Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Síða 18
18 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiBlun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjórl: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvœmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aéstoðarrltstjórl: Jónas Haraldsson Auglýslngastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setnlng og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Filmu- og plötugerð: isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Endir markaðshyggju Markaðshyggjan er komin á leiðarenda sem hugmynda- fræði. í málefnaumræðu erlendis, einkum í Bandaríkjun- um, er í auknum mæli litið á hana sem tímabundið þrep í þróun lýðræðisrikja. Lítið fer fyrir verjendum hennar i umræðunni. Það er eins og þeir hafi misst móðinn. Hagsmunir stórfyrirtækja og þjóðfélags fara ekki leng- ur að öllu leyti saman. í auknum mæli lítur viðskipta- heimurinn á markaðsráðandi stöðu sem markmið. Sam- runi og uppkaup fyrirtækja eru orðin að faraldri, sem ger- breytir samspili markaðsins og þjóðfélagsins. Samkeppni er hratt að breytast i fákeppni og fákeppni er hratt að breytast í fáokun og fáokun er hratt að breyt- ast í einokun. Einhvers staðar á þessu ferli hættir mark- aðurinn að vinna með þjóðfélaginu með lækkuðu verðlagi og fer að vinna gegn því með hækkuðu verðlagi. Við höfum búið við þetta hér á landi, þar sem sam- keppni á matvörumarkaði lækkaði matvöruverð fram eft- ir síðasta áratug aldarinnar og var einn mikilvægasti þátt- ur bættra lífskjara. Síðan kom fáokun til sögunnar undir lok aldarinnar og fór að hækka verðlag að nýju. Hér á landi er vegna fámennis þjóðarinnar löng reynsla af skaðlegum áhrifum fáokunar í benzíni, tryggingum, farþegaflugi og vöruflutningum á landi og á sjó. Hér í blað- inu hefur oft verið talað um þetta sem dæmi um, að loka- markmið allrar samkeppni væri einokun. Einkavæðing ríkiseinokunar hefur heima og erlendis opnað mönnum sýn á galla markaðshyggjunnar. Yfirleitt er slæm reynsla af einkavæðingunni. Við minnumst einkavæðingar einokunar í bifreiðaskoðun og Bretar minnast einkavæðingar einokunar járnbrauta. Við munum bera skaða af fyrirhugaðri sameiningu Landsbankans og Búnaðarbankans, sem mun þrengja kosti venjulegra notenda bankaþjónustu. Við munum líka bera skaða af fyrirhugaðri einkavæðingu símaeinokunar, sem mun þrengja kosti venjulegra símnotenda. Barátta bandarískra stjórnvalda gegn hugbúnaðarein- okun Microsoft er sögulegt framhald af fyrri baráttu rík- isvaldsins gegn olíurisanum Standard Oil og bandaríska símafélaginu. Með mistæku handafli stjómvalda og dóm- stóla er reynt að stýra einokunarferlinu til baka. Hér á landi eru stjórnvöld nánast markvisst að fram- kalla ferli, sem bandarísk stjórnvöld em að reyna að stöðva. Þetta misræmi stafar af, að islenzk stjórnvöld em enn hugfangin af töfmm markaðshyggjunnar, en banda- rísk stjórnvöld eru orðin miklu raunsærri. Fólk er að átta sig á málefnalegri hnignun markaðs- hyggjunnar í sumum vestrænum löndum, einkum í Bandaríkjunum. Menn hafa fengið óbeit á ýmsum stofn- unum, sem taldar eru vígi markaðshyggjunnar, svo sem