Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2000, Page 28
R(ívkjavík: 5<SI 221.1 &\ \kur<*vri: »(il I !">(:
Reyk j avíkurflugvöllur:
Flugumferð í gegn-
um garðinn minn
- segir íbúi
Flugmálayflrvöld og þeir sem standa
að framkvæmdum við Reykjavíkur-
^ flugvöll og rekstri hans boðuðu til ná-
grannakynningar á framkvæmdunum
og aðdraganda þeirra í Ráðhúsi Reykja-
víkur klukkan 20 í gærkvöld. Er fund-
urinn í kjölfar mikiila óánægjuradda
frá íbúum f nágrenni flugvaUarins.
„Mér þætti fróðlegt að vita hvort það
samræmist reglugerðum að flugvélar
séu að fljúga beint í gegnum garðinn
minn við 100 desíbela hávaða. Hversu
hátt upp nær garðurinn minn?“ segir
Ólafur Guðmundsson sem segist hafa
mælt flugvélar fljúga allt niður í 20
metra hæð yfir heimili sínu að Sóleyj-
argötu 7.
Upplýst var að framkvæmdum á
þessu ári mun ljúka á næstu vikum og
verða allar brautir á Reykjavíkurflug-
velli opnar 30. september næstkom-
* andi. Einnig kom fram að framkvæmd-
um hefði seinkað lítillega þar sem Suð-
urlandsskjálfti hefði valdið bilunum í
tækjabúnaði. -jtr
Athafnamaðurinn kunni færir enn út kvíarnar:
Sigurjon kaupir 50 ibuða blokk /
... j
- kaupverð um 250 milljónir
Athafnamaðurinn kunni, Siguijón
Sighvatsson, hefur keypt húseignina
að Hátúni 6 í Reykjavík. Samkvæmt
heimildum DV mun kaupverð nema
um 250 milljónum króna. Að kaupun-
um standa, ásamt Siguijóni, tveir í fiöl-
skyldunni, en hann mun eiga stærstan
hlut eignarinnar.
í Hátúni 6 eru 50 leiguíbúðir. Hús-
næðið hefur verið rekið í nafni eignar-
haldsfélagsins Húseignin Hátúni 6 og
síðar Amaróss hf. Forráðamenn þess
félags eru Fannberg-fiölskyldan. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur þegar ver-
ið gengið frá kaupsamningi. Hann fel-
ur í sér að seljendur stofna hlutafélag
undir heitinu Hátún 6. Hlutafé verður
um 100 milljónir króna. Hlutafélagið
skiptir um eigendur og húseignin þar
með.
Nýir eigendur munu ætla að leigja
íbúðimar út áfram þannig að ekki
verður um neinar breytingar gagnvart
leigjendum að ræða. Skammt hefur
verið milli stórra högga í viðskiptum
Siguijóns hér á landi að undanfómu.
Eins og komið hefur fram í DV hefur
Herra Ólafur Ragnar Grímsson vísar leigjendum sínum á dyr:
Forsetinn ber út mæðgur
- leitar aðstoðar dómstóla við útburðinn
Forseti íslands, herra Ólafur héraðsdómur á útburðarkröfu
herra
Ragnar Grimsson, hefur krafist þess
að leigjandi hans í raðhúsinu á
Barðaströnd 5 á Seltjamamesi verði
borinn út með lögregluvaldi. Útburð-
arkrafa forsetans var þingfest fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðju-
dag og má búast við úrskurði dóm-
ara á næstu dögum.
Leigjandinn, 45 ára gömul kona
sem býr í húsinu ásamt 18 ára dótt-
ur sinni, má því búast við að þurfa
að hverfa þaðan með pjönkur sínar
áður en vetur gengur í garð fallist
leigusalans, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar.
DV er ekki kunnugt um ástæðu
útburðarkröfu Ólafs Ragnars sem
bjó í húsinu á Barðastönd 5 ásamt
fiölskyldu sinni þar til hann tók við
embætti forseta landsins í ágúst
1996. Ekki náðist í lögmann Ólafs
Ragnars, Sigurð G. Guðjónsson, sem
nú er í fríi, og fulltrúi Sigurðar valdi
að upplýsa DV ekki um málsatvik.
