Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000 9 DV Utlönd Gerði grín að sjálfum sér Áður en Fidel Castro Kúbuforseti gagnrýndi á ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna í New York auðug ríki fyrir að stjórna heiminum og Sam- einuðu þjóðunum gerði hann grín að sjálfum sér fyrir maraþonræður sín- ar. Setti forsetinn hvítan vasaklút yfir gula ljósið sem varar ræðu- menn við að þeir séu að nálgast 5 mínútna takmörkin. Forsetinn hafði þó ræðu sína ekki lengri en 5 mínútur. Elliheimili fyrir homma Stjómmálamenn í Stokkhólmi hafa samþykkt umsókn um að reist- ar verði sérstakar ibúðir fyrir sam- kynhneigða sem eru orðnir aldrað- ir. Þriöjungur samkynhneigðra í Stokkhólmi vill búa með sínum lík- um þegar aldurinn færist yfir. Deila um kappræður Bandarisku forsetaframbjóðend- umir George Bush og A1 Gore deila enn um hvar og hvemig þeir eigi aö halda kappræður. Bush er fús til kappræðna á NBC-sjónvarpsstöð- inni í næstu viku. Gore krefst hins vegar þriggja formlegra kappræðna. Vara við hægribylgju Talsmaður innanríkisráðuneytis Austurríkis varaði í gær við nýrri bylgju öfgasinnaðra hægriskoðana. Samtök öfgasinnaðra hægrimanna hafi þó engan leiðtoga. Tekur ekki afstöðu Tony Blair, for- sætisráðherra Bret- lands, neitaði i gær að giska á hver yrði sigurvegari í for- setakosningunum í Bandaríkjunum í nóvember. Sagði Blair það skyldu forsætisráðherra Bretlands að starfa með hverjum þeim sem bandaríska þjóðin kysi. Fangabíll í árekstri Þrír létu líflð og einn slasaðist er rútukálfur lenti í árekstri við sænskan vörubíl norður af Ósló í gær. 1 kálfinum, sem var á leið til réttarhalda í Ringerikefangelsi, voru lögmenn, blaðamaður og fangi. Herstjórn gagnrýnd Bill Clinton Bandaríkj aforseti og Tony Blair, for- sætisráðherra Bret- lands, gagnrýndu í gær yfirvöld í Burma fyrir að halda stjórnarand- I stöðuleiðtoganum Aung San Suu Kyi í stofufangelsi. Hundrað þúsund á flótta Talebanar í Afganistan hertóku í bæinn Taloqan sem verið hefur höf- uðvígi andstæðinga þeirra. Hundr- að þúsund menn eru á flótta vegna átakanna í landinu. Heimsækir Milosevic Utanríkisráðherra Grikklands, George Papandreou, kom til Belgrad i Serbiu í gær til að segja Milosevic Júgóslavíuforseta hvar hundurinn liggur grafmn. Landsins mesta úrval af unaðsvörum ástarlífsins. Við gerum kynlífið ekki bara unaðslegra heldur líka skemmtilegra. Opiö mán.-fös.10-18 laug.10-16 (Q www.romeo.is t 3r Fákafeni 9 • S. 553 1300 Bensínmótmæli áfram í Frakklandi: Titringur kominn í stjórnarsamstarfið Spenna kom upp á franska stjórn- arheimilinu í gær þegar umhverfis- ráðherrann, Dominique Voynet, sagði að flokkur hennar, Græningj- ar, myndi ekki styðja frekari tilslak- anir í garð eigenda flutningabfla. Bilstjórar og fleiri hafa haldið olíu- hreinsistöðvum og eldsneytisbirgða- stöðviun í herkvi frá því í vikubyrj- un til að mótmæla háu eldsneytis- verði. Franska stjómin féllst í fyrra- kvöld á að lækka skatta á dísilolíu. Bílstjórum fannst hins vegar ekki nóg að gert. Lionel Jospin forsætis- ráðherra sagði í gær að frekari til- slakanir yrðu ekki gerðar. Voynet sagði í viðtali viö franska ríkissjónvarpið að samkomulagið við bílstjórana myndi aðeins leiða til þess að fleiri mengandi bílar yrðu á vegum landsins. Tefla umferð Flutningabílar tefja umferö á hraö- braut viö Lille í Frakklandi. Hvatt til viðræðna Námsmenn og múslímar á Joloeyju efndu til fjöldagöngu og hvöttu yfirvöld til aö semja viö mannræningjana. Bandarískur gísl hafður í búri á Filippseyjum Bandaríkjamanninum Jeffrey Schilling, sem félagar