Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Blaðsíða 24
NÝ NISSAN ALMERA www.ih.is FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 Steingrímur Njálsson barinn Tveir ungir drengir lentu í átökum við Stein- grim Njálsson, margdæmdan kynferðsafbrota- mann, í miðbæ Reykjavíkur í fyrradag. Eftir ryskingar gengu drengirnir í skrokk á Stein- grími með þeim afleiðingum að hann lá óvígur eftir í gangstéttinni þegar lögreglumenn komu á vett- vang. Hafði Steingrímur hlotið höf- uðáverka og blæddi úr andliti hans. Drengirnir sem hlut áttu að máli flýðu af vettvangi en að sögn sjón- arvotta voru þeir á að giska 16 ára og var annar þeirra á hlaupahjóli. Steingrímur Njálsson var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans sem reyndust ekki jafn > alvarleg og í fyrstu var talið. „Ég get staðfest að til þessara átaka kom,“ sagði Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn í morgun. EIR Steingrímur Njálsson Um 60 kindur drápust: Fjárflutninga- bíll valt Um 60 kindur drápust er fjár- flutningabíll valt út af veginum og Jagðist á hliðina á miili Fáskrúðs- * íjarðar og Stöðvarfjarðar um klukk- an hálfþrjú í nótt. Kalla þurfti á tækjabíl slökkviliðsins á Stöðvar- firði til þess að klippa ökumanninn úr húsi fjárflutningabílsins. Hann var fluttur með sjúkrabíl á sjúkra- hús á Neskaupsstað. Að sögn lög- reglunnar á Fáskrúðsfirði þykir hann hafa sloppið ótrúlega vel. Tæplega 300 kindur voru í bíln- um, sem var á leiðinni frá Jökuldal á Héraði til Hornafjaröar, þar sem féð átti að fara í sláturhús. Á milli 50 og 70 kindur drápust eða meidd- ust svo að dýralæknir þurfti að af- lífa þær. -SMK » Engir styrkir ■ Flug til Kulusuk á vetraráætlun Flugfé- fellt niður en af því laust verður milli land- anna í sex mánuði á ári. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra hefur að undanförnu talað fyrir bættum samgöngum milli landanna en aðspurður sagöi hann: „Við tökum ekki á þessu máli með því að veita styrki, heldur er sam- komulag milli íslendinga, Græn- lendinga og Færeyinga um að efla samstarfið með því að tryggja sem bestar samgöngur. -MT A swcitch A sigurbraut Örn Arnarson, SH, sýndi svo um munaöi í morgun aö hann er einn fremsti íþróttamaöur íslandsögunnar. Sundkappinn Örn Arnarson á sigurbraut á Ólympíuleikunum: Orn slær tvö met Örn Amarson, Sundfélagi Hafn- arfjarðar, bætti í morgun sitt eigið íslands-og Norðurlandamet i 200 m baksundi þegar hann synti á 1:58,99 mín., um 8/10 úr sekúndu betri tíma, i undanúrslitum á Ólympíu- leikunum i Sydney, en fyrra metið, 1:59,80 mín., setti hann í undanrás- um í nótt. Örn varð fjórði maður inn í úrslit en þau verða synt í fyrramálið. Lenny Krayzelburg frá Bandaríkjunum bætti Ólympíumet- ið í nótt, synti á 1:58,40, en bætti um betur í morgun þegar hann synti á 1:57,27 mín. Árangur Arnar á leikunum til þessa er glæsilegur og er skemmst að minnast Islandsmets hans í 200 m skriðsundi og sæti í undanúrslitum nú um liðna helgi. Öm sýnir enn að þar er á ferð einn okkar allra besti íþróttamaður og hefur hann verið stigvaxandi síðustu árin allt frá því að hann varrn fyrst til verðlauna á al- þjóðlegu móti á Ólympíudögum æsk- unnar 1997 í 100 m og 200 m baksund- um. Sama ár varð hann 16. sæti á Evrópumeistaramótinu í 200 m baksundi og Norðurlandameistari í sömu grein ásamt titlum í 100 m baksundi og 100 m skriðsundi. Ári síðar varð hann í 20. sæti í 200 m baksundi á Heimsmeistara- mótinu og Evrópumeistari í sömu grein í 25 m laug. Hann setti síðan glæsilegt íslandsmeti í 200 m baksundi, 2:01,13, í Moskvu í fyrra, metið sem hann sló í nótt. Nú síðast í sumar varð hann síð- an fyrsti íslendingurinn í 13 ár til að komast í úrslit á Evrópumóti í 50 m laug, þá í 200 m skriðsundi, en síðastur til að afreka það var Eð- varð Þór Eðvarðsson á