Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2000, Blaðsíða 13
Nýi stíllinn bakar pönnsur „Ég ætla að reyna að lífga upp á kaffitímana hjá verslunarfólki í miðbænum," segir listneminn Maggi Logi sem aðhyllist nýja stílinn. í Fiskabúrinu nú um helgina sit- ur listaneminn Maggi Logi. Hann ætlar að skreyta það með myndum af honum sjálfum sem hinar ýmsu persónur auk þess að umgjörðin verður öll mjög heimilisleg. Þannig verða eldhúsgardínur, borð, stólar og diskar þar sem hann situr og bakar pönnukökur allan liðlangan daginn. Elvis á fóninum „Já, þetta er mest um sjálfan mig. Ég vil einnig lífga upp á kafíitimana hjá starfsfólkinu í verslununum í miðbænum. Planið er að bjóða öllu þessu liði í pönnukökur í hádeginu nú um helgina," segir Maggi Logi en hann ætlar að sitja frá kl.15 tii kl.18 í dag og á sunnudaginn. Á morgun, laugardag, mætir Maggi hins vegar ekki fyrr en kl. 20 en þá verður há- punktur sýningarinnar. „Þá verður haldið parti og eru all- ir hjartanlega velkomnir í það. Ég ætla að bjóða upp á pönnukökur, veitingar og tónlist, léttan Elvis Presley." Þú œtlar ekki sjálfur að syngja El- vis inn á spólu og spila hana? „Nei, nei. Ég held mig við orginal- inn og ætla að reyna að mynda þægilega og skemmtilega stemn- ingu. Ég verð þarna stanslaust að baka fram á sunnudag. Þá verðum viö bara að sjá til hversu hár pönnsustaflinn verður orðinn. Kannski verður allt borðað jafnóð- um.“ Lœturðu nokkuð ógeó í pönnsurn- ar? „Að sjálfsögðu ekki. Ég verð þarna með öll hráefni og deigið uppi á borði þannig að fólk geti fylgst ná- kvæmlega með því sem ég er að láta út í pönnsumar." Kemur frá hjartanu Sýning Magga Loga er undir for- merkjum nýja stílsins. Nýi stíllinn var nýlega stofnaður úti í Hollandi af nokkrum íslendingum og Hol- lendingum sem voru að bralla sam- an og var fyrsta sýningin haldin af Bibba Curver í Gallerí Nema Hvað í vetur. Maggi Logi var viðriðinn stofnun stílsins en hann er við nám í Rietveld-akademíunni í Amster- dam. En á hvaóa hátt flokkast þessi sýn- ing undir Nýja stílinn? „Að því leyti að þetta meikar eng- an sens. Þú mátt ekki hugsa djúpt um það sem þú ert að gera í nýja stílnum. Þetta verður alit að koma frá hjartanu. Sama hversu fáránlegt þú heldur að hlutirnir verði, gerðu þá bara. Þess vegna ætla ég að baka pönnukökur. Síðan má ekki gleyma því að maður verður að hafa gaman af því sem maður er að gera, það er einnig hluti af nýja stíinum." Hver erframtíó Nýja stílsins? „Það næsta sem er á döflnni er stór sýning. Þar erum við að tala um sænska, hollenska og íslenska listamenn samankomna undir einu þaki. Hún ætti að líta dagsins ljós snemma á næsta ári,“ segir Maggi Logi og heldur áfram að æfa sig að búa til pönnukökudeig. Af orðum hans hlýtur það að vera ljóst að nýi stíllinn er kominn til að vera. Á Skólavörðustíg 22c stendur lítið gallerí. Þetta gallerí er rekið að frum- kvæði nemenda Listaháskólans og gefur þeim tækifæri til að sýna verk sín fyrir utan veggi skólans. Það nefnist að jafnaði Gallerí Nema Hvað en nú í sumar hefur nefnd gallerísins breytt því í það sem hún kýs að kalla Fiska- búr. Hugmyndin er að í stað þess að sýna lokaútkomu verka, eins og venj- an er, þá er vinnan sjálf, sköpunin, sýnd. Þannig geta gestir og gangandi komið við eða ein- faldlega litið inn um gluggann á Fiska- búrinu og séð verknaðinn. Sá fyrsti sem steig á stokk var tónlistarmaður- inn Músíkhvatur en nú um helgina er komið að listneman- um Magga Loga, sem ætlar að kynna lýðnum enn betur Nýja stílinn. heimasíöa vikunnar d h af Strippara- horur? RÍKi og