Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2000, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000
19
Útgáfufólag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viötöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Ferli Suðurlandsskjálfta
Andrúmsloft hérlendis er sérkennilegt þessa dagana og
aö vonum. Ferli Suöurlandsskjálfta stendur yfir, náttúru-
hamfarir sem íbúar á Suöurlandi og suðvesturhorni
landsins hafa átt yfir höfði sér og óttast um árabil. Þegar
hafa tveir sterkir jarðskjálftar riðið yfir og valdið umtals-
verðu tjóni í Rangárvalla- og Árnessýslu. Af reynslu sög-
unnar og mælingum vísindamanna sést að umbrotin nú
fylgja þekktri þróun Suðurlandsskjálfta og því er liklegt
að sú jarðskjálftavirkni sem verið hefur á Suðurlandi
haldi áfram að færast til vesturs.
Þrátt fyrir eignatjón af völdum skjálftanna á laugardag
og aðfaranótt miðvikudags er hið mikla lán að ekkert
manntjón hefur orðið af völdum náttúruhamfaranna.
Skemmdir hafa einkum orðið á eldri húsum, bæði í þétt-
býli og dreifbýli. Nýrri hús hafa staðist áraunina, jafnvel
þau hús sem standa við upptök skjálftanna. Talsvert tjón
hefur þó víða orðið á innbúi og raunar má draga lærdóma
af skjálftunum við frágang innanhúss. Þar er einkum mik-
ilvægt að svo sé gengið um þunga hluti að ekki sé hætta
á að þeir falli á fólk.
Kerfi Landsvirkjunar hefur staðist skjálftana sem og
kerfi Landssímans að mestu. Staðbundnar skemmdir hafa
orðið á veitukerfum hitaveitna sem og staðbundnar raf-
magnstruflanir. Loka hefur orðið samgönguæðum tíma-
bundið, Suðurlandsvegi vegna skemmda og brúm meðan
skoðun á þeim hefur farið fram. Skjálftamir nú sýna í enn
skýrara ljósi veikleika þess að búa við aðeins eina brú yfir
Þjórsá í byggð, þótt brúin hafi staðist mikla áraun í
tvigang. Miðað við ástandið á Hellu nú má ímynda sér
stöðuna gæfi brúin sig í sambærilegum náttúruhamforum
að vetri. Þá gæti reynst erfitt að sinna slösuðu fólki eða
koma því á sjúkrahús í Reykjavík.
Gott er einnig að bera saman viðbrögð við fyrri skjálft-
anum og þeim síðari. Allt var fumlausara eftir að sá
seinni reið yfir, kerfi Almannavarna, viðbrögð Ríkisút-
varps, hljóðvarps og sjónvarps en frammistaða ríkissjón-
varpsins var átakanlega léleg eftir fyrri jarðskjálftann.
Áfallahjálp sem Rauði krossinn veitir á þeim svæðum sem
urðu verst úti í skjálftunum er mikilvæg.
Við aðstæður sem þessar sannar viðlagatrygging gildi
sitt. Viðlagatrygging er skyldutrygging sem ætlað er að
bæta beint tjón af völdum náttúruhamfara. Allar húseign-
ir sem eru brunatryggðar eru viðlagatryggðar um leið.
Trygging þessi dregur því úr þyngsta högginu hjá þeim
sem verst eru leiknir af völdum jarðskjálftanna.
Fólki er hins vegar í sjálfsvald sett hvort það tryggir
innbú sitt. Tjón varð víða á innbúi fólks og í sumum hús-
um er nánast allt ónýtt. Enn liggur ekki fyrir hversu vel
fólk á skjálftasvæðunum hefur tryggt innbú sitt en efa-
laust eru margir vantryggðir. í þeim málum ætti hver og
einn að huga að stöðu sinni. Brunatryggi fólk lausamuni
kaupir það viðlagatryggingu á innbúi um leið.
í miðju ferli þessara stórskjálfta, hver sem þróun þeirra
verður og hversu hratt sem þeir ganga yfir, er mikilvæg-
ast að hver og einn hugi að sínu nánasta umhverfi.
Reynsla undangenginna daga sýnir að vel byggð mann-
virki standast áraunina, jafnvel svo vel að vakið hefur
undrun vísindamanna. Hættan er því af lausamunum í
umhverfinu.
