Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2000, Blaðsíða 10
10 Útlönd FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 J3V Bill Clinton Forsetinn tryggir ekki árangur af fundinum meö Barak og Arafat. Bandaríkjaforseti boðar friðarfund Bill Clinton Bandaríkjaforseti gerir nú nýja tilraun til að greiða fyrir endanlegu friðarsamkomulagi ísraela og Palestínumanna. Á þriðjudaginn í næstu viku hefst leiðtogafundur Clintons, Ehud Baraks, forsætisráðherra ísraels, og Yassers Arafats Palestínuleiðtoga í Camp David í Maryland. Clinton viðurkenndi i gær að alls ekki væri hægt að tryggja árangur af fundinum. Hann hélt því hins vegar fram að þetta væri eina leiðin til að leggja drög að friðarsáttmála. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, gaf i skyn eft- ir ferð um Miðausturlönd í síðustu viku að þörf væri meiri undirbún- ings áður en leiðtogafundur yrði haldinn. Tíminn er reyndar naum- ur. Ekki eru nema tveir mánuður þar til settur frestur rennur út. Framhald upp- boðs Framhald uppboðs á eftirfarandi fasteign veröur háð á eignínni sjálfri sem hér segir: Geitasandur 8, Hellu. Mánudaginn 10. júlí 2000 kl. 15.00. Þingl. eig. Guðmundur Sverrisson. Gerðarbeiðandi eru Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og sýslumaður Rangárvallasýslu. SÝSLUMAÐURINN í RANGÁR- ^^^^JMLLASÝSLU UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þelm sjálf- um sem hér segir: Álfhólsvegur 26, þingl. eig. Ragnhildur Ólafsdóttir og Guðmundur Ólafur Heið- arsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Islands og Landsbanki Islands, þriðju- daginn 11. júlí 2000 kl. 15.00. ~7-------------------------------- Astún 14, 0405, þingl. eig. Sigrún Jónína Sigmundsdóttir, gerðarbeiðandi íbúða- lánasjóður, þriðjudaginn 11. júlí 2000 kl. 15.30. ___________________________ Hávegur 5, vesturendi, þingl. eig. Jón Steinar Ragnarsson, gerðarbeiðendur Kópavogsbær og Sýslumaðurinn í Kópa- vogi, þriðjudaginn 11. júlí 2000 kl. 17.00. Hrauntunga 75, þingl. eig. Eggert Óskar Þormóðsson, gerðarbeiðendur Ingvar Helgason hf., Ibúðalánasjóður, íslands- banki hf., Sparisjóður Kópavogs, Spari- sjóður vélstjóra, Sýslumaðurinn í Kópa- vogi og Tryggingamiðstöðin hf., þriðju- daginn 11. júlí 2000 kl. 14.30. Kársnesbraut 106, 0202, þingl. eig. B.P. bílaleiga sf., gerðarbeiðendur Bæjarsjóð- ur Kópavogs og Fjárfestingarbanki at- vinnul. hf., mánudaginn 10. júlí 2000 kl. 14.30. ___________________________ Nýbýlavegur 62, austurendi nýbyggingar, þingl. eig. Ásgeir Sigurðsson og Sigrún Finnjónsdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóð- ur Rvíkur og nágr., mánudaginn 10. júlí 2000 kl. 15.00. SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI Sjóorrusta við hvalavini í aðsigi við Færeyjar: Danir senda her- skip gegn Watson Hvalverndarsinninn Paul Watson fær að finna hvar Davíð keypti ölið þegar hann kemur á Færeyjamið í dag til að koma í veg fyrir árlegt grindadráp Færeyinga. Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að senda eftirlitsskip til höfuðs honum og er það á leiðinni til Færeyja, að sögn danska blaðsins Berlingske Tidende í morgun. Flaggskip Sea Shepherd, samtaka Watsons, er væntanlegt til Færeyja í dag og verður þar næstu tvo mán- uðina til að stöðva hvalveiðar Fær- eyinga. Lögreglustjórinn í Færeyjum, Mogens Nepper-Christensen, óskaði fyrir milligöngu dönsku ríkislög- reglunnar eftir aðstoð danska sjó- hersins til að stöðva umhverfis- verndarmennina. Yfirmaður dönsku ríkislögreglunnar staðfesti viö Berlingske Tidende að nauðsyn- leg aðstoð yrði veitt. Sea Shepherd hrinti áætluninni „Grindstop 2000“ i framkvæmd í maí. Markmið hennar er að stöðva grindadráp Færeyinga og að snið- ganga veitingastaði og stórmarkaði sem selja færeyskar vörur. Ákvörðunin um að senda eftirlits- skipið Hvítabjöminn til höfuðs Paul Watson í vígahug Hvalavinurinn Paul Watson er á leiö til Færeyja til aö koma í veg fyrir grindadráp frænda okkar. Watson og félögum hans var tekin með mikilli leynd til að koma hvala- vinum í opna skjöldu. En á heima- síðu Sea Shepherd á Netinu kemur fram að samtökin eru búin undir nærveru danska flotans. Félagar í Shepherd eru þekktir fyrir hörkuna sem þeir beita i bar- áttunni fyrir málstaö sinn. Þeir hafa meðal annars sökkt hvalbátum á ts- landi og í Noregi. „Þegar við komum fyrst til Fær- eyja 1986 til að stöðva viðurstyggi- legt drápið á grindhvölunum skaut færeyska lögreglan að okkur. Við eigum ekki von á vinsamlegri við- tökum að þessu sinni,“ sagði Frank Trinkle, talsmaður Sea Shepherd. Berlingske Tidende hefur heim- ildir fyrir því að meðal búnaðarins á Hvítabirninum sé net sem hægt sé að kasta í sjóinn fyrir framan Oce- an Warrior i þeirri von að það fari í skrúfu skipsins og stöðvi það. Þá munu einnig vera um borð há- þrýstivatnsdælur til að beita gegn hvalavinum í gúmbátum. t flotastöðinni í Frederikshavn, í yfirstjóm sjóhersins og i landvarna- ráðuneytinu vildi enginn tjá sig frekar um undirbúning fyrir átök við Sea Shepherd. Samkvæmt heim- ildarmönnum danska blaðsins hef- ur danska forsætisráðuneytið upp- lýsingar um gang mála og dönsk yf- irvöld eiga von á hörðum átökum við hvalavinina undan ströndum Færeyja. í aðgerðunum 1986 kom til harðra átaka þegar rúmlega tíu færeyskir lögregluþjónar í gúmbát skutu táragassprengjum að skipi umhverf- isvemdarsinnanna. Uppreisnarmenn í pilsum Stuöningsmenn uppreisnarleiötogans Georges Speights á Fídjíeyjum þrömmuöu um lóö þinghúss eyjanna í heföbundnum þilsum í morgun eftir aö þjóöfáninn haföi veriö dreginn aö hún. Evrópuþingið rannsakar Echelon njósnakerfið Evrópuþingið í Strasbourg ákvaö í gær að láta rannsaka meintar iðn- aðamjósnir Bandaríkjanna í Evr- ópu með njósnakerfinu Echelon. Ákvörðunin var tekin degi eftir að saksóknaraembættið í Frakklandi fyrirskipaði sams konar rannsókn. Fullyrt hefur verið að njósnakerf- ið Echelon hafi verið sett upp á dög- um kalda stríðsins. Það getur fylgst með símtölum, símbréfasendingiun og tölvupósti um állan heim. Evrópuþinginu barst í haust skýrsla bresks sérfræðings þar sem greint var frá iðnaðarnjósnum Bandaríkjanna. Samkvæmt skýrsl- unni áttu bandarísk fyrirtæki að hafa náð mörgum samningum frá evrópskum keppinautum sínum vegna njósnanna. Bandarískir emb- ættismenn hafa viðurkennt síma- hleranir en vísa iðnaðamjósnum á bug. Embættismennimir segja að með símahlerununum sé verið að reyna að koma í veg fyrir mútu- greiðslur. Menn óttast þó að friðhelgi einka- lífsins sé einnig rofin. Rannsóknar- nefnd Evrópuþingsins á því jafn- framt að kanna hvemig vernda megi einkalífið. Það voru Frakkar sem þrýstu