Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000
I>V
Verkamannasambandið á barmi klofnings og „fimmmenningaklíka“ fordæmd:
Virðist vera sláturtíð
- segir verkalýðsleiðtogi. Almennir félagsmenn æfir. Talað um valdarán og gíslatöku
„Þessir menn virðast vera í
sláturtíð," segir Pétur Sigurðs-
son, formaður Alþýðusam-
bands Vestfjarða, um það
ástand sem er innan Verka-
mannasambands íslands í kjöl-
far starfsloka Bjöms Grétars
Sveinssonar, óvirks formanns.
Eins og DV hefur sagt frá var
það Flóabandalagið ásamt Björn
nokkrum formönnum lands- Snæbjörnsson
byggðarfélaga sem stóð aö - í „fimmmenn-
brotthvaríi og starfslokasamn- ingaklíkunni"
ingi við Bjöm Grétar sem og sakaöur um
færði honum full laun í tvö ár. liöhlaup.
Þrátt fyrir að þögn formanns-
ins hafi verið dýru verði keypt
Hervar
Gunnarsson
- sagöur höfuö-
paur „liö-
hlaupanna
Kristján
Gunnarsson
- /' Flóahluta
„fimmmenn-
ingaklíkunnar“.
Sigurður
Ingvarsson
- á í vök aö
verjast í héraöi.
Pétur Sigurös-
son
- sláturtíö.
standa nú öU spjót á
þeim aðUum sem
talið er að hafi bol-
að Birni Grétari út.
Málið er talið hið
alvarlegasta sem
komið hefur upp
innan hreyfingar-
innar og er aUt eins
talið að Verka-
mannasambandið
splundrist.
......... Hvert félagið af
öðru ályktar þessa dagana þar sem
„aðförinni" að formanninum er
mótmælt. Sérstaklega er þar tekið
tU þess að Bjöm Grétar hafi staðið
sig vel í baráttunni um árabU og
verið nýkominn af sjúkrabeði þegar
Hervar og félagar stiUtu honum upp
við vegg.
„Það er mikiU hiti og reiði og ég
man ekki annað eins. Nýtt samband
er í uppnámi vegna þessa, svo ekki
sé minnst á sjálft Verkamannasam-
bandið," sagði þungavigtarmaður
innan VMSÍ sem kýs að haida sig
utan deilnanna.
Valdarán og gíslataka
DeUurnar liggja ekki aðeins í því
að Bjöm Grétar er óvirkur kominn
í þagnarbindindi heldur átti sér
stað það sem menn vUja kalla valda-
rán á framkvæmdastjórnarfundin-
um þar sem samþykkt voru starfs-
lok Bjöms Grétars. Skipað var í
nefnd vegna hins væntanlega sam-
bands og þar var, að sögn, raðað að
frumkvæði Hervars Gunnarssonar
mönnum, tengdum
Flóabandalaginu.
Þeir fimm menn
sem ákveðið var á
fundinum að sætu í
nefhdinni eru Her-
var Gunnarsson á
Akranesi, Sigurður
Ingvarsson á Eski-
firði, Sigurður T.
Sigurðsson í Hafn-
arfirði, Kristján
Gunnarsson í
"™™™" Reykjanesbæ og
Björn Snæbjörnsson á Akureyri.
„Þama var komin fimmmenninga-
klíkan sem ætlar sér öU tök á sam-
bandinu. Menn reiknuðu bara ekki
með því að grasrótin myndi rísa
Björn Grétar
Sveinsson
- þögull sem
gröfin.
gegn þessu valdaráni og þeirri gísla-
töku sem átti sér stað,“ segir heim-
Udarmaður DV. Hann taldi eðlUegt
að landsbyggðarhluti sambandsins
hefði fengið fuUtrúa í nefndina og
þar er Aðalsteinn Baldursson á
Húsavík, formaður Landssambands
fiskverkafólks, helst nefndur.
Melntir liöhlaupar
Reiðin innan
landsbyggðarfélag-
anna beinist ekki
síst gegn þremenn-
ingunum Sigurði
Ingvarssyni, Her-
vari Gunnarssyni
og Bimi Snæbjörns-
syni sem kaUaðir
era liðhlaupar og
sagöir hafi gengið
til liðs við höfuð-
andstæðinginn,
Flóabandalagið. Svo mikU er reiðin
á Austfjörðum aö heimUdir herma
að Sigurði Ingvarssyni sé iUa sætt á
forsetastól Alþýðusambands Aust-
urlands. Almennt standa Austfirð-
ingar með Bimi Grétari sem hóf fer-
U sinn sem formaður á Höfn í
Hornafirði. Þrátt fyrir reiði
Austfirðinga er eftirtektarvert
að harðorðustu ályktanirnar
koma frá verkalýðsfélögum á
Norðurlandi og Vesturlandi.
Háværar kröfur eru um að
„fimmmenningaklíkan“ segi af
sér trúnaðarstöðum innan
Siguröur T. hreyfingarinnar og engin teikn
Sigurösson eru á lofti um að friður muni
- fulltrúi Flóans nást.