Um leið er brýnt að hver og einn kynni sér leiðbeining-
ar Almannavarna ríkisins um rétt viðbrögð i jarðskjálft-
um. Þær leiðbeiningar eru aðgengilegar og á hverju heim-
ili og vinnustað - i simaskránni.
Jónas Haraldsson
DV
Skoðun
Borg í hvíld?
í Hvíldardögum Braga
Ólafssonar hringsólar sögu-
maöur stefnulaust um götur
Reykjavíkurborgar og stefn-
ir hvað eftir annað á „hlið“
hennar, flughótel, umferðar-
miðstöðina og Reykjavíkur-
flugvöll, en hörfar þaðan aft-
ur. Hann er allan timann að
reyna að koma sér út á land.
Skáldsagan birtir okkur
þannig borgina sem ofgnótt
áreitis, öfugt við friðinn sem
ríkir í náttúrunni.
Þessi andstæða borgar og ”
náttúru er algeng í umfjöllun
borgir og andstæða þessi er síðan end-
urtekin og endurspegluð í muninum á
miðborg og úthverfi. Þessi greinar-
munur borgar og náttúru rann út í
sandinn þegar Kjalamesið stórborgar-
væddist hér um árið, og í framhaldi af
því hlýtur hugurinn að reika til hinna
landamæranna, þeirra milli úthverfa
og miðbæja.
Velferðaræxli á borgum
Ef Esjan verður bráðum inni í
Reykjavík, hver verður þá munurinn
á úthverfi eins og Breiðholtinu og
Ulfhiidur
Dagsdóttir
bókmenntafræöingur
um
sjálfri miðborginni? Breið-
holtið - þarsem ég hef búið
lengst af - er afskaplega
dæmigert úthverfi. Hug-
myndin að baki úthverfum
er sú að forðast ys og þys
bæjarlífsins og vemda sig
gegn hávaða og mengun og
ofbeldi því sem fylgir mið-
borginni.
í úthverfum býr fólk sem
ekki á heima í miðbænum í
fleiri en einum skilningi og
horfir á sjónvarp allan dag-
inn milli þess sem það skýst
út í vídeóleigu á bílnum. í úthverfinu
kristallast allt sem borgarlifiö skfi-
greinir sig gegn, andlegur dauði og
daglegur drungi hversdagslífsins. Út-
hverfin eru eins konar velferðaræxli á
borgum og standa fyrir allt það sem er
leiðinlegt og staðnað og forpokað mið-
að við hinn lifandi kjarna sem mið-
borgin er, full af gangandi fólki og
óvæntum uppákomum. - Þannig er
miðbærinn allt annar heimur en
Breiðholtið.
Bara túristar í bænum
Nú, þegar ég er flutt í miðbæinn, þá
„Eða kannski - kannski er þetta alls ekki Reykjavík
heldur bara módel, eins konar spilaborg eða einfalt
pappalíkan sem hefur aldrei hýst lifandi fólk og er bara
hér til reynslu. Það gæti skýrt hvers vegna miðbœr
Reykjavíkur er alltaf svona ferlega dauðyflislegur. “
fyrst er ég að lifa lífi borgarbúans,
þessa borgarbúa sem ráfar um götur
borgarinnar og drekkur þyrstur í sig
lifandi menningu, iðandi mannlifið í
sínum fjölbreyttustu myndum. Þegar
ég geng um Lækjartorgið er þar lífleg
bílaumferð og Laugavegurinn er ið-
andi af túristum. Skólavörðustígurinn
er kannski ekkert sérstaklega spræk-
ur í dag en þegar ég beygi inn í Berg-
staðastrætið dettur allt í dúnalogn.
Eftir að hafa gengið alein framhjá
auðu bakarii og hárgreiöslustofu fer
mér að líða dálítið eins og Úllu sem
var ein í heiminum og reyni að hugsa
upp skýringar. Kannski að Ragnar
hafi spáð Suðurlandsskjálftanum
mikla rétt í þessu meðan ég var upp-
Sýra í Sýrlandi
Nafn Hafez al-Assads í Sýrlandi
hafði sömu merkingu og harðasta
óvinar hans meðal ísraelsmanna,
Ariel Sharon. Nöfnin þýða ljón á ná-
skyldum málum. En þar sem Ariel
Sharon var og er óhæfur í húsum sið-
aðra manna var nafni hans Assad vel-
kominn. Hann var að vísu hermaður
en af annarri tegund en þeirri terr-
oristategund sem Sharon, Shamir og
Begin voru sprottnir upp úr í þeim
þjóðemishreinsunum sem skópu ísra-
elsríki á sínum tíma. Hafez al-Assad
leit alltaf á Palestínu sem hemumið
land sem Bretar hefðu gefið gyðing-
um á kostað íbúaima til að friðþægja
sinni eigin samvisku í kjölfar herfar-
ar Þjóðverja gegn gyðingum í síðari
heimsstyrjöldinni.
