Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 11 I>V Öll lönd hafa verið numin „Auðvitaö lenda allar kynslóðir í basli meö leit sína að tilgangi en þaö er sérstaklega erfitt aö tilheyra minni kynslóö,“ segir Erlend Loe, einn vin- sælasti höfundur Norömanna og gestur á bókmenntahátíö sem nú er nýlokiö. DV-MYND TEITUR Erlend Loe segir að hans fyrri afrek séu ekki hálft eins merkileg og annarra gesta bók- menntahátíðar. Eiginlega segist hann ekkert eiga með að vera hér á hátíðinni því að hann hafi ekki skrifað neinar bókmenntir sem breyta heiminum, en er samt innilega þakklát- ur okkur fyrir að bjóða sér. Loe er 31 árs Norðmaður og hefur vakið feikna athygli í heimalandi sínu fyrir skáldsög- ur og bamabækur. Hann segir að hann hafi byrjað að skrifa á unglingsárum án þess að ætla það; haldinn þeirri áráttu að vera alltaf að krota ýmsar hugmyndir sínar í minnisbækur. Fyrir átta árum, þegar honum fannst skyndi- lega tími kominn til að skrifa skáldsögu, leitaði hann í minnisbækurnar og komst að því að hann hafði þegar mótað sér stíl og lagt línur að nokkrum verkum. Hann segir að því hafi verið auðvelt að skrifa fyrstu bókina, Tatt av kvinnen, sem fjallar um samskipti kynjanna á dögum femínískrar umræðu: „Sú bók er bæði írónísk og endar illa,“ segir Loe. „Eftir hana langaði mig að skrifa öðruvísi bók um ungt fólk þar sem alltaf var verið að segja við mig að mín kynslóð rithöfunda væri svo írónísk og svart- sýn. Þá fór ég að skrifa Naiv. Super.“ Bókin kom út árið 1996 og hlaut feikigóðar viðtökur. Nýlega þýddi Þórarinn Eldjám hana fyrir Vöku-Helgafell, en á íslensku ber hún heitið Ofurnæfur. „I Naiv. Super. set ég fram einfaldar hnitmið- aðar hugmyndir og nota til þess mjög einfalt orðfæri," segir Loe og bætir því við að hann hafi verið handviss um að gagnrýnendur sæju aðeins tóma flatneskju í þessum tiiraunum hans. „Bókin fjallar um ungan mann sem upp- lifir algert hrun allra gilda, en snýr til baka og byggir heimsmynd sína frá grunni á bamsleg- an hátt. Hann vill ekki verða barn aftur, en hann trúir á barnið í sér“: Barnatímarnir gerðu mér bjarnargreiöa. í dag kann ég tölustafi og bókstafi. Ég les hraðar en ég veit ekki hvað. Það sem mig langar að vita er til hvers þetta er. Það er dálítió seint að vera að tala um þetta núna. Kannski hálfasnalegt. Skaðinn er skeður. Ég get ekki látið sem ég viti ekki það sem ég veit. En þetta er skítt. Verulega. Fáió mér bolta. Fáið mér hjól. Þaó rœð ég við. (bls. 49) Engin svör til „1 bókinni L, sem út kom í fyrra, tekst Loe á við ferðabók- menntahefð- ina og reynir þar að setja sig í spor þeirra vösku karlmanna sem uppgötv- uðu heiminn. „Ég fór ásamt vinum minum í könn- unarferð á slóðir Thors Heyerdahls þó að við vissum ekkert í okkar haus en Thor og hans félag- ar hefðu vitað allt og verið fullkomlega meðvitaðir um hlutverk sitt. Afraksturinn er L. Þar velti ég fyrir mér þeirri nötur- legu staðreynd sem mín kyn- slóð þarf að sætta sig við, að allt hefur verið uppgötv- að og öll lönd hafa verið numin. Spurn- ingarnar sem við glímum við í dag em: Hvað er eftir fyrir okkur? Erum við ein- hvers virði?" „Auðvitað lenda allar kynslóðir í basli með leit sína að til- gangi en það er sérstaklega erfitt að tilheyra minni kynslóð," segir Loe þeg- ar hann er spurður um hugmyndimar sem liggja til grundvallar bókunum tveimur. „Það er allt mögulegt og allt leyfilegt. Við megum blanda saman mörgum trúarbrögðum og búa til ný, eða hafna öllum og trúa ekki á neitt, en að sama skapi berum við mikla ábyrgð. Það er áfall fyrir ungt fólk að fhma skyndilega að það er ábyrgt fyrir eigin lífl og það er vont að geta ekki spurt einhvem: Hvemig á að gera þetta? Hvernig á að lifa? Geta ekki fengið nein svör vegna þess að það eru engin svör til.