Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 Fréttir J3V Stíflan í Hvítá brostin: Enn vatn yfir stóru svæði Ísstíflan í Hvítá í Árnessýslu fór að gefa sig upp úr hádegi í gær. Fljótlega eftir að stiflan fór að bresta sjatnaði vatnsrennslið sem hafði hrellt íbúa Hraungerðishrepps síðan á sunnudagsmorguninn. Enn flæddi þó yfir vegi í gærkvöld en mun minna en áður. Skemmdir af völdum jaka flóðsins eru enn ekki komnar í ljós en þegar er sýnt að miklar skemmdir hafa orðið á girðingum og mjög líklegt er að víða séu tún stór- skemmd eftir jakaburð. Að sögn lög- reglu á Selfossi í gær hafði flætt inn í eitt hús, húsið á Litlu-Reykjum, ekki var vitað til að flóðið hefði borist inn í fleiri íbúðarhús. Rafmagn fór af í Hraungerðishreppi í gær en því var kippt í lag seinni partinn. Líklegt er að ís hafi slegist í rafmagnsstaur og valdið því að einangrari sem hélt lín- unni uppi brotnaði. Vatn er þó enn yfir stóru svæði, tugum ferkílómetra í Hraungerðishreppi. Klakastíflan Stíflan w'ð Kiöjaberg gaf sig. Flóð inn í hús á Litlu-Reykjum - staðið í austri þar til dælan kom „Þaö byijaði að flæða hér inn milli fjögur og funm í gærdag, þá kom flóð- bylgja hér niður eftir að áin stífLaðist aftur upp við Kiðjaberg. Við héldum að þetta væri yfirstaðið um klukkan þrjú í gær því þá hafði rennslið minnkað talsvert á túnunum hér en þá stíflaðist aftur. Við sáum það flóð koma hér nið- ur eftir túninu, með jakaburði og hamagangi," sagði Ragnheiður Jóns- dóttir, bóndi á Litlu-Reykjum, við DV í gær. Á Litu-Reykjum er búið að vera í nógu að snúast frá í gær við að reyna að bjarga innbúi og húsnæðinu á neðri hæð hússins. Þar var byijað að ausa út vatninu með fótum fram undir níu en þá komust menn þangað með dælu til að koma vatninu út. Enn er vatn í kjallaranum á húsinu hjá Ragnheiði en eftir að flóðið tók að sjatna lítur dæmið betur út. Ragnheiður segir að ljóst sé að töluvert tjón hafi orðið vegna flóðsins, bólgnar hurðir og skemmd húsgögn og gólfefni. Viðlagatrygging komi þó inn í þegar svona ástæður séu fyrir tjónunum. -NH Vatn við rúmið Edda Þorvaldsdóttir í stígvélum á rúmstokki systur sinnar á Litlu-Reykjum Rutt með veghefli Bæirnir voru innilokaöir vegna flóösins. Hér ryöur veghefill veginn aö Stóru-Reykjum. Róð á Suöurlandsvegi Jóna og Guöjón frá Uppsölum þar sem flæddi yfir veginn aö Stóra-Ármóti. Bíll í jakahrönn Þaö veitti ekki af öflugum bílum til þess aö komast eftir Oddgeirshólavegi. Sandkorn Reynir Traustason netfang: sandkorn@ff.is Jón Baldvin á spítala Jón Jaldvin Jannibals- son, sendi- herra ís- lands í Was- hington, á erfiða tíma þessa dag- ana. Hann varlagður inn á sjúkrahús. Bakið gaf sig en eigin- kona hans til fjölda ára, Bryndis Schram, ku sitja við beð bónda síns. Sá orðrómur er hávær að hjón- in sæki það fast að færa sig um set og taka við nýju sendiráði íslands í Kína. Verði af þeim vistaskiptum er hjónunum talið vissara að nota bandarisku heilbrigðisþjónustuna til að lagfæra það sem í ólagi er... Þáttur ársins Svo sem lýðum er kunnugt sló Egill Helgason í gegn þegar Edduverð- launin voru veitt. Silfur Eg- ils var val- ið þáttur ársins. Að- dáendur Egils hafa orðið fyrir nokkrum vonbrigðum því goðið hefur ekki sést á skjánum síðan á gamlársdag og grimmt hefur verið endursýnt úr gömlum þáttum. Væntanlega er þátturinn það góður að hann þoli nokkrar endursýning- ar. Þess er beðið með eftirvænt- ingu hvað verði endursýnt á sunnudaginn... Einkaframtak Vestnor- ræna menn- ingarhúsið í Hafnar- firði er rek- ið af stæl i samstarfi við Fjöru- krána og mikil dag- skrá fram undan. Bene- dikta Thorsteinsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra grænlensku landstjómarinnar og viðskipta- fræðinemi við Háskólann, stjómar menningarhúsinu með stæl. Fær- eyskir dagar verða á næstunni í þrjár vikur, frá 18. janúar til 5. febrúar, og síðan grænlenskir dag- ar frá 15. mars til 5. apríl. Það vek- ur athygli að einkaframtakið blómstrar í rekstrinum en talið er að Hafnarfjarðarbær muni á endan- um styrkja framtakið... Dynkurinn Spurn- ingakeppni | framhalds- skólanna, | Gettu bet- ur, fór af I stað með f miklum lát- um á fostu- [ dagskvöld- ið þegar I Logi Berg- I mann Eiðs- son, stjómandi þáttanna, og áhöfn hans hófu leikinn með keppni Verslunarskólans og Menntaskól- ans við Hamrahlið. Þetta var eld- vígsla dómarans Ármanns Jak- obssonar sem þótti skila sinu vel. Úrslitin urðu heldur betur óvænt því lið Verslunarskólans felldi lið Menntaskólans i Hamrahlíö úr keppni en síðustu ár hafa MH-ing- ar keppt til úrslita við Menntaskól- ann í Reykjavík. Dynkurinn var því ekki lítill þegar stórliðið féll...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.