Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2000, Page 5
ÞRI Ð. JUDAGUR 4
5
DV
Fréttir
Héraðsdómur Norðurlands eystra:
Innleysti ávísun alnafna
- og fékk fyrir 3 mánaða skilorðsbundinn dóm
DV, AKUREYRI;_____________________
Tæplega þrítugur Akureyringur
hefur verið dæmdur í þriggja mán-
aða skiiorðsbundið fangelsi fyrir að
hafa innleyst ávísun frá rikisfé-
hirði sem ætluð var alnafna
mannsins en send honum fyrir
mistök.
Akureyringurinn fékk 425 þús-
und króna ávísun frá ríkisféhirði
senda í febrúar sl. Ávísunin var
stíluð á nafn mannsins, en hafði átt
að fara til alnafna hans sem er
bóndi í Húnaþingi vestra.
Yfirdýralæknir hafði sent ríkis-
féhirði bréf með ósk um að hann
greiddi bóndanum svonefndar fórg-
unarbætur. Það var gert, og er ekki
ágreiningur um að á fylgiskjali
með ávísuninni var m.a. ritað „til-
vísun yðar: förgunarbætur".
Akureyringurinn fékk á árinu
1997 134 þúsund krónur í barnabæt-
ur og 22 þúsund í vaxtabætur. Árið
eftir námu vaxta- og barnabætur til
mannsins rúmlega 90 þúsund krón-
um en á síðasta ári fékk hann eng-
ar bætur.
í febrúar sl. voru 33 þúsund
króna barnabætur til mannsins
teknar upp í vangreidd meðlög
hans og önnur opinber gjöld.
Manninum voru hins vegar greidd-
ar 33 þúsund krónur í barnabætur
inn á reikning hans i apríl.
Við yfirheyrslu hjá lögreglu við-
urkenndi maðurinn að hann hefði
ekki átt von á ávísun frá ríkisfé-
hirði. Hann geymdi ávisunina í
einn dag en framseldi hana síðan í
banka og notaði peningana til
greiðslu á gjaldfollnum skuldum
sínum. Sagðist hann hafa gert það
til að forða íbúð sinni frá uppboði.
Fyrir dómi breytti maðurinn
framburði sínum, sagðist hafa ver-
ið óöruggur við skýrslutöku hjá
lögreglunni og að hann hafi allt
eins átt von á greiðslu úr rikis-
sjóði. Niðurstaða dómsins varð
samt sem áður sú að sú skýring
mannsins væri ótrúverðug og þótti
ekki mark takandi á breyttum
framburði hans.
Maðurinn fékk 3 mánaða fangels-
isdóm, skilorðsbundinn til þriggja
ára. Þá greiði hann ríkisféhirði fyr-
ir hönd ríkissjóðs 425 þúsund krón-
ur ásamt dráttarvöxtum og máls-
kostnað. -gk
DVMYND ÞÖK
Minnir á verstu nasista
Herra Sigurbjörn Einarsson, fyrrum biskup íslands, var ómyrkur í máli þegar DV
ræddi viö hann á laugardag. Hann telur þær gagnrýnisraddir sem heyrst hafa
sökum Kristnihátíöar minna á þaö versta í málflutningi kommúnista og nasista.
Biskup óánægður með gagnrýni á Kristnihátíð:
Minnir á verstu nasista
- sagði herra Sigurbjöm Einarsson í samtali við DV
Herra Sigurbjörn Einarsson, fyrr-
um biskup íslands, telur að þær
gagnrýnisraddir sem komið hafa
fram á sl. dögum sökum Kristnihá-
tíðar endurspegli and-kristin við-
horf þeirra sem um ræðir. Undan-
farna daga hafa gagnrýnisraddir
heyrst viða í þjóðfélaginu og eitt af
því sem hefur verið sagt er að pen-
ingunum sem varið var í Kristnihá-
tíð heföi verið betur varið í það að
leysa indversk börn úr ánauð. Sömu
aðilar hafa bent á það að slíkt væri
mun kristilegra en hátíð þar sem
hundruðum milljóna væri sólundað
til þess eins að kirkjunnar menn
gætu fengið birtar myndir af sér í
blöðum og í sjónvarpi.
„Ég er ekki hrifinn af þeirri
ólund og því suði sem komið hefur
fram síðastliðna daga,“ sagði herra
Sigurbjöm í spjalli við DV á Þing-
völlum á laugardaginn.
„Því miður virðist þetta vera
nokkuð algengt í þessu landi. Þetta
er ekkert nema afneitun á þjóðar-
arfi íslendinga. Sumt af því sem hef-
ur verið birt á opinberum vettvangi
minnir á það allra versta sem
verstu nasistar og kommúnistar
höfðu fram að færa á sínum tíma.