“ -þhs Bókmenntir Gengið um götur Þó Gunnar Harðar- son sé ekki í- hópi þeirra skálda sem mest er hampað mun þó mörgum ljóðvini ljóst að þar er athyglisvert skáld á ferð. Orsakir þess að sú vitneskja hefur ekki borist víðar mun að ljóð hans hafa einkum birst í tímarit- um og látlausum kver- um í smáum upplög- um. Það telst þó til tíð- inda þegar nýtt kver birtist og þvf ástæða til að fagna einu slíku: Húsgangar með undir- titlinum Götumyndir. Yfirlætislítil bók þrett- án ljóða eða götu- mynda úr Reykjavík. Yrkisefnið er ekki nýstárlegt enda hafa sum þessara ljóða birst áður og Gunnar hefur áður fengist við svipað efhi, til að mynda í Smárum og götusöngv- um frá 1988. En er eitt- hvað hægt að yrkja um Reykjavík? Orti Tómas þar ekki allt sem til þarf? Fyrri spuming- unni verður best svar- að með því að vitna í hendingar úr áður- nefndum Smárum: „Hvers vegna þyrlast þau upp / öll þessi 19. aldar náttúruljóð." Varð- andi þá seinni þá var og verður Tómas aldrei eina Reykjavíkurskáldið - og minnkar reyndar ekkert við það. Hvað er eðlilegra en að 20. aldar náttúruljóð (ég hætti ekki á að nefna þá 21.) fjalli um borgina þar sem stærstur hluti lands- manna býr, fjarri bunu- læk og berjalautu? Hvað sem þeim vanga- veltum líður þá fjalla ijóð Gunnars um reyk- víska náttúru, hús og götur en ekki síður um sögu. Hér er minnst horfinna skálda, safna, skóla, skipstjóra og fisk- sala með söknuði og þó nokkurri angurværð, en ekki síður gætir oft undirfurðu- legrar kímni, einna skýr- ast í ljóðinu Húsgangur (gefið gaum að nýmerking- unni!): Gunnar Haröarson, heimspekingur og skáid Minnist horfinna skálda, safna, skóla, skipstjóra og fisksala meö söknuði og þó nokkurri angurværö. Eftir aó Benedikt Gröndal fluttist úr Þingholtunum skrifaði hann litla ferðasögu um göngu nióur í bœ og austur yfir lœk Hann bjó þá á Vesturgötunni - húsið má sjá í gegnum sundiö hjá númer 16: blómapottar í gluggum og svolitiö grindverk úr tré tvö reióhjól hallast að steinveggnum framan við grindverkið Á lóóinni þar við hlióina stóð bárujárnsklœtt timburhús sem rumskaði eina sumarnótt eftir aldarlangan svefn og lagói af staó, í humátt á eftir skáldinu niöur í mióbœinn, áleiðis upp i Þingholt Síðan mætti nefna fleiri ágæt ljóð, minningar- ijóð um Snorra Hjartarson, Hús við Eiríksgötu, ljóöið um Suðurgötuna sem segir m.a. frá Gallerí Suðurgötu 7, þar sem „listamenn urðu heims- frægir / á tveimur hæðum“ og Hrognkelsatíð með eitursnjallri líkingu um skokkara við Ægi- síðuna. Yfir þessari bók Gunnars Harðarsonar ríkir einkar geðþekkur blær, stundum háðskur en aldrei illkvittinn. Það hlýtur að gleðja ljóðavini alla jafnt sem átthagakæra Reykvíkinga, hvar sem fyrirfmnast á hnattkringlunni. Þetta er bók mótuð af íhygli og skörpu auga göngumannsins sem lætur ekki hraða og ráðleysi byrgja sér sýn. Geirlaugur Magnússon Gunnar Á. Haröarson: Húsgangar. Götumyndir. Höf- undur gefur út. Reykjavík 2000. ___________Menning Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir Kvennaforlagið Salka Þau merku tíðindi hafa orðið að stofnuð hefur verið sérstök bókaútgáfa sem hefur