Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Blaðsíða 26
42 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000 Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson y 4. > Stórafmælí 95ára______________________________ Dagmar Hallgrímsdóttir, Lagarási 17, Egilsstööum. 90 ára_____________________________ María Anna Róbertsdóttir, Álfheimum 28, Reykjavík. 85 ára_____________________________ Jón Trausti Gunnarsson, Hjallavegi 37, Reykjavík. Júlíus Ingibergsson, Glaöheimum 12, Reykjavík. 80 ára_____________________________ Egill Kristjánsson, Hjallavegi 3, Suðureyri. Gunnar M. Theódórsson, Blönduhlíö 5, Reykjavík. 75 ára_____________________________ Ásbjöm Magnússon, Skálagerði 6, Reykjavík. Bryndís Guömundsdóttir, Bólstaöarhlíö 34, Reykjavík. Dóra Sigríöur Guömundsdóttir, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Hilmar Steinólfsson, Álandi 9, Reykjavík. Kristinn Kristjánsson frá Báröarbúð, Dalseli 15, Reykjavík. Sveinn G. Ásgeirsson, Hraunbas 114, Reykjavík. 70 ára_____________________________ Svanfríður Guömundsdóttir, Kringlunni 17, Reykjavík. 60 ára_____________________________ Ásdís Halldórsdóttir, Hringbraut 10, Reykjavík. Ásdís Kristjánsdóttir, Ennishlíö 2, Ólafsvík. Ingólfur Hermannsson, Bakkahlíö 1, Akureyri. Lovísa Ágústsdóttir, Baröstúni 3, Akureyri. Pétur Brynjólfsson, Hvammi, Sauöárkróki. Villa Guörún Gunnarsdóttir, Aratúni 5, Garöabæ. 50 ára__________________________ Auöur Eiríksdóttir, Laugabóli 2, Mosfellsbæ. Guöbjartur Ástþórsson, Mánagötu 9, ísafiröi. Jónas Antonsson, Dalseli 1, Reykjavík. Júlíus Sólberg Sigurösson, Akurgerði 10, Akranesi. María Högnadóttir, Stífluseli 2, Reykjavík. Marta Björnsdóttir, Dalatanga 20, Mosfellsbæ. Pétur Þorsteinsson, Fannafold 127, Reykjavík. Rannveig Tómasdóttir, Brekkubyggð 26, Garöabæ. Snjólaug Gestsdóttir, Furulundi 15d, Akureyri. Viöar Þorsteinsson, Móastöu 1, Akureyri. 40 ára__________________________ Bogi Elvar Grétarsson, Tjarnarbrú 18, Höfn. Fríöa Ágústsdóttir, Kvíholti 12, Hafnarfiröi. Gunnhildur Gígja Þórisdóttir, Hjallabraut 19, Hafnarfiröi. Jón Rúnar Friöriksson, Skólavegi 41, Vestmannaeyjum. Kolbeinn Sigurjónsson, Birkihlíð 3, Sauöárkróki. Magnús Hlynur Haraldsson, Vesturgötu 18, Hafnarfirði. Þórdís Siguröardóttir, Laufengi 36, Reykjavík. Persónuleg, alhliöa útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Svorrir Olsen Baldur Fredríksen útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlió35 • Sími 581 3300 allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Helgi Sæmundsson skáld og fyrrv. ritstjóri Attræöur Helgi Sæmundsson, skáld og fyrrverandi ritstjóri, Miklubraut 60, Reykjavík, er áttræður í dag. Starfsferill Helgi fæddist í Baldurshaga á Stokkseyri. Hann stundaði nám í Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja 1936-39 og lauk prófi frá Samvinnu- skólanum í Reykjavik vorið 1940. Helgi var blaðamaður við Alþýðu- blaðið 1943-52, ritstjóri Alþýðu- þlaðsins 1952-59 og starfsmaður Bókaútgáfu Menningarsjóðs 1959-90. Helgi var ritstjóri tímaritsins Andvara 1960-72, átti sæti í úthlut- unarnefnd listamannalauna 1952-78 og var oft formaður nefndarinnar, sat í Menntamálaráði íslands 