Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Side 10
10
Fréttir
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000
DV
Byggmg^vcrktakar
- Járnabindingamenn.
KYNNUM „U-TIER“
SJÁLFVIRKA JÁRNBINDIVÉL
FRÁ J.A.M. í JAPAN.
• Auðveld í notkun.
• Hraðvirk.
• Vegur aðeins 2,5 kg.
• Tvær gerðir (styttri og lengri gerð).
Vélin hleður,
vindurvirinn umjárnið
og klippir, allt í sömu
aðgerðinni sem tekur
aðeins 2 sekúndur.
Einkaumboð
á íslandi:
JEPPAFJAÐRIR - JEPPALOFTPÚÐAR.
LO FTPÚÐAFJ ÖÐRU N
I BILA - VAGNA - TRAILERA -TJALDVAGNA
HÚSBÍLA - KERRUR - FELLIHÝSI O.FL.
í VÖRUBÍLA - VAGNA - RÚTUR - KERRUR.
FJAÐRABLÖÐ - FJAÐRAKLEMMUR -
FÓÐRINGAR - SLITBOLTAR -
MIÐFJAÐRARBOLTAR - GÚMMÍHRINGIR.
DRATTARBEISLI
A FOLKSBILA OG JEPPA frá 7.700.
Vönduð vara frá Evrópu og Ameríku.
GOTT VERÐ.
Fjaðrabúðin Partur, Eldshöfða 10, Reykjavík.
Símar 567 8757 og 587 3720.
Nuddpottar
í MIKLU ÚRVALI
Akrýlpottar Veríi Irá kr. 99.000
Hrísmóum 4, Garðatorgi
210 Garðabæ
Sími 565 9242 • 861 6167
Fax 565 9241
Veffang: www.centrum.is/abctec
Netfang: abctech@centrum.is
Verksmiðja í Narsaq stefnir á markaðsyfirráð:
Grjóthörð samkeppni
við Dani um múrsteina
- og íslenskra samstarfsaðila leitað
DV, NARSAO:
„Við erum fyllilega
samkeppnisfærir við Dani
um múrsteinaframleiðslu.
Það hefur tekið langan
tíma að fá viðurkenningu.
Við reyndum i Danmörku
en á endanum leituðum
við til Þjóðverja sem gáfu
okkar múrsteinum háa
einkunn og þar með feng-
um við nauðsynleg leyfi
til framleiðslunnar," segir
Jakob Knudsen, fram-
kvæmdastjóri og eigandi
Sikublock í Narsaq, sem
stjórnar verksmiðjufram-
leiðslu á múrsteinum.
Fram að þessu hafa
Danir séð Grænlending-
um fyrir múrsteinum en
nú er að verða breyting
þar á þar sem fyrirtæki
Jakobs framleiðir 5000
múrsteina á dag. í því
samhengi má nefna að í
100 fermetra einbýlishús
þarf um 10 þúsund steina
þannig að það tekur fyrir-
tækið aðeins tvo daga að
framleiða steina í eitt hús.
„Danir hafa nú um 80
prósenta markaðshlut-
deild en við stefnum á það
að ýta þeim að miklu leyti
út. Framleiðsla okkar er
mun betri en sú sem Dan-
ir eru að flytja hingað.
Það ræðst fyrst og fremst
af því að við notum
granítsand sem er fima-
sterkur. Þá erum við að
bjóða steinana á sama
verði og Danir,“ segir
Jakob sem þekkir vel til
íslands eftir að hafa um
árabil verið vélstjóri á
rækjutogurum sem lönd-
uðu í Hafnarfirði og á ísa-
firði.
Reynsla hans sem vél-
stjóri varð til þess að
sjálfur hannaði hann
vinnslulínuna fyrir fram-
leiðsluna. Hann segist
vilja færa út kvíamar og lítur í
þeim efnum til Islands og Kanada.
„Múrsteinar okkar henta einkar
vel á köldum svæðum og eiga vel
við í frosthörkum. Þeir hafa hátt
einangrunargildi og það er ekki
spurning að byggingaraðilar í
Frumherji í múrsteinum
Jakob Knudsen, framkvæmdastjóri og eigandi Sikublock í Narsaq, er stórhuga fram-
kvæmdamaður sem vill ná undir sig markaöi fyrír múrsteina á Grænlandi. Hér er
hann við hluta af framleiðslu sinni.
Kanada og á íslandi eiga að kanna
möguleika þess að kaupa af okkur.
