Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Qupperneq 13
13
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
DV
Tónlist
Afmælistónleikar
Söngsveitin Fílharmónía hélt
veglega upp á fjörutíu ára afmæli
sitt í gærkvöldi meö tónleikum í
Háskólabíói þar sem hún haföi
fengið til liðs við sig Selkórinn af
Seltjarnarnesi og Sinfóniuhljóm-
sveit íslands. Bernharður Wilkin-
son hefur stjórnað kórnum síðan
1996 og er auk þess aðstoðarhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníunnar og var
því á tvöfóldum heimavelli sem
stjórnandi tónleikanna í gærkvöldi.
Á efnisskrá voru tvö verk, hið
fyrra Sinfonia Sacra eftir pólska
tónskáldið Andrzej Panufnik, sú
þriðja í röðinni af átta. Verkið var
samið í tilefni af þúsund ára afmæli
ríkis og kristni í Póllandi og er
byggt á elsta sálmi sem til er á
pólsku, Bogurodzica, gregorískum
einradda kirkjusöng sem var jöfn-
um höndum notaður sem ákall til
Maríu meyjar og til að hvetja
pólska riddara til dáða í orrustum.
Þessi atriði endurspeglast í verkinu
sem hefst á hátíðlegum lúðrablæstri
sem var i öruggum höndum
trompetleikaranna Ásgeirs Stein-
grimssonar, Eiríks Amar Pálsson-
ar, Einars Jónssonar og Guðmund-
ar Hafsteinssonar. í skarpri and-
stæðu við lúðraþytinn tekur við
mjúkur og angurvær partur
strengjasveitarinnar sem var einnig
mjög vel leikinn. Slagverkið opnar
svo þriðja hlutann þar sem blásið er til orrustu og
hljómsveitin tekst á í kraftmiklum kaíla. Sálmur-
inn hljómar svo himneskur á eftir þessum áta-
kakaíla, stigmagnast og nær hámarki í lokin þeg-
ar trompetarnir koma aftur inn i glæsilegum endi
sem var magnaður í flutningi hljómsveitarinnar
þamiig að jaðraði við þriðja stigs gæsahúð.
Síðara verkið á tónleikunum var verk Þorkels
Sigurbjörnssonar, Immanúel, fyrir blandaðan kór,
einsöngvara og hljómsveit, sérstaklega samið fyr-
ir söngsveitina í tilefni afmælisins og einnig í til-
efni af kristnitökuafmæli og má því segja að vel
hafi farið á því að velja þessi tvö verk saman á
tónleikana. Texti verksins er fenginn úr Bibli-
unni, valinn af herra Karli Sigurbjömssyni, auk
þess sem hann lagði til texta frá eigin brjósti út frá
stefmu „Immanúel, Guð er með oss“. Verkið er í
DV-MYND ÞÖK
Söngsveitin Fílharmónía, Selkórinn og Sinfóníuhljómsveit íslands
Söngsveitinni er óskaö til hamingju meö afmæliö og vel heppnaða tónleika.
átta köflum og gerir töluverðar kröfur til kórsins
og einsöngvara sem voru Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir og Bergþór Pálsson, með „erfiðum" tónbil-
um og hárri legu fyrir sópran á sumum stöðum og
djúpri fyrir bassa á einum stað í níunda hluta þar
sem þeir fara alla leið niður á E að mér skilst.
Ég get ekki sagt að verkið hafi snert mig sem
heild þó að sumar hendingar og vissir þættir
gerðu það - til dæmis upphafið þar sem tónlistin
náði að fanga fallegan textann og fyrri hluti
dramatísks fjórða kaflans sem komst vel til skila í
tilfinningaþrunginni túlkun Ólafar. Sjötti þáttur
var einlægur og öruggur í meðfórum Bergþórs og
tíundi kaflinn þar sem textinn er fenginn úr 23.
Davíðssálmi „Drottinn er minn hirðir“ var hrif-
andi fagur enda stendur Þorkell feti framar öðrum
í sálmalagagerð. Aftur á móti voru þættir sem
hljómuðu ekki eins sannfærandi, til dæmis „Efa-
semdaraddir frá kórnum" sem komu eins og
skrattinn úr sauðaleggnum og þriðji þáttur „Ef
Guð er með oss“ virkaði losaralegur líkt og vant-
aði stöðugleika milli hljómsveitar og kórs - og þá
á ég ekki við flutninginn. Hendingar fengu líka á
stundum snubbaralegan endi. Svo olli mér von-
brigðum að fá ekki að heyra stærri og viðameiri
hljómsveitarpart en sveitin var í dálitlu aukahlut-
verki fyrir utan intróið í sjöunda þætti sem var
prýðilegt áheyrnar. Reyndar lék hljómsveitin afar
vel í höndum Bernharðs í því sem hún hafði úr að
moða. Kórinn og einsöngvarar stóðu sig einnig vel
og var öryggið sett á oddinn og ekki ástæða til
annars en að óska söngsveitinni til hamingju með
vel heppnaða tónleika og afmælið.
