Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Qupperneq 12
12 Hagsýni FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 DV Porbjörn Ásgeirsson hefur hannað jarðankeri sem festir niður fótboltamörk: mmni Fótboltamörkin föst 90 gráö- ur inn í jaröveginn Jaröankeri Þorbjörns meö uggana úti. Oft berast fréttir af því að börn slasast vegna þess að fótboltamörk falla yfir þau. Þessi slys eru misala- varleg, allt frá því að vera smávægi- leg meiðsl í að bömin slasast lífshættulega. Miklu máli skiptir að brýna fyrir börn- um að bjóða ekki hættunni heim með þvi að hanga og sveifla sér í þverslá fót- boltamarka en ekki er minna um vert að þeir aðilar sem yfir fótboltamörkum ráöa hafa öryggisatriðin í lagi. Þorbjörn Ásgeirsson, fyrrum bóndi, hefur hannað jarðankeri sem festir niður fótboltamörk og getur þannig komið í veg fyrir slys af þessu tagi. Jarðankerið er fyrst og fremst hannað til að festa niður fót- boltamörk en einnig má nota það til að festa niður samkomu- og veit- ingatjöld, tjóðra við það hesta, festa niður olíuleiðslur á jökulsvæðum og svo mætti áfram telja. Ankerið er hólkur með lykkju sem leggst yfir stöngina á markinu. Inni í hólknum er stöng með uggum sem ganga út þegar stöngin er losuð frá hólkinum. Hægt er að fá ■w ankerið bæði 30 og 50 cm langt eftir því hversu miklu það á að halda. Iðntæknistofnun hefur gert prófun á átaki á 30 cm löngu jarðankeri og þolir það 70-200 kg átak eftir gerð jarðvegs og togi og lengri gerðin þol- ir væntanlega talsvert meira átak. Ankerin eru þannig úr garði gerð að auðvelt er að festa þau niður en einnig er auðvelt að losa þau aftur þannig að þau henta fyrst og fremst til að festa nið- ur mörk sem verið er að flytja til. Nokkur sveitarfélög hafa 11 á þegar keypt jarðankeri til K í að halda niðri fótbolta- mörkum. I GÓ6 lausn til aö fyrirbyggja slys Eitt þeirra sveitarfé- laga sem keypt hafa ankerin er Mosfellsbær. Oddgeir Þór Árnason garðyrkjustjóri kvaðst mjög ánægður með reynsl- una af jarðankerunum. Hann sagði þau vera góða lausn til að festa niður mörk sem verið er að færa til. Hann sagöi ankerin halda vel, misvel eftir að- stæðum þó, en að bömin gætu ekki hreyft mörkin sem fest væru niður með þeim. 41 lífshættulegt slys á 14 4 arum Herdís L, Storgaard hjúkrunarfræð- ingur hefur fjallað meira um slys á bömum en aðrir hér á landi. Hún segir að á 14 árum hafi orðið 41 lífs- hættulegt slys vegna þess að mörk hafi fallið yfir böm. Til viðbótar eru um 100 slys þar sem Herdís Storgaard hefur unniö ötullega aö því aö reyna aö fækka slysum á börnum. DV-MYNDIR EINAR J. Margjr notkunarmöguleikar Þorbjörn Ágústsson meö jaröankeriö. börn hafa veriö undir eftirliti á sjúkrahúsi vegna beinbrota, heila- hristings eða ótta um innvortis blæðingar. Sum þeirra bama sem hafa orðið fyrir lífshættulegum slys- um eru með varanlega áverka. Hún segir slysin nú aðallega tengd íþróttasvæðum en ekki sparkvöllum eins og var áður en mörg sveitarfélög