Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2000, Blaðsíða 18
26
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000
DV
Ættfræði
Umsjön: Kjartan Gunnar Kjartansson
§5_ára_________________________________
Ásta Júlía Guömundsdóttir,
Kleppsvegi 124, Reykjavík.
80 ára_________________________________
Anna Júlía Magnúsdóttir,
Skúlagötu 20, Reykjavik.
Jón Ingimundarson,
Haukagili, Reykholti.
75 ára_________________________________
Ása Guölaug Stefánsdóttir,
Mýrum 2, Hvammstanga.
70 ára ________________________________
Áslaug Hulda Ólafsdóttir,
Kirkjuvegi lg, Keflavík.
Bergþóra Sigurjónsdóttir,
Túngötu 13, Sandgeröi.
Magnús Júlíus Jósefsson,
Breiöási 9, Garöabæ.
Sigurður Jóelsson,
Fögrubrekku 38, Kópavogi.
60 ára_________________________________
Í;. , Einar Brekkan
^ Einar var kvæntur
Kristmannsdóttur og eiga
þau fjögur börn.
■*— Hann er að heiman.
Einar Kristberg Einarsson,
Hlégarði, Egilsstöðum.
Magnús Þórðarson,
Furugerði 13, Reykjavík.
Ólafur Steinþórsson,
Fjarðargötu lOa, Þingeyri.
Theódór R Theódórsson,
Mjógötu 5, ísafirði.
Valgarður Sveinn Hafdal,
Sörlaskjóli 58, Reykjavík.
50 ára_________________________________
Elísabet Árnadóttir,
Hvassaleiti 38, Reykjavík.
Erlingur Friðriksson,
Frostafold 14, Reykjavík.
Helga Thorberg,
Bárugötu 8, Reykjavík.
Hólmfríöur Davíðsdóttir,
Mýrarseli 2, Reykjavík.
Jenný Ingvarsdóttir,
Vallargerði 1, Reyöarfiröi.
Karlinna Sigmundsdóttir,
Dynskógum 3, Hveragerði.
Paul Michael Herman,
Hverfisgötu 64, Reykjavík.
Órn Gunnarsson,
Breiðvangi 73, Hafnarfirði.
40 ára_________________________________
Ellý Sigfúsdóttir,
Sveighúsum 12, Reykjavík.
Guðmundur Sveinn Guðmundsson,
Álfholti 24, Hafnarfirði.
Guðrún Hjórleifsdóttir,
Hvannalundi 15, Garðabæ.
Gunnar Magnússon,
Þelamörk 59, Hveragerði.
Hafdís Alfreðsdóttir,
Hábæ 31, Reykjavík.
Hrönn Hjaltadóttir,
Skaröshlíö 24e, Akureyri.
Jóhann Örn Arnarson,
Heiðarbraut 2, Blönduósi.
Raad Mourad Ali Bestouh,
Efstahjalla 11, Kópavogi.
Smáauglýsingar
Þjónustu-
auglýsingar
►I 550 5000
Ingibjörg Elísabet Jóhannesdóttir frá
Flateyri, Úthlíð 35, Hafnarfirði, lést
föstudaginn 30.6. á Landspítalanum,
Fossvogi.
Gunnar Þorsteinsson, Víöinesi, lést á
bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur,
Fossvogi, föstudaginn 16.6. Jaröarförin
hefur fariö fram í kyrrþey.
Andrea Guðmundsdóttir, Ásvallagötu
49, andaðist á Vífilsstöðum mánudag-
inn 3.7.
Ágústa Jónsdóttir Johnson, Árskógum
8, Reykjavík, lést þriðjudaginn 4.7.
Eiður Smári Gunnarsson, Hjallabraut 2,
Hafnarfirði, lést á heimili sínu sunnu-
daginn 25.6. Jarðarförin hefur farið
fram I kyrrþey.
Jónasína Hulda Jónsdóttir og Michael
Eilbergas M.D., Cona, Bandarikjunum
eru látin. Jarðarförin fór fram í kyrrþey.
Fimmtugur
Jón Sveinsson
hæstaréttarlögmaður
Jón Sveinsson, hrl. og stjórnarformaður íslenskra aðalverktaka.
Jón hefur lengi verið í röðum frammámanna Framsóknarfiokksins. Hann þykir
traustur lögmaöur og ráðdeildarsamur við stjórn fyrirtækja.
Jón Sveinsson hæstaréttarlög-
maður, Heiðarási 8, Reykjavík, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Jón fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp við Smiðjustíginn og í
Norðurmýrinni en auk þess í Mela-
sveit í Borgarfirði og á Seltjamar-
nesi.
