Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2000, Síða 17
16
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000
25 <
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiósla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, síml: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
VTsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plótugerð: jsafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viömælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Spákaupmennska
er eðlileg
Seðlabanki íslands þurfti í liðinni viku að leggja
verulega á sig til að verja gengi íslensku krónunnar eft-
ir að spákaupmenn höfðu í fyrsta skipti gert „atlögu“ að
krónunni, svo notuð séu orð seðlabankastjóra og forsæt-
isráðherra. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur sagt
aðferðir spákaupmanna vera ógeðfellda viðskiptahætti
og undir þau orð hefur Birgir ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri tekið. Báðir hafa rangt fyrir sér.
Spákaupmennska með gjaldeyri, hlutabréf eða fram-
virka samninga hvers konar eru nær undantekninga-
laust fullkomlega eðlilegir viðskiptahættir og órjúfanleg-
ur hluti af frjálsum markaðskerfi. Spákaupmennska er,
líkt og hagnaðarvonin, drifkraftur sem nauðsynlegur er
á markaði.
Þeir sem hafa haft forystu um að innleiða frjáls við-
skipti - hafa leyst fjármála- og peningamarkaðinn úr
fjötrum opinberra afskipta og miðstýringar - verða að
skilja þessi einfóldu sannindi. Auðvitað geta spákaup-
menn gert stjórnvöldum lífið leitt og gert þeim erfiðara
fyrir að ná markmiðum sinum í efahagasmálum. En spá-
kaupmenn gera ekki annað en að endurspegla þær vænt-
ingar sem eru í þjóðfélaginu til þróunar í efnahagsmál-
um og því eru aðgerðir þeirra nauðsynlegur vegvísir
fyrir stjórnvöld.
Viðskiptablaðið heldur því fram í gær, miðvikudag, að
fráleitt sé að tala um ómaklega árás á krónuna enda sé
mat spákaupmanna mikilvæg vísbending um stöðu krón-
unnar. „Hvort heldur Davíð Oddssyni eða Birgi ísleifi
Gunnarssyni líkar það betur eða verr, þá eru spákaup-
menn eitt mesta og mikilvægasta hreyfiaflið á markaðin-
um. Þrátt fyrir að við búum við fastgengisstefnu eru það
kaupendur og seljendur krónunnar sem ákvarða gengi
hennar og lögmálið um framboð og eftirspurn ræður rikj-
um,“ segir Viðskiptablaðið.
Sá tími er sem betur fer liðinn þegar Seðlabankinn
ákvað gengi krónunnar i samráði við ríkisstjórn á hverj-
um tíma, líkt og vextir voru ákveðnir óháð allt og öllu
með skelfilegum afleiðingum. Nú ræðst gengið á markaði
og markaðurinn ákveður það meðal annars út frá trú-
verðugleika stefnunnar í peninga- og ríkisfjármálum.
Hafi þeir sem stunda viðskipti með gjaldeyri ekki trú á
stefnunni eða telja að hún nái ekki fram að ganga hegða
þeir sér í samræmi við það. Og auðvitað reyna þeir að
hagnast - slíkt er eðli frjálsra viðskipta. •
Hagnaðarvonin er órjúfanlegur hluti af því frelsi sem
Davíð Oddsson hefur haft frumkvæði að að auka. Það er
miður að reynt skuli að gera hagnaðarvonina tortryggi-
lega - hún er langt frá því að vera ógeðfelld.
Auðvitað tollvemd!!
Landbúnaðarráðuneytið er að huga að því hvort ekki
sé rétt að grípa til tollaverndar fyrir gerilsneyddan
eggjamassa. Ástæðan er sú að innlendir aðilar hyggjast
hefja framleiðslu á gerilsneyddum eggja-massa. Fyrstu
viðbrögð yfirvalda landbúnaðarmála er að finna leiðir
til að vernda innlenda framleiðslu fyrir innflutningi.
Er nema von að hægt gangi að lækka matvælaverð
hér á landi? En líklega hefur landbúnaðarráðherra
minnstar áhyggjur af slíkum smámunum.
