Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000 19 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformabur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aðstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarbiaö 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Lítill á borði Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaöur hefur um ára- tuga skeiö átt samskipti við fjölmiöla. Raunar hafa fáir ís- lendingar verið jafn duglegir viö aö koma sér á framfæri meö einum eða öörum hætti og Jakob Frímann í gegnum árin þó tilefnin hafi ekki öll veriö merkileg. Af einhverjum undarlegum ástæðum hefur Jakob Frí- mann ruöst opinberlega fram meö svæsnar árásir á blaða- menn DV og á blaðið sjálft, fyrst í Morgunblaðinu síðastlið- inn þriðjudag og síðan á Skjá 1 sama kvöld. Eftirtektarvert er að Jakob Frímann skuli telja sig þess umkominn að koma fram opinberlega í klæðum siðapostula og varðmanns góðra gilda í íslenskri blaðamennsku. Fullyrðingar Jakobs Frímanns um samskipti hans við DV og blaðamann þess eru rangar og eiga lítið skylt við sannleik- ann. í febrúar siðastliðnum stóð Jakob Frimann á krossgöt- um í lífi sínu á margan hátt og þótti það vera tilefni til við- tals við hann í Helgarblaði DV. Jakob Frímann las yfir end- anlega útgáfu á viðtalinu og veitti samþykki sitt fyrir því. Þá fékk Jakob Frímann að fylgjast með vinnslu allra mynda sem birtust með viðtalinu og var vegna þessa inni á ritstjórn DV klukkustundum saman. Fáir ef nokkrir viðmælendur hafa fengið að fylgjast jafn náið með vinnslu efnis í DV og Jakob Frímann fékk að gera. Hann verður hins vegar að eiga það við sjálfan sig ef hann fær bakþanka eftir að viðtalið hefur. birst opinberlega. En það er sérkennileg samviska sem leyfir manni að ráðast með svívirðingum að nafngreindum einstak- lingi með þeim hætti sem Jakob Frímann gerir. í þessu sambandi er hins vegar vert að undirstrika þá reglu sem gildir á ritstjórn DV og gildir á flestum ef ekki öll- um ritstjórnum alvöruprentmiðla: DV lætur aldrei frá sér ritstjórnarleg völd út í bæ. Þannig eru fyrirsagnir, millifyrirsagnir og uppsetning efnis alfarið í höndum ritstjórnar DV og ekki annarra. Blaðamenn DV hafa það sem reglu að lesa yfir texta (sé þess óskað) fyrir við- mælendur en þá aðeins það sem haft er eftir viðkomandi. Þegar um lengri viðtöl er að ræða, svo sem viðtöl í Helgar- blaö DV, fær viðmælandi að lesa yfir viðtalið í heild sinni, óski hann eftir því, og getur komið að athugasemdum og/eða leiðréttingum. Fjölmiðlar þurfa eins og aðrir að sætta sig við gagnrýni - slíkt er eðlilegt. Lesendur eiga kröfu til þess að fjölmiðlar hlusti á gagnrýni og lagfæri það sem miður fer í starfi þeirra. Enginn fjölmiðill, frekar en önnur mannanna verk, er hafinn yfir slíkt. En árásir Jakobs Frímanns eiga ekkert skylt viö sanngjarna gagnrýni eða athugasemdir. Dylgjur og óhróður eru vopn þeirra sem ekki hafa sannleikann að leið- arljósi. Og persónuníð og mannorðsvíg eru úrræði þeirra sem glatað hafa málstaðnum. Slíkir menn eru miklir í orði en litlir á borði. Jakob Frímann hefur ekki orðið stærri maður með fram- göngu sinni síðustu daga. Fyrirsögrt í Helgarblaði Ritstjórn DV geta orðið á mistök og þegar slíkt