Hann neitaði ævinlega að sam-
þykkja að það fólk sem þar byggi ætti
að gjalda fyrir það með lífi sinu og
lífskjörum sem Evrópuríkin ættu sök
á. Því var hann slíkur leiðtogi sem
Kjallarí
,Enginn leiðtogi annar hafði slík siðferðisleg áhrifgegn
ísrael sem Assad, vegna þess að hann var œvinlega
sjálfum sér samkvœmur og hélt uppi þeim lífsgœðum
og fyrirkomulagi sem allir virtu. “
Með og á móti
hann var og þess vegna var
hann slíkur leiðtogi sem leit
verður að. Þessi tilfinning er
ótrúlega sterk í Miðaustur-
löndum og enginn leiðtogi
gengur til vináttusambands
við ísrael að óbreyttu, eins
og Anwar heitinn Sadat Eg-
yptalandsforseti komst að
þegar hans eigin hermenn
réðu hann af dögum 1981.
Menningarheimar
Assad vann stóran ______
diplómatískan sigur með því
að sýna samstöðu í stríðinu gegn írak
en i staðinn fékk hann í raun óum-
deild yfirráð yfir Líbanon sem aldrei
hefur verið annað en hluti af þeim
hluta tyrkneska heimsveldisins sem
kallaðist Sýrland, ásamt Palestínu.
Með þessu sýndi hann þá slægð og
stjórnvísi sem gerði hann að forystu-
mani þeirra araba sem stóðu gegn of-
urvaldi ísraels sem er í raun hernað-
arlegt útibú Bandaríkjanna í Mið-
austurlöndum og undirrót allrar
þeirrar ólgu sem Bandaríkjamenn
kjósa að kalla terrorisma, en er í
raun ósættanlegur árekstur tveggja
menningarheima, íslams og kristni,
auk gyðingdóms, og er hemaðarlegur
veruleiki sem ekki verður haggað.
En hugmyndir eru ekki bundnar
veruleikanum. Enginn leiðtogi arrnar
hafði slík siðferðisleg áhrif gegn ísra-
el og Assad, vegna þess að hann var
ævinlega sjálfum sér samkvæmur og
hélt uppi þeim lifsgæðum og fyrir-
komulagi sem allir virtu. Sýrland
liggur að ísrael og friður í Miöausur-
löndum sem heild er óhugsandi án
Sýrlands. Ekki aðeins vegna Golan-
hæða, sem eru hluti af vatnasvæði
iT7nt
Gunnar
Eyþórsson
blaöamaöur
Hermonfjalls og árinnar
Jóradan, og þar með vatna-
svæðis Suðm--Libanons. Allt
bullið um Hizbullah er
aukaatriði, landslagið sjálft
er það sem kallað er strateg-
iskt aðalatriði.
Egyptar
Bandaríkjamenn binda
nú vonir við að Mubarak,
sem þeir hafa allt að því
gert að lepp sínum, enda Eg-
________ yptar næstir ísrael hvað
varðar bandaríska hernað-
ar- og efnahagsaðstoð, taki við for-
ystuhlutverki því meðal araba sem
Assad gegndi. En hugarfari verður
ekki auðveldlega breytt með pening-
um á þessum slóðum. Hernaðcirlegur
raunveruleiki er eitt, friðarvflji ann-
að. Á bak við Sýrland er íran. Sú
staðreynd er óbreytt að meðal
múslíma er hernám ísraels á
Palesínu og sú apartheidstefna sem
þeir reka þar uppspretta haturs um
ókomin ár.
Það hefur tíðkast á Vesturlöndum
allt frá stofnun Ísraelsríkis að áfelll-
ast hina hemumdu fyrir að una ekki
því ofbeldi sem þeir eru beittir. Þetta
mun aðeins breytast með viðurkenn-
ingu ísraelsmanna sjálfra á því að
land þeirra er hemámssvæði og þeir
sjálfir í hlutverki kúgaranna. Þetta
kann að vera að breytast, en gengur
hægt i krafti hemaðarlegs ofurvalds.
