Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 DV 5 Fréttir ^ Hæstiréttur telur að rök lögreglu fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi skorti: Itölskum kókaínsmygl- ara sleppt úr varðhaldi - kærufrestur samsekra ítalskra kvenna runninn út - þær verða að sitja áfram inni Hæstiréttur hefur með úrskurði látið sleppa ítölskum karlmanni sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá 18. október fyrir að hafa skipulagt inn- flutning á kókaíni, e-töfludufti og fljótandi LSD hingað tO lands frá Spáni. Héraðsdómur hafði fallist á kröfu fíkniefnalögregunnar um að framlengja gæsluvarðhald mannsins en hann kærði úrskurðinn tO Hæsta- réttar sem sneri niðurstöðu héraðs- dómarans við. Konurnar kærðu ekki sína gæslu- varðhaldsúrskurði tO Hæstaréttar. Frestur tO að kæra þá rann út á laugardag þannig að konumar verða að láta sér lynda að sitja áfram í gæsluvarðhaldi sem héraðsdómur hefur úrskurðað tO 20. febrúar. Símahleranir og íslenskir vitorðsmenn Þegar hinir ítölsku þremenningar komu tO íslands frá Spáni í október voru þeir handteknir. I ljós kom að konumar vom með 340 grömm af kókaíni innvortis en maðurinn var með tæp 50 grömm af e-töfludufti og nokkra miOOítra af fljótandi LSD innvortis - efni sem gjaman eru drýgð tO að ná út talsverðu magni af slikum fíkniefnum. ítalinn viðurkenndi að hafa staðið að innflutningnum en vildi ekki greina frá neinum sem hefði átt að taka við fíkniefhunum hér á landi. Lögreglan hafði hins vegar ákveðnar grunsemdir í því sambandi sem rök- studdar voru með símahlerunum. Einn aðOi hefur síðan verið handtek- inn og úrskurðaður í gæsluvarðald vegna aðOdar hans að málinu. Sat í 10 vikur í einangrun Lögreglan hefur haldið því fram að nauðsynlegt hafi verið að halda ítöl- unum öOum í gæsluvarðhaldi í því skyni að þeir torveldi ekki rannsókn Kúariða - tilfelli greind í Evrópu frá 1987 til 2000 St 180, Hoilaad iLiíii Sviss lta&_ Heimiid: Jylland Posten > Hörð viðbrögð gegn kúariðu í Evrópulöndunum: Stórfelldur niðurskurður - 75.000 nautgripum slátrað á írlandi StórfeUdur niðurskurður á naut- gripum hefst i löndum Evrópusam- bandsins á næstu vikum. AUt að tveimur miUjónum nautgripa verð- ur fargað og skrokkunum eytt. Flestum nautgipunum verður slátr- að á írlandi eða 750.000 AUir naut- gripir sem eru 30 mánaða eða eldri og sem ekki hafa verið rannsakaðir með tiUiti til kúariðu og samþykkt- ir til neyslu verða skornir niður í þeirri herferð sem nú er hafin og kemur tU meö að standa i meira en eitt ár, að því er JyUandsposten greinir frá. Markmiðið með þessari nýju tO- skipan um rannsókn eða slátrun er að útrýma öUu kúariðusýktu naut- gripakjöti af matvælamarkaði. Þar með takist að endurvekja það traust neytenda og erlendra söluaðUa á írsku nautakjöti sem hefur beðið mikinn hnekki á síðustu mánuðum vegna kúariðufársins sem riöið hef- ur yfir Evrópu. „Niðurskurðurinn á að tryggja varanlega endurreisn þessa mikU- væga hluta efnahags landsins," er haft eftir írska landbúnaðarráðherr- anum, Joe Walsh. Meira en hundr- að þúsund írskir bændur stunda nautgriparækt tU útflutnings. írski stofninn telur um 7,5 miUjónir naut- gripa. Á síðasta ári fundust 149 kúariðutilfeUi á írlandi, þar af 20 í desember sl. Þeim hefur farið fjölg- andi á síðari árum og eru þau nú orðin samtals 596 í eldri gripum. Það er mesti Qöldi sem greinst hef- ur utan Bretlands. Samkvæmt áætluninni á að slátra 25.000 nautgripum á viku í 18 slátur- húsum. Þessi framkvæmd verður dýr, því bændur fá um 25.000 krón- ur í bætur fyrir hvem nautgrip sem slátrað verður. Brenna verður öUu kjöti og beinamjöli tO að fuUvissa sé fyrir því að hinar banvænu bakteri- ur, sem ráðast á heUa nautgripa og manna, hafi verið gerðar óskaðleg- ar. -JSS málsins - ef ítölunum yrði sleppt gætu þeir hæglega reynt að hafa áhrif á vitni og samseka. Rannsóknin beinist nú að- aUega að ætluðum viðtak- endum fíkniefnanna. Einnig telur lögregla að ef hinir erlendu ríkisborgar- ar gengju lausir gætu þeir reynt að koma sér undan frekari rannsókn og jafn- vel komist úr landi. Þessi rök feUst Hæsti- réttur ekki á og bendir á að ítalinn, sem kærði úr- skurð sinn, hafi nú setið í gæsluvarðhaldi í 12 vikur, þar af 10 vikur í einangr- un. Rétturinn tekur fram að skýrsla hafi aðeins ver- ið tekin þrisvar af mann- inum á þessu tímabOi, síð- ast þann 20. nóvember. Hæstiréttur bendir á að engin skýring hafi komið fram á því hvers vegna lögreglan hafi ekki miklu fyrr fylgt eftir grunsemd- um sínum um að fleiri kynnu að vera samsekir hér á landi. Með hliðsjón af þessu var kröfu lögregl- unnar um að vista Italann áfram í gæsluvarðhaldi hafnað. Þess i stað er ákveöið að hann skuli sæta far- banni tO 20. febrúar. -Ótt DV-MVND HILMAR ÞÓR Öryrkjamáli frestaö Frumvarp ríkisstjórnarinnar, í kjölfar á dómi Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalags íslands gegn Tryggingastofnun, verður ekki á dagskrá Alþingis fyrr en á miðvikudag. Þingmenn stjórnarandstööunnar uröu ekki viö ósk um afbrigöi frá þingsköpum þannig aö taka mætti frumvarpiö á dagskrá strax en ekki að 2 sólarhringum liönum eins og þingsköp gera ráö fyr- ir. Davíö Oddsson forsætisráöherra dró þá óskina um afbrigöi til baka. Hér sjást Garöar Sverrisson, formaöur ÖBÍ, og Margrét Frímannsdóttir alþingismaöur taka stööuna. UTILIF GLÆSIBÆ Sími 545 1500 • www.utilif.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.