Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Síða 14
14
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000
Skoðun
Spurning dagsins
Ertu rómantísk/ur?
Linda Rakel Jónsdóttir:
Já, ég gef fótki rósir og þaö finnst
mér mjög rómantískt.
Sölvi Snæbjörnsson nemi:
Alveg rosalega rómantískur, mér
finnst gaman aö gefa rósir.
Ketilbjörn Tryggvason verkfræöingur:
Já, svona meöal. Mér finnst sólsetur
á rólegu sumarkvöldi á íslandi meö
konunni minni mjög rómantískt.
Kerstin Tryggvason kennari:
Já, mér finnst rómó aö vera án barn-
anna og boröa kvöldverö meö róm-
antísku ívafi.
Hilmar Kristinsson forstöðumaöur:
Alveg rosalega rómantískur, þaö er
lykillinn aö ástinni aö gefa af sér. Ég
uppsker eins og ég sái.
Janus Afberg sölustjóri:
Ekkert of hasttulega, bara svona í
hæfilegu magni.
Prestssetrið á Utskálum
Örskammt frá hinni fallegu Útskálakirkju.
Raunasaga prestsbústaðar
„Og nú stendur prestssetrið
líkt og tóft með neglt fyrir
glugga og enn bíður ágœtur
sóknarprestur eftir því að
komast í öruggt húsnœði
með sína fjölskyldu. “
Halldór Halldörsson
skrifar:_______________________
Eftir aö hafa lesið bréf í DV sl.
fimmtudag (13. júlí) um niöurníðslu
prestssetursins að ÍJtskálum í Garði
fmnst mér hlýða að leggia orð í belg
og taka undir nauðsyn þess að úr
verði bætt. - Á Útskálum hefur verið
prestssetur frá árinu 1703, ef rétt er
með farið, þegar séra Gísli Jónsson
kom á staðinn. Síðan hafa þar þjónað
margir prestar og sumir landsþekkt-
ir. Þar sem ég þykist þekkja nokkuð
til þar syðra er rétt að geta nokkurra
staðreynda um húsið að Útskálum á
seinni árum.
Þegar séra Guðmundur Guðmunds-
son fór frá Útskálum var farið að
huga að endurbótum á prestssetrinu
áður en nýr prestur tæki við. Á með-
an beiö nýi presturinn (Hjörtur
Magni Jóhannsson) eftir að komast í
húsnæðið og drógust lagfæringar
óeðlilega lengi. Þrautalendingin var
að klæðning var sett utan á húsið en
Hraðavarsla
Grjetar
skrifar:
Söfnunarsjóður tryggingafélag-
anna rekur tilurð sína tO ofáætlaðra
tjónabóta undanfarna áratugi. í sjóð-
ina hafa safnast fjármunir sem nema
tugum milljarða. Ég tel að félögin
hafi engan einkarétt á sjóðum þess-
um, og ekki eðlilegt að þau noti þessa
fjármuni að vild tii auðsöfnunar fyr-
ir hluthafa sína.
Fjársöfnun þessi verður til fyrir
framlög ökumanna, sem greiða ið-
gjöldin. Ég tel því hiklaust að öryggi
í umferðinni eigi, frekar en einhver
markaðsöfl, að njóta sjóðsins. Ég legg
til að tryggingafélögin greiði úr sjóðn-
um, að hluta til eða að fullu,-laun lög-
það var engan veginn nægilegt en
dýrt samt. Séra Hjörtur bjó síðan á
Útskálum þar til hann fór til náms er-
lendis og á meðan þurfti presta til af-
leysinga. Þeir prestar sem þá komu
við sögu töldu íbúðarhúsið ekki vera
íbúðarhæft og annar þeirra aftók að
flytja inn.
Þegar séra Hjörtur kom frá námi
varð hann að fara í leiguhúsnæði þar
til hann fór til starfa hjá öðrum söfn-
uði. Þá var núverandi prestur kosinn
í sóknina, séra Bjöm Sveinn Bjöms-
son, og þá loks var farið að kanna
hvað hægt væri að gera. Nefhdir á
nefndir ofan komu að málinu en lítið
gerðist. Loks varð að ráði að allt yrði
rifið innan úr húsinu. Síðan ekki sög-
una meir. Og nú stendur prestssetrið
líkt og tóft með neglt fyrir glugga og
enn bíður ágætur sóknarprestur eftir
því að komast í öruggt húsnæði með
sína fjölskyldu. Á meðan hefur verið
leigt húsnæði fyrir prestsfjölskylduna
á að a.m.k. þremur stöðum og er fyr-
irhugað að prestur flytji enn einu
sinni í október nk.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
margra í sóknum Útskálaprests þegar
ég skora á ráðamenn þá sem með
kirkjustaði fara að koma málum
prestsbústaðarins í höfn sem allra
fyrst. Kannski hefðu sóknarböm í Út-
skálasókn átt að leita beint til þess
ráðherra sem fer með æðsta vald í
kirkjumálum um skjóta úrlausn.
