Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2000, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2000, Qupperneq 6
haf 3 og Guðbergur Nú er stuð á RÚV. Guðbergur að koma með sjónvarpsþætti og Megas trúbadorast. Það er nýbúið að taka upp þátt með gamla meist- aranum. Hann er að vísu partur af sex þátta seríu um trúbadora. Hinir trúb- bamir era Jón Hall- dór Stef- á n s s o n (h v e r ?), B u b b i , Bjartmar, KK og H ö r ð u r Torfa. En þetta þykja samt tíðindi. Sjónvarpið er búið að hafa Megas og Guðberg að flfl- um til fjölda ára en lætur nú allt í einu eins og þeir skipti einhverju máli. Þeir eru ekki hörandsárir piltamir. Siggi Johnny Eigandi klámbúll- u n n a r Taboo var handtek- inn um d a g i n n. Það á aö d æ m a þ e n n a n s ó m a - s v e i n , S i g g a J o h n n y (hann er kallaður það), fyrir að selja fólki klám. Stóri hróðir er á móti því að fólk horfi á klám. En Fókus spáir því að hann sleppi. Gæinn lék sjálfan Sylvester Stallone á sínum tíma. Þetta var í myndinni Judge Dredd, þeirri frábæru ræmu. Siggi lék í senunni sem var tekin hér heima. Það var hann sem horfði yfir borgina með hjálm á höfði og eilítið sorgmædd- ur. Islenska ríkið mun aldrei buga mann sem getur leikið sjálfan Rambó. Ævin er sett saman af mismunandi tímabilum með mismunandi sérkennum. Fókus fékk nokkra til liðs við sig til þess að segja frá merkilegum skeiðum í lífinu út frá því sem þau voru að dunda sér við þá eða út frá hlutum sem þau höfðu gaman af. Þorsteinn J. dagskrárgerðarmaður: ... J ÍJjjJjj] Elísabet Brekkan leikhúsfræðingur: . . . í ¥51 f dkí’oí' i m „Svo hef ég auðvitað átt gáluskó, svona háhælaða skó. Ég er voðalega miklð fyrir að ganga á háum hælum og ég held að það sé bara vegna þess að í eðli mínu er ég svo mikil skvísa." ^ A C 'W ”^r AL A WJkeru „Tréklossar eru eins og rauður þráð- ur í gegn- um líf mitt og ef ég ætti að skipta lífi minu niður í áratugi þá er enginn ára- tugur klossalaus. Rauða klossa notaði ég alla bemskuna og fram að ferm- ingu en síðan keypti ég brúna, lokaða og klunnalega vinnuklossa í verslun- inni Geysi, sem hægt var að nota í öll- um veðrum í ullarsokkum," sagði El- ísabet Brekkan þegar Fókus bað hana um að lýsa lífi sínu í 12 skrefum. Hippaklossar „Síðan komu hippa- klossastígvélin. Þau voru Ijósbrún og ógeðslega flott. Eg átti þau í mörg ár og ætlaði aldrei að vaxa upp úr þeim. Ég var bæði i síð- buxum, síðpilsum og síðum kjólum við þessa hippa- klossa. Þegar maður var að reyna að komast inn á böll, meðal annars á Hótel Sögu, þá beygði maður' sig í hnjánum til þess að dyra- verðirnir sæju ekki skóna því það var bannað að vera í klossum á böllunum. Kínaskórnir Kínaskórnir tengjast sænskum sumrum, þegar ég bjó í Svíþjóð. Ég held að ég hafi gengið alveg linnulaust í kinaskóm í heilan áratug. Ég átti svarta, vínrauða, hvíta og bleika. Ég var rosalega fegin þegar Kínverjum datt í hug að setja smáhæl á skóna. Maður verður ofboðslega þreyttur í kálfunum og bakinu á þessum skóm og ég var öll komin í kryppu. Jesúsandalarnir Nú, síðan kom tímabil í lífi mínu þar sem ég var í plastsandölum. Þá var ég svona um 25 ára aldurinn og þetta tímabil stóö stutt. En svo voru það jesúsandalarnir, þessir þunnu bandaskór sem maður átti þegar á unglingsárunum. Það eru alveg óþol- andi pirrandi skór og of- boðslega óhentugir því þetta voru leðurreimar sem runnu niður kálfana um leið og búið var að binda þá. Alveg óþolandi og þessir skór eru ástæðan fyrir því að Jesús var svona mikið berfættur." Leðurstígvél Ég hef átt alls kyns leður- stígvél, alveg frá því að þau voru fundin upp. Ég á þau lengi og týni þeim í fata- hrúgunni í kjallaranum og verð ægi- lega glöð þegar ég finn þau á eftir. Ég á t.d ein