Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
7
r>v
Fréttir
Umsjón: $HfcL____________
Höröur Kristjansson
netfang: sandkom@ff.is
Sandkorn
Gamalt Laxness-frímerki!
Frá því var
greint á bak-
síðu í Morg-
unblaðinu sl.
laugardag að
„nýlega"
hefði fri-
: merki með
mynd af
Halldóri Laxness ver-
ið gefið út í Úganda í tilefni þess
að senn eru eitt hundrað ár liðin
síðan Nóbelsverðlaunin voru fyrst
afhent. Héraðsfréttablaðið BB á Isa-
firði, sem gegnir fréttaþjónustu fyr-
ir Moggann vestra, veit þó betur en
stóri bróðir í Reykjavík. Á vefsíðu
blaðsins er sagt frá frímerki sem
til er á umslagi á ísafirði, póst-
stimplað fyrir tæpum þremur
árum, eða 24. október 1997. Það er í
eigu Jóhanns Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra á Isaflrði, sem bú-
settur var í eitt ár ásamt fjölskyldu
sinni í Kampala, höfuðborg Úg-
anda. Umslagið er frá „Kabira
Club“ í Kampala þar sem Jóhann
var félagsmaður...
Kostun ekki frétta
Magnús Jóns-
son veðurstofu-
stjóri snuprar
Gunnlaug Sæv-
ar Gunnlaugs-
son, formann út-
varpsráðs, vegna
ummæla hans í
Mbl. á sunnu-
dag. Þar segir
Gunnlaugur að
veðurfréttir séu ekki fréttir, heldur
veðurlýsing, og notar það sem rök-
stuðning fyrir þvi að „veðurfréttir"
séu kostaðar af fyrirtækjum úti í
bæ. Magnús bendir á að í 30 ár
hafi veðurfregnir verið hluti af
fréttum Sjónvarpsins og segir ljótt
ef satt er að Sjónvarpið hafi flutt
fréttir af efni allan þennan tíma
sem ekki voru fréttir...
Pólitískt golfmót
Samfylkingin
heldur opið
golfmót á golf-
vellinum í
Korpu fóstu-
daginn 22. sept-
ember. Þykir
það svo sem
ekki í frásögur
færandi að
menn berji
kúlur um grænan völl á golfmóti.
Gárungar halda þvi hins vegar
fram að þarna fari fram hápólitískt
mót sem notað sé til að efla sam-
stöðu Samfylkingarmanna. Þar
mæti Össur Skarphéðinsson og
aðrir forkólfar flokksins hver með
sína kúlu. Á kúluna sé síðan teikn-
uð andliísmynd af uppáhalds and-
stæðingnum í pólitíkinni. Þannig
geta menn fengið útrás við að berja
duglega á viðkomandi og njóta þess
að sjá þá sunka niður i svartholið.
Ólíkt öðrum golfmótum er fullyrt
að þama þyki flottast að fara í sem
flestum höggum...
Jeppi í stað vegabóta
Sturla Böðv-1
arsson sam-
gönguráðherra
mun skoða vest-
firska vegi í
þessari viku.
Hefst ferð hans
í Reykhólasveit
og mun síðan
væntanlega
liggja vestur á
Barðaströnd og víðar. Vitað er að
vegir á þessum slóðum hafa nær
ekkert viðhald fengið undanfama
áratugi. Meira að segja hafa vega-
gerðarmenn vestur þar talið skýr-
inguna á aðgerðaleysinu vera að
holumar séu friðaðar og komnar á
minjaskrá. Óvíst er því um niður-
stöðu af þessari skoðunarferð ráð-
herrans vestur, en heimamenn
telja að vegna langvarandi holu-
friðunar sé komin á þær hefð og
litlar vonir um úrbætur. Líklegasta
niðurstaðan sé því sú að Sturla fái
bara nýjan jeppa...
Eiðastaöur
Fallegur staöur og eftirsóttur afýmsum tilboösgjöfum en tilboöin flókin og afar misjöfn.
DV-MYND SIGRÚN BJÖRGVINSDÓTTIR.
Hver hlýtur Eiða, skólahús, fjögur íbúðarhús og tvær jarðir?
25 milljóna boö
athafnamanns
- í allar eignirnar
DV, EGILSSTODUM: ~
Bæjarstjóm Austur-Héraðs hefur
upplýst um tilboð sem bárust í Eiða-
stað. Staðurinn var auglýstur til
sölu fyrr í sumar. Eignirnar eru
skólahúsnæði Alþýðuskólans, fjög-
ur ibúðarhús og jarðirnar Eiðar og
Gröf en hún er nú í eyði.
