Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2000, Page 11
11
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000
DV_____________________ Útlönd
Helmut Kohl
Fylgiö hrynur af kanslaranum
fyrrverandi.
70 prósent vilja
afsögn Kohls
Sjö af hverjum tíu Þjóðverjum
vilja aö Helmut Kohl, fyrrverandi
Þýskalandskanslari, segi af sér
þingmennsku samkvæmt skoðana-
könnun sem birt var í gær. Sjálfur
hefur Kohl sagt að gagnrýnin gegn
honum komi frá lítilli klíku stjórn-
arandstæðinga.
Fylgi Kohls hrynur einnig meðal
stuðningsmanna Kristilega demó-
krataflokksins. 48 prósent þeirra
vilja að hann segi af sér. Þeir eru
færri sem vilja að hann sitji áfram
á þingi.
Kohl kemur á ný fyrir rannsókn-
amefnd þingsins í dag. Þegar kansl-
arinn var yfirheyrður í síðustu viku
neitaði hann að segja hverjir hefðu
gefið í leynisjóði Kristilega
demókrataflokksins. Hann kvaðst
heldur ekkert vita um hundruð
þúsunda skjala sem eytt hefur verið
úr tölvum stjómarskrifstofu hans.
Sakar CIA um yfirhylmingu
Joyce Horman, ekkja Bandaríkja-
mannsins Charles Hormans, sem
var myrtur í valdaráni Pinochets í
Chile 1973, sakar bandarísku leyni-
þjónustuna CIA um að hylma yfir
eigin þætti í morðinu. Ekkjan segir
að sex skjöl sem CLA gerði opinber
séu mjög ritskoðuð og að leyniþjón-
ustan haldi enn eftir tíu skjölum.
Bandarísk stjórnvöld hafa aflétt
leynd af 550 skjölum sem tengjast
dauða tveggja Bandaríkjamanna og
hvarfi hins þriðja á valdatíma hers-
ins í Chile 1973 til 1990.
„Annað hvort halda þeir eftir
skjölum eða gerðu ekkert til að
rannsaka hvarfið," segir ekkjan.
Kveðjustund
Selnum Pappo, sem var bjargaö alvarlega særöum á strönd í Úrugvæ fyrir
hálfu ári, var sleppt í hafiö í gær. Á kveöjustundinni brá einn
björgunarmannanna á leik meö Pappo.
Breskar hersveitir í eftirlitsferðum um Belfast:
Tilfinningaþrungn-
asta augnablikið
Nærvera hermannanna
Fidel Castro Kúbuforseti sagði í
ræðu í gær að heimkoma Elians
litla Gonzalez hefði verið
tilflnningaþmngnasta augnablik
lífs síns. í ræðunni, sem Castro hélt
við athöfn til heiðurs foður Elians,
Juan Miguel Gonzalez, bar hann
deiluna um forræðið yfir Elian og
lausn hennar saman við aðra
mikilvæga atburði eins og
byltinguna á Kúbu 1959 og
misheppnaða innrás Bandaríkjanna
í Svínaflóa 1961. Kvaðst Castro
aldrei hafa fundið fyrir jafnmiklum
tilfinningum og þegar hann sá Juan
Miguel og Elian litla stíga út úr
flugvélinni sem fluttti þá heim frá
Bandaríkjunum.
Þetta var í fyrsta sinn sem Castro
tjáði sig opinberlega um málið frá
því að Elian litli sneri heim í
siðustu viku. Við athöfnina í gær
var faðir Elians sæmdur orðu.
Castro heiðrar föður Elians
Heimkoma Elians var
tilfinningaþrungnasta augnablikiö í
lífi Kúbuforsetans.
Orkan er komin í Gra farvoginn
og það munar um minna
B'NUS
Orkuboltarnir
Pison og Andrés Magnússon
na ganga í dag kl. 5.
kiptavinir fá fría áfyllingu.
Grafarvogsbúum býðst nú mikil búbót, nýsparileið
- í Spöngina, þarsem Orkan hefuropnað bensínstöð
við verslunarmiðstöðina. Leitaðu ekki langtyfir
skammt eftir ódýrasta kostinum. Því að borga
4-5kr. meira annarsstaðar fyriralveg einsbensín?
ÞAÐ MUNAR UM MINNA
dro ur gotuoeirðunum
Breskar hersveitir voru sendar út
á götur Belfast á Norður-írlandi í
fyrsta sinn í tvö ár í gærkvöld til að
bæla niður óeirðir harðlínuafla úr
röðum mótmælendatrúarmanna.
Mikill fjöldi lögreglu og her-
manna á götum úti varð til þess að
minna varð um óspektir í gærkvöld
en næstu þrjú kvöld á undan. Mót-
mælendatrúarmenn eru ævareiðir
yfir þeirri ákvörðun yfirvalda að
banna þeim að ganga um hverfi
kaþólskra á sunnudag.
Breski herinn tilkynnti í gær-
kvöld að hermenn yrðu sendir út á
götur á óróasvæðunum á Norður-ír-
landi eftir að yfirlögregluþjónn hér-
aðsins, Ronnie Flanagan, varaði við
því að harðlínumenn mótmælenda
væru að undirbúa sprengjutilræði
og vopnaðar árásir.
Eldar loga í Belfast
Ung stúika gengur hjá logandi bifreið eftir óeiröir mótmæienda í Belfast.
Friöarferlið á Norður-írlandi er
nú í enn meira uppnámi en áður.
Svo virtist sem þokaði í rétta átt
þegar samstjórn kaþólskra og mót-
mælenda var endurreist fyrir
skömmu.
Óeirðimar í gærkvöld voru nær
eingöngu bundnar við Belfast þar
sem sjónarvottar segja að bensín-
sprengjum hafi verið varpað á lög-
regluna. Þá var bifreiðum stoliö og
kveikt í þeim.
Óeirðalögregla í brynvörðum bif-
reiðum stökkti sextíu grímuklædd-
um unglingum í grjótkasti á flótta í
hverfi mótmælenda nærri miðborg
Belfast. Unglingamir höfðu áður
rænt strætisvagni.
Bresk stjómvöld, stjórnmála-
menn á Norður-írlandi og leiðtogar
kirkjunnar hvöttu til stillingar.