Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2000, Page 10
10
Hagsýni
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000
DV
Garðshorn:
Ræktun við sjávarsfðuna
- ýmsar víðitegundir hafa reynst vel
Vindbarin viöja
Garðeigendur við sjávarsíðuna
kannast flestir við það vandamál
að finna plöntur sem þola sjávar-
seltu. Úrval saltþolinna tijáplantna
er því miður fátæklegt en inn á
milli leynast tegundir sem eru
harðgerðari en aðrar og ýmis ráð
eru til að verja plöntumar fyrir
verstu skemmdunum.
Seinni hluta vetrar og fram á
vor ber særokið mikið af salti á
land og hluti af þvi sest á plöntum-
ar. Flestar trjáplöntur eru við-
kvæmar fyrir salti og mestar
skemmdir verða þeim megin sem
er áveðurs. Plöntumar taka upp
saltið sem situr á þeim og þegar
vorar flytja þær það í ársvöxtinn.
Salt i jarðvegi hefur ekki eins
slæm áhrif þar sem hluti þess skol-
ast úr honum og sumar plöntur
taka ekki upp salt með rótunum.
Blaðskemmdir á trjám og runn-
um koma fram um mitt sumar og
þekkjast greinilega á því að gömul
blöð gulna og þoma á jöðrunum.
Blöðin verpast en æðastrengimir
haldast grænir. Skemmdir af þessu
tagi eru mismunandi eftir tegund-
um. T.d. sjást þær sjaldan á ösp en
era áberandi á hlyni. Þar sem sjáv-
arrok er mikið getur safnast salt á
greinamar og ef saltið skolast ekki
af þeim getur það dregið allan
vökva úr þeim. Við þannig aðstæð-
ur kemur fram það sem kallað er
saltkal sem lýsir sér í því að enda-
bramin og vaxtarsprotamir þoma
upp og drepast.
Saltskemmdir á barrtrjám koma
fram snemma á vorin, í lok mars
eða byrjun apríl. Mest eru
skemmdirnar áberandi á þeirri
hlið sem snýr að sjó og á efra borði
barrsins. Endamir á barrinu byrja
á því að verða brúnir en smám
saman dökknar allt barrið og að
lokum dettur það af. Séu skemmd-
irnar litlar vex nýtt barr úr enda-
braminu. Sé aftur á móti um mikl-
ar skemmdir að ræða geta heilar
greinar eða jafnvel öll plantan
drepist.
Hvað er til ráða?
Besta ráðið til að komast hjá
saltskemmdum er að rækta salt-
þolnar tegundir. Ýmsar víðiteg-
undir hafa reynst mjög vel. T.d.
eru gulvíðir, hreggstaðavíðir,
brekkuvíðir, alaskavíðir og jörfa-
víðir mjög þolnir. Sitkagreni,
garðarifs, viðja, runnamura og
hansarósir hafa einnig reynst vel
við erfiðar aðstæður en það getur
þó verið nauðsynlegt að skýla
Helgartilboðin
Þá er verslunarmannahelgin að
baki og allt sem henni fylgir. Helg-
artilboð verslana era samt sem áður
á sinum stað og nú með svolítið
öðru sniði en í siðustu viku, eðli
málsins samkvæmt. Þó er eitthvað
um grillmat og sælgæti eins og síð-
ast.
110/11
er að finna
bæði kjöt og
sætindi, rauð-
vínslegnar
svínakótelettur í''
helgarmatinn,
beikon og egg í morgunverðinn og
vínarpylsur fyrir krakkana á laug-
ardagskvöldið. Smánammi og kex
til að setja punktinn yfir i-ið.
Uppgrip - Olís
heldur sig við sælgæti
og kex. Prince Polo, Mar-
yland súkkulaði og
strumpar í öllum litum
mynda uppistöðuna í tilboð
um helgarinnar þar. Ekki
il hollusta þar á bæ.
Hagkaup
býður svínakjöt, smjörliki,
ávaxtasafa og Orkumjólk. Sitt lítið
af hverju en ekki mjög margar vöra-
tegundir.
I Nýkaupi
er hins vegar
heldur fleira á
boðstólum.
Þar má finna
pasta, bæði far-
falle og fusilli,
nautahakk og pitsur
með ýmsu áleggi, ávaxta-
safa til að skola herlegheit-
unum niður með og svo sal-
at með. Alltaf gott að hafa
eitthvað grænt á diskinum.
Hjá KA-verslunum
er heldur fátt að fá
jt á tilboði, aðeins fjór-
p ar vörutegundir
f. sem að visu spanna
' vítt svið: svína-
hnakki, smurkæfa, Bio-
og kex. Það verður
kannski meira næst...
