja
hæð á einum stað og fara blaðberar
á hverja hæð og eru þær þó innan-
húss. Kannski búa engir öryrkjar
þar, og þess vegna sé pósturinn bor-
inn upp á hæðimar.
Afrek Stormskers
Þvilíkt sem íslenska þjóðin getur verið
lánsöm að eiga Sverri Stormsker. Ekki er
nóg með að hann hafi markað spor sín í sögu
lands og lýðs með alveg hreint stórkostlegum
tónlistarverkum sínum, svo ekki sé nú talað
um sönginn, heldur hefur hann nú bjargað
því að þjóðinni gefst að nýju kostur á að
kjósa Ástþór Magnússon sem forseta lýðveld-
isins. Já, þvílík náð að eiga slfkan bjargvætt
sem Stormsker er.
Sverri Stormsker hefur tekist hið ótrúlega,
að fá hinn feimna og hlédræga Ástþór til að
gefa kost á sér að nýju, sem verður að teljast
einstakt afrek, enda Ástþór lítt gefmn fyrir
sviðsljósið og vill frekar vinna sín verk utan
kastljósa fjölmiðlanna. En Ástþór telur eins
og Stormsker að svo mikilvægt sé að hann
fari í forsetaframboðið að öllu megi fóma,
jafnvel fjölskylduböndum.
Þótt sumum kunni e.t.v. við fyrstu skoðun
að finnast aðkoma Stormskers að þessu máli
undarleg og jafnvel skondin ættu menn að
staldra við og hugleiða hvað hér er á ferðinni og
hverju Stormsker hefur áorkað. Þótt hann hafi
veriö fyrsti maðurinn til að tjá sig um það opin-
berlega að Ástþór eigi ekki möguleika á að sigra
Ólaf Ragnar í kosningum hefur Stormsker barist
Sverrir Stormsker.
fyrir því að Ástþór geti sest niður með forsetan-
um í sjónvarpsviðtölum og fái athygli annarra
fjölmiðla. Tala á um frið og ekki annað. Friður
hefur um árabil verið helsta áhuga- og baráttu-
mál Stormskers eins og ávallt hefur einkennt all-
ar hans gjörðir og athafnir og nú hefur hann
att Ástþóri út í það forað að berjast vonlausri
baráttu við Ólaf Ragnar. Ástþór á í staðinn að
tala við forsetann um friðarmál og Friöur
2000 á eflaust til nóga peninga til að kosta
húllumhæið. Menn láta sig hafa ýmislegt fyr-
ir athyglina.
Þótt þjóðinni blöskri það að þurfa að horfa
upp á þetta og greiða fyrir það tugi milljóna
króna gefur Stormsker lítið fyrir slikt, og
kallar það brandara að fólk horfi í kostnað-
inn. Sú nafngift kemur þó úr hörðustu átt.
Meginbrandarinn í þessu öllu saman er að
það skuli hafa verið Sverrir Stormsker af öll-
um mönnum sem fyrst og fremst er valdur að
því að forsetakosningar verða á íslandi árið
2000. Það næstfyndnasta er að menn skuli
geta valið sér hugðarefni og farið með það eitt
sem markmið í forsetaframboð að fá að ræða
það mál. Sér einhver fyrir sér að Sverrir
Stormsker detti eitthvað í hug fyrir forsetakosn-
ingamar 2004 og dragi þá á flot einhvern sem
hefði t.d. áhuga á að gera frímerkjasöfnun að
helsta máli kosningabaráttunnar. Nú, eða þá að
Sverri dytti sjálfum í hug að fara í forsetafram-
boð, sem myndi auðvitað slá allt út. ^ ^ .
íslendingasög-
urnar á tjaldið
Ragnar skrifar:
Það var meira en mál til komið að
einhver tæki fyrir íslendingasögurn-
ar sem kvikmyndaefni og á ég þá við
þessar helstu og vinsælustu sögur og
gerðar alvörumyndir en ekki einhver
figúruskapur eða ömurleiki eins og
tíðast hefur verið raunin um gerð
mynda af svipuðum toga hér. Ég
fagna því að Friðrik Þór Friðrikssyni
hefur verið falið að stjórna þessu
verki. Hann á ærið verk fram undan
í þessu efni ef hann hefur áhugann.
Ég hef oft nefnt við kunningjana að
af nógu er að taka, t.d. úr íslenskum
þjóðsögum; huldufófkssögur, sk-
rýmsla-, drauga- og útburðarsögur.
Ég fagna frumkvæðinu.
Dagpeningar umfram þarfir?
- Umræöan hefur opnast á ný.
Dagpeningar
þingmanna
Árni Einarsson skrifar:
Ég hlustaði á þátt Egils Helgason-
ar um helgina þar sem forsetaskatt-
arnir voru til umræðu. Pétur Blöndal
alþm. minntist á fleiri þætti, svo sem
dagpeninga þingmanna og annarra
opinberra embættismanna. Hann
sagðist stundum koma með 50 þús.
kr. af dagpeningum sínum í vasanum
til baka. Hann er sagður gefa þessa
peninga til hjálparstofnana. Þing-
kona Samfylkingar brá skjótt við í
þætti Egils og sagði þingmenn nú
ekki alla fara mikið til útlanda. Og
málið var tekið af dagskrá! En um-
ræðan hefur opnast og nú eiga fjöl-
miðlar leik. Hvaða þingmenn skila
afgangsdagpeningum?
Bestur í fréttum
Þórðlfur hringdi:
Ekki fer á
milli mála að
bæði Sjónvarp-
ið og Stöð 2 eru
sjónvarpsstöðv-
ar sem búnar Bestu fréttir á
eru að missa af Skjá einum?
strætisvagninum Líflegir og fróölegir
hvað fréttir varð- pistlar sem sjást
ar eftir að Skjár ekki annars staðar.
einn tók við sér í———————.
fréttaflutningi.
Þar eru mun líflegri og oft fróðlegri
pistlar um eitt og annað en hjá hinum
stöðvunum. Ég minnist t.d. pistils á
Skjá einum um umfjöflun í breskum
blöðum af eiginleikum lýsis sem
krabbameinshamlandi og var farið
nákvæmlega út í ýmsa þætti þessa
máls. Sama er að segja um flest ann-
að sem Skjár einn tekur fyrir, það er
ferskara og bryddað upp á efni sem
ekki er minnst á hjá hinum. Dagskrá
Skjás eins er líka verulega fjölbreytt.
Ásatrúarmenn
og kristnihátíð
Signý skrifar:
Ég er nú ekki hissa þótt forsætis-
ráðherra sé ekki ólmur að veita þeim
ásatrúarmönnum frítt aðgengi að
kristnihátiðinni á Þingvöflum. Þetta
er ekki hátið ásatrúarmanna heldur
okkar hinna sem teljum okkur krist-
in. Það á ekkert að vera að snobba
niður á við í þessum efnum. Því
halda þeir ekki sína eigin hátíð, á
Þingvöllum hvar sem er annars stað-
ar, á öðrum tíma? Ég ætla ekki tfl
Þingvalla verði ásatrúarmenn þar á
sama tíma. Það veit Guð.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í stma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverhofti 11,105 ReykJavík
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.