gerist hef- ur blaðið leitast við að leiðrétta þau með viðeigandi hætti. Svo kann að vera að fyrirsögn í Helgarblaði DV, Skúrkurinn í Valhöll, hafi verið mistök þó viðmælandi blaðsins hafi ekki kvartað undan henni. Nauðsynlegt er að skoða fyrirsögnina í samhengi við for- síðumynd, tilgang og tilefni viðtalsins sem þar var að baki. Hugmyndin var að ná fram íróníu eða orðaleik. Þetta kann að hafa misskilist eða ekki komist til skila með þeim hætti sem ritstjórn DV ætlaði. Þau mistök skrifast á ritstjóra blaðsins en ekki einstaka blaðamenn. Oli Bjorn Karason DV Af góðum röddum og slæmum Á ljósvakafjölmiðlunum er margt gott fólk með góð- ar raddir. Þegar ég hugsa til baka koma upp í hugann margar ómþýðar raddir sem lásu fréttir í áranna rás. Og þulir töluðu undan- tekningarlaust góða ís- lensku hér áður fyrr. En nú virðist mér að hvort tveggja hafi farið aftur, íslenskunni og raddgæðunum. Rita mætti langa pistla um máifarið eitt og sér og skökku áherslurnar sem nú tröllríða íjölmiðlunum. Áberandi er t.d. um þessar mundir rangur fram- burður þegar notuð eru samsett orð og áherslan kemur á síðara orðið. Þar virðist mér ensk áhrif vera að breyta íslenskri málhefð. - Nóg um málfar I bili en ég ætla í þessari grein að íjalla um raddir í íjölmiðlum og raddbeit- ingu þula og fréttamanna. Sönglandi og popprásahrynjandi Það er mikil list að beita röddinni svo hún hljómi vel og skýrt. Þegar hlustað er á raddir fólks og gæði þeirra metin kemur margt í ljós. Það leynir sér ekki að sumir þulir beita rödd sinni ekki af kunnáttu. Sumir tala með munninn herptan og opna varla bil á milli framtanna. Það er engu líkara en þeir hafi gleypt tannlím. Áðrir tala of mikið i gegnum nefið og stynja út úr sér orðunum, líkast því sem vélindað sé helsta radd- færið. Þá þekkist það líka að talað sé þvoglukennt og óskýrt eins og viðkomandi sé á 5. glasi. Og aðrir tala allt of hratt. Svo er það sönglandinn og popprásahrynjandin sem komin er inn í sjónvarpið t.d. hjá íþróttafréttamönnum. Skyldur gagnvart hlustendum Þetta leiðir hugann að því hvort ljósvakafjölmiðlar geri ekki kröfur til raddgæða og framsagnar þegar þulir og fréttamenn eru valdir til starfa. Er ekki sjálfsagt að gera kröfu um kunnáttu á þessu sviði á sama hátt og gert er með söngvara? Nú gætu einhverjir haldið því fram að allir eigi að hafa sömu möguleika til starfa, taka verði tillit til ólíkra blæ- brigða mannlifsins, fótlunar o.s.frv. Örn Bárður Jónsson prestur „Ríkisútvarpið, sem rekið er af almannafé og skyldar mann auk þess til að greiða fyrir afurðir sínar, hefur þcer skyldur gagnvart hlustendum að vanda val á þul- um. “ - Ungar útvarpsstjömur við Útvarpshúsið. En þá verð ég að segja að varla fengi ég vinnu við íslenska dans- flokkinn með mitt vaxtarlag og hreyfigetu. Ekki geta allir dansað eða talað af list. Ríkisútvarpið, sem rekið er af almannafé og skyldar mann auk þess til að greiða fyrir af- urðir sínar, hefur þær skyldur gagn- vart hlustendum að vanda val á þui- um. Tillitssemi við neytendur Sama má segja um einkareknu fjölmiðlana. Þeir þurfa líka að huga að gæðum og tillitssemi við neytend- ur, svo ekki sé minnst á það sem vin- ur minn kallar „óbærilegan vaðal í sumum samtölum