Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001
DV
Fréttir
Niðurstöður skoðanakannana DV
- til samanburöar eru niöurstööur fyrri kannana DV og úrslit þingkosninga -
18/03'99 12/01 '01 18/03'99 12/01 '01 18/03'99 12/01 '01
9 Kosningar 8/5 '99
©
Samfylkingin
i---------------------*■ i
18/03'99 12/01 '01
1 SKODANJKÖNNUN
DV
i------------------------► i
18/03'99 12/01 '01
Skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokka:
Ríkisstjórnarmeiri-
hlutinn er fallinn
- Framsókn tapar helmingi þingmanna sinna
Skipan þingsæta
SKOÐANAKÖNNUN
— samkvæmt atkvæðafjölda
30
33
31 31
25
20
15
10
5
0
26
n,
8 7 8
26
28
24
i
OV12/01 '01
i DV 23/10'00
DV 29/09 '00
f | DV 21-22/03 '00
DV 28-29/12 '99
UDV 20/10 '99
Kosningar
Samfylkingin
5 h!
Bll
2 2
17 . , 11 16 VINSTRIHREYFINGIN flrænt framboð 16
1_Ö2 12 12 13
11 11 11 4 : 1 9 6:6 1
Rlkisstjómin hefur tapað meiri-
hluta sínum samkvæmt skoðanakönn-
un DV sem gerð var meðal kjósenda
fóstudagskvöldið 12. janúar um fylgi
stjómmálaflokka. Hljóta þetta að telj-
ast merkileg tíðindi í ljósi þeirrar
sterku stöðu sem ríkisstjómin hafði í
upphafi ferils sins og í öllum skoðana-
könnunum til þessa, þó fylgi hennar
hafi vissulega verið að dala í undan-
fómum könnunum.
Góð svörun
Úrtakið i könnun DV á fóstudags-
kvöldið var 600 manna slembiúrtak sem
skipt var jafnt á milli landsbyggðar og
höfuðborgarsvæðis og einnig jafht á
milli kynja. Svömn var mjög góð, en
70,5% tóku afstöðu á móti 62,2% í síð-
ustu könnun DV. Spurt var: Hvaða lista
myndir þú kjósa ef þingkosningar færu
fram núna? Óákveðnir og þeir sem ekki
vildu svara spurningunni reyndust nú
vera 29,5% en voru 37,8% í síðustu DV-
könnun i október.
Spumingin um fylgi flokkanna var
sú fýrsta sem lögð var fyrir kjósendur í
þessari könnun til að forðast að önnur
mál sem spurt var um hefðu hugsanlega
áhrif á afstöðu fólks til flokkanna. Þá
var sérstaklega horft til að spurning um
aðgerðir rikisstjómar í framhaldi af
dómi Hæstaréttar í máli Öryrkjabanda-
lags íslands heíði ekki áhrif á afstöðu
fólks. Sem kunnugt er var niðurstaðan
af henni afgerandi andstaða kjósenda,
eins og fram kom í DV í gær.
Verulegt fylgistap stjórnar-
flokkanna
í könnuninni á fóstudaginn kom fram
verulegt fylgistap ríkisstjórnarílokka
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem
og Frjálslynda flokksins sem myndi
þurrkast út ef kosið væri nú.
Ef litið er til þeirra sem afstöðu tóku,
þá fengi Framsóknarflokkurinn 9,7% at-
kvæða, fékk 18,4% í síðustu kosningum,
Sjálfstæðisflokkur fengi 37,4%, var með
40,7% í síðustu kosningum, Frjálslyndi
flokkurinn fengi 1,4% en fékk 4,2% í síð-
ustu kosningum, Samfylkingin fengi
27% en hafði 26,8% í síðustu kosningum
og Vinstrihreyfmgin - grænt framboð
fengi 24,1% atkvæða en fékk 9,1% í
kosningunum. Fylgi annarra flokka var
óverulegt og ekki marktækt.
Samfylkingin í öðru sæti
Samkvæmt könnuninni er Samfylk-
ingin orðin annar stærsti flokkurinn á
íslandi með 27% atkvæða eða um 10% á
eftir Sjálfstæðisflokki. Hefur hún þar
skotist vel fram úr VG sem fékk 24%, en
var heldur stærri en Samfylkingin í síð-
ustu könnun. Framsóknarflokkurinn er
samkvæmt þessu ekki svipur hjá sjón,
með aðeins 9,7% á bak við sig. Þá vekur
líka athygli að fylgi Frjálslynda flokks-
ins er ekki lengur mælanlegt á höfuð-
borgarsvæðinu og 1,4% fylgi sitt sækir
hann allt út á landsbyggðina.