sem ég fékk ‘73 og þá var mamma búin að eiga þau. Gáluskór Svo hef ég auðvitað átt gáluskó, svona háhælaða skó. Ég er voðalega mikið fyrir að ganga á háum hælum og ég held að það sé bara vegna þess að í eðli mínu er ég svo mikil skvísa. Skautar Mér finnst ofsalega gaman að fara á skauta og ég fer á skauta á hverju ári, oft eitthvert kvöldið þegar ég er búin í vinnunni." En hvaða skór skipta þig mestu máli? „Sko, ef ég myndi lenda á eyðieyju myndi ég ekki hafa skautana með mér því ég myndi ekki vilja lenda á eyju héma norður á ballarhafi, ég vil að | hún sé t.d. í Karíba- J hafinu og þá myndi ég nú bara taka með mér klossana af þvi að mér \ finnst svo gott að ** vera berfætt og ' - ■ það er svo heitt þama og mikið af eðlum. Ég er ótrúlega ihalds- söm kerling." -þor Lög unga fólksins „Ég man að ég var skammaöur í eitt skipti og þaö var þegar ég spllaöi lag meö Purrki Pilnik. Þaö þótti þættinum til skammar." „Þaö má kannski segja að fer- illinn hafi hafist þegar ég las upp úr nýjum barnabókum fyrir þá góðu konu Gunnvöru Braga á Rás 1 fyrir um 20 árum. Síðan hefur ótalmargt gerst í mínu lífi,“ segir Þorsteinn Joð þegar Fókus bað hann að segja ævi- sögu sína í fimm þáttum. Lög unga fólksins „Ég byrjaði svo með Lög unga fólksins ‘82 og það er mjög eftirminnilegur tími. Þetta var afskaplega vinsæll þáttur - og er kannski enn,“ segir Þor- steinn.“ Þar lék ég helstu dæg- urlögin á þeim tíma sem nú eru orðin eins og vondar klisjur. Ég man að ég var skammaður einu sinni og það var þegar ég spil- aði lag með Purrki Pilnik. Það þótti þættinum til skammar." Svona forðastu Það versta sem til er í veröld þessari eru Islendingar í útlöndum. Sama hvað þú gerir þá er ekki hægt að losa sig við þá. Ef þú sýnir þeim áhugaleysi reyna þeir að vekja áhuga þinn en ef þú sýnir yd d þeim fyrirlitningu reyna þeira að sannfæra þig um hversu frábærir . Þeir eru. Fókus ákvað engu að síður að útbúa smá ie|ðarvísi: Þú getur náttúrlega lokað þig inni í herbergi og eingöngu notið sólar á svölunum. Það virkar svo lengi sem enginn íslendingur sér þig af hinum svölunum og kallar til þín. Þá er alltaf sniðugt að þykjast vera bæði mállaus og heymarlaus. Það nennir enginn að bögga þig ef þú ert daufdumbur. Stomapokinn fælir alla frá þér. Hann kostar bara rétt yfir þúsund kallinum en nauðsynlegt er að fylla hann af drullumalli áður en þú gengur út á sundlaugarbakkann. Berðu skósvertu á þig og fjöl- skyldu þína. íslendingar þola ekki svertingja. Að hanga utan í einhverjum sem er fastur við hjólastól á sólarströnd er ótrúlega erfitt. Það er því ráð að leigja sér einn slíkan og losna við allra þjóða kvikindi. Þú þykist vera AA-maður. Það er ekkert eins leiðinlegt og að vera á fylliríi með alka. íslendingar þola ekki homma og því er ráð að baða út höndum og klípa alla kalla sem þú sérð í rass- inn. Heilu fjölskyldumar munu fiýja hótelið og þú getur sólað þig einn og óáreittur í sundlaugargarðinum. Ef konan þín er með arabaslæðu böggar þig enginn. Halim A1 hefur séð til þess. Ef þú vefur þér í eina feita jónu á flugstöðinni úti flýja íslending- amir þig. Þeir eru allir framsókn- armenn inn við beinið og bíða enn eftir milljarði gegn fikniefnum. Talaðu þýsku. Það er ekkert eins leiðinlegt eins og þýskur túristi. Segöu konunum á hótelinu að það sé útsala á næstu strönd. Þá áttu i það minnsta einn dag fyrir þig- Ef ekkert af því sem nefnt hefur verið hér að ofan virkar er málið að éta allt sem þú mátt ekki éta. ís, hráan kjúkling, drekka heima- brugg og þvo þér ekki um hend- urnar eftir að hafa notað almenn- ingsklósett. Þá færðu sjúkdóm og getur legið áhyggjulaus á sjúkra- húsi út fríiö þitt. 6 f Ó k U S 30. júní 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.