/ „fimmmenn- Pétur Sigurðsson á Vest-
ingaklíkunni“. fjörðum hefur að mestu staðið
utan þessara deilna. Hann seg-
ir lífsspursmál fyrir VMSÍ að
Aöalsteinn
Baidursson
- frystur úti.
Halldór
Björnsson
- leiöir sam-
runanefnd.
ná sáttum.
„Menn verða að
átta sig á því hvað
er að gerast og ná
sáttum. Ef einhverj-
ir skilja það ekki er
nauðsynlegt að þeir
beiti skynseminni
og víki af þessum
vettvangi," segir
Pétur og ítrekar að
þrátt fyrir að Bjöm
Grétar hafi verið
leystur frá störfum
sé hann enn for- —
inaður sambandsins.
Halldór Björnsson, fyrrverandi
formaður Eflingar, sem leiðir starf
sameiningamefhdarinnar, lýsti því
í fjölmiðlum í gær að fundað yrði í
nefndinni eftir helgi. Víst er að þar
er vandi á höndum en krafa lands-
byggðarfélaganna er skýr og þaðan
er kallað á breytingar á mannaskip-
an. Á meðan gjömingaveðrið geng-
ur yfir situr Björn Grétar hinn ró-
legasti heima á Hálaleitisbrautinni
- þögull sem gröfin - en hugsar sitt.
-rt
Barn fæddist á
Miklubraut
Hann var að flýta sér í heiminn,
drengurinn sem fæddist á Miklu-
brautinni í Reykjavík, á móts við
Tónabæ, snemma í gærmorgun.
„Klukkan rúmlega 4 fór hún að
finna fyrir þessu og barnið kom í
heiminn klukkan 4.50. Það var meira
að segja þannig áður en sjúkrabíllinn
kom að ég var með símann í annarri
hendinni að tala viö ljósmóðurina
vegna þess að það leit út fyrir að ég
þyrfti að taka á móti sjálfur," sagði
Reynir Ólafur Reynisson, faðir litla
drengsins. Sjúkrabíllinn kom svo
áður en barnið fæddist og flutti Bjarn-
veigu Ágústsdóttur og mann hennar
áleiðis á fæðingardeild Landspítalans.
Þegar sjúkraflutningsmönnum varð
ljóst að snáðinn ætlaði ekki að láta
bíða lengur eftir sér stöðvuðu þeir bíl-
inn og tóku, ásamt föðumum, á móti
baminu. Fæðingin gekk vel og þegar
litli drengurinn var kominn í heim-
inn fór sjúkrabíllinn með fjölskylduna
á fæðingardeildina. Foreldrunum og
drengnum heilsast vel. Hann er þriðja
bam þeirra hjóna, 3035 grömm og 51,2
sentímetra langur. -SMK
Lét ekki bíöa eftir sér. DV-MYND HILMAR ÞÓR
Yngsta barn Bjarnveigar Ágústsdóttur og Reynis Ólafs Reynissonar fæddist á
Miklubrautinni í fyrrinótt. Stóru systkini hans, Sæmundur, 8 ára, og Hrafn-
hildur Rós, tæplega 2 ára, voru ánægö meö nýjasta meölim fjölskyldunnar.
Sterkur grunur um hitasótt í hestum:
Smituðu hrossin voru í hópferð
Svo virðist sem nú séu komin
upp tvö hitasóttarsmit í Hesthúsa-
hverfi Sörla í Hafnarfirði.
„Það er langlfklegast að þama
sé um hitasótt að ræða en auðvitað
má ekki útiloka eitthvað annað,“
segir Sigurborg Daðadóttir, dýra-
læknir hjá Heilbrigðiseftirlitinu,
um veiki sem hefur tekið sig upp
hjá tveimur hrossum í Hesthúsa-
hverfi Sörla í Hafnarfirði.
Hún segist hafa meiri áhyggjur
af þeim tilfellum en öðrum.
„Þessi hross vora nýlega í hóp-
ferð með um 60 hestum og það era
miklar líkur á því að einhver
þeirra veikist líka,“ segir
Hestarnir tveir hafa áður
greinst með hitasótt og það er Ijóst
að hún hefur tilhneigingu til að
endurtaka sig.
„í mörgum þeirra hrossa sem
smitast hafa af sóttinni siðustu tvö
ár hefur
hún tek-
ið sig
upp aft-
ur,“ seg-
ir Sigur-
borg.
Sigur-
borg seg-
ir hita-
sóttina
stinga
sér upp
reglu-
lega og
að hún sé
orðin
hluti af
náttúru-
legu um-
hverfi.
Hitasóttin komin til aö vera
Hitasóttin sem fyrst kom til landsins fyrir tveimur árum
og olli miklum usla er komin til aö vera. Myndin er frá
því sóttin var í hámarki. Hér er knapinn Sigurbjörn
Báröarson aö gefa veiku hrossi AB-mjólk
„Hún er komin til að vera og
fólk verður bara að sætta sig við
það,“
segir
hún.
Að
sögn Sig-
urborg-
ar er tor-
velt aö
greina
hitasótt-
ina, þar
sem ein-
kenni
tilfellin
eru
breyti-
leg.
