Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2000, Blaðsíða 4
Guðmundar- og
Geirfinnsmálið:
Steinn
Armann
Geirfinnur
Steinn Ármann Magnússon leikari.
Bíómyndin um Guðmundar- og
Geirfinnsmálið er á fullu í tökum
þessa dagana. Um daginn var Egill
Helgason ásamt Júlla Kemp og
blaðasnápum af yngri kynslóðinni
fenginn til að leika blaðamenn sem
Erlingur Gíslason er þýska löggan.
yfirheyrðu þýsku lögguna sem lok-
aði málinu á sínum tíma. Það er Er-
lingur Gíslason sem leikur þýskar-
ann en íslensku löggumar eru Sig-
urjón Kjart-
ansson og
Ævar Örn
Jósepsson.
Svo leikur
gamla út-
varpskempan
Gulli Helga
góðlegan
fangavörð
(hann er líka
eitthvað svo
góðlegur og
Atli Rafn Sigurðarson sætur hann
er Sævar Ciesielski. Gulli). Steinn
A r m a n n
Magnússon leikur sjálfan Geirfmn,
Atli Rafn Sigurðarson leikur Sæv-
ar Ciesielski, Álfrún Helga Öm-
Sigurjón Kjartansson leikur löggu.
ólfsdóttir leikur Erlu Bolldóttur
vitni og síðhærði gæinn í íslenska
draumnum leikur einhvern af
fimmmenningunum. En þetta hefur
samt ekki fengist alveg staðfest. Og
við vitum enn ekki hver leikur Guð-
mund. En fylgist með í Fókus. Bíó-
mynd um Guðmundar- og Geirfinns-
málið er eitt það merkilegasta sem
gerst hefur í íslenskri kvikmynda-
sögu hingað til.
Kristjana Brynjólfsdóttir er 23 ára Reykjavíkurmær sem fyrir fimm árum flutti til Bret-
lands til að fara í skóla. Margt hefur breyst frá þeim tíma og í dag er hún meðlimur í
„girl-bandi“ sem sló í gegn í Japan á síðasta ári en hefur nú breytt um stefnu og
hyggjast stúlkurnar semja lög sín sjálfar í framtíðinni. Nanný, eins og hún er jafnan
kölluð, er í stuttu stoppi hér heima og Fókus plataði hana í smá spjall um þetta
furðuiega dæmi sem kallast Miss Scarlet og kolklikkaða Japana:
„Við erum i stúdíói núna og stefnan
er að reyna að koma okkur á framfæri
i Englandi. Ég býst ekki við því að við
séum að fara að gefa út neitt alveg
strax því það er svo mikil undirbún-
ingsvinna að baki þessu. Það þarf að
passa að allt sé rétt sem maður er að
gera. Tónlistin, ímyndin og allt það
þarf að vera i lagi. Ég býst þð við að
við fórum að taka upp vídeó mjög
bráðlega," segir Nanný þegar hún er
spurð hvernig málin standa núna.
Nanný fór út til Bretlands til að
læra það sem er kallað performing
arts, þ.e. dans, söng og leiklist, í skóla
í Cambridge. Þetta var fyrir frnim
árum en hún er 23 ára í dag. Síðan hún
fór út hefur hún dansað í alls kyns tón-
listarmyndböndum og komið fram í
sjónvarpsþáttum og bíómyndum sem
statisti. Að eigin sögn var það bara
gert til að ná sér í aukapeninga.
Vill koma með hljóm-
sveitina hingað
Er planiö aö vera úti að eilífu?
„Nei, ég er viss um að ég komi
heim einhvern tímann en það er
enn þá nóg að gera úti og ég verð
úti meðan allt gengur vel. ísland
er þó alltaf besti staðurinn til að
vera á,“ segir Nanný sem er á
lausu og leigir íbúð í London.
Á ekki aö koma meö hljómsveit-
ina einhvern tímann til íslands?
„Jú, ég mun örugglega ein-
hvern tímann koma með hljóm-
sveitina hingað til að spila þegar
undirbúningnum úti er lokið.
