Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000
n>v
Fréttir
Kynjaskipting á Laufásborg:
Foreldrar í uppnámi
- stefnunni kúvent án samráðs
„Ég hef haft samband viö Dagvist
bama út af þessu. Ég vil síst af öllu
leggja það á bamið mitt að byrja í
leikskólanum eftir sumarfrí í nýju
umhverfi, með nýjar fóstrur og
helmingur félaganna farinn; það er
að segja allar stelpurnar," sagði
Kristín Ólafsdóttir, ein af foreldrum
barna í leikskólanum Laufásborg í
Reykjavík en þar tekur nýr leik-
skólastjóri til starfa um miðjan
næsta mánuð sem aðhyllist Hjalla-
stefnuna svokölluðu í uppeldismál-
um sem þekkt er úr Hafnarfírði og
byggir á aðskilnaði kynjanna í leik-
skólanum. „Ef ég hefði viljað að
Breytingar á Laufásborg
Foreldrarnir þurftu aö lesa um
breytingar á uppeldismálum
barna
bamið mitt ælist upp við Hjalla-
stefnuna hefði ég sett það í leikskól-
ann Hjalla í Hafnarflrði. Nú á að
skella þessu á í Laufásborg án nokk-
urs samráðs við okkur foreldrana.
Stefnunni er kúvent og við þurfum
að frétta það með því að lesa DV,“
sagði Kristín sem telur sig tala fyr-
ir munn fjölmargra foreldra bama á
Laufásborg.
Nýr leikskólastjóri á Laufásborg
kemur af einkarekna leikskólanum
Ósi við Bergþórugötu og heitir Sól-
rún Ólafsdóttir. Sólrún sagði í DV á
dögunum að hún aðhylltist kenning-
ar og starfsaðferðir Margrétar Pálu
Ólafsdóttur í leikskólanum HjaUa í
Hafnarflrði en þar hefir Margrét
Pála unnið brautryðjendastarf í upp-
eldismálum með því að aðgreina
kynin í leik og starfi á leikskólanum.
„Ég vinn eftir ákveðnum uppeld-
iskenningum og hyggst halda því
áfram,“ sagði Sólrún í DV. „Ég hef
mikla reynslu og veit hvað ég er að
gera.“
Kristín Ólafsdóttir og aðrir for-
eldrar barna í Laufásborg hyggjast
þó ekki taka böm sin af leikskólan-
um vegna breytinganna: „Það er of
seint að gera það núna.
Hefðum við vitað þetta fyrr hefðu
margir vafalaust hugsað sitt ráð. Nú
reynum við Hjallastefnuna og sjá-
um hvað setur,“ sagði Kristín Ólafs-
dóttir.
-EIR
Verkfalli Sleipnis frestað til 12. ágúst:
Uppgjafartónn
kominn í menn
- segir Óskar Stefánsson
Ákveðið var í gær að
fresta verkfalli Sleipnis-
manna til 12. ágúst
næstkomandi. Óskar
Stefánsson sagði í sam-
tali við DV í gær að
ákveðið hefði verið að
bregða á þetta ráð þegar
fyrirséð var að ekki
fengist lausn í deilunni
á laugardag. Með þess-
um hætti væri ekki
hægt að saka Sleipnis-
menn um það að reyna
að ganga að ferðaþjón-
ustu landsins dauðri.
„Þaö er vonandi að menn eigi
auðveldara með aö ná saman nú
þegar engin spenna er i mönnum.
Það er aldrei að vita nema að þetta
verði til þess að við eigum auðveld-
ara með að semja.“
Óskar sagði að hann hefði heyrt
því fleygt fram að einhverjir væru
að hugsa um að hætta í greininni
sökum launamála smna, „enda ekki
skrýtið þegar menn eru með um 90
þúsund krónur i mánaöarlaun eftir
15 ára starf. Ég veit þó með vissu að
nokkrir menn eru að hugsa um að
segja upp hjá sínum fyrirtækjum og
reyna að ganga til liðs við eitthvert
af þeim 15 fyrirtækjum sem hafa
þegar gert samning við Bifreiða-
stjórafélagið Sleipni."
