Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Qupperneq 26
58
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2000
I>V
Ættfræði__________________
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Fjölnir Stefánsson
fyrrv. skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs
• aMati'Aijllf-jll
85 ára_________________________________
Guðrún Þórðardóttir,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
♦ ^ Jóhanna Helgadóttir,
Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfiröi.
Kristín Einarsdóttir,
Sæbergi 6, Breiðdalsvík.
80 ára_________________________________
Pétur Báröarson,
Grandavegi 39, Reykjavlk.
Ingiríöur Blöndal,
Stórageröi 38, Reykjavík.
Guðmundur Runólfsson,
Hrannarstíg 18, Grundarfirði.
Rósa Hjörleifsdóttir,
Miöjanesi 1, Króksfjarðarnesi.
María Rósmundsdóttir,
Freyjugötu lOb, Sauöárkróki.
Ottó Snæbjörnsson,
Byggöavegi 152, Akureyri.
75 ára_________________________________
Guðmundur Sigfússon,
Heiöargeröi 34, Reykjavlk.
Bragi Jónsson,
Safamýri 49, Reykjavík.
70 ára_________________________________
Reynir Jósepsson,
Rauðalæk 38, Reykjavlk.
Sveinn Bjarnason,
Brennistöðum, Borgarnesi.
Anton Jóhannsson,
Hverfisgötu 9, Siglufirði.
60 ára_________________________________
> Stefanía Sjöfn Sófusdóttir,
Ferjubakka 10, Reykjavík.
Aöalbjörg Stefánsdóttir,
Brekkubyggö 75, Garðabæ.
Guðmundur Jörundsson,
Munaöarhóli 13, Hellissandi.
50 ára_________________________________
Avdil Bajrami,
Seilugranda 4, Reykjavík.
Benedikt Sigmundsson,
Flúöaseli 74, Reykjavík.
Auður Aðalsteinsdóttir,
Laufengi 70, Reykjavlk.
.í Höröur G Helgason,
Staöarhrauni 15, Grindavík.
Þórunn Guðmundsdóttir,
Lækjartúni 13a, Mosfellsbæ.
Fjölnir Stefánsson, fyrrv. skóla-
stjóri Tónlistarskóla Kópavogs,
Lækjasmára 6, Kópavogi, er sjötug-
ur í dag.
Starfsferill
Fjölnir fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann innritaðist í Tónlist-
arskólann í Reykjavík 1943 lagði
stund á sellónám hjá dr. Heinz Edel-
stein, hóf nám i hljómfræði 1947 og
síðar í tónsmíðum hjá Jóni Þórar-
inssyni, lauk burtfararprófi í þeirri
grein 1954 og stundaði framhalds-
nám hjá Matyas Seiber í London
1954-58.
Fjölnir var kennari við Tónlistar-
skólann í Reykjavík 1958-68, tók
jafnframt að sér stundakennslu við
Tónlistarskólann í Mosfellsbæ
1965-66, við Tónlistarskólann í
Keflavik 1965-67 og við Tónlistar-
skóla Kópavogs 1966-67. Hann var
ráðinn skólastjóri Tónlistarskóla
Kópavogs 1968 og gegndi því starfi
til 1.9. 2000.
Tónverk eftir Fjölni hafa m.a.
verið flutt á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, á íslenskum
og norrænum tónlistarhátíðum og á
tónlistarhátíð International Society
of Contemporary Music.
Fjölnir var einn af stofnendum
Musica Nova 1959 og er félagi í Tón-
skáldafélagi íslands frá 1963. Hann
hafði forgöngu um stofnun Taflfé-
lags Kópavogs 1966, er heiðursfélagi
þess frá 1994, var kosinn til trúnað-
arstarfa við stofnun íslenskrar tón-
verkamiðstöðvar 1968, sat þar í
stjóm til 1984 og var formaður sið-
asta árið, tók þátt í stofnun STS,
samtaka tónlistarskólastjóra og sat í
fyrstu stjórnum þeirra, og sat í
stjórn STEFs 1974-88.