Óli Björn Kárason
DV
Skoðun
Blindir fá sýn
Kristján
Pétursson
fyrrv. deildarstjóri.
Hvílík opinberun. -
Fiskistofa og Hafrann-
sóknarstofun viður-
kenna loksins að ár-
lega séu tugþúsund-
um tonna af fiski
kastað í sjóinn. Það
hafi nefnilega komið í
ljós að þegar eftirlits-
menn Fiskistofu voru
um borð í fiskibátun-
um lönduðu þeir öll-
um fiski sem kom um
borð (undirmáls og
fiski undir 65 cm). En
þegar þegar eftirlitsmennimir voru
ekki með í fór lönduðu sömu bátar
nær einungis fiski yfir 70 cm! Satt
best að segja hélt maður að þetta
væru engar fréttir fyrir Fiskistofu og
Hafrannsóknarstofnun.
Allir sjómenn, útgerðarmenn, fisk-
markaðir, fiskverkendur og útflytj-
endur sjávarfangs og áhugamenn um
fiskveiðistjómun hafa verið vel með-
vitaðir um þetta brottkast allt frá því
að framsal og leiga var heimiluð á
fiskveiðiheimildum 1990. Vandalaust
var líka fyrir eftirlitsaðila að skoða
fiskstærðir á mörkuðum og við lönd-
un aflans til að fullvissa sig um
frákast á smærri fiski.
Afleiðing fiskveiðistjórnun-
ar
Allt er þetta afleiðing rangrar
fiskveiðistjómunar. Það er sam-
eiginlegt hagsmunamál útgerðar-
og sjómanna, flskverkenda og út-
flytjenda að hirða aðeins verð-
mesta og stærsta fiskinn þegar
aflaheimildir eru af skornum
skammti. Hið gegndarlausa brott-
kast á þorski til að ná heimiliðum
meðafla af öðrum fisktegundum
toppar þó alla aðra forheimsku kerf-
isins. Þeir ráðherrar og forystumenn
útgerðarmanna ásamt fyldgarsvein-
um þeirra sem telja þetta brask og
sjálfseyðingarkerfi vera besta fisk-
veiðistjómunarkerfi í heimi eiga
enga samleið meö landi og þjóð.
Oft hafa verið tilefni til að rann-
saka ýmsa stjórnsýsluhætti hér á
landi, en aldrei hafa verið ríkari
ástæður en nú til opinberrar rann-
sóknar á stórfelldum meintum laga-
brotum, er lýtur að fiskveiðistjórn-
uninni sl. 16 ár eða frá því kvótinn
kom til sögunnar.
Við erum lýbrœðisríki sem gerir kröfur um réttláta málsmeðferð og að viðkomandi
stofnanir beri þá ábyrgð og hafi til að bera frumkvœði til aðgerða. Við erum hér að
fjalla um sameign þjóðarinnar samkvæmt dómi Hœstaréttar.
Ætla má að fullunnin verðmæti
þess fisks sem kastað hefur verið i
hafið sl. 10 ár sé ekki undir 100 millj-
örðum króna. Þá vekur það mikla at-
hygli að Hafrannsóknarstofnun við-
urkennir nú að hafa tekið tillit til
frákasts á fiski í sínum tillögum um
heildarveiði á íslandsmiðum. Hvaða
viðmiðun hafði stofnunin að styðjast
við? Af hverju óskaði ekki stofnunin
eftir opinberri rannsókn dómsmála-
ráðuneytis og Fiskistofu þegar um
jafn augljós og alvarleg lögbrot var
að ræða?
Við eram lýðræðisríki sem gerir
kröfur um réttláta málsmeðferð og
að viðkomandi stofnanir beri þá
ábyrgð og hafi til að bera frumkvæði
til aðgerða. Við erum hér að fjalla
um sameign þjóðarinnar samkvæmt
Hvað höfðingjarnir hafast að
Lítil og ekki áberandi fregn í DV
vakti athygli mina. - Þar var greint
frá því í stuttu máli, að einhverri
ágætri þingkonu á Evrópuþinginu
hefði ofboðið framferði þingsystkina
sinna á þinginu, þar sem þau hefðu
drakkið rauðvín af stút, og skilið
þannig við, að matarleifar lágu alls
staðar á gólfinu eftir liðið. Og svo
kom rúsínan í pylsuendanum: Á eftir
þessari vel heppnuðu veizlu, tóku
menn til við þingstörfin á ný og um-
ræðuefnið var, hvemig sigrast mætti
á áfengisvandanum í Evrópu! - Lygi-
leg saga, en greinilega dagsönn og að-
eins eitt fjölmargra dæma um þann
ótrúlega og ósvífna tvískinnung sem
ríkir svo allt of víða í þessum málum.