Það stingur vissulega í augu að
horfa á prestssetrið á Útskálum líkt
og flak, örskammt frá hinni fallegu
Útskálakirkju.
úr sjóðum tryggingafélaga
„Ég legg til að tryggingafé-
lögin greiði úr sjóðnum, að
hluta til eða að fullu, laun
lögœslumanna, eins konar
„hraðavarða“ við umferðar-
eftirlit á vegum. “
gæslumanna, eins konar „hraða-
varða“ við umferðareftirlit á vegum.
Fram hefur komið að hvert
sautján ára ungmenni valdi tjóni fyr-
ir u.þ.b. eina milljón króna á þessu
ári. Én hvemig fjármagna ungu öku-
mennirnir bílakaup sín? Er hugsan-
legt að um „bílakaupalán" frá trygg-
ingafélögunum sé að ræða í flestum
tilfellum? - Þannig verður til tjón-
greiðsla á iðgjaldaborðinu en stór-
gróði á hluthafaborðinu.
Þær eru með ólíkindum ofáætlan-
imar sem detta í sjóðinn og telja
hluthöfunum gróða. Með næsta bil
fylgir svo refsibónus fyrir ungling-
inn, sem er bara bætt á næsta lán,
auk lántökukostnaðar. Okkur hinum
verður siðan send þrjátíu prósent
hækkun.
Er ekki kominn tími tO að hafa
sama gjald um allt land, með sömu
rökum og hjá símanum; þá var
heimtað jafnrétti. - Og í lokin; Hvað
ætli bilalánasjóðimir allir eigi mikla
sök á viðskiptahalla íslands?
Dagfari
Bestir í heiminum
Þeir sem ráða ferðinni hjá íþrótta- og tóm-
stundaráði Reykjavíkur og íþróttabandalagi
Reykjavíkur hafa nú loksins uppgötvað það sem
margir hafa vitað lengi, en farið leynt með af ein-
hverjum ástæðum. í stórborginni Reykjavík leyn-
ist efniviður í mestu afreksmenn heimsins í íþrótt-
um í alveg einstökum kynstofni og nú á að kalla
þá fram á sviðið og sýna umheiminum hvers þeir
em megnugir.
Kvennalistakonan Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
sem er í fararbroddi íþróttafomstunnar í höfuð-
borginni, hefur margsýnt það að Kvennalistinn
hefur göfug markmið þegar afreksíþróttir eru ann-
ars vegar. Það kom t.d. vel í ljós fyrir Heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik sem fram fór hér á
landi árið 1995, en þá hafði R-listinn, með Kvenna-
listann í fararbroddi, vit fyrir þeim sem vildu
byggja fjölnota íþróttahús í Laugardalnum fyrir
keppnina en ákvað þess í stað að byggja útskot á
Laugardalshöllina sem lengst af hefur verið tjald-
að fyrir síðan. í annað skipti vildi fomsta sund-
fólks á landsvísu að byggð yrði alvöru sundlaug
fyrir keppnisfólk fyrir Smáþjóðaleikana sem fram
fóm hér á landi, en enn komu Steinunn og hennar
fólk vitinu fyrir menn og byggðu heita potta við
sundlaugarnar í Árbæjarhverfi.
En nú blæs íþróttafomsta borgarinnar til or-
Hefði ekki verið nœr að hafa þau
fimm svo pláss vœri fyrir alla?
ustu, og markmiðin em göfug. íþróttaiðkun í
Reykjavík á eftir 10 ár að vera orðin sú mesta í
Evrópu, og reykvískir íþróttamenn eiga aö þeim
tíma liönum að vera orðnir þeir bestu í heimi.
Það er ekkert hálfkák á þvi frekar en fyrri daginn
hjá kvennalistakonunni Steinunni Valdísi, enda
hefur hún sýnt það í verki um árabil að afreksí-
þróttir eiga hug hennar allan, eins og reyndar
annarra Kvennalistakvenna.
Til að afreksmennirnir í borginni, sem eiga að
vera þeir bestu í heimi eftir 10 ár, verði nú ekki
að þvælast hverjir fyrir öðram á að skipta Reykja-
vík upp í fjögur afrekssvæði. Heföi ekki verið nær
aö hafa þau fimm svo pláss væri fyrir alla? Af-
reksmennimir eiga væntanlega að vera atvinnu-
menn í íþróttagreinum sínum næstu árin, og árið
2010 verða þeir kallaðir fram á svið alþjóðlegra
íþrótta þar sem þeir munu raða sér í efstu sæti
heimslistanna í hinum ýmsustu greinum íþrótta.