Arndis Björk Ásgeirsdóttir
Leiklist
Pað er Bjartur í okkur öllum
Það er fróðlegt að kynnast
því hvemig breski leikstjór-
inn Charles Way og leikhóp-
urinn New Perspectives hafa
nálgast söguna um Bjart í
Sumarhúsum og hans fólk.
Leikgerðin, sem ber einfald-
lega nafnið Independent
People, er farandsýning og
hefur að sögn hlotið ágætar
undirtektir áhorfenda þar
sem hún hefur verið sýnd í
þorpum og bæjum Miðaustur-
Englands. Er ekki líka svolft-
ill Bjartur í okkur öllum,
hvort sem við erum fædd hér
eða þar?
Það fyrsta sem manni dett-
ur í hug er hvort efnistökin
verði nú ekki allt önnur en sú
inngróna mynd, sem við höf-
um í áranna rás komið okkur
upp af lífsbaráttu og þrá-
hyggju Bjarts, mynd sem fyrir
löngu er meitluð í þjóðarsál-
ina. Og hvemig sjá útlending-
ar fyrir sér kotið í heiðinni,
volæðið og baslið, þar sem
barist er til þrautar við
grimm náttúruöflin hvem einasta dag?
Jú, í stuttu máli sagt er leikgerðin sögunni
trú og áherslumar aðeins sjónarmun frá því
sem teljast má hefðbundin sýn okkar heima-
manna á framvinduna. Þó að sýningin sé aðeins
um tveggja tíma löng tekst að pakka sögunni
saman í kringum persónu Bjarts, sem er þunga-
miðjan í verkinu, þannig að furðumargt skilar
sér og það er enginn vandi að vera sáttur við út-
komuna þegar upp er staðið.
Þó að óliku sé saman að jafna, stórsýningu
Þjóðleikhússins og þessari, er oft drepið niður
fæti á svipuðum slóðum í sögunni þannig að
Mick Strobel, Catherine Neal, Geoff Gibbons og Helga Vala
Séra Guðmundur er aö gifta Bjart og Rósu. Rauösmýrarmaddaman
sjálfur sögukjarninn skilar sér með líkum
hætti. Það er frekar í ytri búnaði sýningarinn-
ar, svo sem fatnaði persónanna og hjarðbýlis-
legu umhverfi og þó ekki hvað síst í óvæntu
sjónarhomi á kímnina í verkinu, sem áherslu-
munurinn verður áberandi.
Leikhópurinn er skemmtilega samansettur af
þremur íslenskum leikurum og þremur bresk-
um. Kannski hafa landarnir í og með átt sinn
þátt i því að skapa Bjarti það yfirbragð, sem
hann hefur í verkinu. Hann er í senn íslenskur
þvergirðingur stiginn beint út úr sögunni og
furðu alþjóðlegur. Gott ef ekki brá fyrir rúss-
neskum keim í túlkuninni.
Mick Strobel fann sig vel í
hlutverkinu. Hinar persón-
urnar hverfast um hann og
leikararnir vinna undan-
tekningarlaust vel úr hlut-
verkum sinum. Geoff
Gibbons sem er hávaxinn
maður lék meðal annars
Nonna sem lítinn strák og
fórst það frábærlega vel.
Kostagimbrin Gullbrá, kýr-
in Búkolla (Páll Sigþór Páls-
son) og tíkin Títla (Ragn-
heiður Guömundsdóttir)
gerðu sitt til að gefa sýning-
unni létt yfirbragð og lögðu
sitthvað til mála, en þar fyr-
ir utan léku þau Páll og
Ragnheiður með prýði m.a.
hlutverk Ingólfs Amarsonar
og Ástu Sóllilju. Helga Vala
Helgadóttir var fin í hlut-
verki Hallberu gömlu og
hún lék líka Rósu og gerði
hana þéttari fyrir en oft
áður. Catherine Neal var
__________ heimskonuleg í hlutverki
Rauðsmýrarmaddömunnar.
Sviðsmyndin er einföld, og það sniðugasta
við hana er hvernig áhrifshljóðin eru hreinlega
gerð sýnileg í bakgrunni. í heild er þetta ásjá-
legasta sýning og verulega ánægjulegt að fá
hana hingað til lands.
Auður Eydal
New Perspectlves Theatre Company sýnir I Möguleik-
húsinu: Independent People eftir sögu Halldórs Lax-
ness. Leikmynd og búnlngar: Sarah Salaman. Leik-
gerö og lelkstjórn: Charles Way. Sýningar veröa í
kvöld, laugardags- og sunnudagskvöld.
DV-MYND TEITUR
Helgadóttir
fylgist grannt með.
