Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2000, Blaðsíða 8
8
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaðið
Eignarhlutur Sumitomo í
Járnbiendinu minnkar
Japanska stórfyrirtækið
Sumitomo Corporation, sem er
þriðji stærsti hluthafi Islenska jám-
blendifélagsins hf., tók ekki þátt í
hlutafjárútboði þess á dögunum og
hefur eignarhlutur Sumitomo því
lækkað úr 10,5% í 8,42%. Flöggun
þessa efnis birtist á VÞÍ í gær. Eign-
arhlutur Sumitomo er liðlega 148
milljónir króna að nafnverði.
Duisenberg sér engin merki
um „nýja hagkerfið“
Wim Duisenberg,
aðalbankastjóri Seðla-
banka Evrópu, segist
engin merki sjá um
„nýtt hagkerfi" í
evrulöndunum og að
hann muni ekki ger-
ast talsmaður þess að
slaka á í peningamál-
um til þess að styðja
við þróun „nýja hag-
kerfisins" í Evrópu.
Duisenberg segir að
fmna megi ákveðnar vísbendingar um
„nýja hagkerfið“ í Bandaríkjunum en
sagði að áhrif þess kæmu fyrst og
fremst fram á framboðshlið efnahags-
kerfísins. „Nýja hagkerfið" bjóði þó
upp á meiri framleiðniaukningu til
talsvert langs tíma litið. Duisenberg
leggur sem fyrr áherslu á að Seðla-
banki Evrópu standi vörð um verð-
stöðguleika á evrusvæðinu og segir
það vera í verkahring rikisstjórna að-
ildarríkjanna að stuðla að þróun „nýs
hagkerfis" með því að auka sveigjan-
leika heimafyrir.
Hraöfrystihúsið-Gunnvör
kaupir eigin bréf
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf.
keypti í gær eigin bréf að nafnverði
4 milljónir á verðinu kr. 5,30, eða
samtals fyrir rúmlega 20 milljónir
króna. Eigin bréf Hraðfrystihúss-
ins-Gunnvarar hf. eftir kaupin eru
4,3 milljónir að nafnverði.
Wlm Duisen-
berg, aðal-
bankastjóri
Seðlabanka
Evrópu.
Við erum best í því sem
við erum að gera
- aö bæta kynlífiö.
án.-fös.10-18 , .
laug.10-16 foí
Fákafeni 9 • S. 553 1300
Hagnaður minnkar
um fimm miiljarða
- sérfræðingar á verðbréfamarkaði spá verulegri lækkun hagnaðar hjá fyrirtækjum á VÞÍ
Þegar borin er saman spá verð-
bréfafyrirtækja og banka um árshagn-
að helstu fyrirtækja á Verðbréfaþingi
íslands við rauntölur ársins 1999 fyrir
sama tímabil kemur í ljós minnkun
hagnaðar upp á tæpa 5 milljarða
króna. Samtals hagnaður í fyrra var
15.304 milljónir króna en mun sam-
kvæmt spánni einungis verða 10.368
milljónir króna, en það jafngildir um
32% lækkun. Þetta kemur fram í Við-
skiptablaðinu sem út kom í gær.
Viðskiptablaðið leitaði til allra
helstu banka og verðbréfafyrirtækja
og óskaði eftir spám þeirra um af-
komu veltuhæstu fyrirtækja á Verð-
bréfaþingi á fyrri árshelmingi 2000 og
á árinu öllu. í Viðskiptablaðinu sem
út kom í gær er gerð itarleg grein fyr-
ir spánni.
Meðal þess sem fram kemur í spán-
um er að almennt er gert ráð fyrir
mun lakari árangri hjá fyrirtækjum á
VÞÍ í ár en í fyrra og á það bæði við
um reksturinn á fyrri hluta ársins
sem og á árinu öllu. Eins og áður seg-
ir er spáð fimm milljarða króna lækk-
un hagnaðar á miili áranna 1999 og
2000, eða um 32% lækkun, en þegar
litið er til hálfsársuppgjöranna er
minnkun hagnaðar ekki eins afger-
andi eða tæp 27%. í fyrra var heildar-
hagnaður fyrirtækjanna á VÞÍ um
mitt ár 6.766 milljónir króna en sam-
kvæmt spánni mun hann einungis
verða 4.965 milljónir króna á fyrri árs-
helmingi 2000. Rétt er þó að vekja at-
hygli á í samanburðinum er búið að
leiðrétta hagnaðartölur Össurar hf.
fyrir þeim óreglulegu afskriftum sem
hafa verið boðaðar, þ.e. hagnaður af
reglulegri starfsemi fyrir skatta er
notaður í stað hagnaðar ársins.
Spá veröbréfafyrirtækja um afkomu fyrirtækja á VÞÍ
(Allar tölur í m.kr.)
