Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2000, Síða 5
5
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000
X>V Fréttir
Tölvukerfi Hagstofunnar ræður ekki við nafn barns:
Þjóðskráin
springur á
barnsnafni
- faðir hótar að fara með málið til Mannréttindaskrifstofu íslands
Sveinbjörg Dione Steinþórsdóttir var
fyrsta bamið sem skírt var á árinu 2000
á íslandi. Hálfsmánaðar fékk hún nöfh
fóðurömmu sinnar og móðurafa á
nýársnótt. En þegar foreldrar hennar,
Steinþór Frank Michelsen og Maria
Theresa Michelsen, ætluðu að skrá
bamið inn í þjóðskrána, eins og lög gera
ráð fyrir, fengu þau þær upplýsingar að
nafn stúlkunnar passaði ekki inn í
tölvukerflð.
„Það er 32 stafir með bili á milli orða
og kerfið ræður ekki við það. En mér
skilst á forritara að það sé mjög lítið
mál að laga þetta,“ sagði Steinþór.
Maria Theresa er filippseysk og sam-
kvæmt lögum má skíra bam sem á eitt
erlent foreldri einu erlendu nafhi, svo
lengi sem það samræmist íslensku
tungumáli. Enda er vandamáhð ekki
miilinafh hnátunnar heldur veldur
lengd nafnsins tölvukerfi Hagstofu ís-
lands vandræðum.
Starfsfólk þjóðskrárinnar benti Stein-
þóri á að ef hann gæfi dóttur sinni
danskt eftimafn sitt, Michelsen, kæmist
DV-MYND REYNIR NIEL
Fjölskyldan
Steinþór Frank Michelsen og Maria Theresa Michel-
sen ásamt börnunum sínum tveimur. Litla stúlkan
er meö of langt nafn fyrir þjóöskrá en
drengurinn slapp.
allt nafn hennar fyrir í tölvukerfinu.
Steinþór vill hins vegar ekki gefa böm-
um sínum danskt eftimafii og hafa fleiri
í fjölskyldu hans ákveðið að gefa böm-
um sínum kenninöfn að íslenskum
hætti.
„Ég á annan son fyr-
ir og hann er Steinþórs-
son og það stóð ekki til
að fara að breyta því
með stelpuna. En „dótt-
ir“ eru fimrn stafir en
„son“ em þrir, þannig
að þetta er kynjamis-
rétti,” sagði Steinþór.
Mannréttindamál
íslensk lög um
mannanöfn leyfa fólki
að skira böm sín þrem-
ur eiginnöfhum, einu
millinafni og einu
kenninafni. Engin lög
em til um það hversu
löng nöfnin mega vera,
en þar sem einungis 32
stafir komast fyrir í tölvukerfmu, er
hluti lengri nafiia hvergi skráður nema
á fæðingar- eða skímarvottorð.
Að sögn starfsstúlku í afgreiðslu þjóð-
skrár skipa lög um mannanöfh fólki að
skammstafa hvorki fyrsta nafh né síð-
Langt nafn
Sveinbjörg Dione Steinþórsdóttir er meö of marga stafi í nafninu sínu og
passar þar af leiöandi ekki inn í þjóöskrá.
asta nafnið, svo Steinþór og kona hans
neyðast til þess að skammstafa Dione.
Sveinbjörg Dione mun geta skrifað sitt
fulla nafii sjáif, en opinber skjöl, svo
sem skattskýrsla hennar í framtiðinni,
munu ekki bera fuilt nafn hennar.
„Þar sem hún heitir í höfuðið á afa
sínum og ömmu, þá er þetta prinsipp-
mál að hafa bæði nöfnin, og skammstafa
þau ekki í þessu tilfelli," sagði Steinþór
og bætti þvi við að ef Hagstofan breyti
ekki reglum sinum muni hann fara með
málið fyrir Mannréttindaskrifstofu ís-
lands.
„Því það er hvergi kveðið á um í lög-
unum hversu löng mannanöfh mega
vera annað en að í þeim mega ekki vera
fleiri en fimm orð,“ sagði Steinþór.
-SMK
útbor
Fyrsta greiðslá"!
nóvember 2000
Lán í allt að
60 mánuði
A notuðum bílum
frá Ingvari Helgasyni hf. og Bílheimum ehf.
Utsölulok
fimmtudaginn 20. júlí
EI Oll OAllSiÍLASíALAíi
ti7i3ITF?íT?P73.itÍ 1 1 - -FiFiTIÍ ivini)