Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Blaðsíða 12
12
MIÐVTKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
21
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páli Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf.
Filmu- og plötugerö: isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Andstaða við skynsemi
Góðar hugmyndir og skynsamlegar tillögur mæta oft
andstöðu þeirra sem meta kyrrstöðu betur en framfarir.
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur ekki vakið
mikla lukku meðal þeirra sem hafa ímugust á öllu því sem
gæti styrkt íslenskt atvinnulíf og þar með skotið styrkari
stoðum undir framtíð allra landsmanna.
í ræðu sem sjávarútvegsráðherra hélt fyrir skömmu á
ráðstefnu Euro-Ice, samtaka fyrirtækja með starfsemi í
Evrópu, varpaði hann fram þeirri hugmynd að efla mætti
samkeppnisstöðu íslands með því að nýta tækifærið til að
lækka skatta á fyrirtæki. Ámi Mathiesen telur að aðgang-
ur að sameiginlegum innri markaði Evrópu í gegnum
EES-samninginn og möguleikinn á að framfylgja sjálf-
stæðri skattastefnu skapi íslandi einstakt tækifæri: „Og
hvort sem samræmd skattastefna verður ofan á hjá Evr-
ópusambandinu eða ekki þá gefa lægri skattar okkur
ákveðið sóknarfæri. Nú þegar eru skattar á fyrirtæki á
Norðurlöndunum næsthæstir á íslandi en það er einungis
í Danmörku sem skattar á fyrirtæki eru hærri en hér á
landi. Staða ríkissjóðs er mikilvæg í þessu sambandi en
hún hefur sennilega aldrei verið sterkari. Við höfum ver-
ið að greiða niður skuldir á undanförnum árum og óhætt
er að segja að skuldastaða ríkissjóðs sé að komast á við-
unandi stig. Okkur er því hugsanlega að gefast einstakt
tækifæri til að nota afganginn á ríkissjóði, haldist hann
næstu árin, til þess að lækka skatta.“
Öflugt atvinnulíf með arðvænleg fyrirtæki er besta
trygging landsmanna fyrir því að hægt sé að byggja upp
lífvænlegt þjóðfélag þar sem lífskjör allra eru tryggð. Lífs-
kjör ráðast ekki af flóknu kerfi millifærslna í skattkerfinu
heldur af gengi og þrótti atvinnulífsins. Eftirtektarvert er
að þeir sem mest hafa á móti þvi að skjóta enn frekari
stoðum undir atvinnulífið með lægri sköttum hafa í orði
verið talsmenn launafólks. Með því að leggjast gegn lægri
sköttum fyrirtækja er staðið i vegi fyrir því að fyrirtæki
eflist og öðlist meiri þrótt til að standa undir þeim launa-
kröfum sem eðlilegt er að landsmenn geri.
Árni Mathiesen hefur opnað á mikilvæga umræðu um
hvaða stefnu eigi að taka í skattamálum og ríkisfjármál-
um almennt. Þá er horft til framtiðar en ekki aðeins til
morgundagsins sem sjóndeildarhringur margra stjórn-
málamanna takmarkast við. Það er rétt að góð staða rik-
issjóðs, sem því miður hefur ekki verið notuð til róttækra
kerfisbreytinga, skapar tækifæri á að gjörbreyta skatt-
heimtu ríkissjóðs. Ekki aðeins skattheimtu á fyrirtækjum,
heldur einnig á einstaklingum sem margir hverjir berjast
í bökkum vegna flókinna og ranglátrar skattheimtu, sem
byggir fyrst og fremst á því að refsa þeim sem reyna að
standa á eigin fótum.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra bíður mikið verkefni
á komandi mánuðum en enginn ráðherra fjármála hefur
haft annað eins tækifæri og hann til að stokka upp spilin.
Eftir nokkrar vikur mun ráðherrann leggja fram frum-
varp til fjárlaga fyrir komandi ár. Margir munu beina
augunum að frumvarpinu sjálfu með það í huga hvort að-
hald i ríkisfjármálum sé nægjanlegt eða ekki. Vissulega
skiptir það máli, en mestu skiptir þegar til lengri tíma er
litið að fj ármálaráðherra taki af skarið um það hvernig
hann ætlar að nýta tekjuafgang af ríkissjóði á komandi
árum. Ámi Mathiesen hefur komið með skynsamlegar til-
lögur í þeim efnum.