Heimsviðskiptastofnuninni, og láta verkin tala. Fólk sér hnattvæðingu fáokunarfyrirtækja, sem sæta engu marktæku aðhaldi, af því að armur einstakra ríkja nær ekki til þeirra. Nú er svo komið, að óeirðir verða nán- ast hvar sem talsmenn hnattvæðingar koma saman á veg- um fjölþjóðlegra sjóða og viðskiptastofnana. Varanlegur brestur er orðinn milli markmiða þjóðfé- lagsins annars vegar og markmiða risafyrirtækja hins vegar við umsnúning markaðshyggjunnar yfir í fáokunar- hyggju. Markaðurinn er að breytast úr aflvél lífskjarabóta yfir í einkavædda og verðbólgna einokun. Vestræn þjóðfélög munu fyrr eða síðar bregðast við þessu með margefldri neytendavernd og stórtækari handaflsaðgerðum gegn fáokunarfyrirtækjum. Jónas Kristjánsson + FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 23 x>v Skoðun Vatnsmýrin, sóknarfæri til framtíðar Fyrirtæki í innanlandsflugi hafa boðað verulegan samdrátt í starfsemi sinni og FÍ ætlar, að sögn, einungis að þjóna 4 áfangastöðum, í framtíðinni. Stjórnendur Reykjavíkurflug- vallar hafa bent á að ekki verði leyfilegt að taka flugið af braut 07/25 þ.e. NA/SA-brautinni, vegna tillitssemi við íbúa Norðurmýrarinnar og þannig viðurkennt þann ófrið sem af fluginu er. N/S brautin á áfram að verða í notkun að lokinni viðgerð, til hrellingar íbúum miðbæjarins. Og að því er heyra má taka menn ekkert mark á þeim ábendingum, frómum mjög, að fullnægjandi væri að hafa eina braut A/V fyrir aflt innanlandsflug. Þeir sem aftur á móti vinna á svæöinu segja þetta ógerlegt og segja 14 til 20 hnúta krossvind stórhættu- legan hér syðra þótt nota megi Kefla- vík sem varavöll. Þessi mörk eru þau skilyrði sem margir flugvellir mega bjóða upp á úti á landi. - Svona rök dæma sig sjálf ómerk. Sjálfstæðismenn „fyrir norðan“ Oft er talað um að öll landsbyggð- Bjarni Kjartansson verkefnisstjóri in sé aðfangasvæði fyrir höfuðborgarsvæðið, tal- að er um atgervisflótta af landsbyggðinni og nauð- syn þess að spyma við fótum í þeim efnum. Lit- ið er til þess að byggja upp háskóla á Akureyri og leggja til þess veru- lega fjármuni. Gott eitt ef menn væra sammála í þessari viðleitni allri, en svo er bara alls ekki. Það eina sem mig furðar er að þessari handstýrðu byggðastefnu er framfylgt af sjálf- stæðismönnum og sumir jafnvel stæra sig af framkvæmd hennar og eigna sér hana á hátíðarstundu „fyr- ir norðan". Enn eru þeir iðnir og ódrepandi við að búa til ríkisrekin kerfi á Ak- ureyri. Mér heyrðist í fréttunum að allt sjúkraflug ætti hér eftir að vera með miðstöð á Akureyri, borkjamar allir skulu nú vistaðir í höfuðstað Norðurlands og sitthvað fleira. - En þrátt fyrir peningaausturinn fækkar íbúum á Akureyri. Ekki sér fyrir endann á kerfis- flutningum, næst skal flutt á Krók- „Það eru því fjörráð við aldamótakynslóðina að þverskallast við að moka í burt flugvellinum og nýta það svœði fyrir þessa starfsemi og íbúðabyggð í tengsl- um við hana“. - Hugmyndir manna um eina braut V/A, góður millileikur. inn. Var einhver að tala um dulið at- vinnuleysi? ísland allt verður aðfangasvæði Vestur-Evrópu ef ekki verður stungið við fótum og þekkingariðnaði og hug- viti gert hærra undir höfði en nú er. Lóðir verða