Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2000, Blaðsíða 12
og hef verið háður því að fá
minn skammt hverja verslunar-
mannahelgi i meira en áratug. Og
núna er ekkert að fá. Ég hringdi
í dílerinn minn en hann sagðist
ekki eiga neitt vegna þess að þeir
hefðu gert alla sendinguna hans
upptæka. Ég er mjög trúr mínum
díler og hef ekki verslað við
neina aðra ailan minn dópferil
þannig að ég var alveg úti að ...
... skíta.
Ég þekki enga aðra dílera og hef
engin sambönd. Það fyrsta sem mér
datt í hug var auðvitað að hringja i
Bubba Morthens en hann sagðist
vera löngu hættur í þessu og bauö
mér að koma frekar í box. Ég hef
engan áhuga á því. Ég er svo feitur
að ég get varla lyft höndunum og
hef enga sérstaka löngun til þess að
láta Bubba Morthens lemja mig
eins og myglaðan kartöflupoka
þannig að ég afþakkaði það. Bubbi
gat ekkert hjálpað mér, sagðist
ætla að biðja fyrir mér en vildi
ekki vísa mér á ...
... neinn.
Sömu sögu er að segja um Jón
Ólafsson nema hann sagðist ekki
ætla að biðja fyrir mér, helvítis
bítlavinafélagið, segi ég bara,
alltaf jafngagnslaust. Vinur minn
benti mér á að tala við þá á Skjá
einum. Hann sagði að það væri
allt vaðandi í dópi þar. Ég var nú
frekar skeftískiu- á það. Ég sé
bara ekki fyrir mér Völu Matt og
Bjarna Hauk veltandi um á kló-
settinu með náiina í handleggn-
um. Jæja, en ég ákvað samt að
reyna og gerði mér ferð til...
... þeirra.
En það var árangurslaust og
þau könnuðust ekki við neitt og
báðu mig bara um að hafa aftur
samband þegar fréttastofan kæmi
aftur úr fríinu. (Ég hefði frekar
haldið að dópið væri á öðrum
stöðvum eins og dagskráin er
þar). Ég var ráðalaus. Reyndi að
rifla upp alla þá sem hafa lýst því
yfir í fjölmiðlum að þeir væru
hættir í dópinu. Það er sama sag-
an að þeir eru auðvitað mjög fík-
legir til að vera fallnir aftur. Ég
hringdi í næstum þvi alla popp-
arana í bransanum, Skímó, Sól-
dögg, Pál Rósinkrans, Maus og
Stefán Hilmarsson en enginn
vildi selja mér svo mikið sem
stíl í...
... rassgatið.
Helvítis nískupúkar. Ég hringdi
upp í heilbrigðisráðuneyti og talaði
við heilbrigðisráðherra og grátbað
hana um að redda mér lyfjadópi en
það var eins og hún vissi ekki um
hvað ég var að tala. Það er auðséð
að það er ekki sama hver það er
sem hringir í hana. Ég er viss um
að ef Dorrit eða Björk eða Kristján
Jóhannsson hefðu hringt i hana
hefði hún verið alveg á hjólum.
Þetta er dæmigert fyrir íslenskt...
... þjóðfélag.
Ég veit ekki hvað ég á að gera. Mig langar helst að hætta við allt
og fara ekki neitt um verslunarmannahelgina. Ég er dóplaus og
desperat og rosalega leiður. En ef einhver veit hvar hægt er að
kaupa dóp á góðu verði fyrir verslunarmannahelgina þá bið ég hann
um að senda bréf hingað á Ðagblaðið merkt: „Fókus: dóp til sölu“.
Margir ættu að kannast við hljómsveitina Mary Poppins. Fyrir
tveimur árum skaust lagið Magic upp á topp tíu á íslenska
listanum en þeir félagar í hljómsveitinni settu það í spilun sem
upphitun fyrir það sem koma skyldi. Nú eru þeir búnir að
leggja lokahönd á sína fyrstu breiðskífu, Defeated. Hún kom í
hljómplötuverslanir í vikunni og á næstunni má búast við því
að þeir fylgi henni eftir með tónleikum.
„Ég myndi nú ekki segja þaö. Ég syng best á ensku vegna þess að ég hef alitaf sungið á ensku og hlustað á enska
tónlist," segir Snorri söngvari Mary Poppins.
Blómarokk
„Mary Poppins er búin að vera
starfandi í rétt rúm tvö ár,“ segir
söngvari hljómsveitarinnar og
lagasmiður, Snorri Snorrason.
„Það er búið að vera draumur
lengi að gefa út disk. Hann er að
rætast núna.“
Enskir í byrjun
Hljómsveitin spilar hefðbundið
popp-rokk og er allur söngur á
ensku. I henni eru Steinar Gísla-
son gitarleikari, J. Símon Jak-
obsson bassaleikari, Steinar
Gíslason gítarleikari, sem hann-
aði einnig umslagið á plötunni,
Hallgrímur Hallgrímsson
trommari og Snorri söngvari.
Auk þeirra komu fjölmargir tón-
listarmenn við sögu Defeated en
hljómsveitin mótaðist á upptöku-
tímanum. Snorri var ekki einn
um að semja lögin, honum til að-
stoðar var Gunnar Bjarni Ragn-
arsson, fyrrverandi Jet Black
Joe.
Textar á ensku. Stefnir Mary á
heimsyfirráö
„Ég myndi nú ekki segja það. Ég
syng best á ensku vegna þess að ég
hef alltaf sungið á ensku og hlustað
á enska tónlist," segir Snorri. „Það
er aldrei að vita nema maður skipti
yfir í íslenskuna. Framtiðin leiðir
það í ljós.“
Hann telur upp hljómsveitirnar
Guns n’ Roses, Pink Floyd, Led
Zeppelin og Radiohead sem áhrifa-
valda Mary Poppins og líkir tónlist-
inni við sambland af öllum þessum
hljómsveitum. „Gott, melódískt
rokk.“
Gunnar Bjarni í BNA
„Nafnið á hljómsveitinni var í
grini til að byrja með. Þegar við
vorum búnir að gera Magic og ætl-
uðum að koma þvi í spilun klíndum
við Mary Poppins á það til bráða-
birgða. Síðan varð það nokkuð vin-
sælt og allir könnuðust við Mary
Poppins. Þá varð ekki aftur snúið.“
Hljómsveitin er að mestu leyti
skipuð gömlum félögum úr Breið-
holtinu en einnig bankar Mosfells-
bærinn upp á með tvo meðlimi.
Gunnar Bjami úr Jet Black var
uppnmalega hluti af hljómsveit-
inni og samdi með Snorra lögin á
plötunni auk þess að spila inn á
hana.
„Hann flutti nýlega til Banda-
ríkjanna og er þar núna að semja
tónlist með kærustunni sinni. Þar
af leiðandi er hann ekki í hljóm-
sveitinni eins og er.“
Diskurinn er kominn í hljóm-
plötuverslanir Skífunnar út um
allt land og er lagið Hit #1 byrjað
að hljóma á öldum ljósvakans.
Mary Poppins mun síðan halda út-
gáfutónleika í ágúst, þegar mn-
boðsmaðurinn þeirra, Gummi
Gísla, kemur úr fríi. Síðan ætla
þeir að vera duglegir að spila á
skólaböllum í allan vetur þannig
að flestir eiga eftir að fá smjörþef-
inn af þeim.
12
f Ó k U S 21. júlí 2000