Með fráfalli Assads kunna áherslur
að breytast og stagl um einstaka
menn að mUdast. Hitt breytist ekki
að dauður eða lifandi var Hafez-al-
Assad tákn araba andspænis ísrael og
ólíklegt að sú táknmynd breytist.
Gunnar Eyþórsson
A „Fyrir mína parta
, finnst mér Portú-
K galar vera likleg-
■HBB* astir og á eftir
þeim myndu koma Frakkar
og Hollendingar. í leik
Frakka og Hollendinga
fannst mér Frakkar ekki vera
síðri. Það er aö vissu leyti
Hollendingum til tekna að
leika á heimaveUi en að sama
skapi er ákveðin pressa á bak
við það. Ég get hins vegar
ímyndað mér að hoUenska liðið
farið aUa leið en auk þeirra
Þorbjörn
Jensson.
vel
gæti
hafa
Frakkar og Portúgalar verið
að leika besta boltann. Þetta
Evrópumót er búið að vera
besta skemmtun. Það hafa
verið rosalegar sviptingar og
áföU, t.d. fyrir Englendinga
og Þjóðverja, að komast ekki
áfram. Það blasir við einhver
uppstokkun hjá þessum þjóð-
um. Mér hefur fundist virki-
lega gaman að horfa á Portú-
galana, vel skipulögö upp-
bygging hjá þeim í góöum árangri og
ég ætla að tippa á þá sem líklega
kandídata í mótinu."
r„HoUendingar,
að minnsta kosti á
heimaveUi, eru
ekki líklegir tU að
verða meistarar. Mér finnst
þeir vera að leika dúkkulísu-
fótbolta og á þeirri spila-
mennsku fara þeir ekki langt.
Þegar komið er í útsláttar-
keppni tel ég líklegast að sig-
urvegarinn í viðureign
Frakka og Spánverja verði Evrópu-
meistari. Síðasti leikur Hollendinga
gegn Frökkum var ekki marktækur
því hann skipti í raun engu máli.
Þorbergur
Aöalsteinsson
numin af geimverum og borgin hafi
umsvifalaust verið rýmd. Þetta gæti
verið ástæðan fyrir því að það virðast
bara vera túristar í bænum, þeir hafa
ekki skUið fréttina og jafnvel haldið
að þetta væri bíómynd.
Kannski bara módel
Og kannski er skjálftinn riðinn yfir,
hugsa ég - og leggst á glugga - og aU-
ir hafa farist. Og sjálf er ég bara
draugur á framliðinni gangstétt. Þá er
Reykjavík eins og Pompei, eilíf
draugaborg mörkuð i öskulag sögunn-
ar. Eða kannski - kannski er þetta aUs
ekki Reykjavík heldur bara módel,
eins konar spUaborg eða einfalt
pappalíkan sem hefur aldrei hýst lif-
andi fólk og er bara hér tU reynslu.
Það gæti skýrt hvers vegna miðbær
Reykjavíkur er aUtaf svona ferlega
dauðyflislegur.
Eitthvað hlýtur að vera hér á seyði
því það getur ekki komið tU greina aö
það sé í sjálfu sér enginn munur á
miðbænum og úthverfunum og að
Reykjavík sé öU' ekkert annað en
svefnbær án borgarbrags, draugaborg
án Suðurlandsskjálfta.
Úlfhildur Dagsdóttir
Dmmæli
ir burði til að fara alla leið?
Uppbygging að koma í ljós Ekki alla leið í þetta skiptið
Það er mikU pressa á Hol-
lendingum á heimaveUi og
undir henni standa þeir ekki.
Mér finnast Portúgalar hafa
komið einna skemmtUegast
á óvart, opnir, fljótir og
skemmtilegir. Þeir fara langt
en ekki alla leið í þetta skipt-
ið. Þetta hefur verið
skemmtUeg keppni, mikið
skorað, mörkin mörg hver
faUeg og mikið um góða leiki. Margt
óvænt hefur líka gerst, Englendingar
og Þjóðverjar famir heim og engin
Norðurlandaþjóð komst áfram.“
Liö Portúgals hefur leikiö mjög vel í úrslitakeppni Evrópumóts landsliöa i
keppninnar en því eru þó ekki allir sammála.
Belgíu og Hollandi. Margir eru þeirrar skoöunar aö Portúgal sé meö besta liö
ESB er ungliðanna
„Ungt fólk lítur inn-
göngu íslands í Evrópu-
sambandið jákvæðari
augum heldur en þeir
sem eldri eru. Við erum
opnari fyrir nýjungum.