hafi lagt mikið á sig til að halda sparkvöllunum í lagi. Slysin verða bæði utan húss og innan. Innandyra verða þau þannig að mörk eru tekin upp og sett á hlið- arlínuna þegar verið er að nýta hús- in í annað en útislysin verða t.d. á kvöldin þegar böm eru að leika sér á íþróttasvæðum og mörk eru laus. Herdís segir því afar brýnt að íþróttafélög fái sér einfaldan búnað, eins og þann sem Þorbjörn Ásgeirs- son hefur hannað, til að festa niður mörkin. Herdís leggur áherslu á að það sé á ábyrgð þeirra sem eiga mörkin, sveitarfélaga og íþróttafélaga að halda festingum þeirra í lagi vegna þess að þótt vandlega sé brýnt fyrir bömum að hanga ekki í mörkum þá sé því ekki að treysta að þau fari eft- ir þeim ráðleggingum og bætir við að það sé alls staðar í nágranna- löndum regla að þegar farið sé út með mörk eigi að festa þau niður. „Þetta eru slys sem eiga ekki að koma fyrir. Ég vil sjá núll slys í þessum flokki," segir Herdís að lok- um. ss Tilboð verslana Samkau Tilboöin gilda til 18.júní. 0 Kaffehuset Speciale, 400 g 189 kr. Q FDB hafrakex, 400 g 79 kr. 0 AGFA fíimur, 24 mynda, *3 699 kr. 0 FDB-kattamatur, 415 g, 4 teg.39 kr. Q Softline dömublndi, Ultra 99 kr. 0 FDB tvíbökur, 300 g 59 kr. Q Cyclon þvottaefni, 1,5 kg 299 kr. Q Pagens kanelgifflar 149 kr. Nóatún Tllbobin gllda á meöan blrgblr endast. j 0 Flnnskar andabrlngur 1699 kr. Q Appelsínur, Chico 99 kr. 0 Snap Jack C., 33% extra 139 kr. 0 Snap Jack F., 33% extra 139 kr. ; i . . Tllbobln gllda til 21. júní. Q Nauta koníakssneiö 1398 kr. Q Rauövínsl. svínakótelettur 798 kr. Q Þurrkr. framhryggjarsneiöar 1095 kr. 0 Nóa kropp, 150 g 138 kr. Q Tuma brauö, 1/1 148 kr. Q Tuma appelsínusafí, 21 148 kr. Q Tuma drykkjarjógúrt, appels. 68 kr. Q Tuma drykkjarjógúrt, jaröarb. 68 kr. Q Tuma drykkjarjóg.,tutt/frutt 68 kr. 0 Pringles orglnal v/euro cup 198 kr. rip-verslanir Olís GHí_____________I Tilboöln gllda út júnímánuö. 0 Mónu Rommý, 24 g 35 kr. Q Toffee crisp, 3 stk. 150 kr. 0 Mónu kókosbar 35 kr. 0 Marabou rúllur, mjólkursúkkul. 95 kr. Q Marabou rullur, appelskrók. 95 kr. Q Marabou rúllur, mjólkurkrók. 95 kr. 0 Marabou rúllur, myntu 95 kr. Q Char broll, feröakolagrill 2190 kr. 0 Char broll, hamborgarakarfa 950 kr. Hraöbuöir Esso Tilboöin gilda til 30 yún/.l 0 Sóma lasagna, 250 g 249 kr. Q Sóma köld samloka 179 kr. 0 Kók, 1/2 1, og lítlll Pringles 179 kr. 0 Leo súkkulablkex 49 kr. Q Mónu Buffaló 59 kr. Q Maryland Hazelnutt, brúnn 97 kr.\ Q Maryland Coconut 97 kr. 0 Star Wars-fígúrur, basic 995 kr. Q Grill-keramiksteinar 895 kr. 0 Regnslá frá Pohcho 100 kr. Þín verslun 1 Tilboöin gllda tll 21.júní. 0 Lambasnlts. m/spín. og osti 296 kr. 0 Snltsel m/ostafylllngu 296 kr. 0 Hunt's tómatsósa 109 kr. 0 Hunt's BBQ-sósur 139 kr. Q Heidelberg dressing 119 kr. 0 Ávaxtastanglr, 10 stk. 299 kr. Q Sun-C, appelsínusafí, 11 99 kr. Tilboöin gilda til 21. júní. 0 Vatnsmelónur 99 kr. kg Q Melónur, gular 99 kr. kg 0 UN-grillborgarl, 140 g 99 kr. stk. 0 Prlngles snakk 200 g, 4 teg. 159 kr. Q Kjörís, grænlr frostp., 8 stk. 279 kr. 0 Mexikó svínahnakki 899 kr. kg Q Koníakskr. svínakótelett. 