„Sum
eru með
hita en
“■“——^ sýna
engin önnur merki þess að vera
veik en önnur eru hitalaus en lyst-
arlaus og með slen,“ segir hún.
Hún segir enga leið til þess að
koma í veg fyrir smit en að mikil-
vægt sé að fylgjast með hrossunum
og hlúa vel að þeim.
Landsmót fram undan
„Minna en 1 prósent hrossanna
deyja úr sóttinni og mikill meiri-
hluti nær sér upp úr henni af sjálfs-
dáðum en það er talsverður hluti
sem þarfnast aðhlynningar," segir
Sigurborg.
Landsmót hestamanna verður
haldið á Fákssvæðinu í næsta mán-
uði og það er mögulegt að hitasótt-
in láti á sér kræla þar.
„Þetta er hluti af náttúrulegu
umhverfi og ekki hægt að forðast
þetta. Ég hvet fólk til þess að mæta
á hestamannamótið óhrætt,“ segir
Sigurborg.
-jtr
mzzm
Bóluefni gegn sumarexemi
Rannsóknarátak á sumarexemi í
hrossum hefst í haust. Hópur sérfræð-
inga mun vinna að rannsókninni und-
ir stjórn Sigurbjargar Þorsteinsdóttur
ónæmisfræðings. Unnið verður í sam-
starfi við rannsóknarhóp í Sviss und-
ir stjóm dr. Eliane Marti en hún hef-
ur um nokkurt skeið unnið að rann-
sóknum á þessu sviði. Mbl. greindi
frá.
Ljót skýrsla
Ársskýrsla mannréttindasamtak-
anna Amnesty International, sem
kom út í gær, dregur upp dökka mynd
af ástandi mannréttindamála í heim-
inum. í fyrra var fólk pyntað í 132
ríkjum heims, fólk hvarf í 37 löndum
og í 38 ríkjum voru þegnar teknir af
lífi án dóms og laga. Vísir.is greindi
frá.
Slgur Rós á fjall
I Hljómsveit-
in Sigur Rós
fór til Ísaíjarð-
ar í gær, en
þaðan fer hún
að Látram í
'Aðalvík.
Ætlunin er að kanna aöstæður til
plötugerðar á Straumnesfjalli í júlí, en
eins og áður hefur verið sagt frá,
hyggst sveitin taka upp hluta af nýrri
plötu sinni í gömlu herstöðvarhúsun-
um þar. Mbl. greindi frá
Rólega í kræklinginn
Veiðimálastofnun, Hafrannsókna-
stofnun og atvinnuþróunarfélög víðs
vegar um landið hafa undanfamar
vikur haldið kynningarfundi um
kræklingarækt fyrir væntanlega
ræktendur. í kjölfar fundanna kom til
landsins vanur kræklingaræktandi,
Greg Keith frá Prins Edwards-eyju, og
gaf góð ráð um framtíðina. Mbl.
greindi frá
Ekki bitiö úr nálinni
Aðfaranótt mánudags kom til
harkalegra átaka milli tveggja manna
á Isafirði sem enduðu með því að ann-
ar maðurinn beit af megnið af neðri
vör hins. Sá sem bitinn var hefur leg-
ið á sjúkrahúsi frá því ráðist var á
hann og hafa læknar reynt að gera að
sárum hans.
Engar samúðaraðgerölr
Flugmenn, ílugvirkjar og flugfreyj-
ur hjá Flugleiðum ætla ekki að verða
við beiðni Norræna flutningaverka-
mannasambandsins um aö efna til
samúðaraðgerða vegna verkfalls Bif-
reiðastjórafélagsins Sleipnis. RÚV
greindi frá
Landsvirkjun á Egilsstöðum
Landsvirkjun boðar til almenns
fundar í Valaskjálf á Egilsstöðum í
kvöld kl. 20. Þar verður kynnt tillaga
fyrirtækisins að áætlun um mat á um-
hverfisáhrifum Kárahnúkavirkjunar.
Hreinsunarátak tll svelta
Nýtt umhverfisátak, „Fegurri sveit-
ir 2000“, er hafið. Verkefnið gengur út
á hreinsun á landi og fegrun mann-
virkja með áherslu á sveitir landsins.
Tilgangurinn er að koma i veg fyrir
mengun og minnka slysahættu og
bæta jafnframt ásýnd dreifbýlisins.
Verkefnisstjóri er Ragnhildur Sigurð-
ardóttir.
Stækkun Norðuráls?
Fyrirtækið
Columbia
Ventures, eig-
andi Norður-
áls á Grundar-
tanga, hefur
óskað eftir viðræðum við Landsvirkj-
un um frekari stækkun álversins á
Grundartanga. Framkvæmdastjóri
fjármála- og stjómunarsviðs Norður-
áls segir fyrirtækiö tilbúið að fara út
í slíka stækkun geti Landsvirkjun út-
vegað næga raforku. Aðstoðarforstjóri
Landsvirkjunar segir að takist samn-
ingar um stækkun verði líklega horft
til virkjana á Suðurlandi, ekki síst
Búðarhálsvirkjunar í Þjórsá.