nægar í Reykjavík fyrir þessa vaxtabrodda í atvinnusögu okk- ar ef menn þora að taka upp völlinn. Háskólastarfsemi í Vatnsmýrinni Vatnsmýrin er sá staður sem ligg- Skundum á Þingvöll Nú fer að nálgast kristnihátíðin, einstætt tækifæri þjóðarinnar til þess að koma saman í stórum hópi og hugleiða málefni sem snertir alla þjóðina. Til hátíðarinnar er efnt í þakklætisskyni fyrir kristin áhrif á þjóðlífið frá öndverðu en einkum f þau þúsund ár sem liðin eru frá því að við kristni var tekið af lýði. Við göngum ekki tfl hátíðarinnar gagn- rýnislaus því margt hefur okkur farist á annan veg en við hefðum kosiö. Reynsla af hátíðarhöldum á Þingvöllum Um sumt í því dæmum við af sjón- arhóli sem menn höfðu ekki fyrr og litu öðrum augum meðan á stóð vegna þess að ekkert lá beinna við. Við biðjumst þess vegna ekki fyrirgefningar fyrir þau, til þess höfum við ekki umboð en við skoðum það með hryggð og veltum því fyrir okkur hvort eitthvað það kunni að vera í fari okkar nútíðarmanna sem aðrir muni skoða með hryggð síðar. Við höfum reynslu af há- tíðahöldum á Þingvöllum á borð við þau sem fara í hönd. Fólkið man regnið 1944 og hefur gert það að tákni fyrir skírn hins unga lýöveldis. Það man betur góðviðrið 1974 og fannst það eiga vel við þá blómstur- tíð sem var komin yfir þjóðlífið þá. Frá því 1994 stendur hæst í huga Jakob Hjálmarsson dómkirkjuprestur flestra umferðaröngþveitiö en engum hefur enn komið í hug að það hafi verið jafn viðeigandi einkenni og hin tvö sem áður er getið, fyrir þjóð sem anar áfram án þess að skoða hvert leiðir, eiga sér ekki víst stæði í til- verunni að leiðarenda. Skilningsleysið sem þoka Forvitnflegt verður að sjá hvað kristnihátíðin 2000 leiðir í ljós. Tflefni hennar er síst ómerkara en hinna fyrri, svo vonandi auglýsir hátíðin ekki það að okkur þyki ekkert skipti máli leng- ur, nei, ekki kæringarleysið. Ef svo færi og sú er raunin þá er íslenska Skundum á Þingvöll, komum saman til þess að minnast og þakka en ekki síður til þess að taka mið til siglingar okkar um það tímans haf sem fram undan okkar er. Meö og á móti þjóðin illa á vegi stödd. Það er ekki hægt að berjast við skeytingarleysið! Það er eins og þoka sem umlykur og heftir sýn til marks og miða og verð- ur hvorki mokað burtu né feykt. Það dregur mátt úr mönnum og þeim daprast lifsgangan. Þeir leggj- ast niður og veröa úti eða ramba fyr- ir ætternisstapann, ef þeir ganga þá ekki í björg með tröllum eiturlyfja eða álpast út f fen sjálfsþægingar og kaupæðis. Við eigum erindi á Þing- völl. Við eigum þar stefnumót við vonina, von okkar um farsæla fram- tíð handa bömum okkar. Látum eng- an valda því að ferð okkar lendi í úti- deifu. Missum ekki sjónar á þvi að þetta er okkar hátið. Hlustum ekki um of á þá sem sífra yfir því að þetta og hitt sé ekki eins og það ætti að vera. Stórfengleg tækifæri Flest orkar tvímælis þá gert er og hver erum við að halda að við gæt- um gert betur. Ekkert af því getur skyggt á það að þetta er okkar hátið og hátíð okkar aflra, hvernig sem því er velt og snúið. Ég ætla á Þingvöll og mitt fólk og hlakka til að sjá ykk- ur mörg og að vera í stóram hópi landa minna. Það er næst mikilvæg- ast