Óli Björn Kárason
ÐV
Skoðun
Pumpustrákaskattur
„Það sem er að gerast er óskaplega einfalt og það er
þess vegna sem ráðamenn vilja ekki lækka skatta á
olíu. Það er að framleiðsluákvarðanir OPEC geri Vest-
urlönd að skattlöndum OPEC-ríkjanna. “
Það er upphaf skatt-
heimtu að fjallaskörð voru
ein leiða með salt og annan
vaming. Ræningjar sátu
um skörðin og tóku hlut af
þeim varningi sem um
skarðið fór. Síðan þá eru
þúsundir ára og við höfum
þróað stórkostlegt tækni-
samfélag. Nema hvað? Ein
aðalleið er fyrir orku þessa
samfélags. Hún fer um
pumpur og krana. Og þeir
sem sitja á pumpum og
krönum hafa sömu aðstöðu
til skattheimtu og ræningj-
ar i fjallasköröum forðum.
Allt lagt undir
Og þá gerist það að neytendum
þykir dýrt. Og hvað er þá til ráða?
Nú, samfélögin eiga þá að fá minna
og lækka skatta, svo pumpustrákar
geti fengið skattinn. Og allt lagt und-
ir. Sendlar á stóru sendlahjólunum
steyttu hnefa og tóku sér stöðu á göt-
unni. Bensínið þvarr af bílum svo
það var ekki einu sinni hægt að drifa
kynngimögnuð hljómtækin, hvað þá
annað. Allt í einu var ljóst að hið
stolta ríka samfélag var
nestað til sex daga. Eftir sex
daga og lokaða krana, þá
var allt stóra stopp.
Mikilfenglegir spítalar,
mikilfenglegar borgir, mik-
ilfenglegur iðnaður, stolt
vísindasamfélag og stoltir
forystumenn ríkja og fjár-
velda eiga tilveru sína und-
ir opnum krönum. Hvað er
þá til ráða? Auðvitað verð-
ur að gefa pumpustrákun-
um eftir, annars er dauðinn
vís.
Næsta mál á dagskrá er
þá að fara með bænarskrá til pumpu-
stráka. Og pumpustrákar láta af ör-
læti sínu fé í kosningasjóði. Nú þarf
að brosa og segja allt gott. Þjóðirnar
þurfa að láta nokkur prósent af verki
sínu og framleiðni til uppihalds
pumustráka. Og þá kemst allt í lag á
ný. Skipa síðan nefndir til að svona-
lagað komi ekki fyrir aftur. - Var
ekki sápa eða fótbolti einhvers stað-
ar í sjónvarpinu?
Einhver með leiðindi?
Allt er orðið gott. Þetta var bara
svona svolítið vesen. Er einhver með
leiðindi? Vill nokkur leysa aflvéla-
vandann? Móðgar það ekki pumpu-
strákana bara? Kæmi það ekki illa út
á næstu nóbelshátíð að vera að sýna
fram á einhver leiðindi? Myndi það
ekki bara skaða álitið á mikilfeng-
leik mannsandans að vera að spyrða
einhvem grundvöll undir menning-
una saman við góða hátíð? Kæmi það
ekki bara illa út í skoðanakönnunum
að mikilfengleiki leiðtoganna er
spuming um opnun á krana?
Voru þessir leiðtogar ekki búnir
að ákveða sjálfir í Kyoto að loka fyr-
ir kranana til að spiúa ekki vistkerfi
jarðar? Er þetta ekki bara allt í lagi
svona? Og eru ekki einhverjir að
gera eitthvað með vetni?
Skattlönd OPEC-ríkjanna
Nei, þetta er ekki svona. Það sem
er að gerast er óskaplega einfalt og
það er þess vegna sem ráðamenn vilja
ekki lækka skatta á olíu. Það er að
framleiðsluákvarðanir OPEC geri
Vesturlönd að skattlöndum OPEC-
ríkjanna - og fátæk ríki að hung-
ursneyðarríkjum. Það er óþolandi
ástand. Almenningur vill ódýra orku.