Fjölnir var valinn heiðurslista-
maður Kópavogs 1994.
Fjölskylda
Fjölnir kvæntist 1.1. 1958 Arndísi
Guðmundsdóttur, f. 1.4. 1938, full-
trúa á bæjarskjalasafni Kópavogs.
Hún er dóttir Guðmundar Þorkels-
sonar frá Valdastöðum í Kjós, f.
25.2. 1909, d. 8.11. 1969, innheimtu-
manns á Bæjarleiðum, búsettur í
Reykjavik, og Guðrúnar Ágústu
Halldórsdóttur, f. 20.11. 1914, d. 27.3.
1991, verkstjóra á saumaverkstæði
Anderson & Lauth, ættuð úr Árnes-
sýslu.
Börn Fjölnis og Arndísar eru
Ingibjörg, f. 31.10. 1958, B.Sc., hjúkr-
unarfræðingur á Landspítala við
Hringbraut, búsett í Kópavogi, gift
Brynjari Kvaran, íþróttakennara og
lögfræðifulltrúa hjá sýslumannin-
um í Kópavogi og eru böm þeirra
Hlíf , f. 30.9. 1984, og Fjölnir, f. 7.4.
1988; Þorbera, f. 20.1.1962, B.A. í sál-
arfræði og B.A. í dönsku, húsmóðir,
búsett i Kópavogi, gift Karli Sesari
Karlssyni skósmið, sem rekur
Skóarann í Hafnarfirði, og eru börn
þeirra Stefán Björn, f. 12.9. 1991,
Arnhildur, f. 1.11. 1994, og Hrafn-
kell, f. 7. 6. 1998; Brynhildur, f. 28.5.
1967, stundar kirkjusöngvaranám
við Kirkjumúsíkskólann í Hró-
arskeldu, búsett í Kaupmannahöfn
en sambýlismaður hennar er Asger
Mosegaard, viðskiptalögfræðingur
er starfar í skattadeild Price Water-
house & Coopers.
Systkini Fjölnis eru Hanna Krist-
ín, f. 24.12. 1939, M.ed., deildarstjóri
fræðsludeildar Vinnueftirlits ríkis-
ins, búsett í Reykjavík; Elín, f. 13.10.
1943, B.ed. í talmeinafræði með
raddþjálfun sem sérsvið og veflist-
arkona í kirkjulist, búsett á Norður-
Jótlandi; Sigríður, f. 10.8.1945, leik-
Fjölnir Stefánsson, fyrrv. skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs
Fjölnir hefur kennt vlö Tónlistarskóla Reykjavíkur, Mosfellsbæjar, og
Keflavíkur og veriö skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs frá 1968.
skólakennari, búsett í Reykjavík;
Ámi Erlendur, f. 14.2. 1949, við-
skiptafræðingur og eigandi fast-
eignasölunnar Gimli, búsettur í
Reykjavik.
Foreldrar Fjölnis voru Stefán
Kristinsson, f. 28.6. 1896, d. 21.3.
1982, fulltrúi tollstjóra i Reykjavík,
og Hanna Guðjónsdóttir, f. 16.5.
1904, d. 18.11.1984, píanókennari.
Ætt
Foreldrar Stefáns voru Kristinn
Erlendsson frá Teigakoti á Akra-
nesi, sjómaður og útvegsb. á Eyri í
Mjóafirði í Suður-Múlasýslu, og Sig-
riður Ámadóttir húsmóðir, ættuð
frá Eyrarbakka.
Foreldrar Hönnu voru Kristín
Ólafsdóttir, húsmóðir og verkakona
í Reykjavík, frá Stóru-Mörk undir
Eyjatjöllum og Guðjón Jónsson,
verkamaður, frá Stóru-Mörk undir
Eyjafjöllum.
Tónlistarskóli Kópavogs mun
halda tónleika Fjölni til heiðurs
með verkum eftir eftir hann í Saln-
um, Tónlistarhúsi Kópavogs, á af-
mælisdaginn og hefjast þeir kl.
