Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000 11 DV H EILDAR VIÐSKIPTI 1148 m.kr. - Hlutabréf 162 m.kr. - Húsbréf 321 m.kr. MEST VIÐSKIPTI Q Össur 55 m.kr. "} Íslandsbanki-FBA 19 m.kr. . (ís.hugbúnaöarsj. 15 m.kr. MESTA HÆKKUN Ols.hugbúnaðarsjóöurinn 3,7% ©Sjóvá-Almennar 2,9% ©Össur 2,8% MESTA UEKKUN ©Marel 5,6% © Nýheiji 2,4% © Kögun 2,3% ÚRVALSVÍSITALAN 1526,3 stig - Breyting O 0,067% Enn þá slær dollarinn met Evran lækkaði um 1% í gærmorg- un og er nú komin í sögulegt lág- mark gagnvart dollar. Evran var í gær 0,8785 dollar. Þá kom fram í upplýsingaveitu fjárstýringar Kaup- þings að gengisvísitala íslensku krónunnar (meðalverð erlendra gjaldmiðla) var 113,53 við upphaf viðskipta í gærmorgun en er nú í 113,80. Dollar er einnig í sögulegu hámarki gagnvart krónu en hver doliari kostar nú 82,0 krónur. -ÍHiaii síbastHbna 30 daga Marel 629.120 fslandsbanki-FBA 414.727 , Össur 414.482 Baugur 265.559 , 0 fsl. hugb.sjóðurinn 170.629 | © Hl.b.sj. Búnaöarbanka 42% i © Skeljungur 16% © Delta hf. 14% Q Pharmaco 11% j © Íslandsbanki-FBA 10% E' ii-ii St - ■ II síöastllOna 30 daea © Vaki fiskeldiskerfi hf. -21 % ©SR-Mjöl -19 % ©SH -15% Q Þormóöur Rammi -14% : ©ísl. hugb.sjóöurinn -13% Framleiðni í Banda- ríkjunum 5,7% Framleiðni i Bandaríkjunum var 5,7% á öðrum ársfjórðungi miðað við ársgrundvöll en hún var 5,3% á þeim fyrsta. Þetta eru framleiðnitölur i at- vinnugreinum utan landbúnaðar. Á sama tíma minnkaði vöxtur framleiðslu á ársgrundvelli í 5,4% á öðrum ársfjórð- ungi miðað við 7,9% vöxt á fýrsta árs- fjórðungi. Vinnuaflskostnaður á hvern vinnandi mann lækkaði um 0,4% en bú- ist hafði verið við lækkun 0,1% lækkun. !Tlj! HIIIdow jones 11260,61 © 0,19% 1 • Inikkei 16399,87 O 0,32% ; SKlis&p 1507,08 O 0,90% HÍInasdaq 4143,18 O 2,15% QSftse 6378,40 O 1.40% ^DAX 7366,78 O 0,38% 1 ÍCAC40 6832,62 O 0,35% E3S33L___ 07.09.2000 U. 9.15 KAUP SALA ifejlDoUar 82,530 82,950 SSpund 118,400 119,010 1 *l Kan. dollar 55,630 55,970 i r Dönsk kr. 9,5840 9,6370 hferNorsk kr 8,9150 8,9640 ESsænsk kr. 8,5550 8,6030 HHfí. mark 12,0193 12,0915 JJjFra. franki 10,8945 10,9600 1 ÍjiBelg. franki 1,7715 1,7822 i E3i Sviss. franki 46,2100 46,4600 :QHoll.gyllini 32,4286 32,6235 I^^ÍÞýskt mark 36,5386 36,7582 i.jít. líra 0,03691 0,03713 :r«r,Aust. sch. 5,1934 5,2246 flÍPort. escudo 0,3565 0,3586 nriSpá. peseti 0,4295 0,4321 i • lJap. yen 0,77970 0,78440 R jjírskt pund 90,739 91,284 SDR 106,8000 107,4400 §ECU 71,4633 71,8927 ______________________________________________________________________________Viðskipti Umsjón: Viöskiptablaðið Fiskeldi skilar núna nálægt einum milljarði í útflutningstekjur: Stóraukin bjartsýni í fiskeldi á íslandi - ef áætlanir standast munu þær nema 5 milljörðum 2006 Aukin bjartsýni hefúr gripið um sig á Islandi og á fleiri stöðum varðandi framtíð fiskeldis. íslendingar riðu ekki feitum hesti frá laxeldisævintýrinu á níunda áratugnum og er því lfldegt að menn fari ögn varkárari í hlutina í þetta sinn. Mikil aukning í fiskeldi fram undan í frétt Viðskiptablaðsins í gær kem- ur fram í mati Landssambands fiskeld- is- og hafbeitarstöðva (LFH) að framundan sé umtalsverð aukning í fiskeldi hér á landi. Ef tekið er mið af því magni seiða sem nú hefúr verið sett á til framhaldseldis má gera ráð fyrir að framleiðslan á milli ára muni aukast að meðaltali um og yfir 25% á ári næstu fimm árin. Það er veruleg aukning frá þvi sem hefúr verið undan- farin ár en þá hefur framleiðslan auk- ist um þetta 10 til 15% á milli ára. Mest munar um aukningu í annars vegar laxeldi og hins vegar i eldi bleikju. Fiskeldi skilar nú nálægt einum