1956-59 og 1959-71 og var formaður þess 1956-59 og 1959-67, auk þess sem hann átti fyrir íslands hönd sæti í dómnefnd um bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs 1961-72. Helgi átti lengi sæti í stjóm Sam- bands ungra jafnaðarmanna og síð- ar í miðstjóm Alþýðuflokksins. Meðal rita Helga má nefna: Sól yf- ir sundum, Ijóð, 1940; Sjá þann hinn mikla flokk (undir dulnefninu Lupus) 1956; í minningarskyni, 1967; íslenskt skáldatal I-H (ásamt öðr- um), 1973-76; Sunnan í móti, ljóð 1975; Fjallasýn, ljóð, 1977; Tíundir, ljóð, 1979; Kertaljósið granna, ljóð, 1981; Vefurinn sífelldi, ljóð 1987; Streymandi lindir, ljóð, 1997. Helgi hefur ritað fjölda greina og ritgerða í blöð og tímarit um bók- menntir, menningarmál og stjóm- mál, flutt fjölda útvarpserinda og þýtt margar bækur. Þá bjó hann til prentunar ljóðasöfnin Rósir í mjöll, eftir Vilhjálm frá Skáholti, 1992, og Sóldaga, eftir Guðmund Inga Krist- jánsson, 1993. Fjölskylda Helgi kvæntist 23.10.1943 Valnýju Bárðardóttur, f. 24.10. 1917, dóttur Bárðar H. Jónassonar, sjómanns og verkamanns á Hellissandi, og Guð- laugar Pétursdóttur frá Ingjaldshóli, húsmóður. Valný og Helgi hafa eignast níu syni: Helgi Elías, f. 31.5. 1944, kynn- ingarfulltrúi Kennarasambands ís- lands, kvæntur Ásdísi Ásmunds- dóttur framhaldsskólakennara; óskírður drengur, f. 31.5. 1944, d. sama dag; Gunnar, f. 20.6. 1946, d. 6.1. 1947; Gísli Már, f. 14.11. 1947, innheimtumaður; Sæmundur, f. 5. 7. 1949, fórst í hafi 21.11. 1973, stýri- maður; Gunnar Hans, f. 4.5. 1951, bankastarfsmaður, kvæntur Sig- rúnu Þórðardóttur húsmóður; Ótt- ar, f. 5.5. 1953, d. 2.9. 1996, leigubíl- stjóri, kvæntur Ásdísi Stefánsdótt- ur; Sigurður Helgason, f. 1.10. 1954, upplýsingafulltrúi Umferðarráðs, kvæntur Önnu Bimu Ólafsdóttur röntgentækni; Bárður, f. 30.7. 1961, bankastarfsmað- ur, kvæntur Svanhildi Jóns- dóttur þroska- þjálfa. Foreldrar Helga voru hjón- in Sæmundur Benediktsson, sjómaður og verkamaður í Baldurshaga á Stokkseyri og síð- ar í Vestmanna- eyjum, og Ástríð- ur Helgadóttir húsmóðir. Ætt Sæmundur var sonur Benedikts, b. og formanns í Vestra-íragerði á Stokkseyri, Bene- diktssonar, b. í Móakoti í Grinda- vík, Vigfússonar, b. í Móakoti, Pét- urssonar, b. á Vestri-Loftsstöðum, Þórðarsonar, kaupmanns og borg- ara í Þorlákshöfn, Gunnarssonar. Móðir Péturs var Guðríður Péturs- dóttir, systir Sigurðar, föður Bjama riddara Sívertsen. Móðb- Sæmundar var Elín Sæ- mundsdóttir, b. í Foki í Hrauns- hverfi, Kristjánssonar, b. á Stóra- Hrauni, Jónssonar, b. í Vorsabæjar- hjáleigu í Flóa, Bjamasonar. Móðir Sæmundar í Foki var Salgerður Einarsdóttir, systir Þuríðar for- manns. Astríður var dóttir Helga, sjó- manns og verkamanns á Helgastöð- um á Stokkseyri, Pálssonar, b. í Simbakoti, Guðnasonar, b. í Háholti á Skeiðum, Hafliðasonar, b. í Hró- arsholti, Nikulássonar. Móðir Helga á Helgastöðum var Ástríður Eiriks- dóttir, b. i Arakoti á Skeiðum, Guð- mundssonar. Móðb' Ástríðar Helga- dóttur var Anna Diðriksdóttir, b. í Votmúlakoti, bróður Kristínar, langömmu Páls ísólfssonar tón- skálds. Diðrik var sonur Jóns hreppsstjóra i Kolsholti, Bjamason- ar, b. á Árnkötlustöðum, Bjömsson- ar. Helgi og Valný eru