plötusnúðanna". Fjölmiðlarnir þurfa að hafa á að skipa málfarsráðunautum og kenn- urum i framsögn og raddþjálfun. Það er vægast sagt óþægilegt fyrir hlustendur að þurfa að hlýða á illa þjálfaðar raddir dag hvern. Fjölmiðl- arnir dæla yfir okkur efni í síbylju. Því verður að gera þá kröfu til þeirra að þeir velji hæft fólk til starfa. Fagr- ar heyrði ég raddimar á árum áður en nú fækkar þeim. - Raddir fólksins þurfa að standast gæðakröfur. Öm Bárður Jónsson Sigrar Sleipnir Samtök atvinnulífsins? Blað allra landsmanna birti 27. ágúst sl. taxta sem bílstjórafélagið Sleipnir hefur gert við átján fyrir- tæki. Þar er horfið frá því að lág- markslaun bílstjóra séu 76 þúsund krónur á mánuði (með hækkun í 96 þúsund krónur eftir 15 ára starfs- reynslu). Ekki er því lengur miðað við það í samningnum að laun at- vinnubílstjóra séu nokkrum þúsund- um hærri en hjá ellilífeyrisþegum. Samkvæmt nýja taxtanum í Moggan- um hækka byrjunarlaun í 90 þúsund (með möguleika á 127 þúsund króna hækkun eftir 15 ára starfsreynslu). Einungis hafa 18 fyrirtæki samþykkt þennan samning og bílstjórar því enn í sárum, undir yfirborðinu kraumar enn reiði þeirra. Verkfalli sem hófst 8. júní lauk tæpum sex vikum síðar eftir 30 fundi hjá sáttasemjara og ekkert kom út úr því. Kemur nokkrum á óvart þótt bíl- Kjallari stjórar haldi því fram að það hafi aldrei staðið til hjá Ara Edwald að semja við Sleipni? Greitt fyrir úrsögn Ekki stóð á því að kasta hundruðum milljóna á glæ . til þess að knésetja Sleipni og því eðlilegast að spyrja hver hann er þessi fram- kvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins. Jú, Ari Ed- wald er fyrrum aðstoðar- maður Daviðs Oddssonar og Þorsteins Pálssonar. Augljóslega er hann alinn upp við þá hægri öfga að stéttabaráttan sé mis- skilningur sem beri að leiðrétta. Og hvernig, er farið að því? Fyrstu við- brögðin'hjá Ara Edwald var að láta rigna lögbannskröfum yflr verkfall Sleipnis. Síðan þá hefur hann farið Trausti Einarsson sagnfræOingur fram á það við fyrirtæki sem hafa samið við Sleipni að þau greiði ekki umsam- inn taxta. - Þetta hljómar kannski undarlega en í raun er farið fram á að fyrirtæki brjóti löglega samninga. Hjá Hópbílum, Hagvögn- um og AUra handa eru bíl- stjórum greitt fé fyrir það að ganga úr Sleipni. Fyrirtækj- um sem semja ekki við Sleipni stendur til boða að fá fé greitt úr sjóðum at- vinnulífsins að því tilskildu að þau semji ekki við Sleipni? Þeim fyrirtækjum sem semja við Sleipni er hótað, að þau fyrirgeri rétti sínum til fébóta. Skyldu þessi viðbrögð nokkuð stafa af þyi að Sleipnir hefur verið að eflast? Á undanfómum árum hafa gengið í Sleipni strætisvagna- og „Verkfalli sem hófst 8. júní lauk tœpum sex vikum síðar eftir 30 fundi hjá sáttasemjara og ekkert kom út úr þvi. Kemur nokkrum á óvart þótt bílstjórar haldi því fram að það hafi aldrei staðið til hjá Ara Edwald að semja við Sleipni?