Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Side 29
33 FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 DV Tilvera Háskólabíó frumsýnir East is East: Gamlar hefðir í nú- tímaþjóðfélagi East Is East er bresk kvikmynd sem vakið hefiir mikla athygli undanfarin misseri og verið vel sótt hvar sem hún hefur verið sýnd. í Bandaríkjunum hefur verið jöfh og góð aðsókn á hana og hefur hún verið á vinsældalistanum þrátt fyrir að vera aðeins sýnd í stór- borgum. í Bretlandi var hún sýnd við metaðsókn. East Is East segir frá Khan-fjölskyld- unni. George Khan (Omi Puri) er höf- uð fjölskyldunnar sem að hans mati er skínandi fagurt dæmi um ekta pakist- anska fjölskyldu á enskri grund. Brest- ir koma í lífssýn fóðurins þegar bama- skarinn reynist ekki uppfylla ströng siðferðis- og menningargildi hans. Elsti sonurinn stingur heitmeyna af við altarið (þegar hann sér hana í fyrsta sinn), það kemur í ljós að sá yngsti er ekki eins umskorinn og allir töldu og öh systkini þeirra nýta hvert tækifærið sem gefst til að bryðja beikon á bak við fóður sinn. Það geng- ur því erfiðlega hjá George að sam- ræma gamlar siðvenjur frá ættlandi hans nútímasamfélagi. East Is East er gerð eftir leikriti sem sett var upp af Royal Court Theatre og naut það mikila vinsælda. Framleið- andinn Leslee Udwin keypti kvik- myndaréttinn 1997 og hóf strax undir- búning að gerð myndarinnar ásamt höfúndi leikritsins Ayub Khan Din, sem hafði eigin hugmyndir um það hvemig myndin ætti að lita út: „Ég hafði í huga myndir á borð við A Taste of Honey, Spring and Port Wine og This Sporting Life, svarthvítar raun- sæismyndir, sem gerðar vom snemma á sjöunda áratugnum og gerast meðal almúgans í bæjum og borgum í Tariq. Hefur orö á sér í skólanum fyrir aö vera mikill kvennamaöur. Englandi, þannig að þegar ég byrjaði að skrifa leikritið var ég í fyrstu með myndir í huga mínum sem síðan urðu að texta.“ Þeir félagar fóm síðan á stúfana til að firrna leikstjóra og þar sem ljóst var að sjónvarpsstöðvar myndu fjármagna verkefnið þá var leitað í hirslur þeirra eftir efnilegum leikstjóra. Það var síð- an Ayub, sem stakk upp á Damien O’Donnel, en hann hafði sé stuttmynd hans 35 Aside þegar hún var sýnd í keppni ungra leikstjóra og hrifist af handbrögðum hans. O’Donnell greip tækiflærið og sýnir með mynd sinni að hann var sjálfsagt rétti kosturinn. Eftir að O’Donnel kom til liðs við Udwin og Ayub tók hann snátt og smátt við stjóminni þar sem hug- myndir þeirra þriggja fóm saman um útlit og innihald myndarinnar. O’Donnell sagði þetta ekki bara hafa verið hans fyrsta verk sem kvik- myndaleikstjóri heldur hafi hann þurft að kynna sér menningarheim sem hann þekkti ekki áður: „Hér er ég á ókunnum slóðum að vinna mina fyrstu kvikmynd með leikskáldi, sem aldrei hefur skrifað kvikmyndahandrit áður, skrifað eftir leikriti sem ég hef ekki séð og fjallar um menningarheim sem ég veit ekkert um. Þetta er mikil vinna, en mjög gefandi." -HK Kevin og Perry Go Large frumsýnd í Regnboganum: Aular í leit að stelp- um og frægð Barber of Siberia Julia Ormond í hlutverki hinnar bandarísku Jane Callahan. Rakarinn í Síberíu Um síðustu helgi var fhimsýnd