Leigjandinn sjálfur svaraði ekki
skilaboðum DV. -GAR
Húsbændur og hjú
Leigi'andi forsetans vill ekki yfirgefa
raðhúsiö á Barðaströnd 5 og hefur
því verið leitað ásjár dómstóla.
hann keypt Hellisfiörð, fest sér eyju á
Breiðafirði og fiárfest í sjónvarpshús-
inu við Laugaveg. Hið síðastnefnda
verður nú senn tilbúið til að sinna nýj-
um eiganda og nýju hlutverki því þessa
dagana er unnið að því að flytja búnað
ríkissjónvarpsins upp f Efstaleiti.
Flutningum á að vera lokið um næstu
mánaðamót. -JSS
STOREIGIM
FASTEIBNASALA
Austurstraeti 18» Sími 55 12345
"HLSUNKAP**0
I
Bellatrix og bíó-
myndir
í Fókus á morgun verður greint
frá enn einni nýrri íslenskri kvik-
mynd sem byrjað er að taka og
heimildarmynd sem verið er að
gera um líf ungs fólks á íslandi en
sú mynd er hluti af samevrópsku
verkefni. Elíza M. Geirsdóttir, söng-
kona Bellatrix, segir frá velgengn-
inni í Bretlandi og hægt er að læra
listina að hefna sín á fyrrverandi
kærustum. Fjallað er um keppnina
Herra ísland sem fer að nálgast og
nokkrir snillingar úr verðbréfa-
heiminum, sem sáu myndina Amer-
ican Psycho, segja okkur hvort til sé
Patrick Bateman á íslandi. Þá er
Lifið eftir vinnu á sínum stað, ná-
kvæmur leiðarvísir um skemmtana-
^ og menningarlífið í borginni.
DUGÐ\ EKKI EIN IBUD?
Opinber rannsókn
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000
Opinberri heimsókn Olafs Ragnars Grímssonar og fylgdarliðs til Kanada lauk í gær. Hér má sjá Siv Friðleifsdóttur umhverfisráðherra þreifa á sjávarfangi
Hafrannsóknastofnunar í Halifax.
á
„Þetta er orðið lög-
reglumál.' Ég hef fyr-
ir hönd landbúnaðar-
ráðuneytisins farið
fram á opinbera
rannsókn á málinu,“
sagði Halldór Run-
ólfsson yfirdýra-
læknir um víkinga-
Halldór skipið Hvitserk sem
Runólfsson. lét úr höfn á Höfn í
Hornafirði fyrir síð-
ustu helgi. Um borð var stóðhestur og
tvær vel ættaðar merar sem skipað
hafði verið um borð í trássi við bann
yfirdýralæknis. Hvitserkur lét svo úr
höfn með farm sinn ótollskoðaðan
áður en lögreglan fékk rönd við reist.
víkingaskipi
„Ég skoðaði aðbúnað um borð í vík-
ingaskipinu og í framhaldi af því tók
yfirdýralæknir þá ákvörðun að hross-
in færu ekki með. Sú ákvörðun stóð
þegar Hvítserkur fór héðan óskoðaður
úr útflutningshöfn," sagði Kjartan
Hreinsson, dýralæknir á Höfn. „Mitt
mat var að skipið væri ekki öruggur
flutningskostur fyrir hrossin yfir haf-
ið.“
Edda Símonardóttir, staðgengill
sýslumannsins á Höfn, segir mál vík-
ingaskipsins i rannsókn en það mun
nú lóna úti fyrir Noregsströndum með
graðhestinn og meramar tvær neðan
þfija. Engir tollpappírar fylgja skepn-
unum og því útilokað að skipstjóri
Hvítserks fái að fara með skepnurnar
í land. Hrossin munu hafa verið í eigu
nafntogaðra hestamanna á suðaustur-
hominu en ekki er ljóst hvort skip-
stjórinn keypti þau eða tók að sér
flutning þeirra yfir hafið.
Víkingaskipið Hvitserkur kom
hingað til lands frá Noregi fyrir
skemmstu með viðkomu í stafkirkj-
unni í Vestmannaeyjum. Þaðan var
haldið til Hafnar í Hornafirði þar sem
hrossakaupin fóru fram sem nú hafa
leitt til opinberrar rannsóknar að
kröfu yfirdýralæknis. -EIR
Hvítserkur
Lónar nú úti fyrir Noregsströndum
með pappírslausan stóðhest og
tvær merar neðan þilja.
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555