Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2000, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2000, Page 16
gg« Þórey Sigþórsdóttir er heilinn a bak við uppsetningu Fljúgandi fiska a Medeu eft- ir Evrípídes sem frumsýnd verður í kvöld í Iðnó. I tilefni af sýningunni kom út fyrir stuttu eins konar sýningarskrá í formi dagblaðs sem fengið hefur nafnið Kórintubréfið. Þar er fjallað um sýninguna á nokkuð nýstár- legan hátt og þau átök sem verkið ein- kenna færð til jKjWg- nútímans og æsifrétta. r< rnarauony ifil „í Medeu er byrjað á botninum og farið ennþá neðar,“ segir Þórey og hlær dátt. Þórey útskrifaðist úr Leiklistar- skóla íslands 1991 og fór eftir það að v vinna í Borgarleikhúsinu og lék þar meðal annars í Þrúgum reiðinnar. Eft- ir það vann hún í Þjóðleikhúsinu í eitt ár og tók þar ásamt öðru þátt í upp- setningu leikhússins á Hafinu eftir Ólaf Hauk Símonarson. Að því loknu sneri hún aftur í Borgarleikhúsið í eitt ár til viðbótar. Um það leyti frumsýndi Þórey einleikinn Skilaboð til Dimmu eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Sú sýning fékk góðar viðtökur og fór Þórey með leikinn í netta sýningarferð um landið en einnig út fyrir landsteinana, til Finnlands, Álandseyja og Svíþjóðar. , 50 Ijóðmyndir Leikfélagið Fljúgandi fiskur, sem nú setur upp Medeu, setti upp leikritið Hótel Heklu, eftir Anton Helga Jóns- son og Lindu Vilhjálmsdóttur, í KafFi- leikhúsinu í fyrra við góðar undirtekt- ir. Þar léku saman Hinrik Ólafsson og Þórey í nútímalegum ljóðleik sem ger- ist í flugvél. Það var líka flogið með þá sýningu til Svíþjóðar og Finnlands. Auk þess hefur Þórey unnið í sjón- varpi, með bama- og unglingaþáttinn Píluna og sem höfundur ljóðmynda með 50 leiklesnum ljóðum. Þar voru nánast eingöngu nútímaljóð og áhersl- an á ljóð eftir konur. Þórey segist eiga eftir að ljúka við seinni hluta þessa verkefnis þar sem horft verður til nátt- úruljóða. „Medea er svolítið í beinu framhaldi af þessu, kórarnir birtast á tjaldi og samtöl þar á milli, auk þess sem texti verksins er mjög ljóðrænn," segir Þórey um nýja verkefnið. Maraþonverkefni Uppsetningin á Medeu hefur tekið hvorki meira né minna en 4 ár. Mest- ur tíminn hefur farið í að afla flár- magns til að geta framkvæmt þær hug- myndir sem Þórey og samstarfsfólk hennar hafði um uppsetninguna. „Al- - gjört maraþonverkefni fyrir mig,“ seg- ir Þórey um vinnuna sem liggur að baki frumsýningunni í kvöld. Hún seg- ir talsvert fjármagn hafa verið nauð- synlegt, meðal annars vegna kostnað- arsamrar myndvinnslu sem hugsuð var fyrir sýninguna. Að loknum sýningum hér á landi verður farið í leikferðalag með Medeu til Englands í samstarfi við leikhópana The Icelandic Take-away Theatre og New Perspectives. Svo verður farið á leiklistarhátiðina í Tampere í Finn- landi í samstarfi við Leiklistarháskól- ann í Finnlandi. Uppsetning verksins hefur fengið styrk frá Culture2000 sem er verkefnasjóður innan EB. Það eru ekki mörg verkefni sem fá þetta, er þaö? „Það er rétt, það er rosalega flott að fá það. Umsóknin skiptir miklu máli því þeir vinsa miskunnarlaust úr. Það skipti líka miklu að við notum óhefð- bundið leikhúsform, þó það sé auðvit- að í raun búið að gera fullt af svona „multi-media“ uppsetningum, en það þykir spennandi. Það er þó ekkert að- alatriði fyrir okkur, við erum bara að finna leið til að segja þessa sögu.