Minnisstætt heilbrigðisþing
Mér er minnisstætt heilbrigðis-
þing eitt fyrir nokkrum
étrum hér 1 Reykjavík þar
sem áfengismál voru ofar-
lega á baugi, og þar til
fenginn erlendur sérfræð-
ingur frá Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnuninni til að
fræða okkur um stefnu
hennar, m.a. í vímuefha-
málum.
Ekki fór sá ágæti fyrir-
lesari dult með þann mikla
vanda sem neyzla áfengis
hefði 1 för með sér og _______
skelfilegar afleiðingar
hennar. Eftir ráðstefnu þessa válega
boðskapar var svo boðið til voldugs
teitis, þar sem áfengi var ótæpilega
veitt, og uröu margir allmiklu meira
en kjafthýrir af.
Nýlega var svo sagt frá því, að
Helgi Seljan
fyrrv. alþingismaöur.
saman hefðu komið í
Reykjavík forvamar- og
vímuvamafulltrúar borgar-
innar, sem hefðu borið sam-
an bækur sínar um vænleg-
ustu ráð til vamar gegn
vímunnar vá, og þá einkum
meðal unglinga og bama.
Og viti menn; Á eftir gæddu
menn sér í samkvæmi
miklu á þessum sömu gör-
óttu veigum og menn höfðu
verið að vara æskuna við
daglangt. Tvískinnungur-
— inn í orðum og athöfnum
enn eina ferðina ekki við
reið
einteyming.
Misvísandi skilaboð
Hver eru í raun þau skilaboð sem
ungu fólki eru gefin með slíku?
Menn verða nefnilega helzt af öllu að vera samkvœmir sjálfum sér í þessu sem öðru
og senda ekki ómótuðum œskulýð svo hrœðilega misvísandi skilaboð sem raun ber
vitni, og ótalin dœmi sanna.
Væri ekki þessu góða fólki í
sjálfselsku sinni þörf á að hugsa
sinn gang og átta sig á því hvert for-
dæmi er með þessu gefið? Við meg-
um, þið megið ekki, er megininntak-
ið. Og svo tala menn endalaust af
fjálgu frjálslyndi sínu um að þeir
séu ekki neinir ofstækismenn, og
bæta við, að þeir séu nú ekki með-
mæltir boðum og bönnum.
Mér flýgur alltaf í hug, hvort þetta
blessað fólk sé yfírleitt með nokkru
sem heitir „lög og réttur“, því öll
okkar löggjöf er byggð upp á boðum
og bönnum, og alls konar fyriimæl-
um til okkar þegnanna, og hélt ég
engum þætti nema ofur eðlilegt í
lýðræðisríki.
En svo berja menn sér á brjóst
þegar að hinni hræðilegu vá vímu-
efnisins, áfengi, kemur og þykjast
menn að meiri að segjast vera á móti
öllum boðum og bönnum. Eðlilegt er
að spurt sé i beinu framhaldi, hvort
boð og bönn eigi þá nokkuö að gilda
um önnur eiturefni sem þó eru bönn-
uð í dag? Menn verða nefnilega helzt
af öllu að vera samkvæmir sjálfum
sér í þessu sem öðru og senda ekki
ómótuðum æskulýð svo hræðilega
misvísandi skilaboð sem raun ber
vitni, og ótalin dæmi sanna.
Því það er nú einu sinni svo að í
fullu gildi eru gömlu vísuorðin sem
fyrirsögn þessa pistils lýtur, þótt í
yfirfærðri merkingu séu: Hvað höfð-
ingjamir hafast að / hinir ætla sér
leyfist það.
