Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Side 6
6
Fréttir
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000
3>V
Byrgið stundar erfiðustu sjúklingana:
Gamla svallbælið
verður að heilsuþorpi
- og fjórir af tíu í áfengi og eiturlyfjum hætta
PV:~KEFLAVÍK:
Rónarnir frá Hlemmtorgi urðu
mörgum minnisstæðir. Nú eru fjöl-
margir þeir best þekktu komnir á
gott ról, hættir að drekka, farnir að
vinna eða eru í atvinnuleit og eru
gjörbreyttir menn. Þetta kom fram
þegar Byrgið, kristilegt líknarfélag í
Rockville á Miðnesheiði, var heim-
sótt um síðustu helgi. Þar mátti sjá
suma þessa fyrrum útigangsmenn
strokna og flna á hátíðisdegi Byrgis-
ins. í þessu fyrrum alkunna spill-
ingarbæli hersins, þar sem svaka-
legustu svallveislur landsins fóru
fram á árum áður, var verið að
vígja eins konar heilsuþorp þar sem
hjónin Guðmundur Jónsson og
Helga Haraldsdóttir reka endurhæf-
ingarstöð fyrir vímuefnaneytendur.
Nýverið gerði Fangelsismálastofn-
un ríkisins samning við Byrgið um
samfélagsþjónustu innan Byrgisins
sjálfs og er sú þjónusta hafin.
Byrgið var stofnað í desember
1996 og hafði Guðmundur sjálfur átt
við vandamál að stríða og yfirvann
þau. í dag sækir hann sjálfur þá
verst settu í útiganginum og býður
þeim aðstoð. Útkoman hefur verið
ótrúlega góð, ekki síst þar sem
skjólstæðingarnir eru flestir langt
gengnir og illa famir flkniefna- og
áfengisneytendur, yfirleitt heimilis-
lausir, ófáir með geðræn vandamál
og margir með afbrotaferil.
Byrgið er rekið sem þríþætt starf-
semi með öflugu starfsliði og starf-
rækir kristilega langtímameðferð
og endurhæfingu áfengis- og flkni-
efnaneytenda. Ólafur Ólafsson, fyrr-
verandi landlæknir og núverandi
læknir Byrgisins, sagði á kynning-
arfundi á laugardag að með tilkomu
starfseminnar væri hafin gerbylting
í meðferðarmálum íslensku þjóðar-
innar. Sérstaða Byrgisins væri að
miklu leyti fólgin í vinnu, endur-
hæflngu og starfsþjálfun. Ólafur
kynnti árangursskýrslu Byrgisins
þar sem fyrstu tölur um meðferðar-
árangur eru birtar. I ljós hefur kom-
ið að 38% skjólstæðinganna eru í
dag edrú eftir fyrstu meðferð og
meira en helmingur þeirra með
stöðuga atvinnu. Hjálmar Ámason,
þingmaður og velunnari Byrgisins,
sagði að starfsemi þess væri tví-
DV-MYNDIR SIGRÚN LOVlSA
Byrjaö í sól og sumaryl
Athöfnin hófst í góöu veöri utandyra en þegar á leið fór aö hvessa og þá var samkoman flutt inn fyrir veggi
hins nýja meöferöarheimilis.
Stjórnendur
Hér eru nokkrir stjórnendur Byrgisins samankomnir.
Góöur læknir Byrgisins
Ólafur Ólafsson bauö fram krafta sína til Byrgisins og hefur veitt ómetanlega
aðstoö. Hér er hann ásamt konu sinni á hátíöisdegi í Rockville.
mælalaust jákvæð
og framtíð starf-
seminnar væri
björt. Ýmis fyrir-
tæki hafa stutt
Byrgið og voru for-
ráðamenn þeirra
heiðraðir á sam-
komunni. Opinber
aðstoð hefur enn
ekki fengist til
rekstursins.
í Rockville er nú
sem stendur 25
manna hópur í
endurhæfingu og
meðferð en reikn-
að er með að þar
^. . verði senn með-
sem breytt hefur ferðarpláss fyrir
herstoö i em- ^ að 6Q manns.
Frumherjinn
Hér er Guð-
mundur Jónsson
stætt sjúkraþorp Kostnaðarsamar
meö atorku
sinni og aöstoö
góöviljaöra fyrir-
tækja og ein-
staklinga. Hið
opinbera og
sum
bæjarfélög vilja
sem minnst
af honum vita.
endurbætur hafa
átt sér stað á hús-
næðinu sem amer-
iska varnarliðið
yfirgaf og lýkur
þeim senn. I mars
í fyrra fékk Byrgið
herstöðina afhenta
til sinna nota.
Hljómsveit Byrgis-
ins lék við opnunina í Rockville en
vel heppnaðri opnunarathöfn lauk
með grillveislu. -SLS
Löggan upp á yfirborðið
- flytur úr kjallara sýslumanns í glæsilega lögreglustöð
DV, HÓLMAVÍK:
Um áratugaskeið hefur aðalaðset-
ur lögreglunnar á Hólmavík verið í
takmörkuðu kjallararými í íbúð
sýslumannsins á staðnum. Á dögun-
um varð mikil breyting á þegar flutt
var í nýtt og glæsilegt húsnæði sem
risið hefur frá haustdögum rétt viö
þar sem komið er í kauptúnið á svo-
nefndu Skeiði. Húsið er 180 fermetr-
ar og er sambyggt slökkvistöð sveit-
arfélagsins sem reist var samtímis.