borg hata stripiklúbbana. Stóri bróöir er í það minnsta ekki að létta þeim róðurinn. Helst vilja þeir koma klúbbunum tyrir í Grafar- vogi og þá geta borgarbúar farið á stripp þeg- ar þeir eru staddir í Grafarvogi. Og svo mega stelpurnar helst ekki koma frá öðrum löndum en þeim sem skrifað hafa undir EES-samning- inn. Áður komu þær flestar frá Austantjalds- löndunum gömlu góðu og að sögn kunnugra voru þetta heiðarlegar og góðar stúlkur sem vildu græða peninga hér á landi því þær voru að deyja úr blankheitum heima fyrir. Þær fá varla að græða meira á okkur og menn I geir- anum kvarta (hljóðlaust auðvitað því þeir verða að ganga meö veggjum svo stóri bróðir sparki ekki í punginn á þeim) yfir því að nú standi þeim bara hórur frá Amsterdam til boða. Það er kannski það sem Stóri bróðir er að leita eftir. Sigur Rós til Japans Þær fréttir berast nú úr herbúðum snillinganna í Sigur Rós aö förinni sé heitið til Japans. Pilt- arnir munu leika þar á tvennum tónleikum og má vfst telja að þar fái þeir að kynnast helberri geðveiki Japananna þeg- ar kemur að vestrænni tónlist. Þessa dagana eru þeir annars mest að vinna f bransamálum með útgáfufyrirtæki sfnu Fatcat á skrifstofu sinni en platan Ágætis byrj- un kemur út f ágúst úti í Bretlandi. Grímur í Borgarieik- húsinu Snillingurinn Hallgrimur Helgason fæst ekki úr Hrfsey fyrr en f haust en þær fréttir hafa borist af kauöa að eyjaskeggjar taki honum vel. Allir vinir og svona. En þegar Grimur kemur f haust mætir hann með leikrit á milli handanna. Borgarleikhúsið tekur við þvf og smellir þvf upp á svið á nokkrum vikum. Það er þvf mikils að vænta frá Grfmi og nokkuð víst að Bjarni Haukur fær ekki að böðla leikritinu Ifkt og hann gerði við Kossinn. heimasíða vikunnar http://www.StilGprojGCt.comC Sumar vefsíður er einfaldiega ekki hægt að segja mikið um. Þetta er ein þeirra. Ástæðan fyrir því er sú að hún er svo mikil gargandi snilld að orð fá eigi lýst. Hér er ekkert að fmna. Hér er hægt að finna allt. Skötur á íslandi Stileproject.com er ekki gömul síða. Umsjónarmaðurinn segist hafa byrjað á henni i október á síð- asta ári til að deila allri vitleysunni sem hann grefur upp á Intemetinu með öðrum. í fyrstu birti hann ein- ungis pistla og örfáar myndir en þegar aðsóknin fór að aukast henti hann sér út í djúpu laugina. Hann fylgir þeirri heimspeki að þar sem að lífiö sé ekki alltaf fallegt er Intemetið það ekki heldur þannig að í dag er síðan troðfull af alls kyns vitleysu, hvort sem það er ógeðslegt, fallegt, fyndið, kynæsandi eða ljótt. Þannig er auð- velt fyrir viðkvæmar sálir að forð- ast ljótleikann og finna fyndnina. Síðan býður upp á drepfyndin kort sem hægt er að senda vinum og vinnufélögum, linka á fiölmarg- ar vefmyndavélar þar sem sjá má alls kyns fólk gera alls kyns hluti. Þá er rétt að minna fólk á að kíkja neðst á síðuna þar sem finna má skjalasafn yfir allt það sem birst hefur á síöunni frá upphafi. Það ætti ekki að svíkja neinn. Það sem helst er á döfinni á Stile þessa dagana er hins vegar mynd- skeið sem tekið er úr nýlegri hjóla- *i«nt ( • »A Port.í.fFvd M.RÍ* frakcr brettamynd frá Landspeed hjóla- brettafyrirtækinu, CKY2K. Um- sjónarmaður síðunnar lýsir því yfir að þetta sé það fyndnasta sem hann hafi nokkurn tímann fundið á Intemetinu. Þar má sjá skötur sem komu hingað til lands síöast- liðið haust tO að taka upp fyrir myndina drepa tímann á hótelher- bergi í Reykjavik með því að ... sjón er sögu ríkari. Tékkið á Stile - daglega. 21. júlí 2000 f Ó k U S 13

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.