að markmiði sínu að gefa út bækur fyrir, um og eftir konur. Útgáfan heitir Salka og aðstandendur eru Hildur Hermóðsdóttir og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir (á mynd) í sam- vinnu við bókaútgáfuna Bjart. Áhersla verður lögð á fjölbreytileika, lofa þær stöll- ur, og efni sem tengist áhugamálum kvenna, ýmist frumsamið eða þýtt, skáld- sögur og ýmiss konar handbækur. Þóra og Hildur hafa kynnt sér kvenmið- aða útgáfustarfsemi erlendis, einkum í Bretlandi og Kanada þar sem hún stendur með miklum blóma. Konur hasla sér nú æ víðar völl sem útgefendur, enda eru þær i meirihluta lesenda og kaupenda á bóka- markaði. Aðdáendur Ragnheiðar Jónsdóttur rit- höfundar munu fagna því að meðal fyrstu útgáfubóka Sölku í haust verða fyrstu tvö bindin í kvartett Ragnheiðar um Þóru frá Hvammi, Ég á gull að gjalda og Aðgát skal höfð. Þær komu út á sjötta áratugnum og eru löngu lesnar upp til agna en komust í sviðsljósið fyrir ijórum árum þegar Dagný Kristjánsdóttir gerði þær að miðpunkti doktorsritgerðar sinnar, Kona verður til. Meðal annarra útgáfubóka má nefna við- talsbók við Vilborgu Dagbjartsdóttur sem Kristín Marja Baldursdóttir sér um og mat- reiðslubók þar sem íslenskar kjarnakonur gefa uppskriftir að einföldum sælkerarétt- um og ljóstra upp fleiri leyndarmálum úr eldhúsi sínu. Einnig nefna Hildur og Þóra að hjá Sölku sé í vinnslu glæsilegt dagatal með myndum af þekktum íslenskum úr- valskarlmönnum sem mun gleðja augu ís- lenskra kvenna á næsta ári... Nordisk litteratur Út er komið nýtt hefti af Nordisk litteratur, tíma- riti um norrænar bók- menntir sem Norræna ráðherranefndin gefur út. í ritstjórn eru fulltrúar allra Norðurlanda, aðalrit- stjóri þessa heftis er fær- eyski bókmenntafræðing- urinn Jógvan Isaksen en fulltrúi íslands er Jón Yngvi Jóhannsson. í heftinu er viðtal við Henrik Nordbrandt sem hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Nokkrar greinar ræða um sameiginlegan bókmenntavett- vang landanna sem var veruleiki fyrir hundrað árum og spurt er hvort slíkur vett- vangur sé hugsanlegur á okkar tímum. Þetta verður einnig meöal umræðuefna á ráðstefnunni Ord i Nord 28.-30. sept. Anna Heiða Pálsdóttir skrifar grein um Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason og Kristján B. Jónasson skrifar greinina „Jammer i lyse tider" um íslenskar skáld- sögur eftir unga höfunda, Mikael Torfason, Sindra Freysson, Diddu og fleiri. Tölvupóstfang útgefanda er me@nmr.dk og má panta ritið þaðan. fsbrjóturinn ísland Meðal greina í Nordisk litteratur er „Med Island som isbrytare" eftir Petter Lindberg. Þar segir hann frá bókaforlaginu Like í Finnlandi sem nú er tólf ára og varð á sínum tíma stórt nafn á útgáfu sinni á ís- lenskum bókmenntum. Útgáfustjórinn Timo Emamo uppgötvaði fyrstur finnskra útgefenda nýju bylgjuna í íslenskum bók- menntum og gaf út bækur Einars Kárason- ar, Vigdísar Grímsdóttur, Kristínar Ómars- dóttur og fleiri. Þær seldust kannski aldrei grimmt, segir hann, en söfnuðu um sig nýj- um hópi lesenda sem hefur veriö tryggur gegnum árin. Nú, segir síðan í greininni, er ísland ekki lengur í fókus hjá forlaginu. Ástæður þess eru bæði þær að íslenskar bækur eru ekki lengur jafnspennandi og einnig sé sár þörf á fleiri þýðendum úr íslensku. Norðmenn eru komnir í fyrsta sætið hjá Like enda vekja þeirra bókmenntir nú athygli um víða veröld. JSJordisk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.