Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 r>v Fréttir Hús við Dísarland í Bolungarvík keypt upp og rifin: Varla að maður trúi þessu - segir Olgeir Hávarðarson sem sér fram á sigur í áralangri baráttu m**$L Olgeir Hávarðarson, íbúi í Dísar- landi 10 í Bolungarvík, var að von- um ánægður með þá stefnubreyt- ingu Ofanflóðasjóðs að ætla aö kaupa upp hús við Dísarland í Bol- ungarvík og gera þar varnargarð samkvæmt leið fimm eins og hann hefur barist fyrir í stað þess að fara út í ófullnægjandi vamaraðgerðir án uppkaupa. „Þarna er í raun ver- ið að fara þá leið sem bæjarstjórn felldi í sumar er hún sagöist ætla að verja byggð en ekki rífa“, sagði 01- geir í samtali við DV. „Það er nú varla að maður trúi þessu fyrr en maður sér þetta formlega. Auðvitað getum við þó ekki verið annað en ánægð ef við fáum nú úrlausn okk- ar mála.“ Eins og DV greindi frá í desember hefði verið ódýrara að kaupa upp hús á snjóflóða- hættusvæði í Bolungarvík en ráðast í þær framkvæmdir sem þá voru fyrirhugaðar við gerð vamargarða samkvæmt leið fjögur. Eftir að blaðið fór að grennslast fyrir um málið var kynningarfundur um fyrirhugaðar framkvæmdir blásinn af og nú hyggst stjórn Ofanflóðasjóðs leggja til að legu varnargarðs verði breytt og hús við Dísarland keypt upp og rifin. Væntanlega verður þá farin svokölluð leið fimm sem felst í þvi að setja upp þvergarð sem mun liggja yfir nokkur húsanna við Dís- arland, en er talinn veita mun meira öryggi en garður ofar í hlíð- inni. Magnús Jóhannesson, flSRseíSKs: I mörgum fréttum DV hefur komiö fram aö ódýrara væri aö kaupa upp hús en ráöast í framkvæmdir sem þá voru fyrirhugaöar. ráðuneytisstjóri í umhverfisráðu- neytinu og formaður stjórnar Ofan- flóöasjóðs, sagði að ekki væri búið að gefa út endanlega ákvörðun sjóðsins um uppkaup 6 húsa við Dís- arland auk eins húss sem áður var búið að taka ákvörðunum um að kaupa. Magnús segir að endanlegt mat Veðurstofu um hvort með leið fimm sé hægt að ná full- nægjandi öryggis- mörkum varðandi hús undir garðinum muni liggja fyrir á mið- vikudag í næstu viku. Ef sú leið er fær mun Ofanflóðasjóður væntanlega gefa bæjar- stjóm Bolungarvíkur vil- yrði um styrk til að fara þá leið. í fréttum DV af málinu í desem- ber er sagt að það liggi fyrir að leið fjögur sé ekki talin örugg og eftir sem áður þurfi að rýma hús við Dís- arland veröi sú leið farin. Þessi frétt er byggð á gögnum Orion ráðgjafar frá því i júni 1999 sem heitir áfanga- skýrsla 2. Þessa skýrslu hafði bæjar- stjóm Bolungarvíkur til umfjöllun- ar að þvi best er vitað og tók þá af- stöðu til þess að fara leiö fjögur. Skýrslan er unnin af ORION Ráð- gjöf ehf., NGI í Noregi og Verkfræði- skrifstofu Austurlands hf. í samtali við jarðfræðing á Veðurstofu ís- lands í desember var mönnum þar á bæ fullkunnugt um skýrsluna. í skýrslunni kemur berlega fram það mat snjóflóðasérfræðinga að leið fjögur er hagkvæmari en leið fimm þar sem minna er um upp- kaup húsa. Þar segir m.a. orðrétt; „þvergarðurirm tekur við flóðum úr Ytragili og er ætlað að stöðva smærri snjóflóðin en draga úr afli snjóflóða sem fara yfir garð- inn þannig að