í London rússneska stórmyndin The Barber of Siberia, sem er með ensku tali og skartar alþjóðlegum kvik- myndastjömum ásamt rússneskmn leikurum. Nokkuð er um liðið síðan mynd þessi, sem er þriggja tíma epísk sögumynd, var tilbúin, en tökur fóm fram 1997. Myndin hefur ekki fyrr hlotið almenna dreifmgu á Vestur- löndum vegna lengdar og þá þykir hún efriislega ekki góður kostur fyrir kvikmyndahúsin. Leikstjóri er Nikita Mikhalkov sem meðal annars leik- stýrði hinni margverðlaunuðu Bumt by the Sun.sem sýnd var hér á landi á kvikmyndahátíð í fyrra. í myndinni segir frá bandarískum kaupsýslu- manni, sem Richard Harris leikur, sem fer til Rússlands á níunda áratug nítjándu aldar til að selja timburverk- tökum í Síberíu gufúvélar til að auð- velda þeim vinnuna. Julia Ormond leikur unga aðstoðarkonu hans sem verður ástfangin af ungum rússnesk- um liðsforingja, sem Oleg Menshikov, ein helsta kvikmyndastjama Rússa, leikur. Myndin þykir hafa yfirbragð hinna löngu og þungu rússnesku skáldsagna en yfirleitt em gagn- rýnendur sammála um að hún sé ægi- fógur á að líta og innihaldi stórbrotin atriði. Regnboginn framsýnir á morgun gamanmyndina Kevin and Perry Go Large sem fjallar um tvo nörda sem famir eru að fmna fyrir hormónun- um og eltast þeir við stelpur þar sem þeir telja það frekar niðurlægjandi að vera hreinir sveinar. Þá er það einnig þeirra draumur að verða bestu plötu- snúðar heimsins. Þegar myndin hefst er sumarið í nánd og þeir félagar eru sammála um að staðurinn þar sem draumar þeirra muni rætast sé Ibiza. Strákamir búa sig út með farangur sem aðallega felst í smokkum. Einn galli er þó á gjöf Njarðar. Pabbi og mamma Kevins eru einnig á leið í fri til Ibiza. Strax við komuna sjá strákamir draumadísir sinar, Candice og Gemmu, og er ein- stefna sett á þær. Smátruflun verður þó á árás þeirra þegar þeir kynnast uppáhaldsplötuspilara sínum, DJ Eye Ball Paul. Það sem gerir Kevin og Perry nokkuð sérstaka gamanmynd er að í hlutverki Perrys er leikkona, Kathy Burke, sem á að baki stuttan en glæsilegan feril. Hún hlaut meðal annars verðlaun sem besta leikkona á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra fyrir leik sinn í Nil by Mouth, sem Gary Oldman leikstýrir. Þá lék hún á móti Meryl Streep í Dancing at Lug- hnasa og var María Túdor í Eliza- beth. Hún og Harry Enfield, sem leik- ur Kevin og er einnig handritshöf- undur, hafa áður leitt saman hesta sína en hún kom fram í sjónvarps- þáttum sem hann hafði umsjón með. Enfield er í dag talinn einn af bestu grínistum Breta og er margverð- launður fyrir sjónvarpsþætti sína. Meðal annarra leikara er Rhys Ifans sem varð nánast frægur á svip- stundu þegar hann lék herbergisfé- laga Hughs Grants í Notting Hill. Ifans er velskur og er velskumælandi. Hann hefúr gert marga sjónvarps- þætti þar sem hann talar eingöngu móðurmál sitt. Leikstjóri er Ed Bye, sem nánast eingöngu hefur leikstýrt gamanþáttum í sjónvarpi, og er Kevin and Perry Go Large fyrsta kvikmynd- in sem hann leikstýrir. -HK Við mælum með Being John Malkovich ★★★★ Þvílík afbragðsskemmtun! Það er auðvelt að láta dæluna ganga með háttstemmdum lýsingarorðum en ég skal reyna að