Hraðbúðir Esso
eru á sömu línu og Uppgrip -
Olís, að mestu leyti sælgæti þar í
boði. En ljós í myrkrinu era verjur.
Þeir feimnu, sem ekki þora í apótek-
ið til að stynja upp erindinu, fara
kannski á bensínstöðina 1 stað-
inn. En kannski er það löngu
liðin tíð að menn þurii í apótek
eftir verjum? Hvað um það, á
tímum sjúkdóma og offjölgun-
ar er aldrei of varlega farið og
gott að hafa aðgang að þeim
sem víðast og ekki sakar að
hafa sértilboð á þeim.
Nóatún
er að hugsa um kvöldið.
Þar býðst Dala brie og Bónda
brie ásamt kaffi og
poppkomi og svo súpa
með, svona ef það
skyldi verða kalt úti og V
menn vildu hlýja sér.
Þín verslun
fer vítt og breitt. Pylsur með
tómat, vanilluís í eftirmatinn,
jógúrt og brauð. Blautklútar til að
þrífa ungana eftir matinn og
súkkulaði með kafflnu og reyndar
kaffi líka. Næstum allt sem þarf.
í Fjarðarkaupum
má fá ýmislegt fyrir grillið, svo
sem lambaframhryggjarsneiðar,
grill-gráðostssósu, hvítlauks- og pip-
arsósu, svo nóg úrval ætti að vera
fyrir alla gestina um helgina.
Einnig er tilboðsverð á eggjum,
súkkulaði og ávöxtum í eftirmatinn.
Sparverslun
býður upp á hakk, lauk,
spaghetti og tómatsósu og
greinilega búið að plana mat-
seðilinn, hakk og spaghetti í
laugardagsmatinn. Það er ágætt
enda er það ódýr matur og saðsam-
ur. í eftirmatinn eða með kafflnu
býðst svo rúlluterta, svo ekki þarf
einu sinni að baka. -vs
þeim fyrir verstu áttunum eða
skola af þeim eftir sjórok. Skjól-
girðingar veita einnig góða vöm
fyrir sjávarroki og einnig er gott
að vefja viðkvæmar tegundir inn í
striga yfir veturinn. Þessi aðferð
ver plönturnar líka fyrir köldum
vetrarvindum og kemur í veg fyrir
kal. Heilbrigðar og hraustar plönt-
ur þol betur salt en plöntur sem
eru kyrkingslegar og þjást af
áburðarskorti.
Þeir sem leggja stund á garðrækt
við sjávarsíðuna ættu að kynna sér
vel saltþol plantna áður en þær eru
settar í garðinn. Með því er hægt
að spara sér mikla vinnu og kostn-
að við plöntukaup. Það er fátt leið-
inlegra en að horfa á fallegar og
gróskumiklar plöntur veslast upp
og drepast ár eftir ár bara vegna
þess að þær era vitlaust valdar.
Barátta um
starfsfólk
í DV í gær (miðvikudag) eru smá-
augiýsingar að vanda. I dálkinum
þar sem auglýst er eftir fólki vekur
athygli að Bónus auglýsir eftir fólki
til afgreiðslustarfa og býður 360
króna bónus auk vaxta á tveimur
árum ef fólk skuldbindur sig til að
vera hjá fyrirtækinu þann tíma.
í næstu auglýsingu íyrir neðan er
McDonald’s að auglýsa og býður
20% bónus til þeirra sem vinna dag-
vinnu og 10 þús. krónur fyrir að
mæta alltaf. Þar eru byijunarlaun
skv. skala en fólk getur unnið sig
upp og hækkað í grunniaunum.
Svanur Valgeirsson, starfsmanna-
stjóri hjá Bónus, segir markmið hins
nýja samnings hjá Bónusi þann að
laða að heldur eldra og þroskaðra
starfsfólk og umbuna þeim flöl-
mörgu sem eru lengi hjá fyrirtæk-
inu. „Við viljum fá fólk sem er tilbú-
ið að binda sig hjá okkur í þennan
tima og helst fólk sem er ekki alveg
bráðungt, þó svo hér vinni mikið af
duglegu ungu fólki líka,“ segir hann.
„í viðbót við lægsta vöruverð erum
við að gera mikið átak í að bæta
þjónustuna og höfum látið gera hjá
okkur reglulega gæðakannanir upp
á síðkastið og verðum með þær
áfram. Við erum nefnilega á þeirri
skoðun að þó verðið sé lægst hjá
okkur eigi það ekki að þurfa að
koma fram í gæðum á þjónustunni
og lítum í því sambandi til hol-
lenskrar verslunarkeðju sem býður
mjög lágt vöruverð en frábæra þjón-
ustu.“ -vs
Tilboð verslana
Tilboöin gilda í ágúst.