Aðeins eitt tilboð barst í allar
eignimar saman. Það kom frá Eign-
arhaldsfélaginu Bakka, Erni
Kjæmested, og hljóðaði upp á 25
milljónir króna.
Stefán Jóhannsson býður 30 millj-
ónir í skólahúsnæði ásamt fjórum
íbúðarhúsum. Sex tilboð bárust í
Gröf og var það hæsta frá Sigur-
bimi Snæþórssyni, kr. 4,6 millj., en
þar er innifalið nokkurt landsvæði
úr Eiðajörðinni. Þá barst tilboð í
Eiðajörðina frá Önnu Magnúsdóttur
að upphæð kr. 3,3 millj. Suncana
Slamning gerði tilboð í eitt einbýlis-
hús, Garð, og býður 3,5 milljónir
króna í húsið.
Önnur tilboð: Sigurbjörn Snæ-
þórsson gerði tilboð í mörgum lið-
um í Gröf, Eiðajörðina og land. M.a.
tilboð upp á 18,5 milljónir í jarðirn-
ar báðar ásamt húsum og ræktun og
fjórum einbýlishúsum. Aðrir sem
gera tilboð í jörðina Gröf eru: Stef-
án Þórarinsson, Áskell Einarsson,
Halldór Sigurðsson og Ágústína
Konráðsdóttir, Jón Þórðarson og
Ástvaldur A. Erlingsson.
Örn Kjærnested úr Mosfellsbæ
var ekki viðstaddur opnun tilboða,
hann var upptekinn í brúarsmíö
uppi í hálendinu þann dag. -SB
DV-MYND NH
A réttarveggnum.
Þórunn Sigurfinnsdóttir og ömmu-
drengurinn Einar Dagur Jónsson
í réttunum
Þórunn Sigurfinnsdóttir:
Ræður í útlit
fólksins til að
sjá upprunann
„Hér er ég til að sýna mig og sjá
aðra, ég er fædd hér á næsta bæ,
Bergsstöðum, en hef búið í Reykja-
vík í 60 ár,“ sagði Þórunn Sigur-
fmnsdóttir sem var meðal margra
sem komu i Tungnaréttir á laugar-
dag. Þórunn fór ung til náms í
Reykjavík. Þar nam hún klæðskera-
iðn, stofnaði fyrirtæki sem enn
gengur og hún hefur starfað við iðn
sína alla tíð. Þórunn segir að margt
hafi breyst í réttunum frá því að
hún man fyrst eftir sér, ungri
stúlku, i þeim.
„Ég fór fyrst í réttirnar átta ára
gömul, ríðandi yfir Tungufljót á
Fossvaði, þvi þá var ekki einu sinni
komin brú á það. Nú er margt
breytt í réttunum, bæði fólkið og
stemningin. Ég reyni að sjá það á
útlitinu á fólkinu frá hvaða bæjum
það er upprunnið," sagði Þórunn.
Hún segist alltaf hafa haft mikið
gaman af hestum. „Það erfiðasta
sem ég skildi við þegar ég fór héðan
var hesturinn. Ég lærði ekki kverið
en ég tamdi hestinn minn til að ég
kæmist á honum til kirkjunnar þeg-
ar ég var fermd.“ Nú er hún með
hesta í Reykjavík og líkar það vel.
„Þegar maður fór með strætó í
Kópavog og labbaði upp í hesthúsa-
hverfið, mokaði út og gaf - kom
þreyttur og skítugur heim, þá var
maður ánægður," sagði Þórunn Sig-
urfinnsdóttir i Tungnarétt á laugar-
dag. -NH
Þrjár góðar ástæður fyrir
(T)inDesiT
1. Mamma er búin að fá nóg
2. Verð og kjör gera ungu fólki kleift að kýla
á ný tæki í stað þess að taka sénsinn á
þreyttum notuðum og hallærislegum
tækjum frá því á síðustu öld.
3. Indesit er töff hönnun, eins og annað sem
kemur frá ítalanum, og fellur því vel að
smekk ungs fólks.
Þessari auglýsingu
er ætlað að hitta á
markhópinn, ungt fólk
sem er að byrja að búa,
ungt fólk sem verður að
átta sig á því að það er ekkert
elsku mamma lengur þegar
kemur að því að fá þvegið af sér.
Fleira töff frá
inDesn á frábæru verði:
Kæliskápar, frystiskápar, frystikistur,
uppþvottavélar, eldavélar, helluborð,
bakaraofnar.
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Slmi 530 2800
www.ormsson.is
ÞyottaVél og þurrkari
/*tvö tæki á aðeins
' £9.800 kr.sw
Ýmsir greiðslumöguleikar