Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Síða 11
11 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 DV Utlönd Orð læknis mistúlkuð ítalska vikuritið Oggi segir einn af læknum Jóhannes- ar Páls páfa hafa staðfest að hann sé með Parkinsons- veiki. En læknirinn sagði i gær orð sín hafa verið mistúlk- uð. Hann gat þess þó að viss sjúkdómseinkenni hjá páfa gætu leitt hugann að Parkin- sonsveiki. Lög gegn innflytjendum Hert lög gegn innflutningi ætt- ingja nýbúa hafa verið samþykkt í Danmörku. Hafi fjölskyldan ekki nægilegt húsrými fá ættingjar ekki að koma. Samkvæmt lögunum mega í mesta lagi 2 vera í hverju her- bergi. Létust í snjóflóði í Noregi Tveir menn, sem voru við klifur i fossi í klakaböndum í Jötunheimum í Noregi, létust af völdum snjóflóðs. Þeir fundust aðfaranótt fimmtu- dags. Neitar yfirheyrslu Einn lögfræðinga Augustos Pin- ochets segir einræðisherrann fyrr- verandi munu neita að koma til yf- irheyrslu og gangast undir læknis- skoðun eins og dómari i Chile hefur fyrirskipað. Óttast kjarnavopn Rússa Pólland og önnur lönd, sem liggja að Kaliningrad, hafa áhyggjur af meintum leynilegum flutningum Rússa á kjarnavopnum þangað. McCain í stríð gegn Bush Bandaríski | repúblikaninn og öldungadeildarþing- maðurinn John McCain kveðst nú hafa þau 60 atkvæði sem þarf til að til- laga hans um bann við „mjúkum" fram- I lögum fyrirtækja, hagsmunahópa og einstaklinga verði rædd. George Bush, verðandi forseti, er andvígur tillögunni. Sharon með forskot Hægri sinnaði stjórnarandstæðing- urinn Ariel Sharon er með 28 prósentu- stiga forskot á Ehud Barak, forsætisráð- herra ísraels, sam- kvæmt niðurstöð- um fylgiskönnunar I sem birt var í gær. Um helmingur aðspurðra kveðst ætla að kjósa Sharon 6. febrúar næstkomandi. Barak hlýtur einung- is 22 prósent atkvæða. 28 prósent eru óákveðin. Færi Shimon Peres, fyrrverandi leiðtogi Verkamanna- flokksins, fram fengi hann fleiri at- kvæði en bæði Sharon og Barak, að því er könnunin sýnir. Afram haldið í skefjum Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að stjórn Georges Bush, verðandi Bandaríkjaforseta, ætti að halda áfram að sauma að Saddam Hussein íraksforseta. Varði Albright stefnu Bandarikjanna gegn Saddam. Pýska stjórnarandstaðan vill utanríkisráðherrann frá: Fischer harmar götubardagana Joschka Fischer, utanríkisráð- herra Þýskalands, baðst i gær afsök- unar á því að hafa tekið þátt í götu- óeirðum námsmanna á áttunda ára- tugnum. Fischer hefur aldrei farið leynt með þátttöku sína í róttækum hreyfmgum sem spruttu upp úr stúdentabyltunum sem kenndar eru við árið 1968. Játningar hans um að hafa tekið þátt í götubardögum og kastað grjóti ollu hins vegar miklu uppnámi í Þýskalandi. Meira að segja félagar Fischers i flokki græn- ingja eru lítt hrifnir og stjórnarand- stæðingar hafa krafist afsagnar hans. „Það voru slæm mistök að taka þátt í götubardögum við lögregl- una,“ sagði Fischer við fréttamenn í gær, eftir að hann hafði rætt við ísraelskan starfsbróður sinn, Shlomo Ben-Ami. Gúnther Beckstein frá kristilega Joschka Fischer Þýski utanríkisráöherrann ræöir viö fréttamenn um fortíð sína sem rót- tækiingur og um gamia mynd þar sem hann er aö lemja löggu. Fischer segist hafa gert þaö í sjálfsvörn. flokkinum i Bæjaralandi, íhalds- sömum systurflokki kristilegra demókrata, sagði að ímynd Þýska- lands á alþjóðavettvangi hefði skað- ast mikið. „Fischer er ekki lengur tækur sem fulltrúi Þýskalands erlendis," sagði Beckstein. Fischer hefur sjaldan greint frá róttæklingsárum sínum í smáatrið- um en í viðtali við tímaritið Stern segir hann meðal annars frá hústök- um i Frankfurt þar sem hann stund- aði námi. „Þegar átti að ryðja húsin bjugg- umst við til varnar," sagði Fischer í viðtalinu. „Við köstuðum grjóti. Gengið var í skrokk á okkur en við vörðumst líka hraustlega." Líklegt þykir að Fischer hafi kost- ið að ræða fortíð sína nú þar sem hann hefur verið kallaður til sem vitni í réttarhöldum yfir borg- arskæruliða sem hann þekkti. áfc S s iíUIsk ' Leita þungvopn- aðra strokufanga Lögregla í Texas leitar nú að sjö þungvopnuðum glæpamönnum sem struku úr fangelsi fyrir rúmum þremur vikum. Strokufangamir eru grunaðir um að hafa skotið lögreglu- þjón ellefu skotum í ráni í Dallas á aðfangadag jóla. Lögreglan hefur fengið Qölda vis- bendinga og er vongóð um að glæpa- mennirnir veröi gómaðir. Að sögn yfirvalda þykir óvenjulegt að