Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Page 13
13
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000
PV________________________________________________ Útlönd
Elian Gonzalez
Eliart hefur dvaliö viö lærdóm í
Havana undanfarnar vikur.
Fidel Castro
í heimsókn hjá
Elian litla
Fidel Castro Kúbuforseti hefur
heimsótt Elian litla Gonzalez. Þetta
var fyrsti fundur Castros og drengs-
ins sem kom heim til Kúbu 28. júní
síðastliðinn eftir sjö mánaða dvöl í
Bandaríkjunum. Elian bjargaðist úr
sjávarháska i nóvember síðastliðn-
um undan strönd Flórída. Móðir
hans og stjúpi drukknuðu ásamt
fleiri flóttamönnum frá Kúbu.
í yfirlýsingu, sem yfirvöld á Kúbu
gáfu út um helgina vegna heimsókn-
ar Castros, sagði að forsetinn hefði
óskað Elian til hamingju með að
hafa fengið sérkennslu í Havana til
að ná skólafélögum sínum í nám-
inu.
Talið er að Castro hafi beðið með
að heimsækja Elian þar til nú til að
vera ekki sakaður um að notfæra
sér fund þeirra pólítískt.
Selen gegn
alnæmi og
krabbameini
Rannsóknir sýna að steinefnið
Selen kann að vinna gegn
krabbameini, hjartasjúkdómum,
asma, vöðvaverkjum og ófrjósemi.
Rannsóknir sýna jafnframt að selen
viröist geta seinkað því að alnæmi
brjótist út hjá þeim sem eru
smitaðir af HTV-veirunni, að því er
fram kemur í hinu virta læknariti,
The Lancet.
Stjórnandi rannsóknarinnar,
Margaret Rayman, sem starfar við
háskólann í Surrey í Bretlandi,
segir inntöku selens litla i Bretlandi
og annars staðar í Evrópu. Rayman
segir nauðsynlegt að rannsaka
nánar hversu mikið selenmagn
mannslíkaminn þurfi í raun.
Poul Nyrup Rasmussen
Danski forsætisráðherrann vill ekki
tjá sig um kröfur Grænlendinga.
Grænlendingar
vilja aukið
sjálfstæði
Grænlenska heimastjórnin vill
aukinn fjárhagsstuðning frá Dönum
og aukið sjálfstæði. Núverandi
samningar við Danmörku eru úrelt-
ir, segir í nýjum drögum að samn-
ingi.
í kröfu Grænlendinga er jafn-
framt ákvæði um að samið verði á
ný um náttúruauðlindir og óháða
rannsókn á öryggispólítík Dana í
Grænlandi. Þessi krafa kemur fram
samtímis því sem Poul Nyrup
Rasmussen, forsætisráðherra Dan-
merkur, reynir að ljúka samninga-
viðræðum við Færeyinga um aukið
sjálfstæði.
Grænlendingar mun leggja fram
kröfur sínar í október um leið og
samið verður á ný um fjárhags-
stuðning til Grænlands.
Poul Nyrup Rasmusen vildi ekki
tjá sig um kröfurnar við danska fjöl-
miðla en hann gat þess þó að dönsk
stjórnvöld væru reiðubúin að hefja
samningaviðræður þegar nefndin,
sem fjallar um sjálfstæði Grænlend-
inga, hefði lokið störfum sínum á
næsta ári.
Kúariða í unglingum
vegna skólamatar
Breskir vísindamenn, sem rann-
saka Creutzfeldt-Jacob sjúkdóminn,
sem er kúariða í mönnum, telja að í
ungbarnamat og mat, sem fram-
reiddur er í skólum, hafi verið not-
að kjöt, sýkt af kúariðu.
í þennan mat voru notaðar kjöt-
leifar sem tættar voru af nautgripa-
skrokkum með vélum. Vísinda-
mennimir telja að i þessu ódýra
hráefni kunni að hafa verið mænu-
leifar en mænan er sérstaklega við-
kvæm fyrir kúariðu. Þessi vinnslu-
aðferð var einkum notuð á níunda
áratugnum.
