Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2000, Page 5
5
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000
1>V Fréttir
Helgi Pétursson viðrar nýstárlegar hugmyndir:
Vill 18 holu golfvöll í Viðey
- séra Þóri Stephensen, staðarhaldara í Viðey, líst vel á hugmyndina
Helgi Pétursson, borgar-
fulltrúi R-listans, vill að
kannað verði hvort hag-
kvæmt og náttúruvænt sé að
byggja 18 holu golfVöll í Við-
ey. I greinargerð sem Helgi
hefur skrifað um málið kem-
ur fram að golfíþróttin sé i
stöðugmn vexti hérlendis og
ferðamönnum sem komi til
landsins fjölgi stöðugt. Golf-
völlur í fullri stærð myndi
verða veruleg lyftistöng fyrir
ferðaþjónustu í borginni.
„Það væri gaman að láta kanna
þetta mál. Golfíþróttin er í stöðug-
um vexti og mér hefur sýnst golf-
vellir falla mjög vel inn í landslagið
án nokkurra náttúruspjaila. Með
þessu móti myndi sú uppbygging
sem hefur átt sér stað í eyjunni nýt-
ast mun betur og ekki þyrfti að ráð-
ast í heilmiklar framkvæmdir sök-
um þessa.“ Undir þessi ummæli tek-
ur Helgi Hjörvar, forseti borgar-
stjórnar.
Aðspurður kvaðst Helgi Péturs-
son ekki telja að borgin kæmi að
rekstri golfvallarins ef af verður -
betra væri að eftirláta það
þeim golfklúbbum sem til
eru fyrir. Helgi ætlar að
kynna málið fyrir borgar-
stjórn hið fyrsta og vonast
eftir góðum viðbrögðum.
Séra Þórir Stephensen er
staðarhaldari í Viðey.
„Þetta þykir mér vera
góð hugmynd og sjálfur var
ég með hugmyndir á sínum
tíma um níu holu golfvöll.
Þetta má vel skoða. Það eru
mikil tún á vesturhluta eyj-
arinnar sem eru algjörlega ónýtt og
þau og umhverfi þeirra yrðu ágæt
sem golfvöllur. Þetta myndi auka
ferðamannastrauminn hingað og
þar með nýtingu eyjarinnar. Þarna
þyrfti að sjálfsögðu að fara fram
vandað umhverfismat og skoða mál-
ið frá öllum hliðum.
Eyjan er stór og þolir vel að geng-
ið sé um hana. Ég veit að Ólafur
Stephensen, eigandi eyjarinnar á
móti Reykjavíkurborg, er einnig
hlynntur því að þessi hugmynd
verði skoðuð.“
Þórir sagði þó að hann væri ekki
Helgi
Pétursson
-18 holur
í Viöey.
Fjölskylda á Hólmavík:
Fjölskylda stofnar
fiskvinnslufyrirtæki
- saltfiskverkunin Særoði tekur til starfa
PV. HÓLMAVÍK:
Nýlega tók til
starfa fiskvinnslu-
fyrirtæki í eigu
einnar fiölskyldu á
Hólmavík. Það eru
hjónin Bjamveig E.
Pálsdóttir og Sævar
Benediktsson sem
reka fyrirtækið
ásamt bömum sín-
um en þetta er salt-
fiskverkunarfyrir-
tæki og húsnæðið er
tveir 40 feta gámar
en samfestar hliðar
þeirra hafa verið fjarlægðar og ný
þakgerð smíðuð. Húsnæðið er bæði
bjart og vistlegt og þar eru bæði
flatnings- og flökunarvélar fyrir
vinnsluna, auk beitningaraðstöðu.
Sævar segist vinna meginhluta
þess afla sem hann veiðir á bát sem
ber nafn fyrirtækis-
ins, Særoði, og er
gerður út á línu yfir
vetrartímann og
með færi yfir sumar-
tímann. Lítilsháttar
hefur verið keypt af
afla annarra báta
fyrir vinnsluna.