Þegar litið er til niðurstöðu úr heild-
arúrtakinu þá kemur í ljós að Fram-
sóknarflokkur hefur 6,8%, Sjálfstæðis-
flokkur fær 26,3%, Frjálslyndi flokkur-
inn fær 1%, Húmanistar 0,2%, Kristileg-
ir 0%, Samfylkingin fær 19%, Vinstri-1
hreyflngin - grænt framboð fær 17%,
Anarkistar fá 0,2%, óákveðnir eru 22,7%
og þeir sem ekki svara mælast vera
6,8%.
Sjálfstæðisflokkur tapar mest
Samkvæmt þessu hefur Sjáifstæðis-
flokkurinn tapað mestu eða 6,8% af fylgi
þeirra sem afstöðu tóku frá síðustu
könnun DV og 3,3% frá síðustu kosning-
um. Næstmestu tapar Framsóknarflokk-
urinn, eða 3,2% frá síðustu könnun, en
heilum 8,7% frá síðustu kosningum.
Frjálslyndir tapa líka, eða 2,4% frá síð-
ustu könnun og 2,8% frá kosningunum.
Hástökkvarinn að þessu sinni er
Samfylkingin sem bætir við sig 8,2% frá
síðustu könnun og er nú komin með
0,2% meira en hún fékk í síðustu kosn-
ingum. Vinstrihreyflngin - grænt fram-
boð bætir við sig 4% frá síðustu könn-
un, en hefur bætt við sig heilum 15% frá
síðustu alþingiskosning-
um.
Ríkistjórnin tapar
fylgi
Ríkisstjórnarflokk-
amir eru nú búnir að
tapa meirihluta sínum
og hafa aðeins 47,1% at-
kvæða á bak við sig,
samanborið við 59,1% í
kosningunum. Samfylk-
ing og VG væru því með
hreinan meirihluta, eða
51% atkvæða. Þróun á
fylgi flokkanna á þingi
frá kosningunum má sjá
á meðfylgjandi grafi.
Skipting þingsæta
Ef þingsætum yrði
útdeilt miðað við þá sem
tóku afstöðu í skoðana-
könnun DV sl. fóstudag,
þá fengi Sjálfstæðis-
flokkurinn 24 þingmenn
en mældist með 28 þing-
menn í DV-könnun 24.
október á síðasta ári. Samfylkingin
fengi 17 þingmenn, flmm þingmönnum
meira en i könnuninni í október og
sama þingmannafjölda og hún fékk í
kosningunum. Vinstrihreyflngin -
grænt framboð fengi 16 þingmenn, þrem
þingmönnum meira en í siðustu könn-
un og 10 þingmönnum meira en í kosn-
ingunum. Framsóknarflokkurinn fengi
nú ekki nema 6 þingmenn og hefur tap-
að einum frá síðustu könnun. Hefur
flokkurinn því tapað helmingi þing-
manna sinna, eða 6 frá síðustu kosning-
um. Frjálslyndi flokkurinn þurrkast út
af þingi miðað við könnunina og myndi
tapa báðum þingmönnum sínum ef kos-
ið væri nú.
Framsókn sterkari
úti á landi
Það þarf ekki að
koma á óvart að fylgi
Framsóknarflokksins
mælist eins og áður
mest úti á landsbyggð-
inni. Er það í raun eini
flokkurinn fyrir utan
Frjálslynda flokkinn
sem sækir meirihluta af
sínum styrk út á lands-
byggðina. Sjálfstæðis-
flokkurinn sækir aftur á
móti nokkru meira hlut-
fall af fylgi sínu á höfuð-
borgarsvæðið og það
gera líka Samfylkingin
og Vinstrihreyfmgin -
grænt framboð. -HKr.
Fylgi flokka
- miöað viö þá sem tóku afstööu -
50% KAt*
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
n
P, 4( M ]
17,4
ll!