í íslömsku uppreisnarsamtökunum Abu Sayyaf á Filippseyjum rændu i síð- ustu viku, er haldið handjárnuðum í litlu trébúri, að því er heimildar- menn hafa greint frá. Bandaríkja- maðurinn er sagður hafa verið erf- iður fangi og reynt að komast yfir vopn fangavarðanna. Þess vegna var hann handjámaður. Schilling var rænt eftir að hafa heimsótt búð- ir samtaka uppreisnarmanna ásamt filippseyskri konu sinni. Hún nýtur lögregluverndar eftir að hafa viður- kennt að vera tengd einum upp- reisnarmannanna. Þeir saka Schiiling um njósnir fyrir Bandaríkin. Samningamenn yfirvalda á Filippseyjum kváðust í morgun vonast til að mannræningj- arnir slepptu sex Evrópumönnum meðal gisla sinna á morgun. Liósa- m Classica útiljós E-27 HÚSASMIÐJAN Sími 525-3000 • www.husa.is Færeyingar fá kaldar kveðjur frá Kaupmannahöfn: Prinsessa skiptir um skóla Fergie faðmar dóttur sína, Beatrice prinsessu, í kveðjuskyni á fyrsta degi hennar í skóla heilags Georgs i Ascot í gær. Prinsessan var áöur í skóla í Sviss en foreldrarnir ákváöu aö fá hana heim. Barnaníðingar eiga á hættu að verða vanaðir Bamaníðingar í Lettlandi eiga á hættu að verða vanaðir samkvæmt nýju lagafrumvarpi. Þingmaðurinn Juris Vidins, sem er læknir, segir að bamaníðingar séu haldnir sjúk- dómi sem hægt sé að lækna með geldingu. Samkvæmt nýja lagafrum- varpinu verður hægt að gelda barnaníðinga sem gerast sekir um síendurteknar árásir án samþykkis þeirra. Frumvarpið var lagt fram tæpri viku eftir að forstjóri umboðsskrif- stofu fyrir fyrirsætur var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa beitt fjóra unga drengi kynferð- islegu ofbeldi. Handtaka hans leiddi til nornaveiða á barnaníðingum. Fyrrverandi forsætisráðherra Lett- lands, Andris Skeele, var meðal þeirra sem sakaðir voru um bama- vændi. Rannsókn leiddi í ljós sak- leysi hans. Ekki tímabært að semja við NATO Dönsk stjórnvöld telja ekki tíma- bært að færeyska landstjómin eigi í beinum viðræðum við forráðamenn Atlantshafsbandalagsins (NATO) um öryggismál eyjanna. Þetta kemur fram í bréfi sem Niels Helveg Petersen, utanríkisráð- herra Danmerkur, sendi Anfinni Kallsberg, lögmanni Færeyja. Færeyska landstjómin hefur ósk- að eftir fundi með Robertson lá- varði, framkvæmdastjóra NATO, til að leggja fram hugleiðingar sínar um öryggis- og vamarmál. Bréfinu var komið til stjórnarráðsins í Kaupmannahöfn og það beðið um að koma því áleiðis. Bréfið hefur nú verið endursent Færeyingum, með útskýringum danska utanríkisráð- herrans. Robertson lávarður sagði enda í viðtali við íslenska rikissjón- varpið að 'sér hefði ekki borist neitt erindi frá Færeyingum. Stjómarandstaöa borgaraflokk- anna í Danmörku er sammála utan- ríkisráðherranum og segja fulltrúar hennar í viðtali við dönsku frétta- stofuna Ritzau að ósk færeysku landstjórnarinnar sé ekki tímabær. „Við getum ekki breytt stjórnar- skránni. Og þar stendur að konung- urinn, það er ríkisstjómin, fari með stjórn utanríkismála. Nú verða Færeyingar að hafa stjóm á sér. Við getum ekki breytt kerfinu fyrr en búið er breyta því,“ sagði Per Stig Moller, talsmaður íhaldsmanna í Venstre í utanrikismálum. Bréfið frá danska utanríkisráð- herranum er annað áfallið sem fær- eyska landstjórnin verður fyrir á skömmum tíma. Áður höfðu Sam- einuðu þjóðirnar hafnað beiðni hennar um að hafa afskipti af sjálf- stæðisviðræðunum við Dani. Þær viðræður hafa gengið stirðlega. Niels Helveg Petersen Danski utanríkisráöherrann vill ekki að Færeyingar ræöi viö fram- kvæmdastjóra NATO um öryggismái.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.