Afkoma af regl.
starfs. jan.-júní ‘00 Afkoma 2000
Bakkavör hf. 14 157
Baugur hf. 334 744
Búnaðarbanki íslands hf. 389 1.031
Delta hf. 116 193
Flugleiðir hf. -1.226 -302
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. 137 236
Grandi hf. 290 535
Hampiðjan hf. 128 165
Haraldur Böðvarsson hf. 49 43
Hf. Eimskipafélag íslands 660 926
Húsasmiðjan hf. 204 433
Íslandsbanki-FBA hf. 849 2.111
íslenskir aðalverktakar hf. 142 277
Jarðboranir hf. 57 110
Landsbanki íslands hf. 558 1.448
Ljdjaverslun íslands hf. 29 57
Marel hf. 165 339
Nýherji hf. 210 289
Oliufélagið hf. 294 581
Opin kerfi hf. 176 347
Pharmaco hf. 135 266
Samherji hf. 420 577
SÍFhf -49 15
Síldarvinnslan hf. 53 94
Sjóvá-Almennar hf. 306 496
Skeljungur hf 241 459
Skýrr hf. 128 198
SR-mjöl hf. -42 -148
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. 217 388
Tryggingamiðstöðin hf. 111 203
Tæknival hf. 73 123
Útgerðarfélag Akureyringa hf. 60 201
Vinnslustöðin hf. -150 -200
Þorbjöm hf. 118 215
Þormóður rammi-Sæberg hf. 166 387
Össur hf. -2.122 -2.628
Kaupþing spáir 0,5% hækkun milli mánaða
- hugsanlega dregur úr hækkunum á næstu mánuðum
Kaupþing spáir 0,5% hækkun á
vísitölu neysluverðs á milli mánaða
sem samsvarar 6,2% verðbólgu á árs-
grundvelli.
Helstu forsendurnar eru þær að
bensínverð hækkaði um mánaðamót-
in. 95 okt. hækkaði um 4% og 98 okt.
bensín hækkaði um 3,8%. Sjóvá-Al-
mennar hafa hækkað iðgjöld bifreiða-
trygginga og nemur hækkimin á lög-
boðnum ábyrgðartryggingum 29% en
15% hækkun á kaskótryggingum.
Önnur tryggingafélög fylgja væntan-
lega í kjölfarið og hækka sína gjald-
skrá til samræmis. Því er gert ráð fyr-
ir 15-30% hækkun bifreiðatrygginga.
Flugleiðir hafa hækkað almenn far-
gjöld að meðaltali um 5%. Orkuveita
Kaupþing spáir hækkun á vísltölu neysluverös
Helstu forsendumar eru þær að bensínverð hækkaði um mánaðamótin. 95 okt.
hækkaöi um 4% og 98 okt. bensín hækkaði um 3,8%.
Blaðberar óskast
í eftirtalin hverfi:
Reykjavík:
Miðbæ
Þingholt
Haga
Litla Skerjafjörð
Smáíbúðahverfi
Kópavog:
Traðir
Brekkur
Stígar
Uppiýsingar í síma 550 5000
Reykjavíkur hefur hækkað orkuverð
um 2% til að fylgja eftir tæplega 3%
hækkun Landsvirkjunar. Gert er ráð
fyrir 0,5% hækkun húsnæðisverðs.
Matvara lækkaði um 0,9% í síðasta
mánuði, einkum vegna lækkunar á
ávöxtum og grænmeti. Vegna árstíða-
bundinna sveiftna í þeim vöruflokk-
um er gert ráð fyrir að lækkun fyrri
mánaðar gangi að nokkru leyti til
baka í þessum mánuði.
í Morgunpunktum Kaupþings kem-
ur fram að miöað við ofangreinda spá
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 5,6% síðastliðna 12 mánuði. Kaup-
þing bendir á að hækkun á visitölu
neysluverðs síðasta árið er einkum
tilkomin vegna hækkunar á bensín-
verði og húsnæðisverði og er þá ekki
tekið tillit til breytinga í þessum mán-
uði. Húsnæðisliðir hafa haft um 2,3%
áhrif til hækkunar á vísitölunni, mat-
vara um 1% og hækkun bensínverðs
um 0,9%. Aðrir liðir vega minna.
Hugsanlega dregur úr hækk-
unum
„í ljósi þessarar þróunar er fróðlegt
að velta fyrir sér framhaldinu á næstu
mánuðum. Ákveðin óvissa ríkir nú
um þróun olíuverðs á heimsmarkaði
en verð gaf aðeins eftir i kjölfar
ákvörðunar Sádi-Arabíu um að auka
við olíuframleiðslu þrátt fyrir and-
stöðu annarra OPEC-ríkja. Olíumála-
ráðherrar ríkjanna munu næst koma
saman til fundar í Vín í byrjun sept-
ember. Ávöxtunarkrafa húsbréfa og
húsnæðisbréfa hefur hækkað á ný síð-
ustu vikur. Fækkun markflokka í
kjölfar uppkaupa, ásamt virkri við-
skiptavakt sem nýlega var endumýj-
uð, ætti að hafa þau áhrif á skulda-
bréfamarkað að viðskipti verða meiri
og jafnframt virkari. Til lengri tima
litið ætti þvi ávöxtunarkrafan einnig
að lækka. Til skýringar á háu hús-
næðisverði hafa menn nefnt hin
miklu afFóll sem verið hafa á húsbréf-
um. Ef ávöxtunarkrafa fer hins vegar
lækkandi má velta fyrir sér hvort það
hafi ekki áhrif á húsnæðismarkað
með haustinu. Þær verðhækkanir
sem orðið hafa í þessum mánuði
benda ekki til þess að dregið hafi úr
verðbólguhraða. Ef ofangreint gengur
hins vegar eftir og að öðru óbreyttu
má ætla að draga fari úr hækkun
neysluverðsvísitölunnar á næstu
mánuðum,“ segir Kaupþing.
