Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Side 2
2
Fréttir
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000
r>v
Banaslys þegar rúta með 31 innanborðs ók á brúarstólpa og valt:
Þýskumælandi prestur
kallaður til sáluhjálpar
- einn maður lést og 15 slösuðust
Einn maður um sextugt lést og 15
slösuðust, enginn lífshættulega, þeg-
ar rúta frá Hópferðamiðstöðinni ók
á brúarstólpa á einbreiðri brú og
valt út i ána Hólsselskíl við eyðibýl-
ið Hólssel í S-Þingeyjarsýslu um
tvöleytið í gærdag. í rútunni voru
27 ferðamenn frá Þýskalandi, tveir
frá Austurríki og þýskur fararstjóri
ásamt íslenskum bílstjóra. Rútan
var að koma frá Neskaupstaö og var
á leiðinni að Mývatni með ferða-
mennina.
Þyrla Landhelgisgæslunnar fór á
vettvang og flutti tvo af hinum slös-
uðu á Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri. Fjórir voru sendir með
sjúkraflugi til Reykjavíkur. Sjúkra-
bílar og þyrla fóru með 11 manns til
Akureyrar þar sem meðhöndluð
voru beinbrot af ýmsu tagi og aðrir
áverkar. Þeim sem ekki voru meö
mikla áverka var ekið í rútu til Ak-
ureyrar þar sem þeim var veitt
áfallahjálp af starfsfólki Rauða
krossins.
Almannavarnanefndin á Húsavík
var virkjuð um leið og af slysinu
fréttist og sett var upp stjómstöð á
DV-MYNDIR SIGURÐUR BOGI
DV-MYND BIRGIR GUÐMUNDSSON
Komlð með slasaða
Tveir farþegar voru fluttir meö þyrlu Landhelgisgæslunnar til Akureyrar.
Ljót aðkoma
Mikill fjöldi björgunarmanna hjálþuöust aö viö aöhlynningu feröamannanna
sem lentu í slysinu í gær.
Húsavík og vettvangsstjórn á slys-
stað. Aðgerðir voru samræmdar af
Almannavömum ríkisins í Reykja-
vík.
Bjami Höskuldsson, varðstjóri
hjá lögreglunni á Húsavík, var einn
þeirra fyrstu sem komu á slysstað-
inn.
„Ástandið á vettvangi var gott
miðað við aðstæður þegar ég kom
að. Þarna var töluverður fjöldi
ferðamanna og í þeirra hópi björg-
unarsveitarmenn sem höfðu þegar
unnið gott starf og náð tökum á
ástandinu. Einn maður hafði misst
meðvitund og var hann úrskurðað-
ur látinn stuttu eftir að við komum.
Óljóst er þó með dánarorsök. Ferða-
mennirnir voru ótrúlega rólegir
miðað við aðstæður.“
Ólöf Bóasdóttir hjá Hópferðamið-
stöðinni sagði í samtali við DV í
gær að allt yrði gert til þess að gera
ferðamönnunum þennan harmleik
léttari.
„Við höfum sent á vettvang allt
það þýskumælandi fólk sem við höf-
um á okkar snærum, auk þess sem
við höfum fengið á slysstað þýsku-
mælandi prest til sáluhjálpar. Viö
munum gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að aðstoða fólkið og
ekkert verður til sparað. Okkur
þykir þetta hörmulegt.“
Presturinn sem hér um ræðir er
séra Ömólfur Jóhannes Ólafsson á
Skútustöðum í Mývatnssveit en
hann var við guðfræðinám í Þýska-
landi.
Ferðamennimir voru á íslandi í
12 daga pakkaferð á vegum þýsku
ferðaskrifstofunnar Studiosus.
Ferðamennimir komu til íslands 9.
júlí og ætluðu að dvelja næstu tvo
daga við Mývatn í vettvangsferöum
um svæðið. -ÓRV
Tugir manna unnu
að björgun fólksins
Komið meö fórnarlömb rútuslysslns
Fjórir farþegar rútunnar sem fór út af veginum viö Grímsstaöi á Fjöllum um
tvöleytiö í gær voru fluttir meö sjúkraflugi á Landspítalann í Fossvogi. Enginn
þeirra var talinn í lífshættu og eftir fyrstu skoöun sjúklinganna var ekki taliö
aö neinn þeirra þarfnaöist aögeröar.
Þorlákshöfn:
Fólksbíl ekið í
veg fyrir rútu
Fólksbíl var ekið í veg fyrir rútu
við Svartaskeiðsbryggju í Þorláks-
höfn um hádegi á fóstudaginn. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi virti
ökumaður fólksbílsins ekki bið-
skyldumerki. Ökumaður fólksbílsins
slasaðist lítiUega við áreksturinn og
var íluttur á heilsugæsluna í Þor-
lákshöfn en ökumaður og farþegar
hópferðabílsins sluppu ómeiddir.
Fólksbillinn er talinn ónýtur en rút-
an er lítillega skemmd. -SMK
Loftpúðar blésust upp:
Bíllinn endaði
utan vegar
Fólksbfll endaði um 18 metra fyrir
utan veg er hann fór út af veginum í
Vattamesskriðum um kiukkan 23 á
laugardagskvöldið. ökumaðurinn ók
á grjót með þeim afleiðingum að loft-
púðar bifreiðarinnar blésust upp. Þar
sem bifreiðin stöðvaðist ekki við
höggið missti ökumaðurinn stjóm á
henni og fór hún út af veginum og
rann niður brekku. Bíllinn stöðvaðist
loks á stórgrýti. Að sögn lögreglunnar
á Fáskrúðsflrði slapp ökumaðurinn,
sem var í bflbelti, ómeiddur, og er bif-
reiðin fúrðanlega lítið skemmd.-SMK
„Menn hafa bmgðist hratt og vel
við en við emm enn að vinna í slys-
inu og emm því enn þá að horfa á
næstu skref," sagði Sólveig Þorvalds-
dóttir, framkvæmdastjóri Almanna-
varna ríkisins, í gærkvöld. Hún bætti
því við að starfsfólk Almannavarna
mundi fara yfir allan framgang að-
gerðanna síðar.
