Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000
Fréttir
I>V
Tekið a fakeppn
inni í haust
Ertu sátt við skýringar stóru
tryggingafélaganna sem öll hafa
hækkað iðgjöld ökutækjatrygg-
inga um u.þ.b. 30 prósent?
„Ég er mjög ósátt við að trygging-
arnar þurfi að hækka svona mikið.
En það er frjáls verðmyndun í land-
inu þó ákveðnar reglur gildi sem
þessi fyrirtæki þurfa að vinna eftir.
Eftirlitsstofnanir sem heyra undir
þetta ráðuneyti eru að fara yfir þessi
mál. Fjármálaeftirlitið er meðal ann-
ars að fara yfir röksemdir trygginga-
félaganna. Samkeppnisstofnun fylgist
hins vegar með því hvort um ólög-
legt samráð um verðmyndun sé að
ræða. Þessar stofnanir hafa ákveðið
hlutverk og ég hef lagt mikla áherslu
á sjálfstæði þeirra. Þó þær heyri
undir þetta ráðuneyti þá er þeim
ekki fjarstýrt héðan heldur vinna
þær samkvæmt lögum.“
EES til bjargar neytendum
Harðri gagnrýni um verðsamráð
hefur einnig verið beint að oh'ufé-
lögunmn.
„Við höfum tekið þá ákvörðun að
vera sjálfstæð þjóð og búa í þessu
landi. Auðvitað þarf alltaf að fara að
lögum og reglum en það er hættara
við fákeppni í fámenni. Samkeppnis-
stofnun hefur ekki verið nægilega
sterk. En í vor voru samþykkt ný
„Ákveðnum hluta þess
fjármagns sem verður til
við sölu ríkisfyrirtœkis
verði veitt til byggða-
mála. “
samkeppnislög og ég geri mér vonir
um að eftir að þau taka gildi í haust
muni neytendur verða varir við það
með því að samkeppnisyfirvöld hafa
meiri möguleika til þess að grípa inn
í þegar ástæða er til að koma í veg
fyrir fákeppni. En lögin eru ekki ís-
lensk uppfinning heldur er það EES-
tilskipun sem gerir það að verkum
að við erum knúin til að setja þessi
lög.“
Ertu hlynnt því að verðmyndun
á matvörumarkaði sé könnuð sér-
staklega af yfirvöldum?
„Já, og ég beitti mér fyrir því í
ríkisstjórn að farið verður i sérstaka
rannsókn á þessu og er reiknað með
því að niðurstaðan liggi fyrir í haust.
Það sýnir sig að hátt gengi krónunn-
ar gagnvart evru hefur ekki skilað
sér í matvöruverði á íslandi og það
er óeðlilegt. Eins eru uppi miklar
sögusagnir, sem eru ekki síst
sprottnar frá íslenskum iðnfyrirtækj-
um, um óeðlilega viðskiptahætti sem
felast í hótunum og ýmsu sem ekki
er eðlilegt."
Gallar á sameíningu
ríkisbanka
Hvenær heldur sala á hlut ríkis-
ins í ríkisviðskiptabönkunum
áfram?
„Það hefur ekki verið ákveðið.
Fyrst ekki náðist að móta stefnu um
þetta fyrir þinglok í vor höfum við
sumarið til að móta framtíðarmark-
mið fyrir bankakerfið. Þar eru ýmsir
möguleikar. Einn er sá að halda
áfram að selja bankana. Annar
möguleiki er að sameina þá. Það er
stefna stjómvalda að hagræða í
bankakerfmu og má segja að þar hafi
ákveðin hagræðing átt sér stað þegar
FBA og íslandsbanki voru sameinað-
ir. Sameining Landsbanka og Búnað-
arbanka er í sjálfu sér möguleiki en
þar er líka bent á að það bjóði upp á
ákveðna fákeppni á þessum markaði
vegna þess að þá yrðu hér tveir stór-
ir bankar starfandi með gríðarlega
stóran hluta af markaðnum. Þriðji
möguleikinn er að styrkja bankana
hvorn fyrir sig og mætti hugsa sér
að það yrði gert með erlendri eignar-
aðild.“
Þörf á spákaupmennsku
Telur þú þá að ekkl eigi að sam-
eina Landsbankann og Búnaðar-
bankann?
„Ég hef ekki útilokað það en bara
bendi á að þetta er ákveðin hætta
sem er til staðar. Við þekkjum þetta
varðandi tryggingafélögin, olíufélög-
in og matvöruna."
Krónan hefur veikst verulega að
undanförnu. Ertu sátt við hlutverk
ríkisviðskiptabankanna í þeim við-
skiptum?
„Það þarf ákveðin spákaup-
mennska að eiga sér stað, það er ein-
faldlega eðli frjáls markaðar. Mér
finnst ekki hægt að gagnrýna við-
skiptabankana fyrir þeirra fram-
göngu í sambandi við þetta mál en
auðvitað er það mjög óhagstætt
hvernig þróunin hefur verið núna
varðandi krónuna."