20.00. Aðgangur er ókeypis.
40 ára________________________
Krístján Þorvaldsson,
Nökkvavogi 44, Reykjavlk.
Siguröur Már Jónsson,
Sólheimum 24, Reykjavlk.
Brynhildur Björnsdóttir,
Mávahllð 2, Reykjavík.
Kristinn Kristjánsson,
Ferjubakka 6, Reykjavlk.
Lovísa Björg Einarsdóttir,
Hraunbæ 136, Reykjavík.
Ellert Helgi Sigurðsson,
Hraunbæ 48, Reykjavík.
Helgi Jón Jónsson,
.. Austurbergi 8, Reykjavlk.
Heiðar Júlíus Sveinsson,
Hvannarima 26, Reykjavlk.
Björn Matthíasson,
Logafold 40, Reykjavlk.
Jón Sigurður Ólason,
Esjugrund 13, Kjalarnesi.
Dagmar Bjartmarz,
Lautasmára 35, Kópavogi.
Elín Rut Ólafsdóttir,
Starmóa 16, Njarðvík.
Elín Kristbjörg Sigurðardóttir,
Eyrartúni 12, Sauöárkróki.
Sigriður Elín Þórðardóttir,
Raftahllö 76, Sauðárkróki.
Bergljót Steingrímsdóttir,
Brekkugötu 13, Ólafsfirði.
Fanney Helga Hannesdóttir,
Ártröð 5, Egilsstöðum.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olson Baldur Fredriksen
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Sufurhlíö35 • Sfmi 581 3300
Jón Þorsteinn Arason
málarameistari í Reykjavík
Jón Þorsteinn Arason málara-
meistari, Breiðuvík 37, Reykjavík,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Jón Þorsteinn fæddist á Patreks-
firði og ólst þar upp. Hann lauk
námi frá Reykjaskóla í Hrútafirði
1950, lærði málaraiðn hjá Jóni
Bjömssyni, málarameistara í
Reykjavík, 1954-58, stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík, lauk
sveinsprófi 1959 og öðlaðist meist-
araréttindi 1962.
Jón flutti aftur til Patreksfjarðar
1959 og var þar málarameistari, auk
þess að reka verslun og umboðssölu
til 1985. Þá flutti hann til Reykjavík-
ur þar sem hann hefur búið síðan
og starfað við iðn sína.
Jón var virkur í félagsmálum á
Patreksfirði, var m.a formaður
íþróttafélagsins Harðar um tima og
tók virkan þátt í starfi Leikfélags
Patreksfjarðar og Lionshreyfingar-
innar.
FjOlskylda
Jón kvæntist 10.12. 1955 Þórdísi
Toddu Ólafsdóttur, f. 24.3. 1936, mat-
ráðskonu. Hún er dóttir Ólafs Haf-
steins Guðbjartssonar, f. 23.3. 1917,
d. 5.5. 1996, húsasmíðameistara, og
Sólrúnar Önnu Jónsdóttur, f. 22.8.
1915, d. 11.10. 1992, húsmóður.
Börn Jóns og Toddu eru Ari, f.
25.2. 1956, rafvirkjameistari í
Reykjavík, en dóttir hans er Þórdís,
f. 1980, og er sambýliskona Ara Sig-
ríður Ellen Þórisdóttir en dóttir
þeirra er íris Björk, f. 1994; Ólafur
Hafsteinn, f. 18.5. 1957, húsasmíða-
meistari á Selfossi, kvæntur Jónínu
Sóleyju Hjaltadóttur og eru börn
þeirra Þórunn Sif, f. 1984, Almar En-
ok, f. 1987, og Jón Fannar, f. 1990;
Þór f. 1.12. 1959, málarameistari í
Kaupmannahöfn; Ægir, f. 29.3. 1963,
málari í Keflavik, en sambýliskona
hans er Eyrún Karlsdóttir og eru
böm þeirra Karl Amar, f. 1986, Lísa
Mjöll, f. 1992, og Ari, f. 1996; Helgi
Rúnar, f. 8.1.1965, verslunarmaður í
Reykjavík; Þorsteinn Geir, f. 30.6.
