Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000 27 DV Tilvera Elia Kazan 91 árs Einn merkasti kvik- myndaleikstjóri sam- tímans og einnig einn sá umdeildasti, Elia Kazan, verður 91 árs í dag. Það vakti mikla athygli og hörð mót- mæli þegar bandariska kvikmyndaaka- demían ákvað að veita Kazan sérstök óskarsverðlaun fyrir tveimur árum og var ástæðan sú að hann bar vitni á sín- um tima fyrir „bandarísku nefndinni" þar sem hann vitnaði gegn kollegum sínum, sem lentu síðan úti í kuldanum. Hvað sem því líður þá liggja eftir hann margar klassiskar kvikmyndir, má þar nefna On the Waterfront, East of Eden, A Face in the Crowd, A Streetcar Named Desire og Splendor in the Grass. Gildir fyrir föstudaginn 8. september Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.): ■ Vinnuvikan einkennist af erfiði og þú mrnit þurfa að leiðbeina öðr- um og gefa þeim ráð. í kvöld skaltu sletta ærlega úr klaufunum. Fiskarnir (19. febr.-20. marsl: Einhver gefur þér lof- lorð sem skiptir þig miklu máli og þú getur treyst fullkomlega. Mörg smáatriði munu gera þenn- an dag einstaklega ánægjulegan. Hrúturinn (21. mars-19. aprilt: . Einhver óvissa ríkir í ’ ástarsambandi framan af kvöldi. Lofdð verð- ur síðan hreinsað en þú ert ekki alveg sáttur við niður- stöðuna. Nautið (?0. apríl-20. maú: Þú ert mjög leitandi um þessar mundir. Eitthvað kemiu- þér verulega á ___ óvart en þú þarft ekki að hafa áhyggjur vegna þess að þér mun berast hjálp úr óvæntri átt. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): AHt gengur fremur ’ hratt fyrir sig í dag og viðhorf þín breytast til ákveðinna verkefna. Þú hefur ekki mikla orku mn þessar mundir. Krabblnn (22. iúní-22. iúiít: Hjálp hggur kannski , ekki á lausu eins og þú vonaðist til. Þú ættir að leggja þig fram um að koma einhverjum sem þér þyk- ir vænt um á óvart. Uónið (23. iúlí- 22. égústl: Þú munt verða undr- andi á uppákomu sem fær þig til að vera meira vakandi um liflð í kringum þig og skoða aðra hlið á málunum. Mevlan (23. áeúst-22. sept.): Þú ættir að breyta til í -Yvft lífi þínu. Það gæti leitt 'B.til aukinnar hamingju ^ r fyrir þig og þá sem eru í kringum þig. Taktu það rólega í kvöld. Vogin (23. sept.-23. okt.): J Ef þú hyggur á breyting- ar er rétti tíminn til að V f hefjast handa strax. r f Ekki er ólíklegt að ein- hver muni reyna að standa í vegi fyrir þér vegna öfundar í þinn garð. Sporðdreki (24. okt.-21. nó'/.l: Atburðir dagsins kalla á endurskipulagningu pog það verður öllum l hlutaðeigendum til góðs. Happatölm: þínar eru 4, 21 og 26. Bogamaður (22. nóv.-21. des.l: |Reynslan sýnir þér að rbest er að vera ná- kvæmur ef þú gefur öðrum ráð. Annað gæti komið þér i koll þó að síðar verði. Steingeitin (22. des.-19. ian.l: Næstu dagar eru próf- steinn á tryggð vina þinna við þig. Þér hlotnast óvænt dálítil peningaupp- hæð og þú skalt ekki hafa samviskubit yfir því að leyfa þér dálítinn muna. Tvíburarnir (2 Lögreglan og lögfræðingurinn Morgan Freeman og Gene Hackman í hlutverkum sínum. Under Suspicion í Háskólabíói: Grunaður um morð Carmen Electra í blóðugri mynd Carmen Electra segir að það hafl verið skemmtilegt að leika í blóðugu kvikmyndinni Scary Movie. Myndin, sem reyndar er grínmynd, hefst með grimmilegu morði á fallegum stúdent. Þrátt fyrir blóðugt efni skemmta áhorfendur sér vel eins og leikkonan sjálf. „Ég elska gamanmyndir og ég hef reyndar skemmtilega hlið sem áhorfendur fá sjaldan að sjá,“ segir Electra sem er viss um að áhorfendur komist að raun um að hún hafi húmor. Háskólabíó frumsýnir í dag spennumyndina Under Suspisicion með stórleikurunum Gene Hack- man og Morgan Freeman í aðalhlut- verkum. Myndin er endurgerð franskrar myndar, Garde á Vu, sem gerð var 1981 og fékk góðar viðtök- ur. Sú mynd var gerð eftir skáldsög- unni Brainwash eftir John Wa- inwright. Mynd þessi hefur lengi verið gæluverkefni hjá Gene Hack- man og fékk hann til liðs við sig Morgan Freeman við gerð myndar- innar og eru þeir báðir meðfram- leiðendur. Aðrir leikarar eru Thom- as