Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001
DV
Utlönd
Hörð átök fram undan í Washi^Lgton:
Barist gegn raðherra-
efnum nýja forsetans
Baráttan gegn umdeildustu ráð-
herraefnum Georges W. Bush, verð-
andi forseta Bandaríkjanna, nær há-
punkti sínum í vikunni þegar dóms-
mála- og innanríkisráðherraefni
hans verða yfirheyrð í öldungadeild
Bandaríkjaþings.
Hagsmunahópar hafa safnað liði
tO að reyna að koma í veg fyrir að
John Ashcroft verði næsti dómsmála-
ráðherra Bandaríkjanna og að Gale
Norton verði næsti innanríkisráð-
herra.
Yfirheyrslur yfir erkiihaldsmann-
inum Ashcroft hefjast í dag. Hann
mun væntanlega þurfa að svara
spurningum þingmanna um hvort
hann myndi framfylgja mörgum
lögum og reglum sem hann hefur for-
dæmt opinberlega, allt frá lögum um
fóstureyðingar tO ákvæða um eftirlit
með skotvopnaeign almennings.
Þótt Ashcroft hafi í einkasamtöl-
um við þingmenn reynt að fuOvissa
þá um að hann myndi sjá tO þess að
George W. Bush
Margir demókratar telja að það hafi
ekki verið skynsamlegt af verðandi
forseta Bandaríkjanna að tilnefna
John Ashcroft í ráðherraembætti.
Stytta úr kókaíni og gifsi
Búigarskur tollvörður sýnir fréttamönnum eina af mörgum styttum úr gifsi og
kókaíni sem lagt var hald á á flugvellinum í Sofíu um helgina. Stytturnar,
sem vógu samtals 18 kíló, voru í flugvél á leið frá Ekvador til Albaníu.
Landbúnaðarráðherra Noregs:
Útlent kjöt
er öruggara
„Það er öruggara að borða innflutt
kjöt en norskt. ÖU innflutt dýr eru
rannsökuð áður en þeim er slátrað í
Noregi. Þannig er því ekki varið með
norsk dýr. Það þýðir að útlent kjöt er
örugglega ekki með kúariðusmit."
Þetta sagði landbúnaðar'ráðherra
Noregs, Bjarne Hákon Hanssen í við-
tali við norska sjónvarpið í gær.
Formaður atvinnumálanefndar
þingsins, miðflokksmaðurinn Morten
Lund, segir þessi ummæli ráðherrans
ótrúleg. „Ég er i sjokki. Það er ekki
rétt að auglýsa erlent kjöt núna,“
sagði Lund.
Miðflokkurinn í Noregi hefur lagt
til að bannað verði að flytja inn kjöt.
Þvi er landbúnaðarráðherrann mót-
faUinn.
Viðamiklar rannsóknir aíhjúpa
stöðugt ný kúariðutflfeUi í Evrópu og
sala á kjöti hefur hrunið í takt við
traust neytenda á yfirvöldum. Frá þvi
í október i fyrra, þegar í ljós kom að
kjöt, sem mögulega var smitað, hafði
verið tO sölu í frönskum stórmörkuð-
um, hefur sala á nautakjöti í Evrópu-
sambandslöndunum minnkað um 27
prósent. Verð hefur lækkað um 26,2
prósent á sama tíma.
Það líður varla dagur án þess að
kúariðutilfeUi uppgötvist í Þýska-
landi. I gær höfðu 14 tilfeUi verið stað-
fest. Gert er ráð fyrir að kúariðutilfeU-
in í Þýskalandi verði aUt að 500 á
þessu ári. Neytendur eru auk þess
orðnir þreyttir á mUljarðastuðningi
til matvælaframleiðenda sem ekki
geta tryggt að vara þeirra sé örugg.
lögum yrði framfylgt, jafnvel þeim
sem hann er andvígur, eru engu að
síður margir fullir efasemda.
Umhverfisverndarsinnar hófu um
helgina baráttu sína gegn Gale
Norton. Þeir segja að það yrði mikið
slys settist hún í stól innanríkisráð-
herra.