skriðlengdir þeirra styttist verulega. Skipuleggja þarf rýmingar neðan við báða garðana." Um leið fimm sem liggja mun yfir hús í Dísarlandi segir að þar sem þvergarðurinn er neðar i hlíðinni verði hraði snjóflóða minni sem lenda á honum. Af þessum sök- um sögðu sérfræðingar sem blm. DV ræddi við að sá kostur væri ör- uggari. Það er því alveg ljóst að frásögn DV af málinu í desember sagði allt sem segja þarf og vitneskja um áhættu vegna garðanna lá fyrir þeg- ar í júní sumarið 1999. Þá virðist líka ljóst af sömu gögnum að ná megi ásættanlegu öryggi með upp- kaupum á nokkrum húsum til við- bótar og sleppa þá að mestu eða öllu leyti við gerð snjóflóðavamargarða eins og DV hefur þegar bent á. -HKr. Ekki horft til hækkunar skólagjalda - samningurinn ekki fjárhagsleg byrði á skólanum Nýgeröur kjarasamningur kennara VÍ: DV-MYND INGÓ Skólagjöld óbreytt Ekki er fyrirhugaö aö hækka skólagiöld í Verslunarskóla íslands vegna nýgerös kjarasamnings. Mæting í gær, á fyrsta degi eftir verkfall, var mjög góö. „Það er ekki verið að horfa til þess að hækka skólagjöld til þess að standa undir þessum samningi," sagði Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskóla íslands, aðspurður um hvort grípa þyrfti tU ráðstafana til að fjármagna nýgerðan kjara- samning við kennara skólans. Þorvarður sagði að samningurinn hefði ekki bara áhrif á gjaldahlið skólans heldur teknahliðina líka því hann gengi inn í reiknilíkan mennta- málaráðuneytisins sem greiðslur allra skóla færu eftir. Hann kvaðst ekki geta gefið upp hvað samningur- inn kostaði skólann, því eingöngu hefði verið reiknað út hver nettóá- hrifin yrðu. Ekki væri hætta á að hann yrði nein fjárhagsleg byrði á skólanum, þar sem tekjur hækkuðu að sama skapi og gjöld. „Tekjumar em að vísu ekkert háð- ar því hvernig við semjum," sagði Þorvarður," en ég horfi tU þess hvemig ríkið muni væntanlega semja þegar þar að kemur. Ég reikna með því að þeirra samningar verði á svip- uðum nótum og okkar. Þó að tilfærsl- ur verði minni, þá skiptir það ekki máli. Ég held að heUdarkostnaðar- auki verði svipaður." Hinn nýi kjarasamningur felur í sér að meðaltali tvöfóldun dagvinnu- taxta kennara í VÍ á samningstíman- um sem er tU 2004. Grunnlaun sem vom að meðaltali um 135 þúsund krónur fara yflr 200 þúsund krónur. Þessi hækkun grunnlauna kemur ungum kennurum fyrst og fremst tU góða, svo og kennurum sem eru í B- deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis- ins, þar sem B-deUdin greiðir lífeyri af gmnnlaunum. Um það bU helming- ur fastráðinna kennara í Verslunar- skólanum em í B-deUd. Grunnlaun þeirra sem hafa unnið litla yfirvinnu hækka hlutfallslega meira heldur en hinna sem unnið hafa mikla yfir- vinnu. „Þama er fyrst og fremst verið að styrkja stöðu ungra og nýrra kenn- ara. Þeirra hlutur var verstur í gamla kerfinu," sagði Þorvarður. „Megin- markmið skólastjórnar er að skapa sér tækifæri tU þess að ráða unga kennara tU starfa á næstu ámm.