1974, líffræðingur Reykjavík.
Jón er fimmti í röð sjö systkina.
Systkini hans eru Ingólfur, f. 6.12.
1921, búsettur í Reykjavík; Þórhall-
ur,
vík; Steingrímur Einar, f. 28.3. 1925,
búsettur í Reykjavík; Una Guðbjörg,
f. 14.5. 1927, búsett í Reykjavík; Júl-
íana Sigríður, f. 24.6. 1932, búsett í
Reykjavík; Erna, f. 12.3. 1934.
Foreldrar Jóns voru Ari Jónsson,
f. 9.11. 1883, d. 24.8. 1964, skósmiður
og kaupmaður á Patreksfirði, og
k.h., Helga Jónsdóttir, f. 10.3. 1893,
d. 9.5. 1962, húsmóðir.
Ætt
Ari var bróðir Þórðar,
hreppstjóra í Firði í Múlasveit,
fóður Ingibjargar, konu Árelíusar
Níelssonar sóknarprests. Ari var
sonur Jóns, b. á Vattarnesi,
Arasonar, b. í Múla í Gufudalssveit,
bróður Jóns, fóður Bjöms ráðherra,
fbður Sveins forseta og Ólafs
ritstjóra, afa Ólafs B. Thors
forstjóra. Systir Ara var Helga,
langamma Viðars Víkingssonar
kvikmyndagerðarmanns. Ari var
sonur Jóns, b. i Djúpadal, Arasonar,
bróður Guðrúnar, ömmu Gests
Pálssonar skálds. Bróðir Jóns var
Finnur, afi Ara Arnalds, afa
Ragnars Arnalds, fyrrv. ráðherra og
Jóns dómara.
Móðir Ara skósmiðs var
Guðbjörg Jónsdóttir.
Helga var dóttir Jóns Jónssonar,
b. í Djúpadal og síðar i Fremri-
Gufudal í Austur-Barðastrandar-
sýslu, og k.h., Júlíönu Jónsdóttur.
Jón verður að heiman á afmælis-
daginn.
Jakob Jóhannesson Smári, skáld, kennari og rit-
höfundur, fæddist á Sauðafelli i Miðdölmn 9.
október 1889. Hann var sonur Jóhannesar Lárusar
Lynge Jóhannssonar, prests á Kvennabrekku, og
f.k.h., Steinunnar Jakobínu Jakobsdóttur húsfreyju.
Jakob var hálfbróðir, samfeðra, Ragnheiðar, móður
Vífils verkfræðings og læknanna Ólafs Hergils og
Þengils Oddssona. Hálfsystir Jóhannesar á Kvenna-
brekku var Valgerður, langamma Jóns Steffensen
læknaprófessors.
Jakob lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1908, stund-
aði nám í norrænum fræðum við Kaupmannahafn-
arháskóla og lauk þar meistaraprófi 1914.
Jakob var kennari við ýmsa skóla í Reykjavík
1914-1920 og við MR 1920-36.
Jakob Jóhannesson Smári
Jakob sendi frá sér ljóðabækumar Kaldavermsl,
1920, Handan storms og strauma, 1936, Undir sól aó
sjá, 1939, og Við djúpar lindir, 1957. Hann var nýróm-
antískt skáld, skáldskapurinn ljóðrænn og átakalít-
ill, sonnettan hans aðalljóðaform en yrkisefnið
gjarnan sótt í kyrrð og fegurð íslenskrar náttúru.
Hann var því ekki beint barn sins tíma þegar leið á
ferilinn. Samt urðu ýmis ljóða hans vel þekkt og oft
sungin.
Jakob þýddi m.a. sum verka Gunnars
Gunnarssonar, leikrit eftir Ibsen og Strindberg,
óperettur, og Bókina um veginn eftir Lao-tse, ásamt
Yngva Jóhannessyni.
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
allan sólarhrmginn. www.utfararstota.ehf.is/