Það einnig svo að hið gullna for-
dæmi gefst ævinlega bezt þegar
brugðist er við slíkum ægivanda,
sem allir hljóta að viðurkenna að er
til staðar. - Mættu menn hvarvetna
hafa það í huga.
Meö og á móti
Lokað á viðskipti
vegna Kristnihátíðar of ósveigjanlegt?
Hættulegt að breyta
J „Mér þykir
v verst að afleggjar-
K anum niður að
■Qi bryggjunni hjá
okkur var lokað
og þar sem við rekum útsýn-
issiglingar urðum við að
hafa lokað yfir helgina.
Við vorum búnir að
skipuleggja aukaauglýsingar
og fleiri ferðir en urðum að
hætta við allt þegar kom í
ljós að kúnnamir mundu
ekki komast til okkar. Þeir
hefðu eflaust þurft að láta varpa sér
í fallhlíf í bátinn ef það ætti að
takast.
Kolbeinn
Sveinbjörnsson
forsvarsmaöur
Þingvallasiglinga
Við vorum ekki látnir vita
og það var engin þörf á að
loka þessum afleggjurum,
jafnvel þótt mikil umferð
hefði verið hefði verið hæg-
ur leikur að leyfa einstaka
bU að fara þama.
Maður hefði haldið að við-
skiptin í kring ættu að hagn-
ast á þessari hátið en ekki
tapa út af ósveigjanlegu um-
ferðarkerfi."
„Menn geta deUt
B um þá ákvörðun
eina og sér að
r halda svona hátíð
á ÞingvöUum en
þegar ákvöröunin er tekin
verður að framkvæma það
vandræðalaust. Það er hægt
að vera vitur eftir á, þegar
komið er í ljós hve margir
mættu, en það er mjög erfitt
að átta sig á íslendingum og
ég bjóst tU dæmis við að
minnsta kosti 50 þúsund manns á
ÞingvöU þegar kom í ljós hve gott
veðrið var. Menn unnu úr umferðar-
kerfinu eins vel og þeir gátu gert og
Eyjólfur Arni
Rafnsson
verkfræöingur
öU umræða í þá átt að það
ætti að breyta á laugardegin-
um eða þegar nær dró er al-
gerlega út í hött. Það eina sem
menn gátu gert var að halda
sínu striki. Það var búið að
leggja mikið i að kynna skipu-
lagið í blöðum og sjónvarpi og
að æUa að bakka út úr því
með einni tilkynningu gengur
ekki upp. Ef tekið er dæmi
um MosfeUsheiðina, sem var
auglýst einstefnuleið, þá hefði
getað skapast umferðarhætta ef ein-
hverjir hefðu ekki heyrt um breyting-
ar á skipulagi, tU dæmis yfir í tví-
stefnu."
Háværar gagnrýnisraddir hafa veriö um umferöarskipulag lögreglunnar og ekki síst i
in væri mun mínni en búist var viö.
því Ijósi að ekkert var slegið af umferöarhöftum þrátt fyrir aö umferö-
dómi Hæstaréttar. Fólkið í landinu
viU endurskoðun á skiptingu auð-
lindarinnar og aflétta því óréttlæti
sem viðgengist hefur hjá ríkisstjóm-
inni. Núverandi sjávarútvegs-
ráðherra lofar lýðræðislegum vinnu-
brögum með þátttöku hagsmuna-
aðUa. - Við bíðum og sjáum hvaö
setur.
Kristján Pétursson
Ríkari eftir kristnihátið
„Þá er kristnihátíð-
inni á ÞingvöUum
lokið. Þú, sem komst
á hátíöina, ert rikari
eftir en aðrir lands-
menn ... Og ef þú átt
bam eða börn, þá
skaltu vita að þú hef-
ur gefið bömunum þínum dýrmæta
gjöf með því að fara með þau á þessa
miklu hátíð ... Þegar þau verða stór
þá geta þau sagt stolt við börnin sín
og barnabörnin: Ég var líka á Þing-
vöUum viö Öxará árið 2000.“
Þórhallur Heimisson, sóknarprestur og
staöarhaldari á Þingvöllum á Kristni-
hátlö,! Mbl. 5. júlí.