Þetta endurspeglar andkristin við-
horf þeirra sem um ræðir. Kostnað-
ur þessarar hátíðar er síðan smá-
vægilegur samanborinn við þann
kostnað sem þjóðin leggur í
skemmtanir um hverja helgi. Á
þeim skemmtunum tapast ekki bara
peningar því þar eru mannssálir
einnig í húfi sem geta spillst og
eyðUagst. Það er meira en lítil
brenglun að finna að því að þessi
hátíð kosti einhverja peninga. Ég
hef enga trú á því að meirihluti
þjóðarinnar telji þetta eftir kirkj-
unni.“ -ÓRV
38 ökumenn teknir
— fyrir of hraðan akstur
Lögreglan í Reykjavík þurfti að
hafa afskipti af 38 ökumönnum
vegna of hraðs aksturs um helgina.
Sá sem hraðast fór var tekinn á 150
kílómetra hraða á klukkustund á
Breiðholtsbrautinni, þar sem há-
markshraði er 70 kílómetrar á
klukkustund. Annar ökumaður var
stöðvaöur á Kringlumýrarbrautinni
á 135 kílómetrum á klukkustund og
sá þriðji var tekinn á Gullinbrú á
128 kílómetrum á klukkustund.
Einnig stöðvaði lögreglan 11 öku-
menn vegna gruns um ölvun við
akstur um helgina. Þar með lauk
ekki afskiptmn lögreglunnar af bif-
reiðum, því aðfaranótt sunnudags
handtók hún einn góðkunningja
sinn eftir að hann var staðinn að
þvi að hleypa lofti úr dekkjum bíla
á Eiðistorgi. Maðurinn var fluttur í
fangageymslur lögreglunnar. -SMK
Nýtt hótel á Hvalfjarðarströnd:
Norræna skólasetriö
verður Hótel Glymur
DV, HVALFIRÐI:_______
Fyrir nokkru keyptu fjár-
festar í Reykjavík og viðar
Norræna skólasetrið af Vest-
norræna lánasjóðnum og eru
byrjaðir að reka þar hótel,
Hótel Glym. Eins og kunnugt
er var Norræna skólasetrið í
eigu einstaklinga og bæjarfé-
laga í Borgarfirði og einnig í
Reykjavík en reksturinn gekk
ekki of vel og fór á hausinn.
Hótel Glymur á Hvalfjaröar-
strönd getur nú þegar tekið á
móti gestum og þar með er
kominn nýr og spennandi
kostur í gistingu og afþrey-
ingu á Suðvestur- og Vesturlandi.
Hótelið er í næsta nágrenni höfuð-
sést yfir Hvalfjörðinn og út á
Faxaflóann. Hótelið er hent-
ugur áningarstaður með
skoðunarferðir í huga. Á Hót-
el Glym er gistirými fyrir
alls 56 manns í 10 tveggja
manna herbergjum og 12
þriggja manna herbergjum. í
hverju herbergi er snyrting
og sturta. í sumar er boðið
upp á gistingu með morgun-
mat. Á hótelinu er sérmatsal-
ur, sérráðstefhu- og fundar-
salur og bar í miðrými. Tíu
mínútna gönguferð er í sund-
laug og heita potta. í næsta
nágrenni er golfvöllur, veiði í
vötnum og hestaleiga svo eitthvað
sé nefnt. -DVÓ
, DV-MYND DVÓ
I nágrenni höfuðborgarinnar
Hótel Glymur er glæsilegt hótel á Hvalfjarðarströnd
meö gistirými fyrir 56 manns.
borgarsvæðisins, í fallegu umhverfi
á frábærum útsýnisstað þar sem
Eiqum þessi hjól
fyrirliqqjandi á lager
C R - 5 0 0 R
1 cyl. • 491 cc
65 hestöfl • 101 kg
^Verð kr. 685.000.-^
2 cyl. • 996 cc
110 hestöfl • 192 kg
^Verð kr. 1.060.000.-^
2 cyl. • 999 cc
136 hestöfl • 190 kg
^Verð kr. 1.430.000.-^
-1000 racing
V T R
4 cyl. • 929 cc
152 hestöfl • 170 kg
^Verð kr. 1.239.000.-^
C B R - 6 0 0 F
4 cyl. • 599 cc
110 hestöfl • 170 kg
Verð kr. 999.000,-
2 cyl. • 1099 cc
58 hestöfl • 279 kg
^Verð kr. 1.080.000.-^
V T-11 0 0 C3
6 cyl. • 1520 cc
100 hestöfl • 300 kg
Verð kr. 1.499.000.-
2 cyl. • 745 cc
43 hestöfl • 229 kg
Verð kr. 880.000,-
V T - 7 5 0 C 2
HONDA
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 • Sími: 5201100