DV12/01 '01
DV 23/10 'OO
DV 29/09 'OO
í ! DV 21-22/03 'OO
DV 28-29/12 '99
§ j DV 20/10'99
I ! Kosningar
SKOÐANAKÖNNUN
DVI
[4.Í 4,7 2.0:2,» M3.íu
©
Samfylkingin
N
17117.7 17,7
27,0
241
•'“^19,42111
14»
Samningarnir í rannsókn
Endurskoðunar-
nefnd aðila vinnu-
markaðarins hefur
verið falið það verk-
efni að fara ofan í
saumana á kjara-
samningi ríkisins við
framhaldsskólakenn-
ara. Tilgangurinn er
að kanna hvort ríkið hafl farið út fyr-
ir þann launaramma sem markaður
var í samningum Flóabandalagsins og
Samtaka atvinnulífsins sl. vor. Dagur
greinir frá.
DeCODE-bréf úr læsingu
í dag verður fyrsti leyfllegi við-
skiptadagur með nokkurt magn hluta-
bréfa í DeCODE, bréfa sem keypt voru
áður en fyrirtækið fór á Nasdaq-hluta-
bréfamarkaðinn.
Dýr lagfæring
Lagfæringar á hafrannsóknaskipinu
Áma Friðrikssyni hafa kostað rúmlega
40 milljónir króna. Ekki er búið að gera
allar þær breytingar sem gera þarf á
skipinu og er áætlað að áframhaldandi
breytingar kosti 10 til 15 milljónir
króna. í fréttum RÚV segir að kostnað-
urinn sé rösklega 40 milljónum meiri en
upphaflega var gert ráð fyrir.
Eldislax drapst í nótt
Stór hluti af eldislaxi í laxeldisstöð-
inni Rifósi í Kelduhverfi við ÖxarQörð
drapst i nótt. Ekki er hægt að tilgreina
hve mikið af laxinum drapst en það gæti
verið allt að helmingur af þeim 450 tonn-
um sem eru að jafnaði í sjókvíunum.
Forkastanlegt
Að mati Páls Agn-
ars Pálssonar, fyrr-
| um yfirdýralæknis,
var það forkastan-
legt að heimila inn-
flutning á nautakjöti
frá írlandi, líkt og
landbúnaðarráð-
herra gerði fyrir jól
eftir umsögn yfirdýralæknis. „Við
hefðum aldrei gert það í gamla daga,“
segir Páll sem var yflrdýralæknir í
nærri hálfa öld og lét af störfum árið
1989. Mbl. greinir frá.
Nýtt starfsgreinafélag
Um helgina var stofnað nýtt stéttar-
félag, AFL, starfsgreinafélag Austur-
lands, með sameiningu 6 stéttarfélaga
frá Fáskrúðsfirði til Vopnafjarðar. Jón
Ingi Kristjánsson frá Neskaupstað er
nýkjörinn formaður Afls.
Ráðherra óskar álitsgerðar
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra hefur óskað eftir álitsgerð Eiriks
Tómassonar lagaprófessors á innflutn-
ingi á nautalundum frá írlandi sem yf-
irdýralæknir heimilaði Nóatúni fyrir
síðustu jól.
Tilboði í Valhöll tekið
Jón Ragnarsson,
eigandi Valhallar á
Þingvöllum, hefur
tekið tilboði Howards
Kriigers um kaup á
hótelinu en fyrirvari
var settur við nokkur
atriði sem Jón sagði í
samtali við RÚV að
erfltt væri að fá svör við hjá yfirvöldum.
Haldið til haga
I frétt af bruna í Hvalnesi í Lóni um
síðustu helgi var sagt að meintur
brennuvargur væri skyldur fyrrum
ábúendum í Hvalnesi. Skyldmenni hans
bjuggu þar um og fyrir 1950 og er meint-
ur brennuvargur því ekki skyldur síð-
ustu ábúendum i Hvalnesi.
Þá var sagt að bóndinn á Reyðará,
þar sem meintur brennuvargur faldi sig
þegar hans var leitað, heiti Bjöm. Hann
heitir Gunnai’.
Þá skal þess getið að í stuttfrétt í gær,
Smyril Line bjargað, átti að vera mynd
af Jónasi Hallgrímssyni, stjómarmanni
í Smyril Line, en ekki af Sturlu Böðv-
arssyni samgönguráðherra. -HKr.