Kanni forsendur
„Ég hefði taliö
ástæðu tU þess að
spyrjast fyrir um for-
sendur þessara
hækkana hjá trygg-
ingafélögunum. Ég sé
ekki betur en þau
séu aftur að skír-
skota tU skaðabótalaganna. Þau
báru það líka fyrir sig í fyrra þegar
þau hækkuðu bifreiðatrygginga-
iðgjöldin. Þess vegna tel ég að
stjórnvöld ættu að kanna rækilega
hvað liggur hér að baki.“
Jón Kristjánsson, form. fjárlaganefndar
Alþingis, í Degi 5. júli.
Breytt fyrirkomulag
„Stjórnvöld ættu að huga vel að
gengi krónunnar og skráningu
hennar. Núverandi fyrirkomulag
stýrðs fastgengis hefur þrátt fyrir að
hafa reynst vel á síðustu árum, orð-
ið fyrir miklum þrýstingi undan-
farið. Þessi þrýstingur og meint at-
laga spákaupmanna gefur tUefni tU
að kanna hvort ekki sé tímabært að
breyta fyrirkomulagi gengisskrán-
ingar ... M.ö.o. getur Seðlabankinn
leyft krónunni að veikjast ef þrýst-
ingur í þá veru eykst."
Úr forystugreinum Viöskipta-
blaösins 5. júlí.
Þjóðin ekki kirkjukær
„Hvers vegna neit-
aði þjóðin að mæta?
Stutta svarið er ein-
falt. Hún er ekki
kirkjukær. íslending-
um finnst sjáifstæði
þjóðarinnar mikU-
vægt. Hátíðlegt að
fagna búsetu í landinu með táknræn-
um hætti... Ekki fyrir eitthvert ártal
sem þó var svo blessunarlega einfalt
að það var eitt af fáum sem flestir
höfðu á hreinu í bamaskóla. Kirkjan
á ekki þann stað í þjóðarhjartanu
sem fær það til að slá örar.“
Stefán Jón Hafstein, í Degi 5. júlí.
Spákaupmenn
eyðilögðu krónunal
DV og dyggðirnar
í Stekkjargjá á ÞingvöU-
um gefur að Uta sýningu út
frá þemanu dyggðir að
fornu og nýju. Þrátt fyrir ít-
arlega umfjöUun DV um
kristnihátíðina sem fram
fór á ÞingvöUum virðist
blaðinu hafa yfirsést að
fjaUa um a.m.k. eina af þess-
um dyggðum, nútímadyggð-
ina Jákvæðni". UmfiöUun
blaðsins um kristnihátiðina
er svo neikvæð að ég man
varla eftir öðra eins aUt fi'á
því að foreldrar DV, Dag-
blaðið og Vísir, kepptust við
að kveða upp neikvæða dóma í upp-
hafi árs 1976 yfir fiórmenningunum í
Geirfmnsmálinu sem að ósekju voru
hnepptir í gæsluvarðhald.
Gagnrýni á Kristnihátíð
Víst má gagnrýna eitt og annað
við þessa Kristnihátíð. Meðhöndlun
manna á ásatrúarhópnum var með
eindæmum klaufaleg og hópurinn sá
lék hlutverk píslarvottarins einstak-
lega vel með góðri aðstoð DV. Þá er
ég sammála þeirri gagnrýni að hátíð-
in hafi verið of viðamikU, of dýr
(voru ekki gerðar skoðanakannanir
með góðum fyrirvara um það hversu
margir myndu mæta??). Ég held að
það hefði hæft kristninni betur að
gæta meiri hófsemi í notkun fiár-
muna. Að auki tel ég að þjóðkirkjan
og aðrar kristnar kirkjur hefðu átt
að fá að móta þessa hátíð meira eftir
sínu höfði en láta ekki ríkisvaldið
um það. Almenningi finnst það lykta
af forræðishyggju á tímum þegar
fieiri og fleiri hafa efasemdir um
samband ríkis og kirkju, ekki síst
innan kirkjunnar sjálfrar.
