Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Blaðsíða 8
8 MIÐVKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 Útlönd I>V Flótti frá Kúbu: Níu fundnir lif- andi og 1 látinn Níu manns var bjargað lifandi úr sjónum undan ströndum Flórida í gær eftir að lítil kúbversk flugvél, sem virðist hafa verið notuð við flóttatilraun til Bandarikjanna, fór i sjóinn milli Kúbu og Flórída. Eitt lík hefur einnig fundist. Fréttum um hversu margir voru um borð i flugvélinni ber ekki sam- an. Bandarískir embættismenn sögðu í gær að allt að átján manns hefðu verið í vélinni sem var af gerð- inni Antonov An-2. Fólkið, sem var bjargað lifandi úr sjónum, sagði aft- ur á móti að ekki hefðu verið fleiri en þau níu sem komust lifs af og sá eini sem lést. Kúbversk yfirvöld sögðu að vélinni hefði verið rænt í vesturhluta landsins í gærmorgun. Flugvélin er alla jafna notuð við landbúnaðarstörf. ELFA R LEMMENS HITABLÁSARAR Fyrir verslanir - iðnað - lagera Fyrir heitt vatn. Afköst 10 -150 kw Öflugustu blásararnir á markaðnum, búnir miðflóttaaflviftum og ryksíum. Betri hitadreifing - minni uppsetningarkostnaður, lægri rekstrarkostnaður. Hagstætt verð UF Einar Farestveit & Co.hf. Borpartúni 28 0 562 2901 oe 562 2900 Viltu sjást? Uti-ljósaskilti með hvaða texta sem er. Mjög gott verð. stjörr bæði bl Ljósaslöngur og Ijósanet, t.d. til útstillinga, á útlínur húsa, upplýst húsnúmer. Júgóslavar hvattir til að flykkjast á kjörstað: Milosevic líkleg- ur til að svindla Slobodan Milosevic Júgóslavíu- forseti er allt eins líklegur til að stela forsetakosningunum á sunnu- dag en Bill Clinton Bandaríkjafor- seti segir að honum verði ekki káp- an úr því klæðinu. Stjórnarandstöðuleiðtoginn Voji- slav Kostunica hefur umtalsvert for- skot á Milosevic sem var ákærður fyrir stríðsglæpi á síðasta ári vegna þjóðernishreinsana Serba í Kosovo. Bandarísk stjórnvöld telja að Milo- sevic hafi þungar áhyggjur af því hvort hann geti sigrað. „Honum væri alveg trúandi til að stela kosningunum en við verðum öll að sjá til þess að hann glati þá öllu því lögmæti sem hann á eftir i heiminum," sagði Clinton í gær- kvöld. Bandarískur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, spáði því í gær að Milosevic myndi hafa brögð í tafli til að sigra í kosn- ingunum á sunnudag. Mllosevic á barmi örvæntingar Allt bendir til aö júgóslavneskir kjós- endur hafni forseta sínum á sunnu- dag en ólíklegt þykir aö hann láti sér þaö vel líka og fari frá. Robertson lávarður, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði í gær að ólíklegt væri að Milosevic myndi sleppa stjórnartaumunum, hver svo sem niðurstaða kosninganna yrði. Lávarðurinn hvatti þó Júgóslava til að taka framtíðina í eigin hendur og sagði að NATO myndi vaka yflr þeim. Andstæðingar Milosevics hvöttu landsmenn sína í gær til að fjöl- menna á kjörstað þar sem þá yrði erfitt fyrir forsetann að beita brögð- um. „Við ættum að flykkjast á kjör- stað og koma með atkvæðum okkar í veg fyrir enn eitt kosningasvind- lið, svindl aldarinnar," sagði Kost- unica á kosningafundi í borginni Nis í gær. í skoðanakönnun, sem var birt í gær, nýtur Kostunica stuðnings 41 prósents kjósenda en Milosevic að- eins tuttugu prósenta. Fimm pró- sent styðja Vojislav Mihailovic. Einn laufléttur í klakahöllinni Hvort haustiö er nú rétti árstíminn tit þess eöur ei gat þessi snyrtiiegi herramaöur í fjármálahverfinu í London ekki stillt sig um aö fá sér einn bjór á nýrri krá. Engri venjulegri krá, því þessi er eingöngu byggö úr kiakastykkjum og er eftir myndhöggvarann Jonathons Lioyds. Klakahöllin kostaöi um 30 milljónir króna og í smíöina fóru 350 stundir. Tveir franskir gíslar flýðu í skjóli myrkurs Tveir franskir blaðamenn fund- ust