Jón lauk stúdentsprófi frá MR
1971, embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1976, öðlaðist hdl.-réttindi 1979 og
hrl.-réttindi 1997.
Jón var fulltrúi hjá bæjarfógetan-
um á Akranesi 1976-80, rak eigin
lögfræðiskrifstofu á Akranesi
1980-89 og samhliða í Reykjavík
1987-88, var aðstoðarmaður forsæt-
isráðherra, Steingríms Hermanns-
sonar 1988-91, rak eigin lögfræði-
skrifstofu í Reykjavík 1991-99 en
stofnaði árið 1999 Landslög lög-
fræðistofu, ásamt Garðari Garðars-
syni hrl., Jóhannesi Sveinssyni hrl.
og Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hrl.,
og reka þeir félagar skrifstofuna
saman í dag, bæði í Reykjavík og i
Keflavík.
Jón var stundakennari í við-
skiptarétti við Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi 1978-80 og hefur
setið í Kjaradómi frá árinu 1993,
kjörinn af Alþingi.
Jón sat í stjóm Stúdentaráðs HÍ
1973-74, sat í miðstjóm Framsókn-
arflokksins 1978-88 og frá 1990, í
framkvæmdastjórn 1985-86, var
bæjarfulltrúi á Akranesi 1978-82,
sat í bæjarráði þar 1982-84, í iðnað-
amefnd Akraneskaupstaðar
1978-82, í kjarasamninganefnd
1985- 86 og skólanefnd Fjölbrauta-
skóla Vesturlands 1978-79 og
1986- 87, í stjóm Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar 1979-87, formaður
1985-86, var fyrsti varaþm. Fram-
sóknarflokksins í Vesturlandskjör-
dæmi 1979-87, formaður stjórnar
Lánasjóðs sveitarfélaga 1987-91.
Formaður nefndar ríkisstjómarinn-
ar 1989 um stofnun umhverfisráðu-
neytis, í stjórn íslensks markaðar
hf. 1989-91, í stjórn íslenskra aðal-
verktaka sf/hf frá 1990, og stjómar-
fonnaður frá 1996, í stjórn íslenska
jámblendifélagsins hf. frá 1992 og
stjórnarformaður 1996-97, í Fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu
frá 1996 og stjórnarformaður
Landsafls hf frá 1998.
Jón var ritstjóri Magna, kjör-
dæmisblaðs í Vesturlandskjördæmi,
1979-85.
pjölskylda
Jón kvæntist 30.10.1971, Guðrúnu
Sigríði Magnúsdóttur, f. 23.5. 1949,
kennara. Foreldrar hennar eru
Magnús E. Baldvinsson, f. 12.12.
1923, úrsmíðameistari í Reykjavik,
og k.h., Unnur Hróðný Benedikts-
dóttir, f. 10.6. 1924, húsmóðir.
Börn Jóns og Guðrúnar Sigríðar
eru Unnur Ýr, f. 19.2. 1970; Ingvar
Ýmir, f. 21.9. 1975; Kristín Ösp, f.
30.8. 1977; Hildur Hlín, f. 4.10. 1983.
Systir Jóns er Anna, f. 21.9. 1946,
kennari við Landakotsskóla en sam-
býlismaður hennar er Þorgrímur
Jónsson, fyrrv. yfirtannlæknir.
Foreldrar Jóns: Sveinn Jónsson,
f. 3.6.1918, d. 27.12.1991, kaupmaður
í Reykjavík, og k.h., Kristín Ingv-
arsdóttir, f. 22.6. 1926, verslunar-
maður og húsmóðir í Reykjavík.
Ætt
Sveinn er sonur Jóns, trésmiðs í
Reykjavík Halldórssonar, b. á Stóra-
Grindli í Fljótum Guðmundssonar,
b. á Kjarvalsstöðum Einarssonar.
Móðir Halldórs var Kristín, systir
Margrétar, langömmu Kristínar
Jónsdóttur listmálara. Margrét var
einnig amma Einars, langafa Jór-
unnar Viðar tónskálds og Þuríðar
Pálsdóttur óperusöngkonu. Kristín
var dóttir Gísla, konrektors á Hól-
um Jónssonar, biskups á Hólum
Teitssonar. Móðir Gísla var Mar-
grét, systir Hannesar biskups, afa
Steingríms skálds og Árna
landfógeta Thorsteinsson. Margrét
var dóttir Finns, biskups í Skálholti
Jónssonar, ættföður Finsenættar.
