Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Blaðsíða 11
11 FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 DV Danskur prófessor í alþjóöastjórnmálum: Útlönd Færeyjar skipta NATO litlu máli Færeyingum verður ekki kápan úr því klæðinu að nota hernaðarlega mikilvæga stöðu sína sem framvörður NATO í Norður- Atlantshafi i sjáifstæðisviðræðunum við dönsk stjórnvöld. Að kalda stríðinu loknu gegna Færeyjar ekki lengur mikilvægu hlutverki í vamarmálum. Þessu heldur Ole Wæver, prófessor í alþjóðastjórnmálum við Kaupmannahafnarháskóla, fram í viðtali við danska blaðið Berlingske Tidende. Samtímis vísar prófessorinn þvi á bug að Danir hafi fengið eins konar afslátt á framlögum sínum til varnarmála innan NATO út á aðstöðuna sem bandalagið hefur í Færeyjum. Hogni Hoydal, sem fer með sjálfstæðismál i færeysku landstjórninni, hefur mælt fyrir lengri efnahagslegum aðlögunartíma fyrir Færeyjar eftir sjálfstæði á Hogni Hoydal Vill að Færeyingar fái aö njóta afsláttarins sem Danir fá hjá NATO. grundvelli þess að Danir hafi frá 1976 lagt 2,6 prósent landsframleiðslunnar til varnarmála i stað þriggja prósenta eins og NATO mælir með. Hagni segir að á því hafi Danir sparað tæpa 300 milljarða íslenskra króna. „Þetta passar ekki. Danir hafa að vísu fengið ákveðinn afslátt í NATO en það er að 99 prósentum vegna Grænlands. Það er miklu mikilvægara, einkum fyrir Bandaríkjamenn í tengslum við umræður um eldflaugavarnakerfi. Ef Færeyjar hefðu gengið úr NATO á tímum kalda stríðsins hefði ratsjárstöðvunum sem eru í Færeyjum verið fundinn staður annars staðar,“ segir Ole Wæver. Þriðja lota sjálfstæðisviðræðnanna milli Færeyinga og danskra stjórnvalda fer fram í forsætisráðuneytinu í Kaupmannahöfn í dag. Færeyingar hafa beðið um lýsingu á mikilvægi eyjanna í varnarmálum. Klerkar blessa mótmælendur Kristódúlos erkibiskup, leiötogi grísku kirkjunnar, blessar þúsundir mótmælenda sem komu saman í borginni Þessa- lóníki í gær til aö mótmæla nýrri tegund nafnskírteina. Stjórnvöld hafa ákveöiö aö trúar viökomandi veröi ekki getiö á nýju nafnskírteinunum og er það í samræmi viö álit mannréttindanefndar. Hillary græðir ekki á brotthvarfi Giulianis Vinsældir Hillary Clinton, for- setafrúar Bandaríkjanna, hafa auk- ist við brotthvarf Rudolps Giulianis, borgarstjóra New York, úr barátt- unni um öldungadeildarþingsæti fyrir borgina. Þegar Giuliani dró sig í hlé fyrir nokkrum vikum vegna krabbameins í blöðruhálskirtli töldu margir að Hillary væri í höfn. En þá skaut þingmaðurinn Rick Lazio upp kollinum. Samkvæmt skoðanakönnunum er nú jafnræði með Hillary og Rick Lazio. Hún hlýtur 44 prósent atkvæða en hann 39 prósent. Samkvæmt skoðanakönnunum veit almenningur ákaflega lítið um Lazio og stefnu hans. Hann hlýtur samt atkvæði New York-búa. Er það túlkað sem að menn vilji sjá til þess að Hillary verði ekki kosin. Hún er Hillary Clinton Andúöin á forsetafrúnni er enn áberandi í New York. ekki frá New York. Almenningur er auk þess hræddur við breytingar. „Ég ætla að kjósa Lazio vegna þess að hann er ekki Hillary," segir repúblikaninn John Wemer i við- tali við New York Times. Reyndar nýtur Hillary meira fylg- is í miðborg New York en Lazio. Margir af stuðningsmönnum Giuli- anis vilja heldur Hillary en Lazio þar sem hann þykir of íhaldssamur. Annars staðar í kjördæminu gengur Lazio betur en fyrirrennara sínum. Andúðin gegn Hillary er enn áberandi, að því er kemur fram í New York Times. Fjórar nýjar sjón- varpsherferðir, nýir kosningafundir og ferðalög virðast ekki hafa aukið vinsældir forsetafrúarinnar. Henni hefur enn ekki tekist að ná yfir 50 prósenta fylgi. ^Oðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og fi. og fi. fcjSpld! - ^HeaíplkcL ..og ýmsir fylgihlutir Ekki treysta á veðrið þegar skipuleggja á eftirminnilegan viðburð - Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á staðinn - það marg borgar sig. Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700 m2. Leigjum einnig borð og stóla í tjöldin. áaDeÐgai sGsáta ..meo skótum á heimavelli sími 562 1390 • fax 552 6377 « bis@scout.is Malbik endar, malarvegur tekur við. Sýnum aðgát! |UMFERÐAR casall' DOCKERS l|JP S P O R T TPEfíK Tískudagarnir eru byrjaðir og allt er á hvolfi í Nanoq. Við bjóðum þér fallegan og vandaðan tískufatnað á sérstöku tilboði - 25% afsláttur. Kíktu til okkar og kynntu þér úrvalið! Opið hjá NANOQ í Kringlunni: Mánud.-miðvd. 10-18.3D, fimmtud. 10-21, föstud. 10-19, NANOQ+

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.