milljarði í útflutningstekjur og mun verðmæti þess, ef áætlanir ganga eftir, verða nálægt fimm milljörðum árið 2006. Verðþróun hefur verið hagstæð i Bandaríkjumnn sem eru okkar helsti markaður og framleiðslan hefur aukist jafiit og þétt. Á sama tíma hafa áfóll verið fremur lítil í eldinu en óhagstæð gengisþróun hefúr þó haft frekar nei- kvæð áhrif á bleikjumörkuðum í Evr- ópu. Gífurlegur hagnaður í fisk- eldi erlendis Gifurlegur hagnaður hefur verið í fiskeldi í nágrannalöndum okkar, Stofnfiskur í Kollafirði. og þá sérstaklega í Noregi, síðustu tvö árin. ísland er sem fyrr talið ákaflega heppilegt til laxeldis, enda er það nú einu sinni svo að þau lönd sem reynslu hafa af sjávarútvegi eru fremst í fiskeldi. „Við höfum allt til alls,“ sagði Vigfús Jóhanns- son, formaður LFH, sem spáir mik- illi og hraðri uppbyggingu laxeldis hér á næstu árum. Samherji hefur fjárfest mlk- ið í fiskeldi Samherji er búinn að ákveða að auka verulega þátttöku sína í flsk- eldi. Fyrirtækið hefur keypt helm- ingshlut í íslandslaxi hf. í Grinda- vík, strandeldisstöðinni stóru sem Sambandið hóf smíði á á níunda áratugnum.Um leið hefur fyrirtæk- ið keypt 85% hlut í Víkurlaxi ehf. í Eyjafirði. Fyrir átti Samherji næst- stærsta hlutinn 1 Fiskeldi Eyjafjarð- ar hf., eða um 11% hlutafjár. Það hefur náð athyglisverðum árangri í framleiðslu lúðuseiða og er fremst í heimi á því sviði. Fyrirtækið var metið á um 1.200 mflljónir í síðustu IMG kaupir Fjölmiðlavaktina IMG, sameinað fyrirtæki Gallups og Ráðgarðs og Fjölmiðlavaktin ehf., gengu í gær frá kaupum IMG á síðarnefnda fyrirtækinu. Fjölmiðla- vaktin ehf. verður áfram sjálfstætt fyrirtæki með sama nafni en starf- semi þess verður hluti af heildar- skipuriti IMG. Fram kemur í frétt frá IMG vegna kaupanna að hlutverk IMG sé að hjálpa viðskiptavinum við ákvarð- anatöku og þekkingarsköpun og starfsemi þess grundvallast á rann- sóknum og upplýsingaöflun. „Starf- semi Fjölmiðlavaktar fellur sérlega vel að starfsemi IMG en Fjölmiðla- vaktin hefur allt frá stofnun hennar 1980 verið í fararbroddi i vöktun og greiningu fjölmiðlaefnis. Ávinning- ur viðskiptavina IMG og Fjölmiðla- vaktarinnar ehf. er því ótvíræður," segir í fréttinni. Gert er ráð fyrir að fyrsta hluta í samþættingu fyrirtækjanna tveggja verði lokið i byrjun nóvember. Starfsemi Fjölmiðlavaktarinnar verður enn efld og styrkt en IMG mun samhliða byggja upp og þróa öfluga ráögjöf í tengslum við núver- andi þjónustu vaktarinnar. Þá verð- ur upplýsingabanki Fjölmiðlavakt- arinnar tengdur könnunum og gögnum IMG. IMG varð til fyrr á þessu ári þeg- ar Gallup og Ráðgarður sameinuð- ust. Heildarvelta fyrirtækisins er yfir 600 milljónir króna á þessu ári og starfsmenn eru tæplega 100. Fjölmiðlavaktin var stofnuð árið 1980 sem hluti af fyrirtækinu Miðl- un. Árið 1997 varð Fjölmiðlavaktin sjálfstætt fyrirtæki. Heildarvelta þess á síðasta ári var 80 milljónir króna og starfsmenn hennar eru um 16. viðskiptum. Þá er rétt að geta þess að í gegnum eignarhlut sinn í Hrað- frystistöð Þórshafnar á Samherji verulegan hlut í Silfurstjömunni í Öxarfirði. Það er því ljóst að Sam- herji ætlar sér stóra hluti í fiskeldi og reyndar munu önnur sjávarút- vegsfyrirtæki vera að skoða svipaða möguleika. Þá má geta þess að fiskeldi skap- ar mikinn uppgang í fóðurfram- leiðslu hvers konar og þar skapast tækifæri fyrir mjölframleiðendur. Hraöur vöxtur fiskeldisfyrirtækja Nokkur fiskeldisfyrirtæki eru nú þegar skráð á hlutabréfamarkaði og hafa vaxið hratt undanfarin ár. Ljóst er að fiskeldi er að verða arð- samasti hluti sjávarútvegs og vel- gengni þeirra mikil á markaði. Manna á