á eftir tflefninu sjálfu: Ljósi kær- leika og friðar Krists yflr land i þús- und ár. Annað er það að við fáum stór- fengleg tækifæri að staðfesta að kirkjan er full af lífl og fleiri taka þátt í starfi hennar en nokkurri frjálsri félagsiðju annarri. Skundum á Þingvöfl, komum saman til þess að minnast og þakka, en ekki síður til þess að taka mið til siglingar okkar um það tímans haf sem fram undan okkar er. - Haf Orð Guðs fyrir leið- arstein í stafni var eitt sinn ort. Það á jafnvel við í dag. Höldum hátíð gleði og vonar. Jakob Hjálmarsson undir vœntingum í ár? Spennan mikil í ár Grunninn þarf að laga A Knattspyman í j/tLg, sumar hefur aö K minu mati staðið undir væntingum sem til hennar voru gerðar fyrir mótið í ár. Það er mikil spenna í mótinu og ég vonast til að það muni ekki breytast það sem eftir er knattspyrnu- sumarsins. Hins vegar miðast mótið viö aðstæður hverju sinni. Vellimir eru fyrst núna að verða góðir og þess vegna megum við eiga von á að liðin séu enn að venjast að- Geir Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri KSÍ stæðum og að koma sér fyrir í mótinu. Þar af leiðandi er ekki hægt að búast við að sjá fullmótuð lið í byrjun móts- ins og held ég að það sem af er mótinu í sumar sé í takt við síðustu ár. Ég býst við betri knattspymu þegar líða tekur á sumarið og aðstæður til knattspyrnuiökunar verða einfaldlega betri. En einn mikilvægasti þáttur- inn í góðu móti er spennan og ég get ekki séð annað en aö mótið í ár muni bjóða upp á það. 4 Rót vandans er I hvernig knatt- spyrnumennirnir r okkar era undir- búnir á sinum æskuárum fyr- ir iðkun i meistaraflokki. Það er alveg ljóst að fótboltamenn landsins vantar allan grunn og því eru gæði boltans mis- jöfh eftir því. Það hefur verið gaman að fylgjast með liðum eins og Grindavík og Fylki. Bæði lið hafa staðið sig vel í sumar og hafa Magnús V. Pétursson, fyrrum knattspyrnu- dómari miklu móti hafa íslands- og bikar- meistaramir, KR, ekki staðið undir væntingum miðað við þann mannskap sem liðið hefur. Þeir eiga skilið að vera á toppnum, enda með yflr- burðamenn í liðinu sem þó hafa ekki staðið sig sem skyldi það sem af er móti. En á meöan knattspyrnufélögin era ekki að standa rétt að undirbúningi knattspyrnu- mannanna þá er ekki við aö búast í íslensku knatt- komið frekar mikið á óvart. Aftur á spyrnunni. Þegar sex umferðum af Islandsmótlnu í knattspyrnu er loklö hafa vaknaö spurningar um gæöi knattspyrnunnar sem liðin eru aö leika. ur hvað beinast við að byggja upp sem háskólasvæði og nýta sér þá framsýni sem Bjami Benediktsson og Geir Hallgrímsson sýndu þegar tekið var frá stórt byggingarsvæði fyrir háskólastarfsemi. Hjónagarðar og Náttúrufræðihús hafa risið og eru að rísa, Tanngarðurinn er hálf- karaður sunnan Hringbrautar. Og enn er mikil þörf á byggingum fyrir Háskóla íslands. Háskólamenn kvarta mjög undan skorti á byggingarsvæði og telja nauðsynlegt að fá fjármuni í bygg- ingar með „einkafjármögnun", fá svonefnda fjárfesta til þess að byggja og reka húsnæðið sem með þarf, s.s háskólasjúkrahús sem byggt væri í samræmi við þau nýju sjónamið sem efst eru á baugi. Forsvarsmenn hátækniiðnaðar vilja lika