stilla mig. Og þó. í þess- ari súrrealísku kómedíu um sjálfs- myndarkrisu, refilstigu frægðarinnar og leitina að eilífðinni rekur hver kostulega uppákoman aðra og, eins og góðum myndum sæmir, vekur hún miklu fleiri spumingar en hún svarar. -ÁS Giadiator ictrki, Ridley Scott hefur ávallt verið maður myndmálsins og hvergi kemur þessi kostur hans sem leikstjóra betur fram en í Gladiator, mikilli og vel gerðri epískri kvikmynd sem hefur nánast allt sem góð spennumynd þarf að hafa þó sagan sé sjálf ekki ýkja merkileg. Russell Crowe leikur titil- hlutverkið af miklu öryggi og krafti. Hann hefur það tO að bera að maður trúir því að hann sé mestur allra skylmingaþræla auk þess sem mikiil þungi er í túlkun hans. -HK I Kina spiser de hunde ★★★★Danir eru fáum öðrum líkir þeg- ar kemur að kvikmyndagerð. Hér leggja þeir tO atlögu við kvikmynda- grein sem Evrópubúar hafa sjaldan rið- ið feitum hesti frá. Um er að ræða kol- svarta kómedíu þar sem áhorfendum eru lítO grið gefin. Ólöglegur innflytj- andi, bankastarfsmaður og tveir kokk- ar fremja rán undir stjórn Kim Bodnia úr Pusher. Mikið gaman, mikið grín. -BÆN Boy’s Don’t Cry ★★★★Áhrifarík kvikmynd um örlög Brandon Teena sem bjó yfir líkama stúOíu en hneigðum pOts. AOur leikur er tO fyrirmyndar og ber þó sérstak- lega að geta frammistöðu Hilary Swank og Peters Sarsgaard. Ekki bara góð kvikmynd heldur kröftugt hróp á umburðarlyndi. -BÆN 101 Reykjavík ★★★HOmir Snær leikur auðnuleysingj- ann Hlyn sem lifir og hrærist í hverfi 101 í Reykjavík. Líf hans er í fostum skorðum þar tO vinkona móður hans kemur í heimsókn og úr verður ein- hver sérkennOegasti ástarþrihyrningur íslenskrar kvikmyndasögu. Fjörug mynd sem býr þó yfir þungri og alvar- legri undiröldu. Úthugsuð og vönduð, en hvemig í ósköpunum stendur á því að ekki er hægt að sjá myndina i hverfi. -BÆN Ghost Dog: Way of the Samurai ★★★Jim Jarmusch er bæði trúr fortíð sinni í myndinni og fetar um leið inn á nýjar brautir. Aðalpersónan er að mörgu leyti í stöðu ferðalangsins sem við þekkjum úr fyrri myndum hans en mafiósarnir tilheyra ólíkri hefð megin- straumskvikmynda. Sú blanda gengur ekki nægjanlega vel upp en kemur þó ekki i veg fyrir ágæta mynd. -BÆN Angela’s Ashes ★★★Alan Parker fer eigin leiðir í leik- stjóm á kvikmyndagerð frægrar skáld- sögu og er umhugað að sýna okkur smáatriðin, hvað fátæklingar þurftu að búa við á áram áður - lífsmáti sem varla þekkist I vestrænum þjóöfélögum i dag. Hvað sem segja má uin leikstjórn og túlkun Parkers á bókinni þá hefur honum tekist að skapa áhrifamikla kvikmynd um líf og kjör fátæklinga fyrr á öldinni. -HK Toy Story 2 ★★★Þetta framhald fyrstu Leikfangasög- unnar er, líkt og fyrri myndin, full af fjöri fyrir bæði börn og fuOorðna. Tölvu- tæknin sem notuö er í Toy Story er undraverö, jafnraunveruleg og hún er gervileg, en um leið fyrirheit um ein- stakar sýnir sem eiga eftir aö birtast okkur á næstu árum. Hinum fuUorðnu er þvi alveg óhætt að fylgja ungviðinu á þessa mynd tO að rifja upp gamlan sann- leik, sem kannski hefur rykfallið svolít- ið, og næra barnshjartaö með ærlegri skemmtun. -ÁS A V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.