Norton vill að hvert og eitt ríki fái
að ráða eigin skipan í umhverflsmál-
um og þá er hún hlynnt því að stór-
fyrirtækin ákveði sjálf hvernig þau
komi tfl með að leysa mengunar-
vanda sinn. Rétt eins og Bush er
Norton fylgjandi gas- og olíuvinnslu í
auðnum Alaska.
Yfirheyrslurnar yflr Norton hefj-
ast á fimmtudag.
Bretar vöruðu
við úrani 1991
Kjarnorkueftirlitsstofnun bresku
stjórnarinnar varaði þegar árið 1991
við afleiðingum notkunar skerts úr-
ans í sprengikúlum í Kúveitstrið-
inu. Samkvæmt frásögn breska
blaðsins Times sagði í leynilegri
skýrslu kjarnorkueftirlitsstofnunar-
innar að möguleg geislun stafaði af
sprengikúlunum sem eftir urðu í
Kúveit. í skýrslunni er bent á að
nauðsynlegt sé að hirða úranvopnin
vegna hættunnar sem af þeim staf-
aði.
Talsmaður NATO sagði í gær að
fjöldi vísindamanna sæi engin
tengsl á milli hvítblæðis og skerts
úrans. Læknar, sem starfa hjá
NATO, funduðu í gær um málið.
Borgarstjóiinn í Reykjavík
Auglýsing um fasteignagjöld í
Reykjavík árið 2001.
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 2001 verða sendir út næstu daga, ásamt
gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjalda, og umsóknareyðublaði vegna greiðslu gjalda
með boðgreiðslum á greiðslukortum. Gjöldin eru innheimt af Tollstjóranum í Reykjavík, en
einnig er hægt að greiða gíróseðlana í sparisjóðum, bönkum eða á pósthúsum.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu,
sorphirðugjald.
holræsagjald, vatnsgjald og
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi
á liðnu ári, fá einnig að óbreyttu lækkun árið 2001, að teknu tilliti til tekju- og
eignaviðmiðunar.
Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl lífeyrisþega eftir framlagningu skattskrár Reykjavíkur.
Úrskurðar hún endanlega um breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi hjá þeim er
eiga rétt á þeim samkvæmt þeim reglum er borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr.
4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, ásamt 87. gr. vatnalaga nr. 15/1923, sbr. einnig lög
nr. 137/1995. Verður viðkomandi tiikynnt um breytingar ef þær verða.
Á fundi borgarráðs þann 19. desember s.l. var samþykkt að tekjumörk vegna lækkunar
fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2001 hækki um 8% á milli ára og verði sem hér
segir: (Miðað er við tekjur liðins árs).
100% lækkun:
Einstaklingar með tekjur allt að kr. 1.005.000-
Fljón með tekjur allt að kr. 1.405.000-
80% lækkun:
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.005.000- til kr. 1.110.000-
Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.405.000- til kr. 1.530.000-
50% lækkun:
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.110.000- til kr. 1.220.000-
Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.530.000- til kr. 1.730.000-
Til að flýta fyrir afgreiðslu geta þeir sem ekki fengu lækkun á sl. ári sent framtalsnefnd
umsókn um lækkun, ásamt afriti af skattframtali 2001.
Fulltrúar framtalsnefndar eru til viðtals alla miðvikudaga milli kl. 16.00 og 17.00 í Ráðhúsi
Reykjavíkur, frá 7. febrúar til 25. apríl n.k. Á sama tímabili verða upplýsingar veittar í síma
552-8050, alla þriðjudaga kl. 10.00 til 12.00.
Gatnamálastjóri, Skúlatúni 2, veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á
sorphirðugjaldi í síma 567-9600, og í bréfasíma 567-9605.
Orkuveita Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 34, veitir þær upplýsingar sem snerta álagningu
og breytingar á vatnsgjaldi í síma 585-6000, og bréfasíma 567-2119.
Fjármáladeild, Ráðhúsi Reykjavíkur, gefur upplýsingar um álagningu annarra
fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 563-2062, og bréfasíma 563-2033.
Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 10.000- fyrir árið 2001 eru: 1. febrúar, 1. mars,
1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir kr. 10.000-, og gjalda þeirra
gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna í maí, er 1. maí.
Reykjavík, 16. janúar 2001
Borgarstjórinn í Reykjavík