Heimildamaður DV
innan Samtaka at-
vinnulífsins reiknaði
með þvi að þetta verk-
fall og aðgerðir Sleipn-
ismanna yrðu þeim
dýrkeyptar.
„Það kom glögglega í
ljós í dómi héraðsdóms
14. júlí að Sleipnir hef-
ur staðið í ólöglegum
aðgerðum á meðan á
verkfalli þeirra hefur
staðið. Þeir mega vænt-
anlega reikna með því
að nú fari að rigna yfir
þá skaðabótakröfum frá atvinnu-
rekendum sem hafa orðið fyrir
tjóni sökum þessa. Það yrði þá ekki
í fyrsta skipti sem farið yrði í mál
við þá og þeir þyrftu aö borga bæt-
ur. Síðasti aðilinn til þess að gera
það var Sæmundur á Akranesi og
hafa þeir passað sig á því að sneiða
hjá honum í þessu verkfalli."
Þórir Garðarsson frá Allrahanda
segir að ekkert hafi breyst í deil-
unni og að staðan sé alveg óbreytt.
„Vonandi tekst deiluaðilum að
ná saman nú á meðan á frestun
verkfallsins stendur. Þó hefur ekk-
ert breyst og atvinnurekendur eiga
ekki meiri peninga til þess að
greiða laun þann 12. ágúst, nema
síður sé.“ -ÓRV
Óskar Stefánsson.
Verkstæðl eyöilagöist I eldi
Eigandi bílaréttingaverkstæöisins, Sævar Pétursson, sést hér standa inni í
ónýtu verkstæöinu viö plastbátinn sem einnig eyöilagöist í etdinum.
Bílaréttingaverkstæði í Njarðvík:
Tveir menn slasast í gas-
sprengingu og eldsvoða
Tveir menn um tvítugt slösuðust
alvarlega í gassprengingu og bnma
sem varð á bifreiðaréttingaverk-
stæði að Fitjabakka í Njarðvík um
hádegi á laugardag. Mennimir tveir
voru inni á verkstæðinu, Bílarétt-
ingu Sævars Péturssonar, er spreng-
ingin varð.
Þeir voru lagðir inn á Landspítal-
ann við Hringbraut með annars
stigs brunasár en eru þó ekki taldir
í lífshættu. Verkstæðiö er algerlega
ónýtt eftir eldsvoðann, sem og þrír
hílar og einn plastbátur sem voru á
verkstæðinu. Að sögn lögreglunnar
í Reykjanesbæ er enn óvíst um
hvemig gaslekinn kom til en málið
er í rannsókn. -SMK
Árekstur milli
hópferðabíls
og vörubíls
Harður árekstur hópferðabfls og
vikurflutningabíls með tengivagni
varð við bæinn Krók austan við
Þjórsá um tíuleytið á sunnudags-
morgun. Báðir bílamir voru á aust-
urleið og að sögn lögreglunnar í
Rangárvallasýslu virðist sem rútan
hafi beygt í veg fyrir flutningabíl-
inn. Tuttugu og einn erlendur ferða-
maður var í rútunni og mesta mildi
þykir að einungis tveir þeirra slös-
uðust litiUega. Voru þeir fluttir með
sjúkrabfl á sjúkrahúsiö á Selfossi.
Ökumenn beggja bUanna sluppu
ómeiddir en báðar bifreiðarimar
eru mikið skemmdar. Annar hóp-
ferðabUl kom og sótti farþegana sem
ómeiddir voru.
Veginum var lokað með lögreglu-
bUum sem lögðu með blikkandi ljós-
um þvert á veginn beggja vegna
slysstaðarins á meðan á björgunar-
aögerðum stóð. Að sögn lögreglunn-
ar í RangárvaUasýslu virðist hins
vegar sem sumir landsmenn hafi
engan skilning á vegamerkingum
sem þessum því ökumenn tróðu sér
fram hjá báðum bUunum og óku í
gegnum slysstaðinn. -SMK
Ægisíöa eba Ægissíöa?