meðal er nú rætt um risa- framkvæmdir á þessu sviði og hefur þegar verið sagt frá áformum um uppbyggingu í Berufirði, þó ekki hafi verið upplýst hverjir séu þar á ferð, en enn er eftir að afgreiða starfsleyfi. Kunnugir segja að viku- lega berist fyrirspumir erlendis frá um möguleika á laxeldi hér enda ts- land nánast ónumið land á því sviði. Íslandssími hefur rekstur farsíma- kerfis Frá og með næstu áramótum mun Íslandssími hefja rekstur far- símakerfis sem nær til landsins alls. Verður farsímarekstur fyrirtækis- ins rekinn i sérstöku dótturfélagi, að fullu í eigu Íslandssíma, að því er fram kemur í Viðskiptablaðinu sem út kom í gærmorgun. Samkvæmt heimildum Viðskipta- blaðsins er búið að ganga frá samn- ingi við erlend símafyrirtæki um reikisamninga. Það á að gera ís- landssíma kleift að byggja upp öfl- ugra dreifikerfi fyrir farsíma en slík kerfi eru fyrir hjá Landssimanum og Tali. Þess má geta að samkvæmt reikiákvæðum fjarskiptalaga er öðr- um fyrirtækjum skylt að gera reiki- samninga við önnur fyrirtæki og það hyggjast Íslandssímamenn nýta sér til að flýta útbreiðslu kerfis síns innanlands. Landsbankinn tekur yfir rekstur HGI - 107 milljóna króna hagnaður HGI á fyrri helmingi ársins Landsbanki Islands. í gær tók Landsbanki íslands hf. formlega yfir rekstur breska fjár- festingarbankans The Heritable and General Investment Bank Ltd. (HGI) í London en 18. júli sl. voru kaup Landsbankans á 70% hlut í HGI kynnt. Yfirtaka Landsbankans á rekstri HGI fór fram viku fyrr en áætlað var. Á fyrri helmingi þessa árs var HGI rekinn með 107 millj- óna króna hagnaði og heildareignar hans námu 6,9 milljörðum króna um mitt ár. í tilkynningu frá Landsbankan- um kemur fram að kaupin eru í samræmi við þá stefnu Landsbanka íslands að veita fyrirtækjum og ein- staklingum alhliða fjármálaþjón- ustu. Jafnframt hafa Landsbankinn og Landsbréf stefnt að því sérstak- lega að veita alþjóðlega fjárfesting- arþjónustu sem byggist á sérþekk- ingu starfsmanna samstæðunnar á eignastýringu og fiármálamörkuð- um. Markmið með kaupunum eru m.a. að halda áfram á þeirri braut að auka og efla alþjóðlega fjárfest- ingarþjónustu Landsbankans og Landsbréfa, einkum á sviði eigna- stýringar, sérbankaþjónustu og verðbréfaviðskipta. Samþykki fjármálaeftirlitsins í Bretlandi hefur fengist við kaupum Landsbankans á HGI og fór undir- ritun kaupsamnings fram i gær. Ný stjóm bankans hefur verið skipuð. í henni sitja Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, sem er fomiaður, James Pope og Jill Enz- mann frá First Union-samstæðunni, John Quitter, óháður ráögjafi, Mart- in Young, forstjóri Heritable, og Tim Wentworth, John Woods og David Rampling, framkvæmdastjór- ar Heritable. í varastjóm er Sigurð- ur Atli Jónsson, forstjóri Lands- bréfa. Fram kemur að með kaupunum eignast Landsbanki íslands hf. meirihluta í afar vel reknum og traustum banka í miðborg London. The Heritable and General Invest- ment Bank sérhæfir sig í ráðgjöf og útlánastarfsemi á sviði verkefna- fjármögnunar íbúðabygginga. Hagn- aður bankans fyrstu 6 mánuði ársins 2000 var 910.000 pund eftir skatta, samanborið við 848.000 pund á sama tíma á síðasta ári. Heildareignir bankans nema 59 milljónum punda en voru 55 milljónir punda í árslok 1999. Heritable-bankinn veitir frá og með deg- inum í dag grunn- bankaþjónustu fyrir viðskiptavini Lands- bankasamstæðunnar, auk þess að veita upplýsingar um alþjóðlega fjármálaþjónustu sam- stæðunnar. Á næstu mánuðum verða kynntir nýir þjónustuþættir á vegum Landsbankasamstæðunnar sem Heritable veitir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.