Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Page 25
37
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
DV Tilvera
Dancer in the Dark:
Sitt sýnist
hverjum
um gæði
myndarinnar
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að sú stjarna sem stolið hef-
ur senunni á kvikmyndahátíðinni í
Cannes er Björk sem að allra dómi
hefur slegið í gegn í sinni fyrstu
kvikmynd, Dancer in the Dark. Það
er ekki bara að hún hafl fengið góða
dóma fyrir leik sinn heldur hafa
komið upp á yfirborðið sam-
starfsörðugleikar hennar og danska
leikstjórans Lars Von Trier. Fer
tvennum sögum af þessu samstarfi
en eitthvað mikið hefur gengið á og
hefur þetta orðið til að vekja enn
meiri athygli á myndinni en ella.
Nú er heimsfrumsýningardagurinn
liðinn og komust færri að en vildu á
þær tvær sýningar sem voru í boði.
Nú eru dómar upp kveðnir og sýn-
ist sitt hverjum um gæði myndar-
innar. Eins og skiljanlegt er hafa
þeir dómar sem komið hafa fyrir
augu almennings flestir verið í
frönskum blöðum og eru þeir mjög
lofsamlegir þegar á heildina er litið.
Eini franski gagnrýnandinn sem
var lítt hrifinn var gagnrýnandi Le
Figaro sem sagði meðal annars að
tónlist Bjarkar væri vond. Aðrir
franskir gagnrýnendur eru í skýjun-
um yfír myndinni og þá ekki síst
yfir frammistööu Bjarkar. Hér
fylgja bútar úr þremur virtum
frönskum blöðum:
„Hún (myndin) vakti óumdeilan-
lega tilfinningar hjá fólki, sumir
komust í uppnám og fengu í hnjáliö-
ina en aörir fylltust gremju. Dancer
in the Dark, sem nýtur góðs af
frammistöðu Bjarkar, á möguleika á
að hreppa gullpálmann. Afi minnsta
kosti œtti aöalleikkona myndarinnar
aó hljóta verðlaun fyrir túlkun
sína. “ (Le Parisien)
„Lars von Trier heillar og ögrar.
Aö minnsta kosti á sér eitthvað stað
hjá honum sem er óneitanlega sam-
tímalegt og örvandi. Dancer in the
Dark hefði augljóslega ekki sama
glœsileika ef hinnar einstöku aðal-
leikkonu nyti ekki við. Myndin væri
jafnvel alls ekki til því auk þess að
semja lögin sem hún syngur er Björk
mikil uppspretta áhrifa... Hún ber
uppi myndina meó súrrealískum
þokka. “ (La Libération)
„Lars von Trier, hinn brjálaði vis-
indamaður evrópskrar kvikmynda-
gerðar, safnar saman manngerðum
sem eiga ekkert sameigin-
legt til aó búa til kvik-
mynd. Hann er þeim mun
brjálaðri aó nýta sem
efnivið hœttuleg málefni,
svo sem hvernig menn
nióurlœgja konur og út-
rýmingarherferð nas-
ista...“
Er sýningu fyrir blaða-
menn í Cannes lauk
þöktu vasaklútar gólfið.
Hœfileikinn til aó geta
fengið fólk sem er borgað
fyrir að horfa á kvik-
myndir til að fella tár er
ekki öllum gefinn.
(Le Monde).
Ekki er sama hrifning-
in hjá bandarískum
gagnrýnendum. Gagn-
rýnandi hins útbreidda
bandaríska blaðs Variety
finnur allt aó myndinni
en getur þó ekki leynt
hrifningu sinni á
frammistöðu Bjarkar.
Gagnrýnandi Hollywood
Reporter tekur ekki eins
fast til oróa en er ekki
mjög hrifinn.
„Goðsögnin Lars Von Trier brot-
lendir í Dancer in the Dark, tveggja
og hálfrar klúkkustundar sýnishorni
af sjálfsdýrkun höfundar sem er list-
rœnt gjaldþrot á nœrri öllum svið-
um...“ Áhrifamestu atriði myndar-
innar eru þegar Björk er ein og látin
gera þaó sem hún gerir best, dular-
fullur söngur í eigin heimi.
(Variety).
„Dancer in the Dark er djörf en að
sama skapi aðeins aö hluta til vel
heppnuð tilraun til að búa til fyrsta
dramað þar sem eingöngu er sungió
og dansað... Björk, falin á bak við
svört sólgleraugu, hefur skilning á
hlutverkinu en á það til að ofleika. “
(Hollywood Reporter).
-HK
Björk í Cannes
Þaö leikur enginn vafi á hver er stærsta stjarnan í
Cannes þessa dagana.
Leiðrétting:
Sommelier fær
fimm blóm
Bjork og Catherine Deneuve i Dancer in the Dark
Eitt eru allir sammála um - aö Björk sé góö í hlutverki Selmu.
Skráðu þig til leiks og þú
átt möguleika á glæsilegum
vinningum:
• Ferð fyrír tvo á Formúlu 1
keppnina í Malasíu í boði
kostunaraðila Formúlu 1 á VísiJs
• Tag Heuer-úr að verðmæti
kr. 122.900, í boði Leonard
m
OPIN KEEFIHF
í veitingahúsarýni DV í gær urðu
þau mistök í vinnslu að meðalein-
kunn veitingahússins Sommeliers
var ekki rétt. í töflu sem fylgdi
greininni fékk Sommelier fjögur
blóm en hið rétta er að veitingahús-
ið fær fullt hús stiga eða fimm blóm.
Meðfylgjandi er leiðrétt einkunna-
gjöf veitingahússins Sommeliers.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Naftic Sommelier
Meöaleinkunn
Gæðí r-k
Verö
C 0 Q-
Landsbankmn
Betri banki
Íslandssími ' vísir.