Viö Ægisíðuna eru nokkur skilti meö
nafni götunnar. Þeim ber hins vegar
ekki öllum saman um hvernig rita á
nafniö. Viö húsiö númer 129 ergat-
an sögö heita Ægissíöa en hiö rétta
er aö nafniö er Ægisíöa eins og
stendur á götuskiltinu sem meöfylgj-
andi mynd sýnir.
Veðrid í kvriM I Sól3rfcm?,ur og sjarvarfrifí
REYKJAVlK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 23.00 23.30
Sólarupprás á morgun 04.10 03.30
Síödegisflóö 19.18 22.45
Árdegisilóö á morgun 07.32 10.48
Shýj'togsj' á vsöwlíiksmm
*°''VINDÁTT
NDSTYRKUR
i metruin á sckúndu
10°.
-io:
Nr0ST hhðskírt
O o
LETTSKYJAÐ HALF-
SKÝJAO
SKYJAÐ ALSKYJAÐ
Bjartviðri
Gert er ráö fyrir suðvestanátt, 5 til 10 m/s,
en 10 til 15 m/s norðan- og vestanlands um
kvöldið. Bjartviöri veröur á Norður- og
Austurlandi en skúrir í öörum landshlutum.
RIGNING SKÚRiR SLYDDA SNJÓKOMA
9 [ 1
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEOUR SKAF* RENNINGUR ÞOKA
m. nftír
VöÍu'JJJil
Af skýjum
Það verða líklegast flákaský sem viö
sjáum þegar þykknar upp um helgina.
Það eru mjög algeng ský hérlendis,
svipuð netjuskýjum en mynda þó
samfelldari skýjabreiðu sem er lægra á
lofti og dekkri á köflum. Þá eiga líklega
eftir aö sjást skúraský sunnan- og
vestanlands en þaö eru mjög háreist
ský, sem geta náö frá lágskýjahæð upp
til veörahvarfa.
Rigning eða skúrir Á morgun er gert ráð fyrir 10 til 15 m/s
en heldur hægari vindi austanalnds. Rigning eða skúrir veröa sunnan- og
vestanlands en bjart veöur á norðaustanveröu landinu. Hiti verður á bilinu
10 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
ðfiövíted!
Vindur.
Hiti 9°til 18
sSSHfŒisfciui 111
Vindur:
Hiti 9°til 18
Su&vestlæg átt. Skúrlr
vestanlands, en léttskýjafi
á austanver&u landlnu.
Hlýjast austanlands.
Áframhaldandl
su&vestanátt, meö dálítllll
súld su&vestan- og
vestanlands. BJart og hlýtt
annars sta&ar.
Su&vestanátt, me& dálftllli
súld suövestan- og
vestanlands en björtu og
hlýju ve&ri annars sta&ar.
AKUREYRI skýjaö 18
BERGSTAÐIR alskýjaö 19
BOLUNGARVÍK skýjaö 15
EGILSSTAÐIR 17
KIRKJUBÆJARKL. rigning 13
KEFLAVÍK súld 12
RAUFARHÖFN alskýjaö 19
REYKJAVÍK úrkoma í grennd 13
STÓRHÖFÐI tignlng og súld 11
BERGEN léttskýjað 20
HELSINKI skýjaö 18
KAUPMANNAHOFN skýjaö 20
OSLÓ
STOKKHÓLMUR þokumóöa 15
ÞÓRSHÖFN skýjaö 12
ÞRÁNDHEIMUR alskýjafi 12
ALGARVE hei&skírt 30
AMSTERDAM skúr 16
BARCELONA skýjaö 22
BERLÍN skýjafi 20
CHICAGO léttskýjað 20
DUBLIN skýjaö 15
HAUFAX jxika 15
FRANKFURT skýjaö 16
HAMBORG skýjaö 18
JAN MAYEN rigning 6
LONDON skýjaö 16
LÚXEMBORG skúr á síö. kls. 13
MALLORCA skýjaö 25
MONTREAL léttskýjaö 18
NARSSARSSUAQ léttskýjaö 12
NEW YORK þokumö&a 20
ORLANDO þokumóða 24
PARÍS 13
VÍN rlgnlng 14
WASHINGTON þokumóöa 19
WINNIPEG léttskýjaö 15