að heiman á afmælisdaginn. Vilborg Dagbjartsdóttir, skáld og kennari, Bókhlöðustíg 6B, Reykja- vík, verður sjötug á morgun. Starfsferill Vilborg fæddist á Vestdalseyri í Seyðisfjarðarkaupstað og ólst þar upp. Hún fór tólf ára til Norðfjarðar, lauk bamaprófi í Nesskóla, var síð- an þrjá vetur i Gagnfræðaskóla Nes- kaupstaðar, sótti stundakennslu í ensku, íslensku og stærðfræði á Seyðisfirði, lauk kennaraprófi frá KÍ 1952, stundaði leiklistarnám 1951-53, nám í bókasafnsfræði við HÍ 1983 og dvaldi í Skotlandi og Danmörku 1953-55. Vilborg stundaði afgreiðslustörf í Kaupfélagi Austíjarða á Seyðisfirði 1946-47, var kennari við Landkots- skóla 1952-53 og hefur verið kennari við Austurbæjarskólann frá 1955. Vilborg hefur m.a. verið formað- ur Rithöfundafélags Islands, sat i stjórn Stéttarfélags íslenskra barna- kennara, Rithöfundasambands ís- lands og Menningar- og friðarsam- taka íslenskra kvenna, tók þátt í undirbúningi fyrstu Keflavíkur- göngunnar 1960, starfaði með Her- námsandstæðingum, var síðar ein af stofnendum Herstöðvaandstæð- inga, var meðal brautryðjenda nýju kvenfrelsishreyfingarinnar, átti þátt í stofnun Rauðsokkahreyfing- arinnar 1970 og ein af þremur kon- um í fyrstu miðju Rauðsokka. Jafnframt kennslu hefur Vil- borg stundað ritstörf. Hún hafði um- sjón með bamablaði Þjóðviljans 1956-62 og sá síðar um Kompuna, bamasíðu Þjóðviljans. Útgefnar bamabækur eftir Vil- borgu eru Aili Nalli og tunglið, 1959; Sögur af Alla Naba, 1965; Sag- an af Labba pabbakút, 1971; Langs- um og þversum, 1979; Tvær sögur um tunglið, 1981; Sögusteinn, 1983; Bogga á Hjalla, 1984. Þá hefur hún þýtt hátt á fimmta tug barna- og unglingabóka. Útgefnar ljóðabækur Vilborgar em Laufið á trjánum, 1960; Dverg- liljur, f. 1968; Kyndilmessa, 1971; Ljóð, 1981; Klukkan í turninum, 1992; Ótta, 1994. Vilborg hlaut viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins 1971; verðlaun Fræðsluráðs Reykja- víkur fyrir bestu þýðingu á erlendri bamabók 1975; Menningarverðlaun DV fyrir bókmenntir 1982; verðlaun Jónasar HaUgrímssonar á Degi ís- lenskrar tungu 1996, auk þess sem Böm og bækur íslandsdeild Ibby, veitti henni viðurkenningu fyrir framlag til íslenskrar barnamenn- ingar árið 2000. Hún er heiðursfé- lagi Rithöfundasambands íslands frá 1998 og var sæmd riddarakrossi Islensku fálkaorðunnar fyrir fræðslu- og ritstörf 17.6. árið 2000. Fjölskylda Maður Vilborgar er Þorgeir Þor- geirson, f. 30.4. 1933, rithöfundur. Hann er sonur Þor- geirs EUs Þorgeirs- sonar, f. 26.9. 1909, d. 18.8. 1937, sjó- manns, og Guðrún- ar Kristjánsdóttur, f. 13.10. 1910, d. 30.9. 1973, verka- konu. Sonur VUborgar og Þorgeirs er Þor- geir Elías, f. 1.5. 1962, eðlisefnafræð- ingur hjá íslenskri erfðagreiningu, búsettur í Reykjavík en kona hans er Guðrún Jóhannsdóttir, f. 30.6. 1960, kvennafræðingur hjá íslenskri erfðagreiningu, en böm þeirra eru Bergur, f. 16.8. 1981, menntaskóla- nemi, og Edda, f. 29.10. 1987. Sonur VUborgar og Ásgeirs Hjör- leifssonar, f. 13.1. 1937, fram- kvæmdastjóra, er EgiU Arnaldur, f. 18.6. 1957, kennari og sjómaður í Neskaupstað en kona hans er Lauf- ey Hálfdánardóttir, f. 30.12. 1958, sjúkraliði, og eru dætur þeirra VU- borg, f. 24.7. 