___________________Menning
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir
Stefnumót
við tímann
Listahátíð í Reykjavík 2000 verður sett
í Þjóðleikhúsinu kl. 13.30 á morgun. Bjöm
Bjamason menntamálaráðherra setur há-
tíðina sem er þrítug í ár og haldin í 16.
sinn. Dagskráin er fiölbreytt, með leiklist,
dansi, tónlist, arkitektúr og bókmenntum,
og henni lýkur með hátíðartónleikum í
Laugardalshöll 8. júní þar sem Sinfóníu-
hljómsveit íslands og einsöngvararnir
Rannveig Fríða Bragadóttir, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Kristján Jóhannsson og
Kristinn Sigmundsson flytja óperuaríur
og dúetta undir stjórn Giorgio Croci.
[bla&lií
nrinniiaimimiKAj^ ra
28. mai - S. jiti 2080
Leikhústónlist
Á opnunarhátíðinni verða fyrstu tón-
leikar Tónskáldafélags íslands í annarri
tónleikaröðinni sem félagið efnir til á
þessu menningarári með tilstyrk Menn-
ingarborgarinnar. Tónleikarnir bera yfir-
skriftina „Hvert örstutt spor“ og þar
verða rifiuð upp sönglög sem frumflutt
hafa verið á íslensku leiksviði cdlt frá
aldamótum. Tónlistarstjóri er Jóhann G.
Jóhannsson og umsjón með dagskránni
hefur Guðjón Pedersen en flytjendur eru
söngvararnir og leikararnir snjöllu, Edda
Heiðrún Backman, Marta Guðrún Hall-
dórsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdótt-
ir, Jóhann Sigurðarson, Ólafur Kjartan
Sigurðarson og Örn Ámason.
Við opnunina verða veitt verðlaun í
smásagnasamkeppni Listahátíðar árið
2000. Ríkisútvarpið býður verðlaunin í til-
efni af 70 ára afmæli sínu og verðlauna-
sögumar koma út í bókinni Stefnumót á
vegum Vöku-Helgafells.
Leikhústónleikamir verða endurteknir
í Þjóðleikhúsinu á þriðjudaginn, kl. 20.30.
Nýr heimur
IG. 16 verður opnuð hin mikla sýning
Nýr heimur - Stafrænar
sýnir í Listasafni
lands sem nánar er sagt
frá í fylgiriti DV i dag
sem jafnframt er sýn-
ingarskrá sýningar-
innar. Kl. 17 verður
framsýning á Auðuni og is-
birninum hjá Islenska dans-
flokknum í Borgarleikhúsinu,
dansverki Nönnu Ólafsdóttur eftir sam-
nefndum íslendingaþætti sem glatt hefur
hjörtu kynslóðanna síðan á 13. öld eða þar
um bil.
Kl. 20 verður sýningin Islands þúsund
ljóð opnuð í Þjóðmenningarhúsinu við
Hverfisgötu. Á að giska helmingur ís-
lensku þjóðarinnar yrkir ljóð svo að
vænta má geysilegrar aðsóknar að þessari
sýningu þar sem ljóð fá að taka sig út á
ótalmarga vegu.
Aziza Mustafa
Zadeh
Á sunnudagskvöldið, kl. 21, verða einu
tónleikar ungrar listakonu frá Aserbaídsj-
an sem sameinar í list sinni klassískt tón-
listaruppeldi, nútíma- og sígildan jazz og
þjóðlagatónlist heimalands síns. Aziza
hefur þegar gefið út fimm geisladiska, síð-
ast diskinn „Jazziza" árið 1997. Seiðandi
rödd hennar nær yfir breitt svið, allt frá
kontraalt upp i sópran, og list hennar er í
senn persónuleg og algild því þó að hún
beri sterkan svip af þjóðemi og persónu-
leika söngkonunnar fiallar hún um leið
um tilfinningar og gildi sem standa okkur
öllum nærri.
Tónleikar Azizu verða í íslensku óper-
unni.
Bókmennta-
hraðlestin 2000
Innan skamms hefst allsérstakt ferða-
lag rúmlega 100 rithöfunda um Evrópu.
Þetta verkefni er skipulagt af Þjóðverjum
og ber heitið Bókmenntahraölestin 2000.
Farið verður um ellefu lönd á sex vikum,
með viðkomu i tuttugu borgum, frá Portú-
gal í vestri til Rússlands í austri, og á leið-
inni kynna rithöfundarnir verk sín, taka
þátt í bókmenntaumræðum og upplestr-
um og kynnast starfsfélögum frá öðrum
Evrópulöndum.
Höfundarnir sem taka þátt í verkefninu
koma frá fiörutíu Evrópulöndum. Einum
íslenskum rithöfundi var boðin þátttaka í
Bókmenntahraðlestinni og varð Einar
Öm Gunnarsson fyrir valinu.