Evrópu- meistaramótinu í Strassbourg 1987. Með árangri sínum gerir Öm alvar- legt tilkall til titilsins íþróttamaður ársins, þriðja árið í röð. Átta manns handteknir í nótt: Róstusamt skólaball Lögreglan í Reykjavík þurfti að hafa afskipti af skóladansleik Menntaskólans í Hamrahlíð í Þjóð- leikhúskjallaranum í nótt og voru sex menn handteknir í tengslum við dansleikinn. Klukkan 0.22 í nótt hafði vínhúsa- eftirlitsmaður samband við lögregl- una og tilkynnti að búið væri að hleypa of mörgum inn í Þjóðleik- húskjallarann og því væri búið að loka húsinu. Að sögn lögreglu var fjöldi ungmenna fyrir utan húsið og mikil múgæsing á svæðinu. Þegar lögreglan kom á staðinn handtók hún þrjá pilta fyrir að trufla störf lögreglunnar. í framhaldi af þessum atburðum hafði lögreglan afskipti af rúðubrot- um og öðrum óeirðum í tengslum við dansleikinn. Meðal annars kom til illinda á milli VEdsstúlkna og KR- stúlkna og voru þrjár stúlkur flutt- ar á slysadeild eftir áflogin framan við Þjóðleikhúskjallarann. Lögreglan handtók svo þrjá pilta i viðbót fyrir að hindra störf lög- reglu. Við hándtökuna réðust drengimir á lögreglumenn og kvart- aði einn lögreglumaður undan eymslum í hendi og lögregluhúfa annars var rifin. Auk þessa var tilkynnt um lík- amsárás á stúlku á Skólavörðustíg í nótt. Lögreglan handtók tvo aðila í í tengslum við það mál. Stúlkan var ómeidd. Þeir átta sem handteknir vora síðastliðna nótt voru fluttir á lögreglustöðina til yfirheyrslu en var svo sleppt að því loknu. -SMK Keflavíkurflugvöllur: 14.270 e-töflur fundust Lögreglan á Keflavíkurflugvelli handtók karlmann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar seinnipartinn á þriðju- daginn með 14.270 e-töflur innan- klæða. Maðurinn, sem er hollensk- ur, var á leið frá Amsterdam til New York, og segir í fréttatilkynn- ingu frá sýslumanninum á Keflavík- urflugvelli að ekkert bendi til þess að maðurinn hafi ætlað að flytja eit- urlyfin til íslands. Maðurinn var á transit-svæði flugvallarins þegar tollgæsluyfirvöld sáu ástæðu til þess að kanna ferðaskilriki hans og tilgang ferðar hans. Þetta er mesta magn e-taflna sem fundist hefur hér á landi og segir í fréttatilkynningunni að söluverð- mæti taílnanna hérlendis sé um 50 milljónir króna. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli rannsakar nú málið og hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum. Ríkissaksóknari mun taka ákvörðun um það hvort höfðað verður mál gegn honum hér á landi. -SMK Vatnsendaland: Um 6000 mótmæla Um 6000 undirskriftir hafa nú safnast til að mótmæla auglýstu deiliskipulagi á Vatnsendalandi. Það er áhugamannahópurinn „sveit i borg“ sem hefur staðið fyrir söfn- un undirskriftanna, m.a. i Kringl- unni og á sérstakri netsíðu. Fyrir- hugað er að hópurinn efni til göngu í kringum Elliðavatn n.k. sunnu- dag, að sögn Rutar Kristinsdóttur, eins forvígismanna söfnunarinnar. Þar hyggjast forsvarsmenn hópsins hitta Ármann Kr. Ólafsson, for- mann skipulagsnefndar Kópavogs, og afhenda honum undirskriftirnar. I gær voru 125 athugasemdir við fyrirhugaða byggð á Vatnsenda- svæði lagðar fram á fundi skipu- lagsnefndar Kópavogs. Þessar at- hugasemdir höfðu borist til skipu- lagsstjóra Kópavogsbæjar og voru þær m.a. frá Landvemd, Veiðimála- stofnun, Stangveiðifélagi Reykjavik- ur, Reykjavíkurborg, hestamannafé- lögum höfuðborgarsvæðisins og fjölda einstaklinga. Skipulagsnefnd mun fela skipu- lagsstjóra að svara hverjum einasta efnisþætti í athugasemdum sem fram hafa komið. Jafnframt mun skipulagsnefnd fara yfir umsagnir og taka afstöðu í kjölfarið. -JSS SYLVANIA Tilboósverö kr. 4.444 P-touch 1250 Lítil en STÓRmerkileq merkivél 5 leturstærðir 9 leturstillingar prentar í 2 linur borði 6, 9 og 12 mm 4 gerðir af römmum Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.