Hráefnið var notað í hamborg-
ara, pylsur, skyndirétti og ung-
barnamat. Böm og unglingar borða
meira af skyndimat en fullorðnir og
telja vísindamennirnir að þarna sé
jafnvel að leita skýringarinnar á því
að nýtt aíbrigði Creutzfeldt-Jacob
leggst á yngra fólk.
Þó svo að jafnaði líði 10 ár frá því
að fólk smitast þar til sjúkdómurinn
brýst út komu fram einkenni hjá
tveimur yngstu fórnarlömbunum
þegar þau voru 14 ára. Margir aðrir
hafa veikst á unglingsaldri. Venju-
legt aíbrigði af Creutzfeldt-Jacob
sjúkdómnum sést sjaldan hjá þeim
sem em undir fimmtugu. Flestir
þeirra sem hafa veikst hafa verið á
sjötugsaldri.
Bresk yfirvöld hefja í þessari
viku rannsókn á orsök Creutzfeldt-
Jacobsjúkdómsins í þremur bæjum
norður af Leicester. Á þessu svæði
létust fjórir af völdum sjúkdómsins
á nokkrum vikum árið 1998. Tvö
yngstu fórnarlömbin þar voru 14
ára þegar einkenni komu fram.
Frá 1996 hafa 67 Bretar látist af
völdum nýja afbrigðisins, þar af
hafa 25 látist undanfarið ár.
Samkvæmt frétt breska blaðsins
The Times hafa stjórnvöld fyrirskip-
að rannsókn á öllum hálskirtlum og
botnlöngum sem teknir hafa verið úr
fólki í Leicesterskíri frá árinu 1985.
Kanna á hvort fleiri tilfella er að
vænta. Yfirvöld fullyrða að nafn-
leyndar verði gætt. Þar til nýlega var
ekki hægt að greina sjúkdóminn fyrr
en sjúklingurinn var látinn, að því
er The Times greinir frá.
Helsti sérfræðingur Breta í
Creutzfeldt-Jacob sjúkdómnum,
doktor Robert Will, sagði í gær í
viðtali við bresku sjónvarpsstöðina
Sky að það væri synd hverslu lítils
böm og unglingar neyttu af lamba-
kjöti.
Kapphlaup
Fjórtán fílar tóku í gær þátt í fyrsta fílakapphlauþinu í Evrópu. Hlaupiö fór fram á veöhlaupabraut nálægt Berlín í
Þýsklandi. Hlauþiö var í tilefni 50 ára sjálfstæðisafmælis Indlands.
www.romeo.is
Stórglæsileg netverslun
meö ótrúlegt úrval af
unaösvörum ástarlífsins
fyrir dömur og herra.
Frábært úrval myndbanda.
Frábær verö, ótrúleg tilboð.
VW Golf, f.skrd. 29.04.1998, bsk., 5 dyra, MMC Carisma, f.skrd. 30.04.1999, ssk., MMC Lancer, f.skrd. 23.05.1997, bsk., MMC Spacewagon, f.skrd. 31.01.1997, Skoda Felicia, f.skrd. 19.08.1997, bsk., 5
ekinn 53 þ.km, blár. 4 dyra, ekinn 18 þ.km, v-rauður. 4 dyra, ekinn 63 þ.km, v-rauður. ssk., 5 dyra, ekinn 80 þ.km.v-rauður. dyra, ekinn 44 þ.km, svartur.
Verð 1.190.000. Verð 1.880.000. Verð 1.120.000. Verð 1.560.000. Verð 610.000.
Boigartúni 26, ámar 561 7510 & 561 7511
úrval no+a*ra bíla af öllowi sfasrSuw 03 3er*u»n!
Margar bifreiðar á söluskrá
okkar er hægt ad greiða með
Visa eða Euro raðgreiðslum