Halldór
Reynisson
prestur og fjölmiöla-
fræöingur.
Ekki get ég séð að blaða-
menn eða ritstjórar hafi
gengið fram fyrir skjöldu og
sett fram gagnrýni af þessu
tagi á yfirvegaðan hátt. í
staðinn var reynt að finna
neikvæðan vinkU sem
gjaman birtist í fyrirsögn-
um. Gott dæmi er fyrirsögn
á forsíðu daginn eftir
kristnihátíð en þar stóð
með stríðsletri: „Dræm
þátttaka". Annað var eftir
því. Það var ansi forvitni-
legt að bera umfiöUun
blaðsins saman við umfiöU-
un um hátíð ásatrúarmanna viku
fyrr sem var ein samfeUd lofgerðar-
ruUa.
Fréttamennskan og DV
Mér rennur blóðið tU skyldunnar
i þessum efnum. Sem prestur þjóð-
kirkjunnar hef ég aUtaf fagnað gagn-
rýni því hún hjálpar okkur að þjóna
fólki betur. Neikvæðni hins vegar
drepur í dróma. Á hinn bóginn sem
gamaU blaðamaður á Vísi, öðru for-
eldri DV, þá rennur mér tU rifia
hvernig króinn er orðinn. Hvaða
vandað fréttablað fiármagnar sig
með að auglýsa klámstunur í gegn-
um síma? Hvaða vandað fréttablað
er með blaðamenn sem greinUega
eru flestir ungir, óreyndir og Ula
launaðir? Hvaða vandað fréttablað
skoðar ekki með sjálfsgagnrýni þeg-
ar það er vænt um fordóma og hlut-
drægan fréttaflutning? Heiðarleg
undantekning er menningaramfiöll-
un blaðsins undir stjórn SUju Aðal-
steinsdóttur.
Mér finnst ég skynja ágætlega
„línuna" sem ritstjómin er búin að
koma sér upp. Vera á móti
kerfisköUum, feitum klerkum og
apparatinu. Vera með þeim sem era
„inn“, sexi en á móti kerfinu. Skítt
með sanngimi, skítt með sannleika.
Þetta var líka stundum svona hjá
okkur á Vísi í gamla daga (sbr. „Vís-
ismafiuna" alræmdu) og þó áttum
við okkur þann metnað að vera góð-
ir blaðamenn. Þegar ég lærði mína
blaðamennsku í henni Ameríku, en
þar er vagga nútíma fréttamennsku,
voram við fréttamenn varaðir við
eigin fordómum, a.m.k. skyldum við
gera okkur grein fyrir þeim. Um leið
skyldum við innræta okkur ákveðn-
ar dyggðir fréttamennskunnar,
sanngirni gagnvart þeim sem við
fiöUuðum um og reyna ávaUt að
hafa það sem sannara reynist eins
og klerkurirm Ari fróði forðum. Við
áttum með harðri en heiðarlegri
fréttamennsku að þjóna almenningi
í því skyni að efla lýðræði, upplýs-
ingu og siðvit, en forðast að miðla
fordómum og lágkúru. í öUu þessu
skyldum við iðka hæfilega sjálfs-
gagnrýni, ávaUt spyrja okkur af
hvaða hvötum fréttamennska okkar
væri sprottin.
Sjáifsgagnrýnin - hin
sanna dyggð
Það er einmitt aðaU hinnar sönnu
dyggðar, jákvæð sjálfsgagnrýni. Ég
vona að við getum sameinast í
henni, við þjónar kirkjunnar, þegar
við metum þjónustu okkar við fólkið
í landinu, þ.á m. Kristnihátíðina, og
þið blaðamenn á DV sem eigið að
þjóna almenningi með sanngimi og
sannleiksleit - ekki síst um kosti og
lesti þessarar hátíðar.
Halldór Reynisson
sg held að það hefði hæft kristninni betur að gœta meiri hófsemi í notkun fjár-
muna. Að auki tel ég að þjóðkirkjan og aðrar kristnar kirkjur hefðu átt að fá að
móta þessa hátíð meira eftir sínu höfði en láta ekki ríkisvaldið um það.