Reykjavik, sem er að stærð eins og lítið úthverfi í
meðalstórum borgum úti í hinum stóra heimi,
verður um leið heimsfræg, sem og Steinunn Val-
dís og Kvennalistinn.
Væri vel ef þeir sem stjóma íþróttamálum í
hinum smærri byggðum íslands settu sér svipuð
markmiö. Hvers vegna hefur t.d. sveitarstjóm
Skagafjarðar ekki sett sér það markmið að árið
2010 verði íþróttafólk frá Hofsósi komið í fremstu
röð íþróttamanna á Norðurlöndum? Spyr sá sem
ekki veit, en vantar ekki bara foringja eins og
Steinunni Valdisi í Skagafjörðinn? _ n .
Verndartollur á
tómötum
Sigurður Ólafsson skrifar:
Áreiðanlega
blöskrar fleirum
en mér hinir
geysiháu vemdar-
tollar ríkisins á
grænmeti. Dæmið
um hollensku
tómatana, sem Hollenskir
forstjóri Baugs tómatar.
tók í útvarpsvið- - Neytendur
tali fyrir nokkru, plokkaöir meö of-
sýnir okkur fárán- urtollum.
legheitin. Tómat-
ar keyptir inn á 55 kr. kg. Á það
leggst verndartoOur u.þ.b. 190 krón-
ur, síðan vörugjald og loks virðis-
aukaskattur. Hér er verið að plokka
neytendur með ofurtoUum og skött-
um hins opinbera. Garðyrkjubændur
eru líklega ánægðir, en það er ís-
lenskur almenningur ekki.
Dorritar saknað
Kona á Hólmavík hringdi:
Við hér á Ströndum vorum afar
þakklát fyrir heimsókn forseta ís-
lands sem nú er afstaðin. Margir
söknuðu þess að hin erlenda kona,
sem verið hefur fylgikona forseta í
margvíslegum ferðum innanlands
sem utan, skuli ekki hafa séð sér fært
að fylgja forsetanum hingað. Það eyk-
ur á ánægjuna og vægi embættisins
að sjá forsetann með glæsilega konu
sér við hlið. Sannleikurinn er sá, að
mínu mati, að forsetinn ætti ekki að
draga mikið lengur að tilkynna þjóð-
inni hvað verður úr sambandi hans
við Dorrit. Þetta er ekki einkamál
forsetans úr því hann á annað borð
tilkynnti sérstaklega um samband
sitt við hana í upphafí.
Helgi Walter,
hvar ertu?
Gunnar Thorsteinsson skrifar:
Ég hef reynt ítrekað að ná í þennan
heiðursmann sem síðast var skráður
með lögheimili á Klapparstig 37, en
dvalarstaður er ókunnur. - Ég þarf
nauðsynlega að ná tali af þér, Helgi,
vegna mála sem bíða úrvinnslu, m.a.
vegna búslóðar frá því við leigðum
saman íbúð. Ég hef reynt gegnum sima-
númer þitt eftir að þú hafðir samband
að kvöldi 10. þ.m., en án árangurs. Nú
bið ég þig, Helgi, að hafa samband við
mig hið fyrsta. Viti einhver um dvalar-
stað Helga bið ég þann eða þá að hafa
samband. Sími minn er: 864 6127.
Húsió Hjarðarholt
- Opiö um helgar þar til yfir lýkur.
Fólk, fælar eöa
þrælar
Jón Grétar Hafsteinsson skrifar:
Hjarðarholt, Skógarhlíð 12, er fal-
legt gamalt hús, sem fyrirhugað er að
rífa. Málið snýst einnig um það hvort
þessi borg er fyrir fólk eða „fæla“
(enska: files) eins og undirritaður
sagði við blaðamann Fókuss fyrir
skömmu, en var misskilið sem „fólk
eða þræla“. En þrælar em nú líka
fólk, oftast ágætt lika. Segja mætti
einnig; menn eða möppur. - Söguna
um Hjarðarholt og nýbýlin má lesa á
netfanginu: hjardarholt.eu.org - og
hjardarholt.vortex.is. Málið snýst
einnig um það hvort það sé óopinber
stefna að hrekja úr landi það fólk
sem annaðhvort getur ekki eða vill
ekki kaupa húsnæði. En í Hjarðar-
holti mun áfram verða opið hús um
helgar, svo lengi sem mögulegt er, en
líklega verður reynt aö rýma húsið í
vikunni 17.- 21. júlí.
DV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.ls
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11,105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.