Besta vinkona mín í hljómsveit-
inni kom hingað með mér um ára-
mótin og henni fannst mjög gam-
an þannig að ég held að það verði
örugglega einhvern tímann af
því.“ Þeir sem vilja nálgast efni
með hljómsveitinni er bent á net-
fangið
scarletmusic@yahoo.co.uk.
Miss Scarlet
Hvernig byrjaöi svo dœmið meö
hljómsveitina?
„Það var maður sem kom i skólann
til okkar og var að leita að stelpum í
þessa hljómsveit og hann valdi mig og
vinkonu mína. Við vorum svo settar
inn í stúdíó þar sem við tókum upp
fullt af lögum og fengum í framhaldinu
samning í Japan og Suðaustur-Asíu.
Þetta gekk allt mjög vel og við gáfum
út 12 laga plötu sem seldist í 38.000
eintökum og spiluðum oft í Japan.“
Japanir eru nú oft hálfgeggjaðir þeg-
ar kemur aö vestrœnni tónlist, var þetta
ekki svolítið sérstakt þarna?
„Jú, eftir að við gáfum út diskinn
vorum við oft í sjónvarpinu og ferðuð-
umst um allt Japan og það var iðulega
bent á okkur niður í bæ. Svo eru Jap-
anar alltaf með þessar einnota mynda-
vélar og eitt smn þegar við vorum að
bíða eftir farangrinum okkar á flug-
velli komu einhverjir 30 skólakrakkar
og bókstaflega réðust á okkur vopnað-
ir myndavélunum. Þetta var því frekar
furðulegt."
Eftir þetta ævintýri sneru stelpurn-
ar aftur til Englands um síðustu ára-
mót þar sem þær ákváðu að halda sam-
starfmu áfram.
Stúlkubandið Miss Scarlet eins og það er skipað í dag. Þær eru nú í stúdíói úti þar sem
þær eru að semja og taka upp lög eftir sjáifar sig.
Dóttir forstjóra Granda
„Ég var í Fjölbraut i Ármúla á list-
námsbraut í 3 ár áður en ég fór út.
Það var regla frá fóður mínum að
klára námið og ég lauk stúdentspróf-
inu utanskóla meðan ég var úti. Svo
var ég líka í Listdansskólanum og
djassballet og meðan ég hef verið hér
heima hef ég fengið að vera gesta-
kennari hjá Djassballettskóla Báru,“
segir Nanný en foreldrar hennar eru
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Granda, og Kristín Thors fórðunar-
fræðingur.
Nanný var í námi sínu í Cambridge þegar maður kom í skólann og
fékk hana og vinkonu hennar til að taka þátt í stofnun „girl-bands-
ins“ SuperGirl. Þær fengu svo samning í Japan og slógu í gegn þar.
„Við vildum breyta tónlistinni og
ráða okkur meha sjálfar og ákváðum
þess vegna að slíta samstarfinu við
umboðsmanninn okkar,“ segir
Nanný um hljómsveitina sem hefur
ákveðið að semja lögin sín sjálf í
framtíðinni. Hún segir að tónhstin sé
undir fönk- og r&b-áhrifum en sé
samt vinsældapopp.
En er ekki óvenjulegt aö svona
„girl-band“ skipti um stíl og ákveði að
semja tónlistina sjálfar?
„Jú, en við urðum einfaldlega svo
góðar vinkonur þegar við stóðum í
þessu að við vildum halda áfram og
gera tónlist sem við fllum sjálfar,"
segir hún rnn hljómsveitina sem heit-
ir Miss Scarlet nú en hét SuperGirl
þegar þær voru í Japan, eða SuperG.
Þá voru þær funm í hljómsveitinni en
eru nú íjórar því ein þótti ekki nógu
helguð verkefninu og var látin hætta
þegar þær sögðu upp samningnum.
Toppurinn
í fótboltanum
4
f Ó k U S 30. júní 2000