Nema kannski gömlu
íhaldsstrákamir i ung-
liðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins, enda
eru þeir íhaldsmenn. Ég held að ég geti
lofað því að þegar ungir jafnaðarmenn
komast til valda gengur ísland í ESB.“
Vilhjálmur Vilhjálmsson, form. ungra
jafnaöarmanna, í Degi 22. júní.
Minning um þorsk
„Nú hefur þjóðinni
verið tilkynnt að 200.000
tonn af þorski eða meira
hafi horfið af íslands-
miðum á einu ári....
Nógu slæmt er ef hundr-
uð þúsunda tonna af
þorski hafa farist. Mér
þykir þó enn sárara, ef rétt er, að Hafró
hafi tvö ár i röð sagt rangt til um þorsk-
stofninnn eöa týnt honum sem þessu
nemur. Hún hefur lengi þóst geta nánast
talið hann.... En hvort sem þorskamir,
sem farist hafa við ísland sl. ár, án þess
aö komast í aflaskýrslur, eru fleiri eða
færri, blessuð sé minning þeirra."
Jón Sigurösson, fyrrv. framkvæmda-
stj., í Mbl. 22. júní.
Samábyrgð - ekki
sjálfsábyrgð
„Hverjum ber að greiða fyrir tjón af
völdum náttúruhamfara? Þær raddir
hafa orðið háværari á síðustu árum að
tjón á eignum hljóti að verulegu leyti að
vera á ábyrgð þess aðila sem velur að
byggja sitt hús á náttúruhamfarasvæði.
... Það breytir engu hvort menn kjósa að
kalla iðgjaldið skyldutryggingu eða
skatt. Þegar menn verða fyrir efnahags-
legum áfóllum vegna náttúmhamfara
eiga allir landsmenn að vera samábyrg-
ir. Þetta er pólitísk afstaða sem
Maddaman styður heils hugar."
Úr Maddömunni, vefriti SUF, 19. júní.
Ónýt fréttastofnun
„Ríkissjónvarpið er
ónýt fréttastofnun og
gagnslaus. Þangað sóp-
ast athyglissjúkt fólk
sem er meira í mun að
taka sig út á skermin-
um en að afla frétta og
flytja þær. Það liggur í
augum uppi, að sjálfsagt er að loka
fréttastofu Ríkissjónvarpsins, þar sem
hún lítur ekki á sjálfa sig sem frétta-
miðil, nema að því leyti sem við kem-
ur boltaleikjum.... Hljóðvarpið og Stöð
2 biluðu ekki á fréttavaktinni, enda
ekki búið að upptaka alla fréttatíma
þeirra miðla fyrir boltaleiki."
Oddur Ólafsson í Degi 22. júní.
Geysir - virkur eða óvirkur?
Umfjöllun um Geysisgos
og verklegar framkvæmdir
við hverinn, jafnvel deilur,
hafa sést í fjölmiðlum und-
anfarið. Sumir þátttakend-
ur í umræðunum hafa vitn-
að til þess að ferðamönnum
þyki mikið til Geysigosa
koma og ekki sé forsvaran-
legt að leyfa hvernum að
dorma eins og hann hefur
gert lengi.
Ekki orð um það mál hér
sem slíkt, en spyrja má í
framhaldinu: - Hver eru
æskileg umhverfisgæði í
augum ferðamanna?
Ekki fagheiti, en...
Umhverfisgæði í ferðaþjónustu
eru ekki fagheiti í íslenskri umræðu,
enn sem komið er . En það sem að
baki liggur snýst um fjölmargt er
varðar ferðaþjónustuna í landinu;
grein sem veltir einum til tveimur
tugum milljarða á ári, vex stöðugt og
ruglar reytum saman við aðrar
greinar, s.s. landbúnað, orkuvinnslu
og stóriðju. Með orðinu umhverfis-
gæði er í raun verið að óska skil-
greiningar á og umfiöflunar um hvað
það er sem ferðamenn vilja upplifa
og hrósa.
Vilja menn sjá Geysi gjósa eða
vilja menn sjá goshver sem þróast
eins og náttúran býður? Vilja menn
sjá fáein þúsund ferkílómetra há-
lendissvæði með vegum, línum,
skurðum, stíflum og lónum? Vilja
menn aka eftir eða sjá jeppaslóða
upp á Heklu eða ekki? Eru bilhræ og
ruslahaugar á viðavangi eða við
heimahús æskileg umhverfisgæði?
