Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
29
I>V
Tilvera v
ara
65
ítaíska þokka-
gyðjan Sophia Lor-
en þykir bera ald-
urinn vel en í dag
fagnar hún 65 ára
afmælinu. Hálf öld
er síðan Sophia hóf
að leika í kvik-
myndum og nálgast
þær hundrað óðfluga. Sophia hefur
um árabil verið ein þekktasta leik-
kona ítala á alþjóðavísu. Tvisvar
hefur henni hlotnast óskar, annars
vegar fyrir kvikmyndina La Cioci-
ara og hins vegar hlaut hún heið-
ursóskar fyrir framlag sitt til kvik-
mynda.
Gildir fyrír fímmtudaginn 21. september
Vatnsberinn (20. ian.-lS. febr.t:
. Dómgreind þin er nokkuð
skert þessa dagana og þú
verður að gæta þess að
láta ekki tilflnningamar
hláupa með þig í gönur. Þú skalt
hlusta á það sem aðrir hafa að segja.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars):
\ Vinátta og fjármál gætu
Ivaldið þér hugarangri í
dag og þú skalt fara ein-
staklega varlega í við-
skiptu'm. Reyndu að forðast að
lenda í illdeilum við vini þina.
Hrúturinn (21. mars-19. aoríl):
Þú ert viðkvæmur í dag,
I hvort sem það er vegna ein-
hvers sem var sagt við þig
eða þú heyrðir einhvem
segja um [ág. Þú þarft á hvatningu að
halda til að byija á einhverju nýju.
Nautið (20. apríl-20. maí):
I Þér gengur best að
Jk. vinna í dag ef þú getur
verið í félagsskap fólks
sem þér líkar vel við.
Samkeppni á ekki við þig þessa
dagana.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi:
Þú ættir að gefa fjöl-
’ skyldu þinni meiri
tíma, hún þarfnast þin
og þú hennar. Þú ert
eitthvað slappur þessa dagana og
ættir að reyna að taka það rólega.
Krabbinn f??. iúní-22. iúið:
Þú verður að gefa þér tíma
I til að setjast niður og
' skipuleggja næstu daga
_____ þar sem þeir eiga eftir að
verámjög annasamir. Það er margt
skemmtilegt og spennandi um að vera.
Liónið (23. iúlí- 22. ágúsú:
Ákvarðanir sem þú
tekur í dag og næstu
daga gætu haft áhrif á
framtíð þína. Þér geng-
ur vel að vinna með fólki.
Mevian (23. ágúst-22. seot.l:
Þó að þú sért búinn að
skipuleggja hjá þér
^^^Lnæstu daga út í hörgul
^ f gætir þú þurft að breyta
áætlimum þínum vegna erfiðleika
hjá einhverjum í kringum þig.
Vogin (23. sept-23. okt.):
Samband sem venju-
lega er mjög tilfinn-
ingaríkt gæti orðið
stormasamt á næstu
dögum. Þér gengur vel í vinnunni.
Tviburarmr 12
&
Vogin (23. st
ý
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
Vertu viðbúinn þvi aö
þurfa að taka svolitla
jáhættu. Aðrir hta til
þín sem nokkurs kon-
ar leiðtoga og þú mátt ekki bregð-
ast því trausti sem þér er sýnt.
Bogamaður (22. nóv.-2i. des.):
.Vertu bjartsýnn á
rframtíðina og ekki
taka gagnrýni sem þú
færð of alvarlega. Þú
ættir að vera heima og eiga rólegt
kvöld með íjölskyldu eða viniun.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Ekki vera hræddur við
að endurskoða hug
þinn varðandi ýmis
mál. Batnandi manni
er fiest að lifa. Dagurinn verður
óvenjulegur og spennandi.
Lögreglan leitar
heróínvinkonu
Lögreglan í London leitar nú að
ungri konu sem var með Paulu
Yates nokkrum klukkustundum áð-
ur en hún lést aðfaranótt sunnu-
dags. Konan er sögð vera heróín-
neytandi. Vinir Paulu telja að kon-
an hafi látið hana fá heróín sem
varð henni að bana.