Jane, Monica Bellucci og Nydia Caro. Leikstjóri er Stephen Hopkins sem síðast leikstýrði Lost in Space. Myndin gerist í Puorto Rico og segir frá hinum vel stæða lögfræð- ingi Henry Hearst (Gene Hackman) sem grunaður er um að hafa nauðg- að tveim stúlkum og myrt þær. Lög- regluforinginn Victor Benezet (Morgan Freeman), sem þekkir Hearts frá fomu fari, er ekki jafn sannfærður um sekt Hearst og lögreglu- maðurinn Felix Owens (Thomas Jane) sem er sann- færður um að Hearst sé raðmorðingi. í næturlöng- um yfirheyrslum er kafað í líf Hearsts og upp á yfir- borðið koma atvik úr hjónabandi Hearst og Chantal (Monica Bellucci) sem er þrjátíu árum yngri en hann. Under Suspicion, sem gerð er að hluta til fyrir evrópskt fjármagn hef- ur enn ekki verið frum- sýnd í Bandaríkjunum en áætlaður frumsýn- ingardagur þar er 22. september. -HK Michelle glæsi- leg í Feneyjum Leikkonan Michelle Pfeiffer þótti * sérlega glæsileg í Feneyjum um daginn þegar hún kynnti nýj- ustu kvikmyndina sína, What Lies Beneath. Hún var í svörtu Armanidressi og utan yfir i leðurjakka eins og bíóspæjarinn John Shaft forðum daga. í myndinni leikur hún á móti þeim brúnaþunga Harrison Ford sem gerði lítið úr afreki sínu þegar hann bjargaði, upp á eigin spýtur í eigin þyrlu, sjúkum íjall- göngumanni, konu í þessu tilviki, lengst norður í Idaho. „Engin hetjudáð," sagði Harrison í Feneyjum. Men in Black kemur út á DVD-diski í tveimur útgáfum: Möguleikarnir nýttir til hins ýtrasta í gær var heimsútgáfa á Men in Black á DVD- diski og voru íslending- ar þar engir eftirbátar annarra en gefnar voru út tvær útgáfur af Skíf- unni. Með þessari út- gáfu, sem er sérstaklega viðamikil, má segja að möguleikar DVD-tækn- innar séu nýttir til hins ýtrasta. Annar diskur- inn nefnist Collector’s Series og hinn Limited Edition. Á Collector’s-útgáf- unni er stafrænt mynd- band sem leikstjórinn Barry Sonnenfeld hefur sérstaklega hannað á diskinn. Tommy Lee Jo- nes og Barry Sonnenfeld fara með áhorfendum í TommyL.ee valin atriði myndarinn- Men in Black Jones og Will Smith vel vopnaöir í leit aö geimverum. ar. Lýsingar eru á persónum mynd- arinnar í formi teiknimyndar, jarð- göngusena myndarinnar er útfærð og tekin lið fyrir lið, lengri útfærsl- ur einstakra atriða, sem og breytt atriði, nákvæm sjónræn útlistun á handriti, einnig ógrynni svipmynda úr myndinni, upprunalegur þáttur mn gerð myndarinnar, ný heimilda- mynd, Metamorphosis of Men in Black, DVD-ROM og heimasíðul- inkar, tónlistarmyndband með Will Smith & Mikey og bréf frá Barry Sonnenfeld og átta síðna bæklingur sem hefur aö geyma upplýsingar um gerð og framleiðslupunkta Men in Black. Ýmisleg annað í smærri kantinu fylgir einnig. The Limited Edition- útgáfan inniheldur öll fyrrgreind atriði, auk þess sem myndin er bæði í Widescreen-út- gáfu og Full Screen-út- gáifu, búin klippitækni- valmöguleikum þar sem hægt er að raða eða endurraða ýmsum kvikmyndaskotum, tæknilegar útskýringar frá Barry Sonnenfeld, Rick Baker og Industri- al Light & Magic- tækniliðinu, viðbóta- skýringar á ákveðnum atriðum, enn viðameiri og nákvæmari útlistun á myndinni og sérkafli um geimverumar, hvemig þær voru út- færðar og skapaðar fyr- ir myndina. Af þessum upptalningum má sjá að möguleikarnir eru orðnir miklir i DVD-tækninni og það sem kannski vekur einna mesta athygli er að eig- andi Limited-disksins getur nánast búið sína eigin mynd og borið hana síðan saman við útskýringar Barrys Sonnenfeld á eigin klippingu. -HK Jackson talar um börn Stórpopparinn Michael Jackson verður meðal þátttakenda i umræðum um velferð barna sem verða í háskól- anum í Oxford. Með Jackson verður gyðingarabbíninn og lærifaðir hans, Shmuley Boteach. Mörgir þykir kannski skjóta skökku við að Jackson skuli fjalla um böm vegna ásakana á hendur honum um að hann hafi misnotað ungan dreng kyn- ferðislega. Popparinn hefur ávallt harðneitað öllum slíkum ásökunum. Málfundafélag námsmanna í Oxford stendur fyrir umræðunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.