Þá finnum við aðrar leiðir og göngum
í það strax. Það er ósamrýmanlegt
ákvörðun þjóðarleiðtoga á þúsaldar-
fundi Sameinuðu þjóðanna að útrýma
hungri og fátækt og búa við pumpu-
strákaskattheimtu. - Það er þá ekkert
forræði þessara leiðtoga.
Þorsteinn Hákonarson
Ertu hafður að féþúfu
- af tryggingafélögunum?
Eru tryggingafélögin „alræmdustu
fjárglæfrasamtök" okkar tíma? Er
um að ræða „mafiu“ íslands eða
heiðarlega viðskiptahætti? - Stað-
reynd er, að í dag kostar okkur
landsmenn fátt meira en vaxtagjöld
lánastofnana, skattar ríkisins, spek-
úlantar olíumarkaðarins og trygg-
ingar. Ætla mætti að tryggingar
væru, samkvæmt lagagreinum, leið
til að vinna að vemd eigna okkar, til
þess að hjálpa okkur að tapa ekki
öllu því sem okkar er, en jafnframt
að geta staðið myndarlega að þvi að
vernda aðrar eigur okkar sem lögin
ná ekki yfir. Mér skilst að vísu að
þetta hafi einhverntíma verið hug-
sjón tryggingafélaga. En mér er til
efs að það sé svo í dag.
Slysatrygging ökumanns
I huga okkar íslendinga er eflaust
ofarlega náttúruvemd og virðing
fyrir því umhverfi sem við lifum í.
Því er varla hægt að telja
það óeðlilegt að skoða aðr-
ar leiðir til þess að komast
leiðar sinnar hér í borg en
bílinn. Mér datt í hug að
kaupa mér létt bifhjól,
enda hafði ég áður prófað
eitt slíkt og þótti ekki
flóknara að stýra því en
reiðhjóli. Það býður líka
upp á lengri ferðir en reið-
hjólið, eyðir litlu bensíni
og þarfnast ekki mikils
legupláss (sem er hér af
skornum skammti).
Eftir nokkra leit fann ég eitt slíkt,
á næsta viðunandi verði. Þá kom að
tryggingunum. - Ég hringdi í tvö
tryggingafélög og spurðist fyrir um
tryggingar léttra bifhjóla. Hjá VÍS
var mér tjáð að tryggingin myndi
kosta mig um 86.000 á ári og tjáði
stúlkan sem ég ræddi við mér að
ekki væri tekið tillit til aldurs eða
reynslu ökumanns, né
heldur til þess hvaða bónus
ég væri með á bifreiða-
tryggingunni (gildir aðeins
um þung bifhjól).
Hjá Tryggingamiðstöð-
inni gátu þeir þó boðið bet-
ur, eða 83.000 á ári. Þeir
sögðust einnig taka tillit til
aldurs ökumanns og vildu
fá 117.000 kr. á ári ef ég
hefði ekki fyllt 17 ár. Nú
var mér tjáð hjá báðum fé-
lögum að stór þáttur í
þessu háa verði væri slysa-
trygging ökumanns, enda vildu
bæði félög meina að mannskaði
væri almennari og meiri en í bif-
reiðaslysum. Um það leyfi ég mér að
efast.
Samanburöur: bifreið - bifhjól
Með tilliti til umhverfisþáttarins
og fjárútláta, langar mig að gera
samanburð á bifreiðaeign annars
vegar og léttu bifhjóli hins vegar. Ég
miða við tvö farartæki sem ég kann-
ast best við og áætla um 2000
km/ári eða hreint innanbæjarsnatt,
og að farartækin séu keypt í dag, og
greidd á fimm árum. Bæði farartæk-
in nota 95 okt. bensín. Viðmiðunar-
verð 95 kr/lít. Ég miða við að
tryggja hjá VÍS, en geri ráð fyrir að
munurinn sé svipaður þótt miðað sé
við Tryggingamiðstöðina (en FÍB
neitar að tryggja létt bifhjól).