athafnasvæði nálægt Há- skóla íslands. Það eru því fjörráð við aldamótakynslóðina að þverskallast við að moka í burt flugvellinum og nýta það svæði fyrir þessa starfsemi og íbúðabyggð í tengslum við hana. - Mér líst afar vel á hugmyndir manna um eina braut V/A, sem millileik. Bjami Kjartansson Ummæli Þeir fara sínu fram „Ég hef aldrei litið svo á aö leiðin til að hefja hvalveiðar væri að sannfæra þessa þverhausa sem starfa innan Alþjóða hval- veiðiráðsins um nauð- syn þess. Þeir hafa sýnt það í gegnum tíðina, að þeim er fjandans sama um allar vísindalegar ráðleggingar. Þeir skeyta ekki neitt um efnislegar upplýsingar og fara sínu fram burt séð frá öllu sem fyrir þá er lagt.“ Einar K. Guöfinnsson, í viötali við Dag 14. júní. Erlendir bankar óþarfir hér „Það eru ekki mörg ár síðan talið var að erlend samkeppni í bankaviðskiptum kæmi hingað í því formi að erlendur banki setti hér upp útibú eða keypti sig inn í íslenzkan banka. Það er ekki leng- ur þörf á slíkum aðgerðum af hálfu er- lendra banka. Þeir þurfa ekki að setja upp útibú hér með húsnæði og starfs- fólki. Þeir geta einfaldlega boðið lands- mönnum upp á bankaviöskipti eða verð- bréfaviöskipti á Netinu." Úr forystugrein Mbl. 14.júní. Hugsunin er hámarksafli „Hversu stór getur þorskstofninn við ís- landsmið eiginlega orðið? Hvert einasta skólabam veit svarið: Það veltur á ýmsu. Frá ca 1930-60 lifðum við einstakt hlýindaskeið. Þorskseiði rak frá Grænlandi til okkar. Enginn hirti um að veiða matinn frá þorskinum; loðnu og rækju. Veiðin var óheft og stórkostleg. Þetta allt er breytt, nema hugsun okkar um hámarksafla eins og þegar aflt var öðruvísi en nú.“ Stefán Jón Hafstein, í Degi 14. júní. Hvar er áfengis- varnaráð? „Ekki er langt síð- an Áfengisvamaráð, sem hafði verið til mikils gagns, var lagt niður og Vímuvarnar- ráð sett í þess stað. Ekki hefur heyrst bofs frá því ráði nema hvað framkvæmdastjóri þess lýsti því yfir í byrjun að hún væri ekki bindindiskona. Er nema von að púkarnir á fjósbitanum, sem era dygg- astir andstæðingar boða og banna, skemmti sér vel?“ Árni Helgason í Stykkishólmi, í Mbl. 14. júní. Af fríðum konum í Cannes í goðafræði Grikkja og Rómverja eftir H.W. Stoll, í þýðingu Steingríms Thor- steinssonar, segir að Hómer hafi talið Afrodítu dóttur Sevs og Díóne, en í annarri frásögn, sem Hesióð hafi far- ið eftir, hafl gyðjan orðið til úr sjávarfroðu og hafi hún fyrst stigið á land í Kýprey. Því hafi hún hlotið nafnið Afrodíta (þ.e. hin froðu- borna). „Bæði Hómer og seinni tíma skáldum segist _____ svo frá að gyðja fegurðarinn- ar og ástarinnar, hin gullprúða Af- rodíte, sé hinum gyðjunum fríðari og blómlegri..." Lifandi aldarlýsíng Kvikmyndaleikstjórinn Roger Vadim lýsir því í ævisögu sinni þegar Brigitte Bardot synti í sjónum úti fyr- ir Cannes og reis upp úr öldunum eins og gyðja. Það gerðist 47 árum áður en Björk birtist í bleika kjólnum. Það var Roger Vadim sem stjórn- aði myndinni Og guð skapaði kon- una sem færði Brigitte Bardot heimsfrægð. En Vadim sjálfur var ekki síður frægur fyrir sambönd sín við fagrar konur en kvikmynda- stjóm. Hann var m.a. giftur Brigitte Bardot, Annette Stroyberg og Jane Fonda