Er rúta með 31 manni innanborðs
fór út af veginum við Grímsstaði á
Fjöllum um tvöleytið í gærdag var
hópslysaáætlun Almannavama ríkis-
ins sett í gang. Lögreglustjórinn á
Húsavík, sem fór með stjóm aðgerða
þar sem slysiö varð í hans umdæmi,
kallaði, ásamt Neyðarlínunni, út
björgunarlið. Lögreglustjórinn setti
einnig vettvangsstjóra á svæðið sem
starfaði í nafni lögreglustjórans. Sól-
veig vissi ekki hversu margir björg-
unarmenn tóku þátt í aðgerðunum en
ljóst er að þeir skiptu tugum. Hlut-
verk Almannavama ríkisins er að
skipuleggja utanaðkomandi aðstoð og
flutning út úr umdæminu. Fjórir
hinna slösuðu vora sendir til Reykja-
víkur og allir aðrir farþegar, slasaðir
og heilir heilsu, fóra til Akureyrar.
Bílstjóri rútunnar er íslenskur ríkis-
borgari en aðrir farþegar era erlend-
ir ferðamenn. Einn maður lést í slys-
inu. -SMK
mmm
Mesta magn fikniefna í einu
Þrír menn um tvítugt hafa verið úr-
skurðaðir í mánaðargæsluvarðhald
vegna gruns um flutning á átta kílóum
af hreinu amfetamíni til landsins. Toll-
verðir fundu efnið í sendingu á
Ðmmtudag. Jafligildir þetta 25 kílóum
af blönduðu efni sem myndi seljast fyr-
ir um 90 milljónir króna á götunni.
Talið er að efnið sé hluti birgða fýrir
komandi verslunarmannahelgi. Stöð
tvö greindi frá.
Jaröskjálftar á Selfossi
Jarðskjálfti upp á um 2,7 á Richter
varð við Selfoss um hálfliíuleytið í
gærkvöld og fannst hann greinilega.
Fjórir skjálftar yfír 1 vora á svæðinu i
kringum háifiiíu og varð sá síðasti
tæplega 2 á Richter, klukkan 20.36.
Stangast á við stjörnarskrá
í kjarasamningi
Bifreiðastjórafélags-
ins Sleipnis er
ákvæði þess efiiis að
félagið hafí samn-
ingsrétt fyrir hönd
sérleyfis- og hóp-
ferðabílstjóra á sinu
félagssvæði. Héraðs-
dómur Reykjavíkm’ staðfesti hins veg-
ar lögbann rútufyrirtækja á þeim
grundvelli að samningsréttur Sleipnis
stangist á við 74. grein stjómarskrár-
innar um félagafrelsi. RÚV greindi frá.
Hnseyjarferjan heim
Nýja Hríseyjarfeijan, sem hlotið hef-
ur nafnið Sævar likt og gamla ferjan,
kom til heimahafhar í gær. Ár er síðan
hún átti í fyrstu að snúa til hafiiar en
búist er við að hún hefji áætlunarferðir
milli lands og eyjar um næstu helgi.
Altari til Eyja
Norðmaðurinn Ragnar Thorseth
mun 19. júlí næstkomandi sigla vík-
ingaskipinu Kvitserk frá Háholmen,
rétt sunnan við Kristiansund í Noregi,
til Vestmannaeyja. Tilgangur ferðar-
innar er að minnast kristniboða sem
þangað komu árið 1000 auk þess að
gefa stafkirkju, þjóðargjöf Norðmanna,
sem vígð verður við hátíðlega athöfii.
Bilun í vél íslandsflugs
Bilun varð í flugvél íslandsflugs sem
var á leið til Rimini á Ítalíu í gær. Loft-
þrýstingur í farþegarými féll óeðlilega
mikið og því varö vélin að millilenda í
Brussel. Upphaflega var farþegum tO-
kynnt að um loftleka með fram hurð
væri að ræða en við nánari athugun
reyndist bilunin vera í einstefiiuloka
framarlega undir vélinni. Áhöfnin af-
réð að snúa vélinni til næsta flugvallar
og var henni mjJlilent í Brassel þar
sem gert var við hana. Ferðinni var
svo haldið áfram 6 tímum síðar.
Kallar eftir þjóöarsamstööu
Ögmundur Jónas-
son, fyrsti þingmaður
Vinstri grænna í
Reylgavík, sagðist í
samtali við Dag vera
mjög fylgjandi því að
reynt væri að mynda
breiða samstöðu í
þjóðfélaginu og sátt
um aðgerðir i efnahagsmálum sem
koma myndi þjóðfélaginu öllu til góða.
Að sögn hans litur stjómarandstaðan
efiiahagsástandið, gengisfall krónunn-
ar, áframhaldandi viðskiptahalla og
vaxandi verðbólgu svo alvarlegum
augum að hún kallar eftir þjóðarsam-
stöðu til lausnar vandanum.
Árekstrahrína
Sannkölluð flóðbylgja árekstra hef-
ur verið hér á landi að undanfómu
samfara fjölgun bUa í umferðinni.
TjónbUar streyma inn tU tryggingafé-
laganna og kostnaður vegna tjóna
hleypur á hundruðum mUljóna króna.
Stöð tvö greindi frá. -jtr