Þannig myndi ég borga i rekstur
af léttu bifhjóli réttum 13 þúsundum
meira á ári en af bifreiðinni og þó
væri hlutur eldsneytis rúmum 12
þúsundum minni en af bifreiðinni í
sama akstri!
Ef verð ökutækisins er siðan
reiknað inn í greiði ég á hverju ári
í stofnkostnað og rekstur samanlagt
af létta bifhjólinu kr. 142.550 en af
bifreiðinni 145.531 á sama tima.
Mengun af bifreiðinni er umtalsvert
meiri, bæði í útblæstri, sliti á göt-
um, sliti á dekkjum og úrgangi þeg-
ar bifreiðinni er fargað. Bifreiðin
veldur fleiri og alvarlegri slysum í
umferðinni.
Því er mér spum: Hvaða raun-
hæfa réttlætingu hafa tryggingafé-
lögin fyrir slíkri skattheimtu sem
iðgjöld þeirra á létt bifhjól eru, ef
þau þá hafa nokkra? Og: Geta þau
sýnt mér fram á ástæðu þess að
gjöldin þurfi að vera af þeim kalíber
sem þau eru? Ég tek fram i lokin að
ég tryggði bifreið hjá VÍS í vor og
var þá með F+ tryggingu og greiddi
skv. þáverandi gjaldskrá einar 38
þúsundir í bifreiðatryggingu. - Með
miklu ergelsi í garð tryggingafélaga.
Þór Sigurðsson
Farartæki: Eyðsla: Tryggingar: Verð: Kr./Ári
( rekstur )
Létt bifhjól -2.5/100 86.000,- 259.000,- 90.750,-
Honda X8R-X 501/ári 4.750, /ári
Bifreið
Hyundai Accent -9/100 60.431,- 340.000,- 77.531,-
Árg 94 1801/ári 17.100,-/ári
1
,Því er mér spurn: Hvaða raunhœfa réttlœtingu hafa tryggingafélögin fyrir slíkri
skattheimtu sem iðgjöld þeirra á létt bifhjól eru, ef þau þá hafa nokkra?“
Þór Sigurösson
kerfísfræöingur
Með og á móti
Idssyni um byggðavandann?
Davíð áhugalítill
„Það er náttúr-
lega ekki hægt að
kenna einum
manni um byggða-
vandann en auð-
vitað hlýtur ábyrgð Davíðs
Oddssonar að vera stór.
Hann var ráðherra byggða-
mála í tæp níu ar, fram að
síðustu áramótum, á sama
tíma og ástandið fór hríð-
versnandi.
Það versta er að hann virt-
ist á þessum tíma lítinn
Einar
Skúlason
formaöur Sam-
bands ungra fram-
s óknarmanna
áhuga hafa á því að beita sér
í málaflokknum, utan það að
flytja Alþingi reglulega
skýrslu. Ég vænti þess að
minnsta kosti nú að hann
gefi öðrum svigrúm til þess
að snúa vörn í sókn, og hugsi
sig tvisvar um áður en hann
kemur með árásir á borð við
þá gagnrýni á rekstur sveit-
arfélaga sem hann hafði um
daginn. Hann þarf aö taka til
heima hjá sér áður.“
Ekki Davíð að kenna
- ^ , „Það er ekki
■í hægt að kenna
' Davíð Oddssyni
f um byggðavand-
ann frekar en um
rigninguna eða vindinn.
Framsóknarmenn vilja
endalaust beita handaflinu til
að njörva fólk niður hringinn
í kringum landið.
Til þess eru öll úreltu með-
ulin leyfileg, með öllu óhag-
ræði og óréttlæti sem þeim
fylgir.
Björgvin
Guðmundsson
formaöur
Heimdallar
Hver man ekki eftir þess-
um sértæku aðgerðum? Fisk-
eldi, loðdýrarækt og ullariðn-
aður. Trílógía framsóknar-
manna. Ástæðan fyrir þvi að
fólk flytur er að það sækist
eftir fleiri tækifærum, meiri
og betri þjónustu og fjöl-
breyttara mannlifi.