og eignaðist dóttur með Catherine Deneuve sem var svo mömmuleg við Björk á myndunum frá Cannes. Vadim skrifaði ævisögu sína árið 1986. Hann segist skrifa söguna fyrir barnabömin sín svo að þau viti það sanna í málinu en treysti ekki á brenglaðar frásögur annarra. Vadim lést í vetur og þá rifjuðu frönsku blöðin upp sögu kvikmynda- leikstjórans sem bjó til misgóðar myndir en var eiginmaður, ástmað- ur og bamsfaðir nokkurra fegurstu kvenna heims á síðari hluta tuttug- ustu aldar. Ævisaga hans er skemmtileg og hvort sem hún er sönn í smáatriðum eða ekki er hún lifandi aldarfarslýs- ing. Hann gefur mynd af sjálfum sér sem dálítið kærulausum en þó metn- aðarfullum glaumgosa, sem vildi öll- um gott gera, og hélt góðu sambandi við fyrrverandi ástkonur sinar og eig- inkonur þótt leiðir þeirra skildu. Þetta var reyndar svolítið ruglings- legt hjá honum á stundum þannig að hann sendi bömin sín eitt sinn óvart til rangra mæðra í röngum borgum, en allir komust heim til sin að lokum. Ber konum vel söguna Brigitte Bardot segir í löngu við- tali í vikuritinu Paris Match að Vadim hafi alls ekki skapað sig, en: Hólmfríöur Gunnarsdóttir „sama blóðið er í okk- ur...hann var fjölskylda mín og hetja æsku minn- ar. Hann var eiginlega lykill lífs mins.“ „Hann opnaði púpuna og fékk mig til að fljúga.“ Það veldur reyndar dá- lítilli undrun hvað fólk hefur lifað hátt og gefið sig formálalaust ástinni á vald í Frakklandi fyrir tíma pillunnar, ef trúa má __________orðum Vadims. Til dæmis fannst Brigitte mikils um vert að losna við meydóminn og verða „alvörukona". Svo mjög var hún fegin þegar það var afstaðið að hún hljóp allsnakin út að næsta glugga, opnaði út á götu og hrópaði yfir Parisarborg: „Ég er orðin kona! Ég er orðin kona!“ Þetta hefði þótt djarft í Reykjavík. Vadim ber konum sínum öllum vel söguna en þó eru þær misjafnar eins og nærri má geta. Hann segir að Catherine hafi verið eldheit undir köldu yfirborði en þegar fram í sótti þótti honum hún nokkuð stjómsöm. Hann dáðist að viðbrögðum hennar þegar hún, ástkonan, kom að Ann- ette, eiginkonunni, sofandi í hjóna- rúminu. (Annette hafði verið lengi að heiman með ástmanni sínum.) Venjulega er þetta öfugt, sagði Catherine, það er eiginkonan sem finnur kött í bóli bjarnar! En málið leystist farsællega. Catherine og Vadim sváfu á hóteli næstu nótt og daginn eftir fór Annette aftur til ást- mannsins. Nú er hennar tími Brigitte, Annette, Catherine og Fonda yfirgáfu allar þennan mann sem hjálpaöi þeim til að losna úr púpunni og breiða út vængina. í vet- ur var komið að honum að kveðja. Þá var haldin minningarathöfn í gamalli kirkju í hjarta Parísar. Þang- að komu þær aflar eins og fuglar sem fljúga heim. Sumar þeirra veg- móðari en aðrar og fegurðin fölnuð. Þegar Björk kom fram í bleika kjólnum sínum í Cannes var hún öll- um hinum gyðjunum fríðari og blómlegri. - Nú er hennar tími. Hólmfríður Gunnarsdóttir Franski kvikmyndaleikstjórinn Roger Vadim var m.a. giftur Brigitte Bardot, Annette Stroyberg ogjane Fonda og eignaðist dóttur með Catheríne Deneuve sem var svo mömmuleg við Björk á myndunum frá Cannes. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.