“ Sýningin mun aðeins verða sýnd í tvær vikur vegna þess að stærstur hluti tónlistarinnar í verkinu er spil- aður „live“ á hverri sýningu, en höf- undur tónlistarinnar, Jonathan Cooper, og flytjandi er einungis á land- inu í tvær vikur vegna mikilla anna í Englandi. „Hann er algjört séní, hann semur alla tónlistina og alla kórana. Við ákváðum í sameiningu að hafa alla tónlist „live“ en það þýðir líka að við höfum bara þessar tvær vikur. Þetta verður eins og í þöglu myndunum." Jonathan hefur meðal annars verið að vinna i The National Theatre í Englandi og með hinu virta David Glass Ensamble. Brytjar niður bróður sinn En hvernig sýning er þetta? „Þetta er að mörgu leyti mjög mikil margmiðlunarsýning. Eins og ég minntist á áðan á tónlist stóran þátt í henni og kórarnir birtast á tjöldum á sviðinu. Þetta er myndrænt samspil og því oft líkara bíómynd en leikriti að því leytinu til að hún er sjónræn tón- listarleg upplifun. Svo er auðvitað þetta klassíska leikrit í miðjunni um mjög sterk og dramtísk átök milli mannsög konu.“ Þórey segir þennan forna harmleik fialla um karl og konu og eilífðarupp- gjör þeirra tengt ástinni. „Kjami leik- ritsins er sá að þarna höfum við konu sem er búin að fórna öllu fyrir mann- inn sinn, en hann fórnar henni fyrir aðra konu sem hentar honum betur.“ Medea er byggð á þjóðsögunni um Jason og gullna reyfið. Mikið er um grótesk atriði og lýsingar í sögunni eins og þegar Medea drepur bróður sinn og brytjar niður til að bjarga Jasoni. Auk þess er Medea af guða- kyni, afabam Heliosar. Þóreyju finnst verkið minna um margt á íslendingasögurnar, því stolt- ið og hefndin eru Medeu svo mikilvæg eftir að Jason hefur smánað hana með því að yfirgefa hana. Hún er nú líka af guðakyni og er með skapsmuni í sam- ræmi við það. „Hún fremur hræðilega verknað, drepur bömin sin, til að koma fram hefndum á Jasoni." Þórey segir verkið mjög nútímalegt. „Evripídes er mjög nútímalegur, hvernig hann skrifar um þau hjónin og Medea viðrar mjög róttækar skoðanir um hlutskipti kvenna, það hefur ömgglega verið algjörlega út úr kú í Aþenu á þessum tíma, 400-500 f. Kr.“ Hún bætir við: „Þegar maður les leikritið er vel hægt að sjá ástæðumar fyrir því sem hún gerir. Það er líka hægt að horfa á þetta symbólískt því það sem hún gerir er að nota börnin gegn honum. Við sjáum út um allt hvemig skilnaðir geta orðið í sinni verstu mynd, þegar slegist er um böm- in fyrir dómstólum og börnin verða fórnarlömb. Þetta sjáum við í Medeu nema bara i ýktri og stækkaðri mynd.“ Stolt og hefnigjörn Medea hefur oft fengið þungan dóm hjá áhorfendum fyrir hefnigirni sina og stolt. Þórey bendir á að fyrir Medeu sé Jason að svíkja nokkuð sem heilagt er þegar hann vil slíta hjónabandi þeirra. „í dag gifta sig allir og sverja að standa með hvoru öðru í blíðu og stríðu þar til dauðinn aðskilur. En svo þykir engum neitt tiltökumál að rifta því. Nú er talað um að kenna þurfi sið- fræði i skólum, en einu sinni virtist þetta koma af sjálfu sér, hver sem ástæðan fyrir því er.“ Þórey bætir við að eins og með nútímafólk sem stend- ur í hjónaskilnaði séu þau Medea og Jason, „lent í einhverjum aðstæðum sem þau ná ekki að vinna sig út úr“. Sverrir Stormsker I útlandinu er páfi sem vinnur við að kyssa flugvelli og rétta úr höndinni úti á svöíum heima hjá sér. Þessi „umboðsmaður guðs á jörðinni“ þykir víst vera í meíra og betra sambandi við guð en aðrir menn en hann er greinilega ekki í sambandi, alla vega ekki jarðsam- bandi. Hérna á íslandi eigum við biskup sem er kannski eins konar rótari guðs. Hann er í sambandi. Hann er t.d. í góðu sambandi við kaupmangara og gróðabrallara. kirkjunnar Á dögunum barst velflestum verslunareigendum landsins bréf þar sem þetta stendur skrifaö: „Bisk- upsstofa, Samtök íslenskra auglýsingastofa, Sam- tök verslunarinnar (og fleiri guðleg kompaní) hafa í sameiningu ákveðið að veita viðurkenningu fyrir auglýsingu, kynningarefni eða útstillingu sem er í bestum samhljóm við boðskap jólanna. Viðurkenn- ingar verða afhentar rétt fyrir jól af biskupi íslands við sérstaka athöfn sem veröur undirbúin í sam- vinnu viö fjölmiðla. Samkeppnin verður kynnt í fjöl- miðlum er nær dregur jólaföstu og verður óskað eft- ir ábendingum frá almenningi um land allt um þær auglýsingar, kynningarefni og útstillingar sem koma til greina til viöurkenningar. Leita má til Kirkjuhúss- ins, Laugavegi 31, um upplýsingaefni varðandi J táknmál jólanna og tjáningu á boðskap þeirra." Samhljómur í orðum og gjörð- um En sætt og kristilegt hjá biskupnum okkar. Dýrt er drottins orðið en samt greinilega á viðráðanlegum kjörum því nú hefur Karli tekist að selja það. Það er ekki langt síðan hann talaði af djúpri kommúnista- legri hneykslun um auðsdýrkunina, skrumið og kaupæðið sem tröllriði þessu þjóðfélagi. Núna hins vegar hefur hann spyrt kirkjuna við kaupmanna- blokkir og hvetur allan landslýð til að hafa augun út- glennt á útstillingum verslana og eyrun galopin fýr- ir þindarlausu auglýsingagarnagauli hungraðra kaupahéðna. Varla heldur hann aö þetta framtak sitt dragi úr neysluæöinu sem hann segist vera svo á móti? Og allt á þetta að vera I „samhljóm viö boð- skapjólanna". Afsakið meðan égæli (bisgubba). Er ekki hægt að gera þá smávægilegu kröfu til bisk- ups að það sé einhver „samhljómur" í orðum hans og gjörðum? Maður er farinn að skilja af hverju hann brosir alltaf á vitlausum stöðum. Kristur fleygði skransölum og hræsnandi pokaprestum úr helgidómnum á sínum tíma og það veit ég að væri hann uppi í dag þá fengju „sumir" hraustlegt trukk í óæðri endann, semsé heilahristing. Biskup og sk(r)apatólin Ein þeirra verslana sem biskup hvatti til að taka þátt í þessu „áhugaveröa verkefni" með útstilling- um og öðru slíku var Erotica Shop viö Vitastíg en hún selur einsog kunnugt er hjálpartæki ástarlífs- ins, t.d. afar kristileg „grýlukerti" (víbratora), sér- lega jólaleg gervisköp með englahári, handhægar svipur (ekki ósvipaöar og sveinki notar á hreindýr- in), endaþarmssmurolfur (með hangikjötsilmi), upp- blásnar „skapa-nornir" og uppblásin jólalömb o.s.fr. Eigandinn hefur hingað til ekki séð ástæöu til að stilla þessum varningi sínum út í glugga en hann hlýtur að gera það úr þvi að Karl Sigurbjörns- son vill endilega finna „samhljóminn við boðskap jólanna" og „tjáningu á boðskap þeirra". Hann gæti þá kannski f leiðinni látið hátíðleg jólalög (sam)hljóma úr hátölurum búðarinnar einsog t.d. „Skyldu það vera drjólajól? / Ætli það sé jólatól?" nú eða „Heims um ból / helg eru tól." Ætli næsta skref biskups sé ekki að loka Hjálparstofnun kirkj- unnar og opna Hjálpartækjastofnun kirkjunnar? Eöa að taka að sér að veita - ekki Friðarverðlaun Nóbels - heldur Frygðarverðlaun Nóbels? Þar sem f bréfinu er óskað eftir ábendingum frá af menningi um útstillingar og þess háttar þá ætla ég að leyfa mér hér aö stinga upp á þvf viö eiganda Er- otica Shop að hann stilli upp ginu f vinkil í kristslíki og biskupsgínu fyrir aftan. Það væri táknrænt. Þetta kaupmennskuplott biskups er nefnilega ekki einungis nauðgun á jólaboðskapnum. Vér skulum biðja til Mammons með biskupi: Leið þú oss í búð- ir / og frelsa oss frá kristni / þvf að þinn er auglýs- ingamátturinn / og hræsnin / að eilífu. / Amen. 16 f Ó k U S 17. nóvember 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.