Móðir Kristínar var Ingiríður Hall-
dórsdóttir, konrektors á Hólum
Hjálmarssonar. Móðir Halldórs var
Filippía Pálsdóttir, systir Bjarna
landlæknis. Móðir Jóns var Kristín
Filippusdóttir, b. á Illugastöðum
Einarssonar, og Önnu Jónsdóttur,
systur Guðrúnar, ömmu Davíðs
Stefánssonar frá Fagraskógi.
Móðir Sveins var Sigurlaug Rögn-
valdsdóttir, b. á Lambanesreykjum í
Fljótum Rögnvaldssonar. Móðir
Rögnvaldar var Ósk Þorleifsdóttir,
b. í Mörk í Laxárdal Þorleifssonar,
og Ingibjargar Jónsdóttur, b. á
Skriðulandi Þorlákssonar, ættfóður
Ásgeirsbrekkuættar Jónssonar, fóð-
ur Halldóru, langömmu Péturs,
langafa Hermanns Jónassonar for-
sætisráðherra, fóður Steingríms,
fyrrv. forsætisráðherra. Þorlákur
var einnig faðir Ásgríms, langafa
Áslaugar, langömmu Friðriks Soph-
ussonar. Móðir Sigurlaugar var
Guðrún Jónsdóttir, systir Sæmund-
ar, langafa Önnu, móður Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar rithöfundar.
Kristín er dóttir Ingvars, b. í
Lyngholti í Melasveit, bróður
Bjarna, föður söngkvennanna Hall-
bjargar og Steinunnar. Ingvar var
sonur Hallsteins, b. í Skorholti í
Melasveit Ólafssonar, bróður Hall-
dórs, langafa Höskuldar Þráinsson-
ar prófessors. Móðir Ingvars var
Steinunn Eiríksdóttir, b. á Eystra-
Miðfelli á Hvalijarðarströnd, bróður
Halldórs, langafa Helga, fóður Guð-
rúnar Helgadóttur rithöfundar.
Systir Eiríks var Hildur, langamma
Margrétar Guðnadóttur prófessors.
Eiríkur var sonur Sveins, b. í
Reynivalla-Vesturkoti í Kjós Er-
lingssonar, bróður Erlings, langafa
Þórmundar, foður Jónatans prófess-
ors. Erlingur var einnig langafi Ás-
mundar, fóður Guðrúnar leikkonu.
Móðir Steinunnar var Ingiríður
Einarsdóttir, systir Guðrúnar,
langömmu Sigmundar Guðbjarna-
sonar, fyrrv. háskólarektors.
Móðir Kristínar var Anna Þórð-
ardóttir, b. á Æsustöðum í MosfeUs-
sveit Jónssonar, b. á Varmá Árna-
sonar. Móðir Jóns var Málfríður
Magnúsdóttir, b. í Hvammi Runólfs-
sonar, og Aldísar Guðmundsdóttur,
systur Þorsteins, langafa Bjarna
Jónssonar vígslubiskups.
Jón og Guðrún taka á móti vinum
og vandamönnum í Ásmundarsafni
við Sigtún á afmælisdaginn á milli
kl. 17.30 og 20.00.
Sextug
’
Steinunn Thorarensen
húsmóðir í Mosfellsbæ
Steinunn Thorarensen húsmóðir,
Miðholti 9, Mosfellsbæ, varð sextug
i gær.
Starfsferill
Steinunn fæddist á Gjögri í Ár-
neshreppi á Ströndum og ólst þar
upp.
Að loknu grunnskólanámi vann
hún við síldarsöltun hjá Djúpuvík
hf. Hún flutti í Mosfellssveitina 1958
og hefur síðan verið búsett þar.
Steinunn starfaði hjá Álafossi á ár-
unum 1958-91, stundaði afleysingar
hjá Reykjalundi í Mosfellsbæ
1991-93 en hefur siðan verið heima-
vinnandi húsmóðir.
Fjölskylda
Steinunn giftist 5.6. 1960 Ólafi
Grétari Óskarssyni, f. 13.7. 1938,
verkstjóra. Hann er sonur Óskars
Hraundal og Ólafar Helgadóttur.
Böm Steinunnar og Ólafs Grétars
eru Margeir Steinar, f. 27.10.1960 en
böm hans eru Sölvi Már, f. 19.1.
1980 sem á unnustuna Maríu Svein-
bjömsdóttur, og Steinunn Ema, f.
18.10.1983; Ólafur A. Thorarensen, f.