899 kr. kg 0 Þurrkr. grlllsneiöar 998 kr. kg Tllboöin gilda á meöan blrgölr endast. 0 Búrfells brauöskinka 698 kr. kg 0 SS kampavínslærlssneiöar 998 kr. kg 0 Libby's tómatsósa 99 kr. 0 Sumarsvali 29 kr. Q Frón súkkulaöi Póló 99 kr. Akstur erlendis FÍB býður félagsmönnum sem hyggja á ökuferðir erlendis ýmsa þjónustu. Eitt af því er að aðstoða fólk við að velja akstursleiðir með hjálp forritsins Auto Route en í það forrit má sækja mjög miklar upplýs- ingar. Hægt er að kalla fram t.d. bæði fljótlegustu leiðina milli tveggja staða en einnig þá fallegustu. Einnig getur forritið gefið sérstakar akstursleiðbeiningar að stöðum. Ökumaðurinn fær útprentaða leiðarlýsingu ásamt korti eða kort- um. Þeir sem eru mjög óöruggir geta meira að segja fengið yfirlit yfir allar beygjur, þ.e. leiðbeiningar um öll vegaskipti. Hægt er að slá inn heiti á t.d. þorpi sem menn ætla að gista í og leita t.d. að sögulegum stöðum í ná- grenninu, tjaldsvæðum, nátt- úruperlum o.s.frv. Að sögn Bjöms Péturssonar hjá FÍB er þessi þjónusta talsvert mikið notuð en hann mælir eindregið með að þeir sem hyggjast skipuleggja ökuferðir sínar erlendis vel kaupi sér sjálfir forritið þannig fái menn mest út úr því. Gemsar á er- lendri grund Hægt er að nota GSM-síma bæði frá Tali og Símanum erlendis og má finna upplýsingar um þau lönd sem þjónustan nær til hjá fyrirtækjun- um eða á heimasíðum þeirra. Bæði Tal og Síminn bjóða annars vegar venjulegar áskriftir, þar sem greitt er fyrir símanotkun eftir reikningi eftir á, og hins vegar svo- nefndar frelsisáskriftir sem byggj- ast á því að kort með tiltekinni upp- hæð er sett í símann og hægt er að hringja úr honum þar til fjárhæðin á kortinu er uppurin og þá þarf að fá sér nýtt kort. Þeir sem ætla sér að nota GSM- símana sína erlendis þurfa að vara sig á þvi að einungis er hægt að nota þar venjulega áskriftarsíma, ekki frelsissíma. NMT-síml Síminn gagnast vel þeim sem ferö- ast mikiö um hálendiö. Ekkert stofngjald Nú á fyrstu dögum sumars eru margir aö huga að feröum um land- ið. Eitt af því sem huga þarf að er samskiptabúnaður, sérstaklega ef ferðast á um óbyggðir. NMT-kerfið nær til nánast alls landsins, á haf út og einnig er hægt að nota NMT-símana annars staðar á Norðurlöndunum. Á hálendinu nær kerfið til flestra fjallvega og unnið er að enn frekari útbreiðslu þess. NMT-símarnir eru ekki eins handhægir og GSM-símar og yfir- leitt er sambandið við þá ekki eins gott, þ.e. nokkuð ber á skruðningum og því um líku. Hins vegar nær NMT-kerfið um óbyggðir og á haf út en GSM-kerfið þjónar fyrst og fremst þéttbýli sem kunnugt er. Margir þeir sem ferðast á fjöllum hafa komið sér upp NMT-farsímum en hinum, sem ekki hafa fengið sér slíka sima, má benda á að ekkert stofngjald er fyrir nýja NMT-síma í júní og júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.