Sævar hefur réttindi
fiskimatsmanns og
þarf lítið aðfengið
vinnuafl að kaupa,
en böm þeirra hjóna
vinna við framleiðsl-
una þegar aðstæður
leyfa. Sævar segir afla hafa verið
mjög góðan undanfarið í Húnaflóa
og sem dæmi um hve fiskur getur
verið hátt í sjó segist hann nýverið
hafa fengið kríu úr einum þorsk-
maganum. -GF
DVJvlYND GF
Fiskvinnslufjölskylda
Sævar Benediktsson og Bjarn-
veig E. Pálsdóttir kona hans
ásamt dótturinni Guöfinnu
Magneu í nýja og glæsilega
fiskvinnsluhúsinu á Hólmavík
Jastrandi gott hey í brakandi þurrki
Það var sama hvert litiö var á leiöinni austur um Suöurland um helgina, alls
staöar voru menn og tæki á fullu í heyskap og heyfengur sýnilega góöur. Ingi-
mundur bóndi á Skógum undir Eyjafjöllum tínir hér bagga á vagn á Skóga-
sandi í blíöunni.
Borgarnes:
Aukið álag á lögregluna
- álag eykst með tikomu Hvalfjarðarganga
Mikið hefur reynt á lögregluna í
Borgamesi í sumar en álagið hefur
stóraukist með tilkomu Hvalfjarðar-
ganganna að sögn Stefáns Skarphéð-
inssonar sýslumanns en þetta kem-
ur fram í Skessuhomi, fréttablaði
Vestlendinga. Aðeins sex lögreglu-
þjónar em fastráðnir hjá sýslu-
mannsembættinu í Borgarnesi, auk
yfirlögregluþjóns og tveggja héraðs-
lögregluþjóna.
Umdæmi Borgameslögreglu er
víðfeðmt og nær frá Hvalfjarðar-
botni að Hítará og upp á miðja
Holtavörðuheiði. Gífurleg umferð
hefur verið um héraðið í sumar og
um helgar er talið að allt að tuttugu
þúsund aðkomumenn dvelji í sum-
arhúsum og á tjaldsvæðum í Borg-
arfirði. Sýslumaður segir í samtali
við Skessuhorn álagið á mannskap-
inn vera mikið en fjárveitingar til
embættisins leyfi ekki fjölgun í lög-
regluliðinu.
viss um að þetta yrði samþykkt. um ekki taka vel í þessa hugmynd Tillaga Helga Péturssonar verður
Sumir íhaldssamir menn innan og beita sér fyrir því að þetta yrði lögð fram í borgarráði í júlímánuði.
borgarinnar myndu að öllum líkind- ekki gert. -ÓRV
Á tímum síhækkandi bensínverðs skiptir eyðslan bíleigendur gríðarlegu
máli, sérstaklega þegar Ijóst er að lítraverðið fer í 100 krónur.
Það er vandfundinn bíll sem eyðir minna bensíni en Daewoo Matiz.
Nýlega komst hann í Heimsmetabók Guinness fyrir litla bensíneyðslu,
þegar honum var ekið 3.899 km. á aðeins 122 lítrum í Ástralíu - geri aðrir
betur!
Ef þú sérð brosandi bíleiganda á bensínstöð, þá er hann eflaust á Matiz!
Nýr Matiz fyrir 457 krónur á dag!*
Verð:
Matiz S kr. 829.000,
Matiz SE kr. 899.000,
Matiz SE-X kr. 966.666,
* Matiz S, útborgun kr. 165.800,-
eftirstöðvar til 72 mánaða.
Miðað við bílasamning og verðbólguspá.
Gamli bíllinn þinn getur líka verið útborgun.
Bílabúð Benna 'Vagnhöfða 23 og Kringlunni • Sími 587-0-587 • www.benni.is
- og kominn í
heimsmetabókina!
DAEVKX)