“ - Verkfallsátök við Leifsstöð. vöruflutningabifreiðastjórar sem hafa staðið utan áhrifamikilla verka- lýðsfélaga. Stafa þessi viðbrögð af nokkru öðru en því að Samtök at- vinnulífsins óttast það að sterkt stéttarfélag atvinnubílstjóra sé í fæð- ingu? Hvað stendur í veginum? Taxti Sleipnis hefur ekki einungis verðir birtur í Mogganum heldur einnig í blaði félagsmanna og fróð- legt verður að sjá að hve miklu leyti hann verður notaður við launaút- reikninga hjá fyrirtækjum um þessi mánaðamót. Viðbrög Samtaka at- vinnulífsins hafa veriö þau að kalla samningagerðina gervisamninga. Margir af bílstjórum í Sleipni starfa i ferðaþjónustu og því liggur eðlilegast við að spyrja hvað standi í vegi fyrir því að ferðaþjónustan bjóði mannsæmandi laun Þar tíðkast undirboð við samningagerð en hvers vegna þurfa lág laun að vera undir- staða slíkra samninga? Ferðaþjón- ustan er einn helsti vaxtarbroddur í atvinnulífi íslendinga og allt útlit fyrir aukna eftirspum frá ferða- mönnum erlendis. Þegar til þess er hugsað er ekkert sem stendur í vegi fyrir því að það sé og eigi að vera eft- irsóknarvert að starfa í ferðaþjón- ustu íslendinga. Við slikar aðstæður ætti að vera auðvelt að halda þannig á málum að velja mætti úr hæfum starfskrafti. Því fylgir ábyrgð að flytja 40-50 far- þega á milli staða og slíka ábyrgð ber að umbuna með góðum launum. Hvað stendur í vegi fyrir því að laun atvinnubílstjóra séu yfir fátæktar- mörkum? Trausti Einarsson Með og á móti Gott verkfæri afþví góða? Starfsfólk svipt frelsinu 4 „Hlunnindatil- boð geta nýst fyrir- tækjum til að gera vel við starfsmenn sína, t.d. tO að laða fólk eða halda fólki að nýtt lengur. Bónus hefur ákveðið að bjóða öllum starfsmönnum sínum 360 þúsund kr. viðveru- bónus ef þeir vinna tvö ár hjá fyrirtækinu. Með þessu er hvatt tU þess að fólk staldri lengur við og hugsi sig tvisvar um ef það vill hætta. Fyrir- tækið heldur einstaklingnum lengur og fær i staðinn betur þjálfaðan starfs- Svanur Valgeirsson starfsmannastjóri Bónuss mann sem kann betur tU verka. AUir vita hversu dýrt er að þjálfa endalaust upp nýtt fólk. Við vUjum sem sagt ekki hækka taxta fyrir aUa heldur umbuna þeim sem vUja vera lengur. Spurt hefur verið hvort ekki þurfi að hleypa svona launahækkun út i verðlagið en ég segi síður en svo. Dýrast er að vera sífeUt að þjálfa upp fólk og vera þannig aUtaf með ákveðinn hóp sem ekki kann tU verka.“ | fylgjandi því að gert sé vel við starfsfólk r og þess vegna að boðið sé í ferðlög eða upp á einhvers konar glaðn- ing. Þegar hins vegar farið er að nota slíkt sem varanlegt greiðsluform, eins konar kaup- gjald, vakna ýmsar spumingar, ekki síst varðandi þær kvaðir sem fylgja. Er það ekki í ætt við átthagafjötra að greiða fólki tUtekna upphæð fyrir að skuldbinda sig tU að fara ekki frá fyrirtækinu næstu tvö árin eins og mér skUst að Bónus geri og er ekki hætt við því að mætingaruppbót Ogmundur Jónasson formaöur BSRB verði tU þess að tekjulítið fólk, sem má ekki verða af neinni krónu, mæti veikt í vinnuna? Þá má spyija hvort hér sé verið að reyna að komast fram hjá þvi að greiða skatta. Ef þetta er hins vegar tU þess eins að halda í starfsfólk þá kann ég eitt ráð við því og það er að hækka við það kaupið. Það er óbragð af því að bjóða upp á kjör með skUyrðum sem svipta starfs- fólkið frelsinu. Fólk þarf að geta brugð- ist við breytingum í eigin lífi og aðstæð- in- kunna að breytast inni á vinnustaðn- um. Þá gæti komið sér Ula að vera ekki frjáls ferða sinna.