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000
DV
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 85 m.kr.
Hlutabréf 80 m.kr.
Skuldabréf 5 m.kr.
| MEST VIÐSKIPTI
j © Íslandsbanki-FBA 12,6 m.kr.
j © Búnaðarbanki íslands 11,5 m.kr.
j © Landsbanki íslands 10,3 m.kr.
MESTA HÆKKUN
© Tryggingamiöstöðin 2,04%
© íslenski hugbúnaðarsjóö. 1,84%
© Flugleiðir 1,59%
MESTA LÆKKUN
[ © Bakkavör 2,73%
© SÍF 2,70%
© Sláturfélag Suðurlands 2,70%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.522,2 stig
- Breyting © 0,185 %
Softis í samstarf við risafyr-
irtækið Nokia
íslenska hugbúnaðarfyrirtækið
Softis hf. á nú í samstarfi við
finnska risafyrirtækið Nokia. Sam-
starfið hefur staðið yfir í tæpt ár en
lítið hefur farið fyrir þvi enda hefur
það þróast smám saman á tímabil-
inu. „Samstarfið hefur gengið ágæt-
lega og væntanlega finnst á því flöt-
ur þannig að það geti nýst báðum
aðilum. Það er komið í ákveðinn
farveg og ég vonast til að það verði
farið að skila áþreifanlegum árangri
í haust eða í byrjun vetrar,“ segir
Sigurður Bjömsson í samtali við
Viðskiptablaðið.
síbastiibna 30 daea
\ © Húsasmiðjan 295.065
:: © Össur 265.184
: © Íslandsbanki-FBA 264.245
Búnaöarbanki 212.026
i © Baugur 185.541
síbastUbna 30 dasa
© Nýherji 18%
© Vinnslustööin 14%
© Búnaðarbanki 13%
© Þorbjörn 13%
i © Jarðboranir 7% ;
I MESTA LÆKKUN ▼! síbastlibna 30 daea
1 © Loðnuvinnslan hf. -20 %
© Marel -16 %
© Hraðf. Þórshafnar -15 %
I; Q Rskiöjus. Húsavíkur -14 %
I Q SR-Mjöl -14%
Lækkun í Bretlandi
Hlutabréf í London lækkuðu nokkuð
í gær. FTSE 100 vísitalan féll um 53,3
stig og endaði í 6.363,7 stigum. Ástæða
þessarar lækkunar er m.a. rakin til til-
kynningar Sádí Arabíu um að landið
ætlaði að auka olíuframleiðslu sína
verulega. Það hefur haft í fór með sér
lækkun á olíuverði á heimsmarkaði.
Hins vegar hafði tilkynningin neikvæð
áhrif á olíufyrirtæki eins og BP Amoco
sem vegur þungt á breska hlutabréfa-
markaðnum.
|’fiT.il,ll:;liif 1:.' MÆmmi*
BÍdow jones 10483,60 O 0,72%
1 • Inikkei 17282,37 O 0,88%
ÍBs&p 1446,23 O 1,57%
Pfij NASDAQ 3863,10 O 3,23%
ÉÉftse 6358,90 O 0,37%
;f*%AX 6938,47 O 0,33%
1 Bcac 40 6420,44 O 0,65%
6.7.2000 kl. 9.15
KAUP SALA
BHDollar 76,470 76,870
Pund 115,480 116,070
8*1 Kan. dollar 51,300 51,620
SlDónsk kr. 9,8120 9,8660
iÍZjNorsk kr 8,9390 8,9880
SSsænsk kr. 8,6670 8,7150
j HH Fl. mark 12,3126 12,3866
B B Fra. franki 11,1604 11,2274
B 18 Belg. franki 1,8148 1,8257
j Sviss. franki 47,2500 47,5100
EShoII. gyllini 33,2200 33,4196
Þýskt mark 37,4303 37,6552'
8 lít líra 0,037810 0,038040
QQAust. sch. 5,3202 5,3521
M Port. escudo 0,3652 0,3674
S i Spá. peseti 0,4400 0,4426
1 • jjap. yen 0,714000 0,718300
| | írskt pund 92,954 93,512
SDR 101,800000 102,410000
^ECU 73,2072 73,6471