stroku- fangarnir skuli enn halda hópinn jafhlengi eftir flóttann og raun ber vitni. Talið er víst að þeir njóti aðstoðar við að afla matar og annarra lífs- nauðsynja. Glæpamennimir stálu miklum Qölda vopna þegar þeir Qúðu og síð- an bættust 25 byssur í safnið eftir búðarrán í Dallas. Þar stálu þeir einnig skotfærum, reiðufé og vetrar- fotum. Áður höfðu þeir náð sér í skanna til að fylgjast með löggunni. Sjálfsmynd eftir Rembrandt Þetta málverk er taliö verömætast afþeim sem stoliö var í Stokkhólmi 22. desember síöastliöinn. Fimm handteknir vegna málverka- stulds í Svíþjóð Sænska lögreglan hefur handtek- ið fimm manns vegna þjófnaðarins á þremur málverkum eftir Rembrandt og Renoir frá Ríkislista- safninu í Stokkhólmi 22. desember síðastliðinn. Málverkin höfðu í gær- kvöld enn ekki fundist. Margt þykir benda til að höfuðpaurinn sé einnig ófundinn. Ránið var vel undirbúið. Það var framið rétt fyrir lokun. Á meðan einn ræningjanna, sem var vopnað- ur, hótaði verði í anddyri safnsins, stálu tveir félagar hans málverkun- um á þriðju hæð safnsins. Þjófarnir hindruðu för lögreglu með nagla- mottum og með þvi að kveikja i bíl- um. Síðan hurfu þeir í bát. Lögregl- an er vongóð um að málverkin komi í leitirnar. Sjónvarpsstjór- inn á sjúkrahús Hinn umdeildi sjónvarpsstjóri tékkneska ríkissjónvarpsins, Jiri Hodac, var í gær fluttur á sjúkra- hús. Sagt var að hann væri „alvar- lega“ veikur. Samtimis komu tvær þingnefndir saman til að reyna að leysa deiluna um ráðningu sjón- varpsstjórans. Fréttamenn sjón- varpsins hafa mótmælt ráðningu sjónvarpsstjórans. Segja þeir hana af pólitískum toga. Á miðvikudags- kvöld komu um 100 þúsund manns saman í Prag til að lýsa yfír stuðn- ingi við verkfallsaðgerðir sjónvarps- fréttamanna. Deilan magnaðist í gær þegar menningarmálaráðherra landsins, Pavel Dostal, kvaðst ætla að kæra Hodac fyrir að hafa stöðvað útsendingu þegar hann var í viðtali í ríkissjónvarpinu. Barist við skógareldana Slökkviliösmenn beita þyrlum í baráttunni viö mikla skógarelda sem nú geisa í sunnanveröri Kaliforníu. Hundruö fjölskyldna hafa þurft aö fara aö heiman og ösku hefur rignt yfir borgina San Diego í 50 kílómetra fjarlægö. Kosningarnar í Taílandi: Skattsvikari vinsæl- asti frambjóðandinn „Ég get enn tekið í gikkinn og hleypt af. Áður en ég dey ætla ég fyrst að drepa verstu fjendur okkar, fátækt, fíkniefni og spillingu.“ Með þessum orðum tilkynnti farsíma- auðkýfmgurinn Thaksin Shinawatra að hann hygðist ekki draga sig í hlé fyrir þingkosning- amar í Taílandi á morgun. Margir hafa skellt upp úr vegna yfirlýsing- arinnar því það er einmitt vegna ásakana um spillingu sem þess er kraflst að Shinawatra, sem er með forystu í öllum fylgiskönnunum, hætti við framboð. Á annan í jólum úrskurðaði stofn- un, sem berst gegn spillingu í stjómmálum, að Shinawatra hefði ekki talið fram til skatts um 20 milljarða íslenskra króna af eignum sínum. Stofnunin hvatti auðkýflng- inn til að hætta kosningabaráttunni Vinsæll auðkýflngur Thaksin Shinawatra, sem er sakaö- ur um skattsvik, er með forystu fyrir kosningarnar í Taílandi. en hann áfrýjaði til stjórnlagadóm- stóls. Úrskurðurinn kemur ekki fyrr en eftir kosningamar en búist er við Shinawatra verði bönnuð stjómmálaþátttaka næstu 5 árin. Vinningar í Jólahappdrætti Sjálfsbjargar Dregiö var 29. desember 2000 Fólksbifreið Volkswagen Bora 1.6 kr. 1.725.000 41320 Fólksbifreið Volkswagen Golf 1.6 kr. 1.635.000 45144 Ferðavinningur með Úrval Útsýn að verðmæti 150.000 681 10422 23215 27774 46564 57088 5591 11871 23427 29995 53473 57451 9355 12555 23564 30879 55080 62416 9471 16723 24403 38883 56514 63536 9775 19828 26346 42221 56836 64980 Vöruúttekt að eigin vali frá Kringlunni kr. 40.000 135 10973 21482 29210 34454 39740 48361 57229 1915 13814 22199 29927 34518 41021 48502 59433 2648 14067 22470 31113 35153 41177 51290 59936 2675 15049 22513 31722 35256 41480 53161 60068 4457 15819 22875 31855 36014 42016 53517 60538 5072 16786 24079 31937 36049 43952 53856 61000 5481 18138 24430 32112 36217 45870 53918 61260 6010 18203 26407 32424 37913 46835 54315 62508 6498 19724 27185 32656 38742 46881 55244 63078 8485 21194 27805 33533 38762 47085 55307 63109 8966 21479 28477 33628 39287 47883 56999 64425 Þökkum veittan stuðning, Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, Hátúni 12, 105 Reykjavík S: 552-9133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.