3.8. 1962 en sonur hans er Hilmar
Þór, f. 30.6. 1998; Axel Thorarensen,
f. 26.5.1973 en unnusta hans er Kol-
brún Kristinsdóttir og eru dætur
þeirra Aníta Erla, f. 9.10. 1993, og
Dilja Sól, f. 5.9.1995; Grétar Fannar,
f. 22.8. 1980 en unnusta hans er Ey-
dís Sól Jónsdóttir og er dóttir þeirra
Júlia Karen, f. 25.5. 1999.
Systkini Steinunnar eru drengur
Thorarensen, f. 25.4. 1931, d. 12.7.
1931; Jóhanna Thorarensen, f. 6.10.
1932, búsett i Mosfellsbæ; Ölver
Thorarensen, f. 6.4. 1935, d. 10.12.
1982; Ólafur Gísli Thorarensen, f.
3.6.1938, búsettur á ísafirði; Kamilla
Thorarensen, f. 25.2. 1943, búsett á
ísaftrði; Olga Soffia Thorarensen, f.
5.10.1945, búsett á Hvolsvelli; Jakob
Jens Thorarensen, f. 9.8. 1949, bú-
settur á Isafirði; Elva Thorarensen,
f. 17.10. 1955, búsett á ísafirði.
Foreldrar Steinunnar voru Axel
Thorarensen, f. 24.10. 1906, d. 14.5.
1993, sjómaður og vitavörður á
Gjögri, og Agnes Guðríður
Gísladóttir, f. 20.12. 1911, d. 30.6.
1992, húsfreyja á Gjögri.
Merkir Islendingar
Katrín Thoroddsen, yfirlæknir og alþing-
ismaður, fæddist 7. júlí 1896, dóttir
Skúla Thoroddsen, alþm. og ritstjóra, og
k.h., Thedóru Thoroddsen skáldkonu.
Katrín lauk stúdentsprófl frá MR
1915, prófl í læknisfræði 1921, stundaði
framhaldsnám i Ósló, Björgvin, Kaup-
mannahöfn og Berlín og varð sérfræð-
ingur í bamasjúkdómum 1927. Hún
var læknir í Flatey 1924-26 og gerði þá
brjóstskurðaðgerð á sjálfri sér enda
ekki aðrir læknar til staðar. Þá var hún
læknir í Reykjavík frá 1926, yflrlæknir
bamadeildar Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur 1955-61 og síðan staðgengill
yflrlæknis til æviloka.
í frændgarði Katrínar er mikill fjöldi lækna.
Katrín Thoroddsen
Má þar nefna Guðmund, bróður hennar, pró-
fessor og yfirlækni, Þórð, lækni í Keflavík,
fóðurbróður hennar, Ólaf Guðmundsson
móðurbróður, Skúla Thoroddsen bróður-
son og fjölda systkinaniðja, s.s. Einar
Thoroddsen, Eyjólf Guðmundsson,
Guðmund Viggósson, Hildi Viðarsdótt-
ur, Ólaf Skúla Indriðason og Svein-
björn Auðunsson.
Katrin var ógift og bamlaus. Hún
var sólsíalisti og mikill kvenskörung-
ur, í hópi fyrstu kvenlækna hér á landi
og fyrstu alþingiskvenna og sat auk þess
í bæjarstjóm. Hún þótti ákveðin og hrjúf
á yflrborðinu en var i raun hjartahlý, nær-
gætinn læknir og einlægur málsvari litil-
magnans. Hún lést 11. maí 1970.
Ingunn Pétursdóttir frá Seyðisfirði lést
á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánu-
daginn 3.7. Jarðarförin fer fram frá
Seljakirkju föstudaginn 7.7. kl. 13.30.
Ingibjörg Vilbertsdóttir lést miðvikudag-
inn 28.6. Útförin fer fram frá Innri-Njarö-
víkurkirkju föstudaginn 7.7. kl. 13.
Stefán Á. Guðmundsson, Sólhlíð 19,
Vestmannaeyjum, sem lést 22.6. Hann
verður jarðsunginn frá Landakirkju laug-
ardaginn 8.7. kl. 14.
Sigurður Halldórsson frá ísafirði lést
laugardaginn 1.7. á Landspítalanum í
Kópavogi. Jarðsett verður frá Kópavogs-
kirkju föstudaginn 7.7.
Róbert Bjarnason, Langeyrarvegi 18,
Hafnarfiröi, er lést 30.6. Hann verður
jarðsunginn frá Víöistaðakirkju föstu-
daginn 7.7. kl. 13.30.