1989, og Þórunn, f. 29.9. 1996. Systkini VUborgar: Guðný, f. 16.11. 1916, d. 1941; Sigrún, f. 29.4. 1918, fyrrv. bóndi í Seldal í Norð- firði; Elsa, f. 15.2. 1919, d. 1941; Guð- jón, f. 24.4. 1921, d. 14.7. 1998; Jó- hann, f. 7.6.1924, d. 9.2.1946; Sæunn, f. 12.10. 1925, d. 1941; Guðmundur, f. 16.7. 1927, d. s.á.; Friðfinnur, f. 5.5. 1929, d. 1931; PáU, f. 30.7. 1932, skip- stjóri á Höfn í Horna- firði; Þórir, f. 9.1.1935, netagerðarmaður í Reykjavík; Þorleifur, f. 18.8. 1936, skipstjóri i Stöðvarfirði. Foreldrar Vilborgar vora Dagbjartur Guð- mundsson, f. 19.10. 1886, d. 6.4.1972, bóndi og sjómaður á Seyðis- firði, og k.h., Erlend- ina Jónsdóttir, f. 3.5. 1894, d. 14.7. 1974, húsfreyja. Ætt Dagbjartur var sonur Guðmund- ar, útvegsb. á Vestdalseyri, Einars- sonar, sjómanns í Vestmannaeyj- um, Jónssonar. Móðir Guðmundar var Guðrún Sigurðardóttir. Móðir Dagbjarts var Oddný Ólafsdóttir, b. í Berjanesi í Landeyjum, Magnús- sonar og Elsu Dórórtheu Árnadótt- ur. Erlendína var dóttir Jóns, b. í Efri-Skálateigi, Þorleifssonar, b. í Efri-Skálateigi, Jónssonar. Móðir Jóns var Guðrún Þorsteinsdóttir. Móðir Erlendínu var Guðríður Páls- dóttir, frá Gunnarsstöðum á Langa- nesströnd. VUborg tekur á móti vinum og vandamönnum í húsi Rithöfunda- sambands íslands, Gunnarshúsi, Dynguvegi 8, á morgun miUi kl. 17.30. og 20.00. MBIMIHBHIM HMaSn Magnús Jónsson, lagaprófessor og fjár- málaráðherra, fæddist að Úlfljóts- vatni í Grafningi 17. júlí 1878, sonur Jóns Þórðarsonar, bónda þar, og Þórunnar Magnúsdóttur húsfreyju. Magnús lauk stúdentsprófi í Reykja- vík 1898, embættisprófi í lögfræði við Kaupmannahafnarháskóla 1904 og hag- fræðiprófi við sama skóla 1907. Hann Uentist ytra sem embættismaður, var aðstoðarmaður í danska fjármálaráðu- neytinu 1904-16, fuUtrúi þar 1916-20, auk þess sem hann stundaði laga- kennslu og málUutningsstörf. Þá var hann forstööumaður dýrtíðar- og matvæla- skömmtunarskrifstofunnar í Kaupmanna- höfn 1916-20. Hann kom heim 1920, og varð þá Magnús Jónsson lagaprófessor við Háskóla íslands. Ula gekk að mynda ráðuneyti Sigurðar Eggerz 1922. Á endanum fékk hann tvo ut- anþingsmenn í stjómina, Klemens Jóns- son sem atvinnu- og samgönguráð- herra, og Magnús sem fjármálaráð- herra. Magnús gegndi ráðherraemb- ættinu í eitt ár en sagði þá af sér enda frábitinn pólitískum darraðadansi. f Ráöherrum íslands, eftir Magnús Storm, fær nafni hans herfilega útreið, talinn lélegur lagaprófessor og óstarf- hæfur ráðherra. Palladómarinn virður- kennir þó að Magnús hafi verið góður námsmaður, „gervUegur maður og fríður sýnum og ljúfmenni í viðmóti”. Magnús lést 22. mars 1924. Andlát Siguröur Jakob Magnússon, Aöalgötu 15, Keflavík, andaöist 13.7. Ásta Margrét Agnarsdóttir, fyrrv. húsfreyja aö Heiöi í Göngusköröum, Skagafiröi, lést fimmtud. 13.7. Þröstur Pétursson, Furugeröi 15, Reykjavík, lést af slysförum fimmtud. 13.7. María Bjömsdóttir, fædd Seuring, lést á Hrafnistu í Hafnarfiröi þann 4.7. Útför hennar fór fram frá Jósefskirkju á Jófríöarstöðum þann 13.7. sl. Guðmundur Grétar Norðdahl, Lautasmára 3, Kópavogi, lést þriöjud. 4.7. Útförin hefur fariö fram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.