0 Prince Póló, 3 x 132 g 109 kr.
0 Maryland fudgies, 150 g 89 kr.
0 Maryland hnetu, 150 g 89 kr.
0 Maryland kókos, 150 g 89 kr.
0 Maryland súkkulaöl, 150 g 89 kr.
0 Strumpar, appelsínugullr 40 kr.
0 Strumpar, bleikir 40 kr.
0 Strumpar, grænlr 40 kr.
0 Strumpar, gullr 40 kr.
0 Strumpar, rauöir 40 kr.
10-11 ■
Tllboöln gilda til 17. ágúst.
0 Rauövínsl. svínakótel. 973 kr. kg
0 Beikon og egg 298 kr. kg
0 Gourmet lambalæri 998 kr. kg
0 Goöa vínarpyisur 523 kr. kg
0 Mentos, 3 teg. 59 kr.
0 Prlnce Polo, 4 x 40 g 159 kr.
0 Maryland kex, 150 g Q Q © 79 kr.
Nóatún
Tilboöln gilda á meöan birgöir endast.
0 Bla M. kaffí mlllir., 500 g 249 kr.
0 Dala brle ostur, 150 g 189 kr.
0 Bónda brle, 100 g 135 kr.
0 O & S sveppasúpa, 300 g 119 kr.
0 Maarud poppkorn, 150 g Q Q Q Q © 50 kr.
Hraöbiiöir Esso
Tilboöln gllda til 31. ágúst.
0 Göteborg Ballerina, 180 g 85 kr.
0 Freyju staur, 40 g 59 kr.
0 Nóa Skúlupúkar, 60 g 59 kr.
0 Nóa Plparpúkar, 60 g 59 kr.
0 Nóa hlaupapúkar, 60 g 59 kr.
0 Nóa Fýlupúkar, 60 g 59 kr.
0 Góu Prlns, 40 g 39 kr.
0 Nóa Pipp, 40 g 49 kr.
0 Verjur Okeido 495 kr.
0 Verjur Cho-San 495 kr.
0 Bestu kaupin súpukjöt 399 kr.
0 Ljóma smjörliki, 500 g 99 kr.
© Brazzi appelsínusafi, II 89 kr.
0 Brazzi eplasafí, 11 89 kr.
0 Orkumjólk Jaröarb., 330 ml 85 kr.
0 Orkumjólk súkkulaöl, 330 ml 85 kr.
0 Orkumjólk vanilla, 330 ml 85 kr.
o
Q
©
Þm verslun
Tllboöln gilda tll 16. ágúst.
0 Stubbapylsur m/tómat 669 kr.
0 Þín verslun vanllluís, 11 99 kr.
0 Pascual Jógúrt, 500 g 189 kr.
0 Pampers blautklútar, refíll 298 kr.
0 Mllka súkkulaöi, 100 g 99 kr.
0 Toblerone súkkulaöl, 100 g 99 kr.
0 BKI lúxus kaffí, 550 g 298 kr.
0 McVities kex, 300 g 139 kr.
0 Þín verslun brauö 129 kr.
©
0 Barilla farfalle, 500 g 64 kr.
0 Barilla fusllll, 500 g 64 kr.
0 SS New yorker UN-hakk 799 kr. kg
0 Goodfellas 9“ osfa pitsa 299 kr.
0 Goodfellas 9“ pepper. pitsa 299 kr.
0 9“ skink./ananas pitsa 299 kr.
0 Rynkeby appelsínus., 21 219 kr.
0 Rynkeby eplasafi, 21 219 kr.
0 Rynkeby 16 bl. ávextir, 21 219 kr.
0 Alabama salat, 250 g 229 kr.
0 Grill lambaframhrsn. 598 kr. kg
0 Grill gráöostasósa 99 kr.
0 Grill hvítlaukssósa 99 kr.
0 Grlll piparsósa 99 kr.
0 EggxlO 139 kr.
0 Plómur 139 kr. kg
0 Nektarínur 189 kr. kg
0 Ferskjur 189 kr. kg
0 Prins Póló x 3 99 kr.
©
0 SS Mexico svínahnakkasn. 798 kr.
0 SS smurkæfa, 200 g 119 kr.
0 MS Bio mjólk, 500 ml 89 kr.
0 McVitles Hob-nobs, 250 g 119 kr.
Q
Q
O
o
o
©
Sparverslun
Tilboöin gilda tll 16. agust.
0 Nautgripahakk 499 kr. kg
0 Laukur 48 kr. kg
0 Federici spagetti, 600 g 49 kr.
0 Heinz tómatsósa, 680 g 99 kr.
0 Basmati hrísgrjón, 500 g 133 kr.
0 Balconi rúllutertur, 200 g 109 kr.
0 Papco wc-pappír, x 8 199 kr.
Q
Q
©