Handafl framsóknarmanna
hefur ekki áhrif á þessar
væntingar okkar sem betur
fer.“ -SMK
Samband ungra framsóknarmanna hefur gagnrýnt forsætisráöherra harðlega varðandi frammistöðu hans i
hjá ráðherranum varðandi þessi mál. Báðir flokkarnir hafa setið í ríkisstjórn síðustu fimm árin.
byggðamálum og sagt að aðgerðaleysi hafi ríkt
Ummæli
Verötrygging
inn- og útlána
„Fæst lönd nota verð-
tryggingu að ráði og
alls ekki á innlánum.
En hér á landi er stór
hluti af innistæðum í
bönkunum verðtryggð-
ar eða aðrar bundnar
innistæðm og á þeim
er ávöxtun miklu hærri en á almenn-
um sparisjóðsbókum. Væri miðað við
þau innlán í útreikningum á mismun
inn- og útlánsvaxta yrði mismunurinn
líka miklu minni en í töflu Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins. Myndin er því ekki
eins slæm og hún sýnist."
Yngvi Örn Kristinsson, forstöðum. pen-
ingamálasviðs Seðlabankans,
í Degi 19. sept.
Sjálfstætt
tryggingakerfi
„Umræða um einka-
væðingu er að mínu
mati einfaldlega ekki
tímbær. Áðm en að því
kemur er mjög nauð-
synlegt fyrir okkm að
taka bæði trygginga-
þáttinnn og rekstrm-
þáttinn til gagngerrm endmskoðun-
m.... Það sem þarf að gera er að
breyta núverandi kerfi úr því að vera
greiðslm úr ríkissjóði með föstum
framlögum í eiginlegt sjálfstætt trygg-
ingakerfi á vegum þess opinbera,
þannig að jafmétti sé tryggt"
Ólafur Örn Arnarson læknir í Mbl. 19. sept.
Nýjar lausnir?
„Maddaman hefm nokkrm áhyggj-
ur af þeim góða dreng, Kristni H.
Gunnarssyni. Kristinn hefur sýnt
mikinn myndugleika sem stjórnarfor-
maður Byggðastofnunnm og komið
með nýjm áherslur i byggðamálum.
Það veldur hins vegm Maddömunni
vonbrigðum ef satt er að stjórnarfor-
maðm Byggðastofnunar ætli að taka
um það pólitíska ákvörðun hverjir
skuli fara með innheimtu fyrir
Byggðastofnun..Auðvitað vekur
slíkt umtal og athygli."
Úr vefriti Maddömunnar 18. sept.
Skattalækkun í bið
„Við vitum að tekju-
auki ríkissjóðs undan-
fmin ár stafm af að-
stæðum sem verða
ekki hér til frambúð-
ar.... Ég held að við
ættum að bíða í eitt
eða tvö ár og sjá
hvernig okkm tekst lendingin eftir
alla þessa ofþenslu í þjóðfélaginu. Allt
tal um skattalækkun í þessu efnahags-
ástandi er bara ekki raunhæft."
Rannveig Siguröardóttir, hagfræöingur ASÍ,
í Degi 19. sept.
Orrustan um
bensínverðið
Verð á bensíni og dísilol-
íu er mesta hitamál í Evr-
ópu þessa daga. í hverju
landinu af öðru er þess
krafist að verðið lækki,
enda taki stjórnvöld ailtof
mikið til sín með álögum á
eldsneyti: bílstjórm loka
fyrir dreifingu, umferð
stöðvast, ráðherrar skjáifa
á báðum beinum.
Dýr er sá akstur
Bílstjórar og eigendur
vörubíla eru þeir sem bera
uppi þessar mótmælaaðgerðir. Það
er fróðlegt, ekki sist i ljósi þess að
þessir aðilar hafa í rauninni miklu
síður siðferðilegan rétt til að mót-
mæla verðlagi á eldsneyti en t.d.
venjulegir eigendur einkabíla. Eða
ekki verður betur séð af úttekt sem
vikublaðið Spiegel gerði fyrir
nokkru á kostnaði við gífurlega og
stóraukna umferð stórra vörubíla
um Þýskaland.