“ Æ fleiri fyrirtæki bjóöa starfsmönnum sínum mætingarbónusa, flugferöir til útlanda og aukaflárupphæöir ef fólk skuldbindur sig til aö vinna hjá fyrirtæk- inu í ákveöinn tíma. Ummæli Markaðsleikhúsið „Slæm umfjöUun er betri en engin umfjöU- un, segir einhvers staðar og trútt þeirri hugsun speglar mark- aðsleikhúsið sig í fjöl- miðlunum; ef mynd þess birtist þar reglu- lega er það tU, ef ekkert birtist er makaðsleikhúsið ekki tU.“ Hávar Sigurjónsson leikhúsfræðingur I Mbl.-pistli slnum 6. sept. Mótmæli - hræsni „Hér er mikUvægt að muna að íslandsfór Li Pengs er rökrétt nið- urstaða af stefnu okkar gagnvart Kína og ætti því að vera fagnaðar- eöii á íslandi. Annað væri hræsni. Margir mótmælenda virtust heldur seint átta sig á því að samskipti íslands og Kina hafa verið með mikl- um ágætum. AUt frá þvi að forseti Sameinaðs þings, Salóme Þorkelsdóttir, hélt austur örfáum árum eftir fjöldamorðin og tU sögulegrar ferðar landbúnaðarráðherra, Guðna Ágústs- sonar, í sumar, hefðu þeir átt að standa með mótmælaspjöld á Keflavík- urflugveUi. Það er nefnilega miklu nær að rifa kjaft við sitt eigið heimafólk en einhverja langt aðkomna gesti sem að- eins eru að endurgjalda vinahót." Stefán Jón Hafstein I Degi 6. sept. Einkavæðing „Farsælast væri að hefja einkavæð- ingu Landssimans þegar í haust og setja sér metnaðarfuU markmið um að meirihluti félagsins verði horfmn úr eigu ríkisins fyrir lok næsta árs ... Töf á einkavæðingu Landssimans skaðar því ef tU viU ekki skammtímahagsmuni ríkissjóðs, en hún skaðar tvímælalaust langtímahagsmuni þegnanna." Úr forystugreinum Viöskiptablaðsins 6. sept. Forskot Línu.Nets „Ef borgarstjóri og R-listinn eru sann- færðir um að hafa rétt fyrir sér í þessu máli, þá vaknar auðvitað sú spurning af hverju var ekki gengið tU fimm - ára samnings, eins og upphaflega stóð tU ... Það má sömu- leiðis vekja athygli á því að með þess- ari gjörð, að semja við Línu.Net tU eins árs, í raun tU lengri tíma, eru borgarstjóri og R-listinn að ganga á skjön við yfirlýsta stefnu um útboð og hafa að engu sínar eigin samþykktir." Inga Jóna Þóröardóttir, oddviti borgar- stjórnarflokks sjálfstæöismanna, í Mbi. 6. sept. Skoðun TUefni þessarar greinar er yfirlýs- ing þjóðleikhússtjóra að hann hafi haft veður af góðri hugmynd annars leikhúss og því keypí sýningarréttinn á viðkomandi verki. í nýjum leiklist- arlögum er Þjóðleikhúsinu gert hátt undir höfði enda hefur það verið í forystuhlutverki í íslensku leikhúslífi síðustu 50 ár. Þetta hlutverk kemur einnig fram í árangursstjórnunar- samningi sem menntamálaráðuneyt- ið gerði við Þjóðleikhúsið og undirrit- aður var á siðasta ári. Spurningar vakna í lögunum er undirstrikuð sér- staða Þjóðleikhússins og mikilvægi sem heimahafnar íslenskrar leiklist- ar. Þar segir að Þjóðleikhúsið skuli kosta kapps um hagkvæmt samstarf við stofnanir, félög og aðra sem sinna leiklist. Enn fastar er kveðið á um þetta í árangursstjómunarsamn- ingnum. Þar segir að Þjóðleikhúsið ætli sér að halda áfram að vinna að eflingu og þróun íslenskrar leiklistar með vönduðum leiksýningum i hæsta gæðaflokki og að Þjóðleikhús- ið ætli sér að ná því meðal annars með samstarfi við önnur leikhús og menningarstofnanir. Einnig segir í sama samningi að haldið verði áfram því jákvæða sam- starfi sem Þjóðleikhúsið hefur átt