á að Evrópuþingið rannsakaði meintar iðnaðamjósnir Bandaríkj- anna. Frakkar fullyrða að þeir hafi misst af stórum og mikilvægum samningum vegna njósnanna, með- al annars sölu á Airbus flugvél til Sádi-Arabíu og vopnasölu til Brasil- íu. Það voru bandarísku fyrirtækin Boeing og Raytheon sem fengu samningana. Frakkar hafa ekki komið ásökun- um beint á framfæri við bandarísk yfirvöld. Franskir fjölmiðlar segja það vera vegna þess að frönsk yfir- völd stundi sjálf hleranir. Frakkar saka Breta um óheiðar- leika þar sem Bretar láti Bandaríkin nota fjarskiptastöð í Cheltenham í Echelon-kerfinu. Á stöðinni Menwith HUl munu tveir þriðju af 1200 starfsmönnum vera Bandaríkja- menn. Stöðin hefur verið undir stjóm Bandaríkjamanna frá 1966. Höfuðstöðvamar eru sagðar vera við Fort Meade í Maryland í Banda- ríkjunum. Breskir stjómmálamenn rífast um Echelon. Þeim þingmönnum fjölgar sem segja að annað hvort verði bresk yfirvöld að sýna Banda- ríkjunum trúnað eða Evrópu. Margaret Thatcher, fyrrverandi for- sætisráðherra Bretlands, notaði Echelon til að njósna um ráðherra sína. mmmw. Óttast valdarán Yfirvöld í Svart- fjallalandi saka Slobodan Milos- evic Júgóslavíu- forseta um að beita hernum til að kynda undir spennu til að und- irbúa valdarán. Herinn hefur sakað Milo Djuka- novic, forseta Svartfjallalands, um að breiða út þann orðróm að Serbía sé stærsta vandamál Evrópu. Níundi maöurinn látinn 24 ára Ástrali lést i gær af völdum meiðsla sem hann hlaut á Hró- arskelduhátíðinni á fóstudagskvöld. Þar með hafa níu manns látist af völdum slyssins. Skartgripaþjófnaður Hundruð skartgripa hafa fundist í tágakörfu í kapellu Rigshospitalet í Kaupmannahöfn. Einnig fundust hundruð umslaga með nöfnum lát- inna sjúklinga. Starfsmenn, sem hafa viðurkennt að hafa þegið mút- ur frá útfararstofum, eru grunaðir um þjófnaðinn. Flugræningi skotinn Öryggisverðir skutu til bana flug- ræningja sem ásamt tveimur öðrum reyndi að ræna flugvél með 84 far- þegum á flugvellinum í Amman í Jórdaníu. 15 farþegar særðust er sprengja sprakk í vélinni. Berst fyrir smáríkin í ESB Jörg Haider, fyrr- verandi leiðtogi Frelsisflokksins í Austurríki, hvetur til þess að Austur- riki stöðvi ákvarð- anir Evrópusam- bandsins, ESB, til að pólítískri einangrun landsins verði aflétt. Haider kveðst einnig berjast fyrir hönd smáríkja í ESB til að koma í veg fyrir að stór ríki, eins og Frakkland, keyri yfir þau. Olían lækkaði í verði Olía lækkaði enn í verði í gær vegna þeirrar yfirlýsingar Sádi- Araba að þeir hyggist auka framleiðslu sína til að þrýsta verðinu niður. Dregið úr leit Lögreglan í sunnanverðu Englandi hefur dregið úr umfangi leitarinnar að átta ára gamalli stúlku sem hefur verið saknað frá því um helgina. Lögreglan ætlar að einbeita sér að ákveðnum vísbendingum. Pútín varar við Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur fyrirskipað yfirmönnum ör- yggismála í land- inu að standa sig betur í Tsjetsjeníu í kjölfar sprengju- árása sem hafa orðið rúmlega þrjátíu manns að bana í lýðveldinu. Mannskæð hitabylgja Gífurlegir hitar hafa þjakað íbúa Ítalíu og Balkanskaga síðustu daga þegar heitt loft frá Sahara- eyðimörkinni hefur færst norður á bóginn. Fjórir hafa látist og hundruð hafa lagst inn á sjúkrahús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.