Þar segir að ótrúlega mikill mun-
ur sé á því hvað vörubílaakstur kost-
ar í vegasliti, samgönguframkvæmd-
um, tímatapi, slysum og mengun
umfram akstur einkabíla, sem eru
þó 20 sinnum fleiri. Einn fjörutíu
tonna vörudreki slítur asfalti á veg-
um á við tugi þúsunda einkabíla -
auk þess sem titringur frá þessum
þungu vegaskepnum hristir sundur
leiðslur og gömul hús i nærliggjandi
byggðum. Vörubilaumferðin vex
margfalt hraðar en önnur umferð og
kallar á æ stærri og dýrari fram-
kvæmdir. Umferðarteppur vegna
álags eða árekstra eru að einum
þriðja raktar til vörubíla. Vörubílar
eitra loftið með 2,5 sinnum meiri
koltvísýringsútblæstri og fimmfalt
meira sóti en allir aðrir bílar saman-
lagt.
Stór hluti banaslysa í umferðinni
(fimm mannslíf á dag) skrifast á
reikning vörubíla: loftpúðar stoða
lítt í árekstrum við þessi ferlíki.
Slysatíðnin er tengd því, að hörð
samkeppni í flutningum leiðir til
þess að svindlað er á ákvæðum um
hvíldartíma, t.d. með því að mæl-
ingatæki eru trufluð með miklu hug-
viti, bílstjórar sitja alltof lengi við
stýri og eru einatt úrvinda af þreytu
og því fer sem fer.
Niðurgreidd umferð!
Að öllu samanlögðu fer því fjarri
að vörubílaeigendur borgi þann
kostnað sem til fellur við
notkun þeirra. Eigendur
einkabíla borga tvöfaldan
þann kostnað sem til fellur
í samgöngukerfinu vegna
þeirra - en eigendur vöru-
bíla aðeins 66%. Hvert tonn
af vörum sem ekið er einn
kílómetra hefur í fór með
sér umhverfistjón sem met-
ið er á 28 pfenniga - það
borgar hinn almenni skatt-
greiðandi. Stjómmálamenn
þora ekki að bregðast við
þessari stöðu. Þeir eru und-
ir miklum þrýstingi: flutningar eiga
að vera ódýrir til að greiða fyrir við-
skiptum, allt annaö verður að víkja
fyrir þeirri kröfu. Gífurlegur vöxtur
vörubílaumferðar er tengdur þeirri
verkaskiptingu að vara skuli búin til
þar sem hægt er að gera vissa hluti
aðeins ódýrar en annars staðar.
Úr þessu verður gífurlegur akstur:
töluglaður maður reiknaði það út, að
til þess að búa til jarðarberjajógúrt
þvælist vörubílar fram og aftur um
vegina 3500 km - og þó á eftir að
keyra jógúrtina út til verslana. Önn-
ur hagræðingarkrafan sem marg-
faldar umferð er sú að fyrirtæki liggi
ekki uppi með lager, þau geti fengið
fyrirvaralítið akkúrat það sem þau
vilja til framleiðslu eða sölu á hverj-
um tíma. Því eru vöruflutningar
með vörubílum greiddir niður - og
eigendum finnst það ekki nóg, eins
og mótmælafréttir sýna.
Skynsamlegt væri að gera akstur
vörubíla á lengri leiðum dýrari með
vegagjöldum og ýta undir notkun
járnbrautakerfis, en áformum í þá
veru er lítt fylgt eftir. Þar fyrir utan
veit enginn hvað er „rétt“ verð á for-
gengilegri auðlind eins og olíu - olíu-
framleiðsluríki gætu að sínu leyti
hækkað verðið mikið enn og meira
að segja haldið því fram að þau væri
að sýna framsýni og hvetja til orku-
sparnaðar í heiminum. Þau gætu
líka sagt að markaðslögmálin leyfi
stórmiklar hækkanir - ekki skortir
eftispurn eftir þessum dýra vökva.
Enn er margra bensínfrétta von og
verða fáar þægilegar.
Árni Bergmann
„Að öllu samanlögðu fer því fjarri að vörubílaeigendur
borgi þann kostnað sem til fellur við notkun þeirra.
Eigendur einkabíla borga tvöfaldan þann kostnað sem
til fellur í samgöngukerfinu vegna þeirra - en eigendur
vörubíla aðeins 66%.“
Arní Bergmann
rithöfundur