Nánasta vinkona Paulu, Belinda
Brewin, fór til hennar snemma á
laugardagskvöld til að sækja 7 ára
dóttur sína, Indiönu. Telpan hafði
verið verið hjá Paulu og dóttur
hennar, Tiger Lily, sem er 4 ára, á
laugardeginum. Belinda mun hafa
greint lögreglunni frá því að hún
hafi rifist við Paulu um dvöl ungu
konunnar hjá henni. Það var skoð-
Við heimili Paulu Yates
Lögreglan rannsakar nú andlát
Paulu er fannst látin á heimili sínu.
un Belindu að konan hefði slæm
áhrif á Paulu þar sem hún væri
heróínneytandi. Paula hafði lofað
því að umgangast hana ekki meir.
Paula var undir áhrifum fikniefna
þegar Belinda kom og var mjög æst.
Hún vildi ekki reka ungu konuna á
dyr. Konan fór með Paulu út í
áfengisbúð um kvöldið og að sögn
búðareigandans var greinilegt að
þær höfðu verið að drekka allan
daginn.
Bob Geldof, fyrrverandi eigin-
maður Paulu og faðir þriggja dætra
hennar, fær um stundarsakir for-
ræðið yfir Tiger Lily sem er dóttir
söngvarans Michaels Hutchence er
fyrirfór sér 1997.
Cliff Richard er
nýr spámaður
Biblíurokkarinn og unglambið
Cliff Richard er nýr spámaður og
boðberi endurkomu Frelsarans, og
það má víst lesa úr sjálfri Biblíunni,
að' þvi er félagar í breskum sértrú-
arsöfnuði halda fram. Cliff hefur
lengi verið trúaður maður og því
ætti þetta sosum ekki að koma á
óvart.
Guðfræðingurinn Iain McGregor
sagði æsifréttablaðinu The Sun að í
lok mánaðarins myndi hann greina
frá því sem biði Cliffs gamla. „Cliff
er fyrirboði þessa mikla atburðar
sem við sjáum fyrir,“ sagði guðs-
maðurinn.
Jennifer í Róm
Leikkonan og söngkonan Jennifer Lopez heldur áfram flakki sínu um Evr-
ópu til aö kynna kvikmyndina Frumuna, sálfræöilegan trylli um feröalag
sálfræöings inn í hugarheim raömoröingja. Jennifer var léttklædd í Róm,
enda veðriö sjálfsagt tii þess þarna suöur í álfu.
Geena í gagn-
sæju hjá Emmy
Geena Davis vissi vel hvað hún
var að gera þegar hún klæddi sig í
gagnsæjan kjól fyrir Emmy-verð-
launahátíöina á dögunum. Og það
sem meira er, hún var ekki í neinu
undir.
„Mér fannst kjóllinn minn æðis-
legur! Ég var ánægð með hann,“
sagði Geena í vikunni við slúður-
dálkahöfundinn Liz Smith. Með þvi
vildi leikkonan eyða öllum orðrómi
um að hún hefði ekki haft hugmynd
um hvemig sviðsljósin á hátíðinni
myndu fara með kjólinn.
Darva orduð vid
sjónvarpsgæja
Athyglissjúklingurinn Darva
Conger, ^em varð fræg fyrir að gift-
ast milljónera í beinni sjónvarpsút-
sendingu og skilja við hann
nokkrum dögum síðar, ku hafa
krækt sér í einhvern frægasta sjón-
varpsmann Bandaríkjanna, drullu-
mokarann Geraldo Rivera.
Að sögn blaðsins Daily News í
New York stendur það eitt í vegi
þess að þau geti gengið í það heilaga
að Geraldo hefur ekki enn gengið
frá skilnaði við konuna sem hann
var kvæntur í nítján ár. Geraldo er
vellauðugur og Darva líka.
Bio&if'nryní
Sambióin - High Fidelity: ★ ★ ★ ★
Verkur á heilanum
Asgrímur
Sverrisson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Plötusalinn í búðinni sinni.