Vilja flestir láta aka sér fram og aft-
Ari Traustí
Guömundsson
jaröeölisfræöingur
og ráögjafi hjá
Línuhönnun.
ur, langar leiðir inn á há-
lendið úr miðstöðvmn við
jaðra þess eða vilja menn
dveljast í miðstöðvum inni
á hálendinu? Hvemig á að
haga merkingum og upplýs-
ingum við náttúruperlur?
Þegar slíkar spumingar
eru kannaðar kemur fljótt í
ljós að ferðamönnum er
unnt að skipta í nokkra
hópa er hafa lík eða ólík
svör við flestum spurning-
um af þessu tagi. En rétt
eins og með önnur gæði, t.d.
lífsgæði eða gæði sund-
staða, verður samt til viss samnefn-
ari eða grunnviðmið sem setja mark
sitt á viðkomandi málaflokk eða
svið; þ.e. ef unnið er með þessar
spumingar. Umhverfisgæði í ferða-
þjónustu fengju þannig smám saman
inntak ef unnið væri skipulegar og
virkar en gert er með þennan þátt
ferðaþjónustunnar.
Æriö verkefni
Ýmislegt þarf að afmarka og gera
áður en mótun umhverfisgæða í
ferðaþjónustu nær flugi. Til dæmis
þarf að marka bása til að vinna í.
Hér er átt við málaflokka eins og:
menningu og menningarlandslag,
umferð, umferðarhætti og aðgengi,
gerð gönguleiða og merkingar, þrifn-
að við mannvirki, umfang og eðli
mannvirkja utan þéttbýlis eða sveita
og loks aðstaða eða þjónusta á þekkt-
um ferðamannastöðum.
Einnig þarf að ná i skoðanir inn-
lendra og erlendra ferðamanna til að
miða við. Það gerist með ítarlegum
könnunum en þær hefur skort mjög
til skamms tíma. Með þeim koma
líka i Ijós andstæðar skoðanir á um-
hverfisgæðum. Einnig þarf að ræða
við þá sem vinna við ferðaþjónustu
og við fræðimenn. Svo þarf þess utan
að efna til mjög markvissra skoðana-
skipta um umhverfisgæðin.
Sjálf hugmyndafræðin að baki ís-
lenskum umhverfisgæðum ferða-
þjónustunnar er heldur ekki sjálfgef-
in. Menn gera ekki hvað sem er til
að þóknast meirihluta ferðamanna.
Vilji þeir sjá Geysi gjósa þarf að vega
aðgerðir sem til þess þarf á móti
virðingu fyrir framgangi náttúrunn-
ar o.s.frv. Þannig verður til viðtekin
hugmyndafræði í umhverfismálum
greinarinnar.
Hver byrjar?
Ekki er á færi einstaklings að skil-
greina umhverfisgæði í íslenskri
ferðaþjónustu. En hugtakið er
áhugavert og margt sem að því snýr
er í raun þegar í deiglunni. Ég get
vel séð fyrir mér að Ferðamálaráð,
sem eflt hefur starfsemi sína undan-
farið, og nýstofnuð ferðmálastofnun
Háskólans á Akureyri og Háskóla Is-
lands leiði um margt umræðuna um
umhverfisgæðin. Öllu því tengist
frekari stefnumótun í umhverfismál-
um í greininni, vistvæn og sjálfbær
ferðaþjónusta og vottun grænna fyr-
irtækja svo eitthvað sé nefnt.
Eins og svo margt annað hér á
landi hafa umhverfisgæði í islenskri
ferðaþjónustu verið að mestu sjálf-
gefin, sumpart vegna fámennis og lít-
illa umsvifa á ferðslóðum. Svo kem-
ur að því að umfangið fer að þrengja
að því sem er kjami ferðaþjónust-
unnar. Þá er byrjað á gagnráðstöfun-
unum - eða hvað?
Ari Trausti Guðmundsson
„Vilja menn sjá Geysi gjósa eða vilja menn sjá goshver sem þróast eins og náttúran býð-
ur? Vilja menn sjá fáein þúsund ferkílómetra hálendissvœði með vegum, línum, skurð-
um, stíflum og lónum? Vilja menn aka eftir eða sjá jeppaslóða upp á Héklu eða ekki?“