Reyndar er ég að leita að samstarfs-
aðila á íslandi. Ég reikna með að
koma og kynna múrsteinana á Is-
landi,“ segir Jakob sem fékk hug-
myndina að framleiðslunni fyrst
fyrir 10 árum. Hann segir múrstein-
ana henta vel á jarðskjálftasvæðum.
„Vísindamenn í Kaliforníu hafa
fundið leið til að byggja grunn und-
ir múrsteinahús sem hentar á jarð-
skjálftasvæðum. Okkur eru því allir
vegir færir,“ segir Jakob. -rt
Nýtt verksmiðju-
hús ísprjóns
- kröftug ullarvinnsla á Hvammstanga
DV, HVAMMSTANGA:_________________
Nýlega var formlega vígt nýtt
verksmiðjuhús ullarfyrirtækisins
ísprjóns á Hvammstanga. Húsið,
sem er um 1350 fm að stærð, var tek-
ið i notkun í marsmánuði sl. Hjá ís-
prjóni starfa rúmlega þrjátíu manns
en auk söluskrifstofu í Reykjavík,
sem starfar undir nafni systurfyrir-
tækisins Drífu, er það með sauma-
stofu á Skagaströnd.
Verktakar hjá íspijóni starfa á
Sveinsstöðum í Þingi og á Kross-
holti á Barðaströnd.
Að sögn Kristins Karlssonar
framkvæmdastjóra hefur salan
gengið vel undanfarið. Evrópu-
markaðurinn er langdrýgstur og
þar stærst Þýskaland og Noregur.
Þá hefur verið selt nokkuð til Jap-
ans og Bandarikjamarkaður virðist
lofa góðu og vera að lifna við en
minnkandi sala á þann markað var
m.a. ástæðan fyrir hnignun ullar-
iðnaðarins á sínum tíma.
Fjölmenni var viðstatt vígslu ís-
prjónshússins seinasta laugardag
enda um stóran viðburð að ræða.
Húnaþing vestra hefur skipað sér á
bekk sem mesta ullarvinnsluhérað
landsins og ísprjón er meðal
stærstu fyrirtækja héraðsins. Guð-
mundur Haukur Sigurðsson, stjóm-
arformaður Isprjóns, flutti ávarp og
séra Guðni Þór Ólafsson flutti bless-
unar- og vígsluorð og naut þar að-
stoðar tveggja starfsmanna ísprjóns.
Það var iðnaðarráðherra Valgerður
Sverrisdóttir sem lagði síðan sitt á
vogarskálarnar við framleiðslu ís-
prjóns með því að sníða hluta úr
peysu og naut við það aðstoðar Elín-
ar Líndals, oddvita Húnaþings
vestra. Tókst þeim stöllum það
nokkuð vel.
Kristinn Karlsson framkvæmda-
stjóri notaði tækifærið og færði ráð-
herranum ullarpeysu frá starfsfólki
Isprjóns. Iðnaðarráðherra kvaðst
ánægður með það frumkvæði sem
Húnaþing vestra hefði sýnt í ullar-
iðnaðinum og vonaði að það gengi
vel og að þessi atvinnugrein eigi sér
langa og farsæla framtíð. -ÞÁ/HH
Dómsmálaráðherrar:
Fjallað um nas-
ista og vændi
Sólveig Pétursdóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra, sat fund dóms-
málaráðherra Norðurlanda á dögun-
um. Á fundinum var meðal annars
fjallað um verslun með konur, en talið
er að í heiminum sé verslað með
hundruð þúsunda kvenna milli landa
og þær neyddar til kynlífsstarfa.
Sólveig skýrði hinum dómsmála-
ráðherrunum frá nýlegum laga-
breytingum á íslandi, þar sem kom-
ið var í veg fyrir að nektardans-
meyjar frá löndum utan Evrópu-
sambandsins geti komið hingað til
lands án þess að hafa tilskilið at-
vinnuleyfi, sem fólki i öðrum starfs-
greinum er skylt að hafa. Auk þess
kynnti Sólveig rannsókn á vændi á
íslandi sem sjálfstætt starfandi
rannsóknarfyrirtæki hefur í undir-
búningi. Niðurstaðna er að vænta í
haust, sem og niðurstaðna annarrar
rannsóknar sem kannar hvemig ts-
land stendur lagalega séð í þessum
málum samanborið við hin Norður-
löndin og aðrar þjóðir.
Á fundinum var einnig rætt um
samhæfðar aðgerðir Norðurlandanna
gegn öfgahópum sem kenna sig við
hvítt vald, nasista eða kynþáttastefnu,
en þeir hafa valdið talsverðum usla
annars staðar á Norðurlöndum. -SMK