Umhverfisáhrif kísilgúr-
vinnslu óljós
Hvers vegna er gefið grænt Ijós
á námagröft í Syðriflóa í Mývatni
þegar íslenskar rannsóknir sýna
að kísilvinnslan er skaðleg um-
hverfinu?
„Mývatn hefur verið rannsakað
mjög mikið og þar ber ekki öllum
rannsóknum saman. Það er ekki
hægt að halda því fram að það sé
sannað að Kísilgúrverksmiðjan skaði
lifríkið. í því hafa verið sveiflur en
að það hafi verið vegna verksmiðj-
unnar er ósannað mál þó ég útiloki
það ekki. Verksmiðjan er gríðarlega
mikilvægt atvinnutæki fyrir byggð-
arlagið og þegar engan veginn er
hægt að sanna að hún skaði lifríkið
er ekki verjandi að skella í lás og
hætta. Það er talað um það að nátt-
úran eigi að njóta vafans og það eru
Yfirheyrsla
Garöar Orn Ulfarsson
og Jón Trausti Reynisson
blaðamenn
ýmsir sem halda því fram en svo eru
líka aðrir sem halda því fram að
vegna vatnsins verði að dæla úr því
- að ef ekki hefði verið dælt úr Ytri-
flóa þá væri hann að miklu leyti
ekki vatn í dag.“
Hagsmunir starfsfólks ráða
ekki
Hefur einhver fimmtán starfs-
manna Byggðastofnunar sagst
ætla að flytja með stofnuninni á
Sauðárkrók?
„Mér er ekki kunnugt um það. Ég
veit að starfsfólkinu hefur verið boð-
ið starf við stofnunina á Sauðárkróki
og það hefur mánuð til að hugsa sig
um. Auðvitað vona ég að fólkið flytji
sem flest með stofnuninni.“
Hvaða afleiðingar hefði það fyrir
Byggðastofnun ef enginn starfs-
mannanna eða aðeins örfáir flytja
með henni?
„Þetta fólk hefur unnið lengi hjá
stofnuninni og hefur mikla reynslu.
Það yrði bagalegt ef enginn flytur
með en almennt er það nú þannig að
það kemur maður í manns stað og ég
vona að það verði í þessu tilfelli líka.
Ég hef margoft tekið það fram að ég
geri ekki lítið úr áhyggjum stars-
fmanna af starfi sínu en það er ein-
faldlega ekki það sem getur ráðið
ferðinni í þessu.“
Eftirlitsstofnun EFTA segir alla
20 byggðastyrki Byggðastofnunar
Sandkorn
Nafn: Valgerður Sverrisdóttir. Staða: Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Efni: Sameining ríkisviöskiptabankanna.
á þessu ári vera ólöglega vegna
ónógra upplýsinga héðan og ætlar
að rannsaka styrkveitingarnar. Er
þetta ekki áfellisdómur?
„í bréfi sem ráðuneytinu barst frá
Eftirlitsstofnuninni í apríl vegna
þessa máls var ekki settur neinn
tímafrestur og ráðuneytið var því í
góðri trú. Við munum hins vegar
hraða þessari vinnu og senda stofn-
uninni umbeðin gögn eins íljótt og
imnt er.“
Ekki stjórnvalda að ákveða
búsetu
Ertu sammála þeirri hugmynda-
fræði að styrkja fáa útvalda
byggðakjarna en láta aðra síður
njóta aðstoðar við uppbyggingu?
„Það þarf að styrkja ákveðna
byggðakjarna þannig að þar sé þjón-
usta á svo háu stigi að það fólk sem
sækist eftir því að búa í byggðarlagi
í líkingu við það sem er á höfuðborg-
„Eins eru uppi miklar
sögusagnir, sem eru ekki
síst sprottnar frá íslensk-
um iðnfyrirtœkjum, um
óeðlilega viðskiptahcetti
sem felast í hótunum. “
arsvæðinu eigi eitthvert val. Sterkir
byggðakjarnar í öllum landsfjórðung-
um, og jafnvel fleiri en einn í hverj-
um fjórðungi, styrkja mjög baklandið
því með bættum samgöngum er það
býsna stór radíus í kringum hvem
byggðakjama sem nýtur þjónustunn-
ar. En það er ekki endilega verið að
tala um að draga úr styrkjum heldur
það að á ákveðnum stöðum er
kannski ekki hægt að ganga lengra
en að halda í horfinu. Ég er alger-
lega á móti allri umræðu um að
stjórnvöld eigi að kortleggja landið
og ákveða hvar á að vera byggð og
hvar ekki. Það er einfaldlega ekki
hlutverk stjórnvalda heldur val ein-
staklingsins."
Óráðin varðandi
varaformannsembætti
Hvert er mikilvægasta skrefið í
byggðastefnunni?
„Það sem ég var að nefna en það
er einnig mjög mikilvægt að byggja
upp hálaunastörf á landsbyggðinni.
Stjórnvöld eiga ekki fyrst og fremst
að slökkva elda heldur að byggja upp
störf sem vekja áhuga unga fólksins.
Ef við höldum ekki unga fólkinu á
landsbyggðinni þá er voðinn vís.