í morgun á gangi á suðvestur- hluta eyjunnar Jolo. Þeim hafði tek- ist að flýja frá mannræningjum sín- um í skjóli myrkurs og földu þeir sig í frumskóginum í nótt. Frönsku blaðamennirnir, Jean- Jacques Le Garrec og Roland Madura, greindu frá flótta sínum á fundi með fréttamönnum í morgun. Við hlið þeirra sat Joseph Estrada, forseti Filippseyja, sem baðaði sig í ljósi fjölmiðlanna. Le Garrec og Madura voru ásamt einum öðrum frönskum blaðamanni teknir í gísl- ingu 9. júlí af uppreisnarmönnum Abu Sayyaf samtakanna. Þriðja blaðamanninum hafði verið sleppt áður. „Við höfum verið óttaslegnir und- anfama fjóra daga vegna aðgerð- anna,“ sagði Madura á fréttamanna- Frelsinu fegnir Jean-Jacques Le Garrec og Roland Madura er þeir voru enn í gíslingu. fundinum. Herinn á Filippseyjum lét til skarar skríða gegn mannræn- ingjunum á laugardag og er aögerð- unum enn haldið áfram. Estrada forseti sagði að allt yrði gert til að frelsa gíslana sem enn væru í haldi uppreisnarmanna. Sautján gíslar eru enn á valdi mannræningjanna. Forsetinn gat þess að verið gæti að Bandaríkjamanninum Jeffrey Schilling yrði sleppt síðar í dag. Að minnsta kosti einn lést og fimm særðust er sprengja sprakk um borð í farþegaferju á leið til bæj- arins Samboanga þar sem aðalbæki- stöðvar hersins í suðurhluta lands- ins eru. Uppreisnarmenn höfðu hótað að gera sprengjuárás á Samboanga. Lögreglan telur að sprengjan hafi sprungið of snemma. Eðlileg Kínaviðskipti Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær umdeild lög um eðlileg viðskipti við Kína. Litið er á ákvörðunina sem sigur fyrir Bill Clinton Bandaríkja- forseta og bandarísk stórfyrirtæki. Norðmenn skattsvikarar Norðmenn svíkja um 1 þúsund milljarða íslenskra króna undan skatti á ári samkvæmt útreikning- um norska ríkisútvarpsins. Júgóslavar gripnir Sex menn úr júgóslavneska hern- um voru gripnir aðfaranótt þriðju- dags í serbneska bænum Gracanica í Kosovo. Vopn og sprengiefni voru samtímis gerð upptæk. Júgóslav- amir eru grunaðir um að hafa und- irbúið árásir á friðargæsluliða. Forsetinn upp í Ijósastaur Stjórn Albertos Fujimoris Perú- forseta hét því í gær að refsa yfir- manni leyniþjónustunnar, Vladi- miro Montesinos, yrði hann fund- inn sekur um njósnir. Forsetinn klifraði upp í ljósastaur fyrir utan höll sína í gærkvöld og veifaði til þúsunda aðdáenda sinna. Friðarviðræður á ný Ehud Barak, forsætisráðherra Israels, sagði í gær að friðarfundur- inn, sem hann aflýsti í gær, yrði haldinn í dag. Sagt var að fundinum hefði verið aflýst vegna lítils samn- ingsvilja Palestínumanna. Með hækkun á heílanum Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, sagðist í gær ekki ætla að breyta stefnu sinni í efnahags- og fé- lagsmálum vegna þrýstings frá al- menningi. Sagði Jospin almenning vera með verð- hækkun á eldsneyti á heilanum. Bjargað í október Vladimir Pútin Rússlandsforseti samþykkti í gær áætlun um að sækja lík áhafnarinnar Kúrsk þrátt fyrir að ekki væri búið að semja um greiðslu við Norðmenn. Björgunin hefst í októberlok. Viðvörun frá Persson Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, útilokar ekki að danskri stjórn með þátttöku Danska þjóðar- flokksins, yrði út- hýst af öðrum Evr- ópusambandslönd- mn. Stjórn Perssons varði ákaft ein- angrunaraðgerðir Evrópusam- bandsins gegn Austurríki vegna stjórnarþátttöku Frelsisflokks Jörgs Haiders. Svíar taka við formennsku í sambandinu um áramótin. Hundaslagur George Bush, forsetaframbjóð- andi repúblikana í Bandaríkjunum, sakaði í gær A1 Gore, frambjóðanda demókrata, um ósannindi er hann sagði tengdamóður sína greiöa hærra verð fyrir lyfið Lodine en það kostaði fyrir labradorhund hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.