Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Page 33
37 FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 DV Tilvera Fjórir fræknir fasanar í Hallormsstaðarskógi: Prúðir í fasi og lifðu veturinn Þeir fjórir fasanahanar sem Skóg- rækt ríkisins sleppti í Hallorms- staöarskógi í fyrra virðast hafa lifað af veturinn. Reyndar eru fuglamir alltaf stakir þannig að sá sem sést hefur undanfarið gæti hafa verið sá sami í öllum tilfellum. Hallorms- staðarskógur er u.þ.b. 700 hektara skógur og því erfitt að segja til um afdrif fuglanna. Að sögn Þórs Þor- finnssonar, skógarvarðar á Hall- ormsstað eru einhver afíoll líkleg. Fuglunum var sleppt til að athuga hvort raunhæft væri að þeir gætu lifað villtir í íslenskum skógi og var um að ræða eins árs verkefni. Margt getur orðiö fuglunum að fjör- tjóni, t.a.m. tófa, minkur, fálki og ekki síst óblíð veðrátta. Fasanamir koma frá Tókastöðum þar sem Skúli Magnússon og Anna Einn fyrir aila? Ekki er Ijóst hvort allir fjórir hanarnir eru lifandi eöa hvort aðeins einn liföi af umhleypingasaman vetur. Einarsdóttir hafa um tveggja ára skeið stundað ræktun fasana í til- raunaskyni. Hugmyndin kviknaði þegar Skúli sat í nefnd um innflutn- ing dýra í íslenska skóga. Hann seg- ir fasana koma frá Asíu en að þeir hafi veriö ræktaðir í Evrópu og Bandaríkjunum í nokkrar aldir. Hátturinn er sá að fuglinn er rækt- aður, honum sleppt og hann síðan veiddur. „Tilkoma fasana í íslenskt lifríki mun engu raska. Þeir fæla ekki frá annan fugl, éta fræ, brum og skordýr og eru aðeins til augna- yndis fyrir fólk í skógunum. Þeir fuglar sem ekki veiðast geta æxlast í skógunum en verða aldrei stór stofn því þeir eru fáir sem ekki nást.“ Líklegt er að skógræktin á Hallormsstað sæki um leyfi til að sleppa fuglum í skóginn. -HH Hnappavallahamrar í Öræfum: Besta klettaklifursvæðið Bestu aðstæður landsins Hér skoöar hópurinn vænlega kletta í Hnappavallahömrum sem eru tald- ar bestu aöstæöur landsins til fjallaklifurs. Sannarlega er þetta tignarlegt landslag. DV, ORÆFUM:__________________________ í lok maí hélt íslenski Alpaklúbbur- inn sitt árlega klettaklifursnámskeiö. Námskeiðið stóð eitt kvöld og eina helgi og hófst við klifursúluna í Kringlunni og var siðan fram haldið undir Hnappavallahömrum í Öræf- um. Þar er stærsta og að margra áliti besta klettaklifursvæði landsins og mjög góðar aðstæður til að æfa kletta- klifur. Þar eru 70 til 80 boltaðar leiðir af öllum erfiðleikagráðum. Þeir Stefán S. Smárason og Ámi Gunnar Reynis- son leiðbeindu 12 nýliðum á öllum aldri við að klífa og síga í klettum. Klettaklifur er spennandi og fjölbreytt íþrótt en að mörgu leyti tæknileg og útheimtir sérhæfðan útbúnað, s.s. lín- ur, hjálma, klifurbelti, klifurskó, sigtól og tvista. Þess vegna er mikils virði að geta fengið tilsögn frá reynd- um klifrurum, bæði til að ná góðri klifurtækni og ekki síst til að læra að fara með allan öryggisbúnað sem klifrinu fylgir. -ERIS Selt í matinn með Paltrow Gwyneth Paltrow veit sem er aö hún er eftirsótt á alla kanta. Því fannst leikkonunni tilvalið að láta þennan mikla áhuga sem henni er sýndur láta gott af sér leiða. Og það gerði hún með því að heimila upp- boð á átta plássum við matarborð- ið. Ágóðinn rann til góðgerðarsjóðs- ins sem kenndur er við Hróa hött. Á söfnunarkvöldi fyrir stuttu létu gestir tæpar átta hundruð milljónir íslenskra króna renna til styrktar góðum málum. Ekki fylgir sögunni hversu mikið málsverður með Gwyneth kostar en hann er áreið- anlega hverrar krónu virði. Michael Caine gerður að sir Breski stórleikarinn Michael Caine verður aðlaður í tilefhi af af- mæli Bretadrottningar um helgina og framvegis verða menn því að ávarpa kappann sem sir Michael. Breska æsiblaðið Sun eignar sér þessa tilvonandi upphafningu leik- arans ástsæla. Tilkynning um ridd- aratignina barst skömmu eftir að blaðið krafðist þess að Caine yrði heiðraður fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar. Caine ku víst hafa kvartað yfir því að vera nánast útskúfaöur heima, enda lengi búið í Hollywood. Glasgow: Götótt- asta kona heims Þessa hér rakst ljósmyndari DV á í Glasgow á dögunum en þetta er Elaine Davidson sem að eigin sögn á heimsmetið í líkamsgötun svo- kallaðri. Hún státar af u.þ.b. 600 götum, hringjum og pinnum um allan skrokk en þó mest i andlit- inu. Elaine býr í íslendinganýlend- unni Glasgow og rekur þar húð- flúrsstofu með meiru. Annars ség- ist hún ferðast um heiminn til að sýna sig og sjá aðra. Aðspurð sagðist hún aldrei hafa komið til íslands en það gæti þó verið spennandi. -HH TILBOÐ VIKUNNAR íþessari viku bjóðum viðykkur eftirfarandi gœðabifreiðar á okkar hóflega verði: Range Rover 4,6 HSE, skráður nýr 9/99, ekinn um 20.000 km. Verð aðeins kr. 4.895.000 Mercedes Benz C 200 “Elegance“, skráður nýr 1996, ekinn um 85.000 km. Verð aðeins kr.1.890.000 Range Rover 4,6 HSE, skráður nýr 12/98, ekinn um 20.000 km. Verð aðeins kr. 4.490.000 Range Rover Vogue SE 3,9 Classic, innfluttur nýr 1994, ekinn um 130.000 km. Verð aðeins kr.1.590.000 Mercedes Benz E 200 “Elegance“, skráður nýr 1999, ekinn um 25.000 km. Verð aðeins kr. 2.890.000 Upplýsingar hjá BSA, Skemmuvegi 6, eða í síma 587-1280. Og síðast en ekki síst: Bíllinn til að nota í bæjarferðina. Nissan Micra/1997, ekinn um 80.000 km. Verð aðeins kr. 649.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.