“ Margrét Auðunsdóttir kennari i Ví, sem átti sæti í samninganefhdinni sagði, að kjarasamningurinn sjálfur hefði verið einfaldaður tU muna og mörg gömul atriði tekin út úr honum. Samninganefndin hefði vUjað leggja áherslu á að fólk gæti komist sæmi- lega af á dagvinnulaunum, en þyrfti ekki að vinna mikla yfirvinnu. Því hefði yfirvinnustuðulinn verið lækk- aður svo sem raun bar vitni og sú lækkun sett inn i grunnlaunin. -JSS Sandkorn Reynir Traustason netfang: sandkom@ff.ls Lág greindarvísitala Bifreiðastjórafé- lagið Sleipnir held- ur úti öflugu fréttabréfi þar sem félögum er kynnt það sem i efst er á baugi hverju sinni. Meðal þess sem áramótablað Sleipnis upplýsir er að félagsmaður nokkur sagði sig úr félaginu þrátt fyrir að starfa hjá fyrirtæki sem er með fuUgUdan og feitan Sleipnis- samning. Fréttabréfið greinir frá því að maðurinn vUji greinUega lægri laun og rökstyður það með eftirfarandi hætti: „Engum öðrum en bílstjórum dettur svona lagað í hug enda höfum við heyrt að sam- kvæmt sænskri könnun höfum við þá afsökun að bUstjórar mælist með lægstu greindarvísitölu allra vinnandi stétta." Óskar Stefáns- son, formaður Sleipnis, er ábyrgð- armaður fréttabréfsins ... Edda í framboði Svo sem greint I var frá í DV í gær er ákveðið að taka upp 15 ára gamlan þráð og gera nýja mynd um SteUu [ þá er síðast var í I orlofi. í myndinni fór Edda Björg- vinsdóttir á kost- um i hlutverki SteUu undir leik- stjórn ÞórhUdar Þorleifsdóttur. Myndin hefur notið fádæma vin- sælda aUar götur síðan. Stöllurnar Edda og Þórhildur hafa margt braUað síðan og meðal annars eiga þær mestan hlut í umdeUdu ára- mótaskaupi Sjónvarpsins. Ekki munu þær eiga samleið í hinni nýju mynd, SteUa í framboði, þvi ákveðið hefur að Guðný Hall- dórsdóttir leikstýri myndinni en hún er einnig höfundur handrits. Edda verður áfram í hlutverki Stellu ... Hætt við flóttavörn íbúar efstu byggða í Bolungar- vík, sem áttu yfir höfði sér fokdýran snjóflóðavarnar- garð, hafa unnið sætan sigur í bar- | áttunni við bæjar- yfirvöld. í Bolung- arvík sem víðar um landsbyggð- ina glíma stjórn- völd við mikinn fólksflótta sem ýmsum brögðum er beitt við að sporna gegn. Dýrasta fólksflótta- vöm sem um getur var i uppsigl- ingu í Bolungarvík þar sem reisa átti snjóflóðagarð að andvirði 600 til 1000 miUjónir króna í stað þess að kaupa upp efstu húsin í bænum fyrir nokkra milljónatugi og spara þannig í gerð varnarmannvirkja. íbúarnir mótmæltu harðlega í DV og nú stefnir aUt í að Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri og hans fólk verði að gefa eftir flóttavörn- ina og kaupa í staðinn nokkur hús fyrir slikk... Ávextir ástarinnar Svartar tölur Hagstofunnar um fólksflutninga landsbyggðinni e: að verða árlegar. En þrátt fyrir erf- iðleikana viða Ileynast sólargeisl- ar. Þannig hefur Akrahreppur á Norðurlandi vestra staðið af sér holskeflur fólksflóttans og þar hefur orðið nokkur íjölgun. Ástæð- una má líklegast finna í því að sveitarstjómin ákvað fyrir nokkrum árum að borga heima- mönnum fyrir að eignast börn. Verðlaunin voru 100 þúsund krónur á hvert barn. Virkt og árangursríkt ástarlíf í hreppnum mun hafa tekið mikinn kipp og ávextir ástarinnar létu ekki á sér standa. Opinberar tölur staðfesta árangurinn...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.