við hina ýmsu leikhópa og leikhús (leturbreyting höfundar). Þjóðleik- húsið telur sig e.t.v. ekki bundið af leiklistarlögum eða þeim árangurs- stjómunarsamningi sem það gerði við menntamálaráðuneytið. Það vek- ur a.m.k. ýmsar spumingar þegar Þjóðleikhúsið telur fullkomlega eðli- legt að bregða fæti fyrir sjálfstætt starfandi leikhús, með því að kaupa sýningarrétt á verki sem viðkom- andi leikhús hefur verið með í und- irbúningi um hríð. Mikill aðstööumunur Það er alvarlegt þegar opinbert leikhús ákveður að hindra starfsemi sjálfstætt starfandi leikhúss með þessum hætti. Það er einnig sláandi hversu ísköld þessi ákvörðun er. „Ég hafði veður af því að ákveðnir aðilar í leikhúsheiminum væru að hugsa um að setja upp söngleikinn Oliver Twist. - Þá sló ég til og keypti sýn- ingarréttinn" (Stefán Baldursson, DV, 18/8 2000). Þjóðleikhúsið hefur það bolmagn að geta keypt sýningarrétt að verk- um að vild. f þessu felst mikill að- stöðumunur milli þess og sjálfstæðu Já,... ég heia að égjafni þetta út... Ég er áreiðanlegur, reynáur, reglusamur og vel upplýstur. V leikhúsanna. Sjálfstæðu leikhúsin verða að undir- búa verkefni sín af gætni til þess að tryggja að þau geti staðið við skuldbindingar sínar. Það kallar á að verk- efni eru alla jafna lengi í undirbúningi. Þetta er ástæða þess að sjálfstæðu leikhúsin ganga oft ekki formlega frá greiðslu fyrir sýningarrétt á verkum fyrr en seint á undirbúnings- timanum. Auðvitað fréttist það milli manna hvað stendur til þegar verk eru lengi í undirbún- ingi. Leikhúsfólk hefur hingað til treyst því að Þjóðleikhúsið neyti ekki aflsmunar og steli hugmyndum þess. Nú virðist sem Þjóðleikhúsið hafi tileinkað sér nýja starfshætti. Þessi gjörningur er í takt við við- brögð Þjóðleikhússins við erindi Bandalags sjálfstæðra leikhúsa til Samkeppnisstofnunar síðastliðið haust. Það erindi varðaði óeðlileg til- boð opinberu leikhúsanna á verði leikhúsmiða í krafti opinbers stuðn- ings. í kjölfarið ákvað Þjóðleikhúsið að hætta að lána leikmuni og búninga td sjálfstæðu leikhúsanna og skrúfaði tímabundið fyrir lán á leik- urum. Það er óhugsandi að það sé ætlun ráðamanna sem tryggja Þjóðleikhúsinu fjár- muni að það notfæri sér að- stöðu sína með þessum hætti. Því er miklu frekar ætlað að vera flaggskip sem verji og vemdi íslenskt leik- hús almennt en vinni ekki gegn því. Sjálfstæðu leik- húsin hafa styrkt íslenska leiklist gríðarlega á undanförnum árum. Fjöldi leikhúsgesta hefur stór- aukist á innan við áratug og þrátt fyrir það hefur Þjóðleikhúsið haldið sínum hlut. Spyrja má hvort nú sé ef td vid runnin upp sú tíð að leikhúslista- menn með góðar hugmyndir verði að fara með drauma sína sem manns- morð. Að þeir verði að gæta sín á því að flaggskipið heyri ekki um hug- myndina því þá verði henni stolið og sýningarrétturinn keyptur. Þórarinn Eyfjörð Þórarinn Eyfjörð form. Bandalags sjálf- stæöra leikhúsa „Það er óhugsandi að það sé œtlun ráðamanna sem tryggja Þjóðleikhúsinu fjármuni að það notfæri sér að- stöðu sína með þessum hœtti. Því er miklu frekar œtl- að að vera flaggskip sem verji og vemdi íslenskt leik- hús almennt en vinni ekki gegn því. “ Ég kaupi sýning- arréttinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.