Ekki gekk þrautalaust að koma
framkvæmdum af stað vegna fjöl-
margra verkefna iðnaðarmanna á
svæðinu allt síðastliðið ár. Varð að
bjóða verk þetta út í tvígang og var
samið við fyrirtækið Stíganda hf. á
Blönduósi sem tók verkið að sér fyr-
ir 38,3 milljónir, en fyrirtækið hafði
reist heilsugæslustöðina á Hólma-
vík á sínum tíma og því að góðu
kunnugt á svæðinu.
„Endanlegur kostnaður liggur ekki
fyrir að svo stöddu en framkvæmdin
varð dýrari en kostaðaráætlun gerði
ráð fyrir, að meginhluta vegna þess
að sækja þurfti verktaka út fyrir
byggðarlagið. Þá er jafnan óhjá-
kvæmilegt að verulegur aukakostn-
Ný lögreglustöö Strandamanna
Fyrsta byggingin sem btasir viö þegar ekiö er inn í Hólmavík er lögreglu- og
slökkvistöö Strandamanna, glæsilegt hús svo sem sjá má.
DV-MYNDIR GUÐFINNUR RNNBOGASON
Höskuldur B. Erlingsson lögregluvarðstjóri
Nutum góös afsamstarfi viö sveitarfélagiö meö bygginguna.
aður komi til,“ segir Guðni Walder-
haug hjá Framkvæmdasýslu ríkisins.
Sveitarfélagið var búið að kosta
til sökkla og ganga frá plötu undir
skemmuna að kostnaðarverði um 10
milljónir króna, þegar farið var af
stað á síðasta hausti. „Við nutum
góðs af því að vera í samstarfi við
sveitarfélagið um þessa fram-
kvæmd,“ segir Höskuldur B. Er-
lingsson, lögregluvarðstjóri á
Hólmavík. Ríkissjóður kostaði að
öllu byggingu lögreglustöðvarinnar
og slökkvistöðvarinnar að einum
þriðja á móti 2/3 hlutum sveitarfé-
lagsins. í gólfi bílageymslunnar er
hitalögn svo og granítflísar svo
naglar í dekkjum skaði ekki gólf.
Frágangi á lóð er ekki að fullu lokið
og verður fullnaðarúttekt gerð á
henni á næsta ári eftir að land hef-
ur jafnað sig. -GF
Umsjón:
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
ritstjórastól?
Sú kjaftasaga
gengur nú á milli
manna í Reykja-
vík að hagir Dav-
íðs Oddssonar
kunni að vera að
breytast. Gengm-
j sagan út á það
að, Matthías Jo-
hannessen, rit-
stjóri Morgun-
blaðsins, sé kominn á aldur og
hyggist stíga úr ritstjórastólnum.
Þar er nefndur til sögu sjálfur for-
sætisráðherrann sem þykir hafa
það með sér að vera vel pennafær
maður, sálmaskáld og leikritahöf-
undur að auki. Því passi hann ein-
staklega vel í hlutverk ljóðskálds-
ins Matthíasar og geti þá sýslað við
skriftir samhliða ritstjórastarfinu í
framtíðinni. Sandkorn selur þetta
þó á svipuðu verði og það er keypt,
sem sagt óstaðfest en samt skrambi
góð kjaftasaga...
Björn líklegur
I framhaldi af
vangaveltum um
Davíð Oddsson,
þá hafa menn
auðvitað velt
fyrir sér hugsan-
legum hróker-
ingum í innsta
hring Sjálfstæð-
isflokksins. Þar
þykir fyrrum
Morgunblaðsmaður, sjálfur Bjöm
Bjarnason, hafa einna sterkasta
stöðu sem arftaki Davíðs. Hafi
Björn t.d. vaxið mjög i sínu emb-
ætti sem menntamálaráðherra á
meðan Geir Haarde, sem líka þótti
líklegur, þarf að stunda þyngri róð-
ur í óvinsælu embætti fjármálaráð-
herra. Þaðan þykja menn sjaldnast
ríða feitum hesti til hárra embætta
í flokknum og nægir að nefna for-
verann, Friðrik Sophusson...
Ekki á förum
Leitt hefur ver-
ið að því getum
að Halldór Blön-
dal, óskoraður
leiðtogi Sjálfstæð-
ismanna í Norð-
urlandi eystra, sé
á förum úr póli-
tík eftir kjörtíma-
bilið. Flestum er
í fersku minni
að Davíð Oddsson ýtti honum
snarlega af ráðherrastól og í emb-
ætti forseta Alþingis. Halldór hefur
blómstrað í því embætti og stjórn
hans á þinginu er sterk. Nú heyrist
að Halldór sé í óða önn að stimpla
sig inn hjá nýjum kjósendum á
Austflörðum. Hann mun halda sig
á landsbyggðinni og fæst ekki til
borgarinnar jafnvel þó tignir gestir
þrái að sjá ásjónu hans. Hann er
sem sagt ekki á fórum og það kætir
að sögn lítt samþingmann hans,
Tómas Inga Olrich, sem stefnir á
oddvitasætið...
Akureyri leiðinleg
Sjónvarpsmað-
urinn Egill
Helgason fer
mikinn þessa
dagana enda
Silfur hans með
eindæmum vin-
sælt. Víst er að
Egill hefur lifað
erfiðari tíma en
nú þegar hluti
þjóðarinnar ber hann á höndum
sér og dagamir líða áfram í rós-
rauðum bjarma þar sem útvarps-
konan Brynhildur Þórarinsdótt-
ir er þétt við hlið hans. Egill held-
ur úti vefsíðu þar sem kennir ým-
issa grasa og hann fjallar um allt
milli himins og jarðar. Nýlega
fjallaði hann um byggðamál þar
sem hann greindi vandann ofan í
rót...Því líklega er það mesti
byggðavandinn þegar öllu er á
botninn hvolft hvað það er leiðin-
legt á Akureyri.“...