Þess vegna mun ég beita mér fyrir
því að ákveðnum hluta þess fiár-
magns sem verður til við sölu ríkis-
fyrirtækja verði veitt til byggða-
mála.“
Næsta flokksþing Framsóknar-
flokksins verður haldið í mars á
næsta ári i staðinn fyrir í nóvem-
ber næstkomandi eins og upphaf-
lega var áformað. Þá verður
flokknum valinn nýr varaformað-
ur í stað Finns Ingólfssonar. Ætl-
ar þú að gefa kost á þér í það
embætti?
„Nú er einfaldlega enn þá lengri
tími til að hugsa sig um. Ég hef enga
ákvörðun tekið í þessu efni og er
ekkert sérstaklega að sækjast eftir
þessu embætti. Ég er ákaflega sátt
við mina stöðu eins og er - það er
nóg að gera hér.“
____________■Hjþsjðn:
Garöar Öm Úifarssan
netfang: sandkom@ff.is
Fuiisaddur af Aiþingi
Pétur Blöndal al-
þingismaður segir í
samtali í nýju aug-
lýsingahefti Toyota
að hann efist um að
hann bjóði sig fram
til áframhaldandi
þingsetu. Pétur er
auðvitað þekktur
fiármálaspekúlant
og er einn brautryðjenda í nútíma
fiármálaviðskiptum hérlendis. Pétur
hefur átt erfitt uppdráttar á þingi og
þurft að sætta sig við endalausar
pólitískar málamiðlanir og hrossa-
kaup flokkssystkina sinna á kostnað
hugsjóna um einstaklingsfrelsi og
þar endalaust fram eftir götunum.
Pétur trúir auglýsingabæklingi
Toyota m.a. fyrir því að ráðherra-
dómur felist í að halda tækifæris-
ræður eða opna brýr ellegar taka á
móti betlinefndum og finnst það ekki
fýsilegt hlutskipti...
Varstu aö tala viö mig?
Pétur var ekki sá I
eini sem úttalaði
sig í Toyotabæk-
lingnum því sjálfur
Sigurbjörn Ein-
arsson biskup er j
þar í forsíðuviðtali. I
Óhætt er að segja
að einmitt forsíða I
blaðsins, þar sem
gefur að líta nefndan biskup, hafi
vakið óhefta aðdáun. Ólofaðar konur,
sem sumir segja algera séfræðinga í
að túlka svipbrigði og jafnvel óvið-
bjargandi andlitsdrætti sem einhver
sérstök skiiaboð, mimu telja að með
þessari mynd skipi Sigurbjöm Ein-
arsson sér á bekk með mest aðlað-
andi karlmönnum landsins. Það er
víst eitthvað svo Clint Eastwood-legt
við hinn ofursvala biskupi sem gæti
verið að segja við ofurviðkvæma og
brenglaða gagnrýnendur Kristnihátíð-
ar: Make my day...
Kanóna í sjómannadeilu
Sjómannádeilan
endalausa hefur ver-
ið að vefiast fyrir
Þóri Einarssyni
rikissáttasemjara.
Nú mun Þórir hafa
| fengið sérlegan að-
stoðarmann sér til
halds og trausts í
því að reyna sætta
útgerðaraðalinn og sjómannastéttina.
Sá útvaldi er ekkert slor enda duga
víst enginn vettlingatök í þessu máli.
Um er að ræða mann sem getur á
hvaða andartaki sem er dregið upp
fyrir deiluðaðilum mynd af þjóðhags-
legum afleiðingum þeirra hugmynda
sem þeir þykjast vilja hrinda í fram-
kvæmd. Aðstoðarmaðurinn sérlegi
er enginn annar en Þórður Frið-
jónsson þjóðhagsstofustjóri.,.
Vildi slá út húlahoppið
Þeir frændur af
Kleifaætt, Sveinn
Magnús Sveins-
son, hjá Plús film
og Guðlaugur
Tryggvi Karlsson,
hestafréttaritari
hjá Stöð 2, fóru
mikinn á lands-
mótinu í Víðidal. Fæstir
vissu hins vegar hvað þeir frændur
á Fjalli voru raunverulega að
bralla. Sveinn Magnús hefur lengi
gengið með það í maganum að slá
út hið fræga atriði þegar Sigurliði
Ægisson hleypti brúna gæðingnum
á eftir Guðlaugi á Gaddstaðaflötum
á Landsmótinu 1994 og lét Guðlaug
dansa húlahopp svo alþjóð engdist
af hlátri. Hugmyndin nú var sú að
Guðlaugur gengi i hitanum að
Sleipnisbikarnum fyrir framan
fimmtán þúsund manns, tæki lokið
af bikamum, styngi fingri ofan í og
kjamsaði mikið, lyfti síða gersem-
inni og fengi sér sopa fyrir framan
alla, sem veltast myndu af hlátri.
Guðlaugur varð þó snögglega að yf-
irgefa svæðið vegna fréttaritara-
starfs síns, en áhorfendur á hesta-
mótum vita hér með á hverju þeir
eiga von á næsta móti...