John Cusack fer vel meö hlutverk manns sem lifir og
hrærist í tóntist.
Ef þú ert undir fertugu
muntu nokkuð örugglega
kannast við þig í þeim
heimi sem brugðið er upp í
High Fidelity. Þú rekst
ekki endilega á sjálfan þig
en hittir þess fleiri vini og
kunningja fyrir. Aðalper-
sónan rekur t.d. plötubúð
og heima hjá honum eru
veggimir þaktir vinyl;
hann er spurður eftir
hvaða kerfi hann raði plöt-
unum, er það kannski eftir
tímaröð eða stafrófsröð?
„Nei“, svarar hann, „það
er eftir atburðaröð".
Þegar þú getur lesið
sjálfsævisöguna út úr
plötuskápnum heima hjá
þér veistu að þráhyggjan
stýrir lífi þínu. Og Rob
plötubúðareigandi
(Cusack) er langt leiddur.
Hann trúir okkur t.d. fyrir þvi að
hann og samstarfsmenn sínir í
plötubúðinni (sem reyndar em enn
meiri nirðir) ákváðu eitt sinn að
það sem manni líkaði við væri mik-
ilvægara en hvemig maður væri í
háttu. Allir sem hafa haft eitthvað á
heilanum - hvort sem það er tónlist,
fótbolti, pólitík, heilsufæði, kvik-
myndir eöa hvaðeina - kannast við
þessa hugsun, þar sem sjálfsmyndin
miðast við vörðurnar í alþýðumenn-
ingunni.
Rob er reyndar ekkert sérlega
klikkaður, bara svo-
lítið hætt við sjálfs-
vorkunn og sjálfs-
hrifningu, eins og
tamt er um róman-
tíska unga menn.
Þegar kærastan hans,
Laura (sem leikin er
af hinni dönsku Iben
Hjelje úr Mifune’s
sidste sang), fær nóg
og fer rifjar hann upp
fimm verstu skilnað-
ina og kemst að því
sér til hlökkunar að
hún er ekki á listan-
um. Restina af mynd-
inni er hann hins
vegar að sjá að sér,
því smám saman
rennur upp fyrir hon-
um að ástin er blekk-
ing en kærleikurinn
eilífur. Á leiðinni
þarf hann hins vegar að strippa al-
gerlega til að sjá sjálfan sig í ljósi
þessara sanninda.
Myndin er byggð á samnefndri
bók breska rithöfundarins Nick
Hornby, sem einnig skrifaði Fever
Pitch, sem fjallaöi um sauðþráan
Arsencd-aðdáanda og tilraunir hans
til að sameina kvenpening og fót-
bolta. Myndin sem gerð var eftir
þeirri bók stendur þessari langt að
baki og er það umhugsunarefni því
bækumar eru svipaðar, hnyttnar og
settar fram áreynslulaust. Kannski
felst munurinn í því að Fever Pitch
er gerð í Bretlandi en High Fidelity
í Ameríku, reyndar cif breskum leik-
stjóra, Stephen Frears. Og kannski
liggur hann bara í John Cusack,
þessum afbragðs leikara sem er víst
ekki nægilega gjörvilegur í framan
til að vera megastjarna en bætir það
margfalt upp með greind og húmor
í leik og verkefnavali. .
Þetta er sérlega skondin mynd
um ofur venjulegt nútímafólk og
ofur venjulegar raunir þess, þannig
gerð að manni stendur ekki á sama
um fólkið í henni og vill því allt hið
besta. Það er gott að finna þannig til
þegar maður gengur út úr bíóinu.
Leikstjóri: Stephen Frears. Handrit: D.V.
De Vincentis, Steve Pink, John Cusack
og Scott Rosenberg. Aöalhlutverk: John
Cusack, Iben Hjelje, Todd Louiso, Jack
Black, Lisa Bonet, Catherine Zeta-Jones,
Tim Robbins.
c
T
4
4.
F